Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ- VIDSinPn/AlVIWNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
Ættarveldi
Fall Hunt-veldisins
HUNT Qölskyldan í Dallas, Tex-
as, sem áður var eitt ríkasta og
valdamesta ættarveldi Banda-
ríkjanna, hefur lengi borið öll
einkenni sögupersóna svo-
nefhdra „sápu-óperu“ þátta þar-
lends sjónvarps, nema hvað saga
ættarinnar er jafiivel enn yfir-
gengilegri en atburðarás sjón-
varpsþáttanna.
í ættarsögunni er að finna fjöl-
kvæni, blóðug innbyrðis átök, ótrú-
leg auðæfi, pólitískar öfgar, trúar-
kreddur og loks fall ættarveldisins.
í ágúst kippti alríkisdómstóll í
New York endanlega fótunum und-
an Hunt-veldinu. Kviðdómurinn úr-
skurðaði að þrír þekktustu Hunt
bræðumir — synir þjóðsagnaper-
sónunnar og olíufurstans H. L.
Hunt í Texas úr fyrsta hjónabandi
hans — hefðu stundað sviksamleg
viðskipti og brotið lög um verzlun
og mjmdun auðhringa.
Eftir að hafa kynnt sér sönnunar-
gögn sem safnað hefur verið víða
um Bandaríkin og í helztu borgum
Evrópu komst kviðdómurinn að
þeirri niðurstöðu að bræðumir
hefðu á árunum 1979 og 1980 tek-
ið höndum saman við þekkta kaupa-
héðna tengda konungsfjölskyldu
Saudi Arabíu um að kaupa gífurleg-
ar birgðir silfurs til að hækka
heimsmarkaðsverðið. Þá úrskurðaði
kviðdómurinn að Mahmoud
Fustock, mágur krónsprins Saudi
Arabíu, og fyrirtækið Intemational
Metals Investment Co. á Bermuda
hafi einnig átt aðild að þessu sam-
særi. Fyrirtæki þetta verslaði með
silfur og er sameign bræðranna
Nelsons Bunker Hunt og Williams
Herberts Hunt og tveggja arabískra
fursta.
Nelson Bunker Hunt, sem á sjö-
unda áratugnum var talinn auðug-
asti maður heims með eignir upp á
16 milljarða dollara (nærri 770
milljarða króna á núgengi), og Will-
iam Herbert Hunt voru einni sekir
fundnir um brot á lögum um
Qárglæfrastarfsemi, en þriðji bróð-
irinn, Lamar Hunt, sem meðal ann-
ars á bandaríska fótboltaliðið Kans-
as City Chiefs, var ekki kærður
fyrir það brot.
Fyrsti dómur af mörgum
Með úrskurði sínum hefur kvið-
dómurinn í fyrsta sinn staðfest
ábyrgð Hunt bræðranna á þeirn
sérstæða atburði þegar verð á únsu
(31,103 grömmum) silfurs rauk upj
úr 9 dollurum í 50 dollara og hrap-
aði svo aftur niður á örfáum mánuð-
um. Þetta er aðeins fyrsti úrskurð-
urinn í fjölda dómsmála sem nú
bíða afgreiðslu, en þar fara silfur-
kaupmenn fram á miklar skaðabæt-
ur frá Hunt-bræðrum.
Bræðumir hafa þegar verið
dæmdir til að greiða 130 milljóna
dollara skaðabætur til Minpeco, sem
er markaðsstofnun yfirvalda í Perú,
og verða þær bætur notaðar sem
fordæmi við ákvörðun skaðabóta til
annarra aðila.
Herbert Deutsch frá lögmanna-
stofu Deutsch & Frey í New York
flytur tvö skaðabótamál 17.000 silf-
urkaupmanna sem urðu fyrir mikl-
um skakkaföllum í viðskiptum á
árunum 1979 og 1980. Samtals er
þar farið fram á 500 milljónir doll-
ara í skaðabætur. Reiknað er með
að málin verði tekin fyrir nú í
haust, og eru þar tilnefndir fleiri
aðilar sem sakaðir eru um að hafa
fjármagnað silfurkaup Hunt-
bræðra og hagnazt á þeim.
Harry Hurt III, höfundur bókar-
innar „Texas Rich“ sem segir sögu
Hunt ættarinnar, telur að úrskurð-
urinn f New York leiði til fjölda
nýrra skaðabótamála gegn Hunt
bræðrunum, sem áætlað er að hafi
tapað rúmlega.tveimur milljörðum
dollara á silfurævintýrinu. Segir
hann að þessi málaferli verði bræðr-
unum dýr og geti reynzt banabiti
ættarveldisins.
Hafa tapað öllu
í dag er áætlað að eignir Hunt
bræðranna nemi um einum milljarði
dollara þegar allt er talið. Um þetta
segir Harry Hurt III: „Pabbinn gaf
aðalerfíngjum sínum (bömum H.
L. Hunt með fyrstu þremur eigin-
konum sínum - hann var kvæntum
tveimur fyrstu konunum samtímis)
megnið af eigum sínum og bræð-
umir voru alltaf ákveðnir í að sýna
að þeir væm ekki aðeins erfingjar
auðs heldur einnig snjallir kaup-
sýslumenn. Það er hámark kald-
hæðninnar að þeir töpuðu ekki að-
eins því sem þeim hafði sjálfum
áskotnazt, heldur einnig megninu
af arfinum.
Heimild: Financial Times.
ÆTTARVELDI - Saga Hunt flölskyldunnar er enn yfirgengi-
legri en sögur ættarveldanna í sjónvarpinu. Hunt-bræðumir (frá;
vinstri) William Herbert, Lamar og Nelson Bunker. Línuritið sýnirl
hvemg silfurverðið rauk upp þegar Hunt- bræður Qárfestu í miklu
magni silfurs.
Silfur
$ miðað við Troy únsu (London)
50
JanlOSO
Atburðarásin
Nóvember 1974: H. L. Hunt, stofn-
andi Huntveldisins deyr, 85 ára að
aldri.
Desember 1979: Hunt fjölskyldan
og arabískir samstarfsmenn safna
til sfn nærri 200 milljón únsum
(rúml. 62 þúsund tonn) af silfrí að
. matsverðium6,6milljarðardollara.
Janúar 1980: Silfurverð nær hám-
arki, rétt rúmlega 50 dollarar á
únsu.
Marz 1980: Silfurverð snarfellur.
Apríl 1980: Hunt-bræður segjast
hafa tapað 1 milljarði dollara á silf-
urviðskiptunum.
Marz 1985: Hunt Intemational
Resources tekið til gjaldþrotaskipta.
Ágúst 1986: Placid Oil, olíufélag
Hunt-bræðra, lýst gjaldþrota.
1986-1987: Fleiri fjölskyldufyrir-
tæki fá greiðslustöðvun vegna yfir-
vofandi gjaldþrota.
Júlí 1988: Hunt-bræður afsala sér
50% hlut í orkufyrirtæki sínu,
Penrod Drilling, til ýmissa banka
sem þeir skulda fé.
Ágúst 1988: Hunt-bræður dæmdir
til að greiða Minpeco skaðabætur.
MOBlRA
TALKMAN
sINSK VIKA
-29 OKTÓBER1988
21
AFSLATTUR
í tilefni Finnskrarviku á íslandi, dagana21 .-29.
október bjóðum við 15% staðgreiðsluafslátt af
Mobira Talkman og Mobira Cityman farsímum.
Þessa fáu daga er því kjörið tækifæri til að kaupa
finnska gaeðavöru átilboðsverði!
Mobiia
Gtyman
„ t
Háteeknihf
Armúla 26, simar: 91 -31500 - 36700