Morgunblaðið - 25.10.1988, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPn/WVINHULlr ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
37
herrafataverslunin Valentino. Eigendur verslunarinnar eru Reynir Kristinsson og Jóna Lárusdóttir sem einn-
ig reka tískusýningarsamtökin, Módel ’79. Verslunin býður upp á herrafatnað frá Ítalíu, Frakklandi, Þýska-
landi og Englandi. Arkitektar voru Bjöm Skaptason og Hildur Bjamadóttir. Á myndinni er Reynir Kristinsson
í versluninni.
Fyrirtæki
Framleiðniátak
gengur að óskum
FRAMLEIÐNIÁTAK það sem
Iðntæknisto&iun íslands stendur
að í samvinnu við Iðnaðarráðu-
neytið, gengur að óskum að sögn
Páls Kr. Pálssonar forstjóra Iðn-
tæknistofhunar. Nú nýverið var
hér á landi í tengslum við átakið
Mark Hordes varaforseti banda-
rísku framleiðnistoftiunarinnar,
en hann er höfundur þekktrar
áætlunar sem þykir gefa góða
raun í framleiðniaukningu fyrir-
tækja.
Auk þessa mun framleiðniátakið
vera með þátt í fræðsluvarpinu á
næstunni, sem byggður er á því
námsefni um framleiðni sem útbúið
var fyrir 9. bekki grunnskólanna í
fyrra. Þá er unnið að gerð sjón-
varpsmyndar um framleiðni, og
vonaðist Páll til að henni yrði lokið
um eða eftir áramótin.
Bankar
Fjöldi atvinnuauglýsinga
í Moigunblaðinu
ÁgTJSt 1987 1988 Breytingr
su. 696 584 +16,1%
þri. 124 93 +25,0%
820 677 +17,4%
Sept.
su. 550 395 +28,2%
þri. 197 85 +56,9%
747 480 +35,7%
1-17. okt
su. 302 213 +29,5%
þri. 44 21 +52,3%
346 234 +32,4%
Verðbréf
A vöxtun ríkis-
vixla, 20%
FORVEXTIR af ríkisvíxlum
hafa verið lækkaðir úr 22% i
18% í samræmi við lækkun
víxilvaxta hjá bönkum og
sparisjóðum. Miðað við þriggja
mánaða víxil er ársávöxtun því
rúmlega 20% um þessar mund-
ir. Ávöxtun ríkisvíxla er talin
verða góð á næstunni þar sem
spáð er lækkandi verðbólgu
a.m.k. fram til áramóta.
Þótt árshækkun framfærslu-
vísitölu hafi aðeins verið rúmlega
4% fyrir síðasta mánuð er búist
við að verðbólguhraðinn næstu
þrjá mánuði verði kringum 10%
þannig að raunávöxtun ríkisvíxla
með 18% forvöxtum verður um
9%. Rétt er þó að taka fram að
erfitt er að meta áhrif 3% gengis-
Leiðrétt
tafla
í viðskiptablaði Morgunblaðsins
síðastliðinn fimmtudag birtist tafla
í grein um atvinnumarkaðinn með
upplýsingum um fjölda atvinnuaug-
lýsinga í Morgunblaðinu. Vegna
mistaka í setningu varð taflan nán-
ast óskiljanleg. Meðfylgjandi er
leiðrétt tafla sem felur í sér saman-
burð á fjölda atvinnuauglýsinga í
Morgunblaðinu í ágúst, september
og október í fyrra og á þessu ári.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
.ækkunar sem koma mun fram í
verðlagi á næstunni. Verðlags-
hækkanir kunna því að verða
nokkuð meiri en 10%. Ríkisvíxlar
eru seldir í 500 þús. króna eining-
um.
Norðurland
Kaupfélög
ræða áfram
um samstarf
VIÐRÆÐUR þriggja kaupfélaga
á Norðurlandi um samstarf hefj-
ast að nýju á næstu dögum, en þær
hafa að mestu legið niðri siðustu
tvo mánuðina.
Kaupfélögin þijú eru KEA á Akur-
eyri, Kaupfélag S-Þingeyinga á
Húsavík og Kaupfélag N-Þingeyinga
á Kópaskeri. Reksturinn á Húsavík
og á Kópaskeri er mjög erfiður um
þessar mundir og sýnt er að halla-
rekstur verður hjá KEA á þessu ári
þrátt fyrir rúmlega 50 millj. kr. hagn-
að í fyrra. Að sögn forráðamanna
KEA er aðeins verið að ræða um
aukna samvinnu félaganna þriggja,
en ekki samruna að svo stöddu. Sér-
staklega er verið að ræða samvinnu
á verslunarsviði, samstarf í rekstri
sláturhúsanna, samstarf í rekstri
mjólkurstöðvanna og í fjórða lagi
samstarf í bókhalds- og tölvumálum.
Með slíkri samvinnu ætti aukin ha-
græðihg að fást í rekstri félaganna
þriggja og má þá búast við að skýr-
ari línur verði dregnar á milli fram-
leiðslu hvers félags fyrir sig.
Hver var á vöxtun
skiptikjarareikninga ?
Meðan á dvöl hans hérlendis stóð
heimsótti Hordes 10 fyrirtæki, og
nú stendur yfir kynning á áætlun-
inni í fyrirtækjum vítt og breitt um
landið. Páll taldi að alls myndu
25-30 fyrirtæki notfæra sér áætlun-
ina með aðstoð Iðntæknistofnunar.
Tölvur
Tölvumiðl-
unin yííiiek-
urHugahf.
ÞANN 1. október sl. yfirtók
Tölvumiðlunin hf. alla hugbúnað-
arstarfsemi Huga hf., en fyrri
eigendur Huga hf. halda eftir
öðrum þáttum fyrirtækisins. Að
sögn Ágústar Guðmundssonar
hjá Tölvumiðluninni nam hug-
búnaðarþátturinn um 90% af
heildarstarfsemi Huga hf. Helstu
þættirnir í hugbúnaðarstarfsemi
Huga voru Launakerfi, þjónusta
við Gagnadís og tölvuvætt við-
haldskerfí.
MORGUNBLAÐIÐ óskaði í byij-
un september eftir að bankar og
Samband islenskra sparisjóða
gerðu útreikning á þremur dæm-
um um ávöxtun skiptikjarareikn-
inga frá miðju ári 1987 til sama
tíma á þessu ári. Á töflunni má
sjá niðurstöður fyrir einstakar
innlánsstofinanir að frátöldum
Alþýðubankanum sem ákvað að
taka ekki þátt í könnuninni.
ÞRJÚ DÆMI: Sett voru upp
þrjú dæmi og lögfi fyrir Samband
sparisjóðanna svo og alla banka.
Miðað ervið aðíhverju
dæmanna sé höfuðstólinn að ári
liðnu, 100.000 kr., eða sú fjár
hæð sem telja má raunhæft að
venjulegur launamaður geti haft
úr að spila í sparnaði á einu ári.
Á síðastliðnum misserum hefur
oft komið til tals að Morgunblaðið
gerði samanburð á kjörum skipti-
kjarareikninga til hagsbóta fyrir
sparifj áreigendur. Þessir reikningar
eru að jafnaði erfiðir í samanburði
vegna mismunandi úttektarskil-
mála og vaxtaútreiknings og má
ætla að þorri almennings eigi erfítt
með að átta sig á þessum atriðum.
Vakin er athygli á að könnunin nær
1. DÆMI: Maðurleggurinn
kr. 8.330,- þann 7. júlí 1987 og
síðan sömu upphæð 7. hvers
mánaðar ellefu sinnum íviðbót,
þá síðustu 7. júni 1988.7. júlí
1988 tekur hann út allt sem er
inni á bókinni með vöxtum og
verðbótum. Hve háa upphæð
hefði maðurinn fengið?
ekki yfir þrepahækkanir eftir 18
og 24 mánaða bindingu á Kjörbók
Landsbankans eða bundna sér-
kjarareikninga hjá öðrum banka-
stofnunum. Jafnframt er rétt að
benda á að Bónusreikningur hóf
göngu sína hjá Iðnaðarbankanum
þann 1. júlí sl. með nýju sniði.
Könnunin byggðist á því að vald-
ar voru upphæðir með hliðsjón af
hag venjulegs launamanns sem
2. DÆMI: Maðurleggur inn
kr. 100.000,-15. júlí 1987.
Upphæðin liggur síðan óhreyfð í
eitt ár eða til 15. júlí 1988 og er
þá tekin út með verðbótum og
vöxtum.
Hve háa upphæð hefði maðurinn
fengið?
ýmist lætur innistæðu vera
óhreyfða í eitt ár eða leggur inn
og tekur út á tímabilinu. Má þann-
ig ætla að reynt hafi á hina ýmsu
skilmála sem skiptikjarareikningar
eru háðir. í dæmunum þremur var
miðað við 100 þúsund króna höfuð-
stól á tímanum. Morgunblaðið
væntir þess að meðfylgjandi saman-
burður gefi nokkra mynd af ávöxt-
un skiptikjarareikninga á umræddu
tímabili og veki fólk til umhugsunar
um þau kjör sem í boði eru á hveij-
um tíma hjá einstökum bankastofn-
unum. Á töflunni sést hvemig 100
þúsund króna höfuðstóll ávaxtaðist
í hveiju tilfelli fyrir sig. Tölur i
sviga framan við nafn hverrar innl-
ánsstofnunar sýnir röð þeirra inn-
byrðis í hveiju dæmanna miðað við
bestu ávöxtun.
3. DÆMI: Maður leggur inn
kr. 150.000,- þann4.júlí1987.
23. september 1987 tekur hann
út kr. 25.000,- og aðrar 25.000,-
2. febrúar 1988. Innistæðan sem
eftir er ásamt verðbótum og
vöxtum er tekin út 4. júlí 1988.
Hve háa upphæð hefði maðurinn
fengið?
Gagnadís er gagnasafnskerfi
innflutt af IBM á íslandi, en Tölvu-
miðlunin mun sjá um þjónustu og
námskeiðahald tengt Gagnadís.
Forritunar- og notendamál
Gagnadísar er á íslensku. Stýrt við-
hald er tölvukerfi sem Félag mál-
miðnaðarfyrirtækja hefur látið
gera, og er ætlað til að stýra við-
haldi og eftirliti með vélum, tækjum
og mannvirkjum. Aðaleigendur
Tölvumiðlunarinnar eru Ágúst Guð-
mundsson og Hafliði S. Magnússon.
Hjá fyrirtækinu starfa nú fimm
manns, þar af fjórir háskólamennt-
aðir tölvunarfræðingar.
Búnaðarbankinn, Gullbók: 117.805,32 © 132.508,70 © 133.839,01
Iðnaðarbankinn, Bónusreikn.: © 116.091,77 © 129.923,89 © 134.882,95
Landsbankinn, Kjörbók: © 117.752,73 ® 132.575,81 ® 137.469,34
Samvinnubankinn, Hávaxtabók: ® 115.506,28 © 129.939,26 ® 134.376,47
Sparisjóðirnir, Trompreikn.: @ 117.796,32 © 132.656,73 ® 137.571,31
Útvegsbankinn, Ábótarreikn.: © 120.068,88 © 136.720,20 © 140.379,71
Verslunarbankinn, Kaskóreikn.: ® 118.032,79 \ ® 132.345,64 © 137.186,52
Morgunblaðió/ GÓI