Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
39
Lifitiar
yfir loðnu-
veiðum
NOKKUÐ hefiir lifiiað yfir
loðnuveiðunum undanfarna
daga. 30.020 tonn hafa veizt
frá upphafi vertíðar, sem
er nær tvöfalt meira en á
sama tíma í fyrra. Tvö skip
hafa siglt með aflann til
Noregs og Færeyja, en hinu
er landað hér heima.
Á föstudag fóru Hilmir II
SU með 550 tonn og
Skarðsvík SH 660 til Siglu-
fjarðar. Á laugardag fór Al-
bert GK með 750 til Siglu-
fjarðar og Súlan EA með 800
og Öm KE 750 til Krossa-
ness. 5 skip tilkynntu samtals
um 2.750 tonn á sunnudag.
Háberg GK fór með 650 tonn
til Grindavíkur, Hólmaborg
SU til Eskifjarðar með 400
tonn og bilað, ísleifur VE fór
til Færeyja með 680 tonn og
Höfrungur AK 520 og
Keflvíkingur KE 500 til Siglu-
fjarðar og voru báðir með rifna
nót.
Síðdegis á mánudag höfðu
6 skip tilkynnt um 4.840 tonna
afla. Guðrún Þorkelsdóttir SU
fór til Eskifjarðar með 700
tonn, Sunnberg GK 640 til
Grindavíkur, Börkur NK
1.150 til Neskaupstaðar,
Hilmir SU 1.100 til Tromsö í
Noregi og Albert GK 700 og
Hilmir IISU 550 til Siglufjarð-
ar.
Veiðin hefur að mestur ver-
ið norður og norðvestur af
Kolbeinseyj arhrygg úti við
miðlínu. Um helgina fékkst
loðna reyndar sunnar og vest-
ar. Þar var hún stærri og köst-
in sömuleiðis, en á mánudag
virtist veiðin þar dottin niður
að nýju.
Samningurinn undirritaður: Guðmundur Helgason, rekstrarstjóri, Jóhann Már Maríusson, aðstoðarframkvæmdastjóri, og Halldór Jónatans-
son, framkvæmdastjóri Landsvirkjunar, og stjómarmenn stálfélagsins, Kristján Ágústsson, Haraldur Þór Ólason og Hörður Torfason.
Stálfélagið semur við
Landsvirlqim um orkukaup
Rafmagnssamningur milli Landsvirkjunar og íslenska stálfé-
lagsins var undirritaður í gær.
Samningurinn gerir ráð fyrir þvi að íslenska stálfélagið hf.
kaupi árlega af Landsvirkjun allt að 16 megawött og 14 miiyón
kílówattstundir af ótryggðu rafinagni fyrir stálbræðslu þá sem
félagið hyggst reisa við Markhellu í Hafiiarfirði. Gert er ráð fyr-
ir því að afhending rafinagns til stálbræðslunnar fari fram á 132
kW spennu í aðveitustöð Landsvirkjunar.sem nú er í byggingu við
Hamranes sunnan HafiiarQarðar og hefjist haustið 1989.
Stefnt er að þvi, að hlutafé í
íslenska stálfélaginu hf. verði 100
milljónir króna, að því er Kristján
Ágústsson og Haraldur Þór Ola-
son, stjómarmenn í stálfélaginu
sögðu í samtali við Morgunblaðið.
Helstu hluthafar í íslenska stál-
félaginu hf. verða Ipasco Steel &
Holding Limited í Bretlandi, með
um 50% hlutaijár, A.Johnson &
Co í Svíþjóð með 17.5% hlut og
íslenskir aðilar munu eiga afgang-
inn.
í byijun verða keypt notuð tæki
svo sem bræðsluofn og sísteypivél
og að sögn þeirra Kristjáns og
Haraldar er það einkum gert
vegna þess að með þessu móti
verður stofnkostnaður einungis
þriðjungur á móti því sem hann
yrði.ef ný tæki væru keypt. Hins-
vegar verður settur upp nýr tæt-
Minning:
Prófessor Pálmi
Möller tannlæknir
Kveðja frá Reykjavík-
urstúdentum 1943
Á liðnu voru hittust Reykjavíkur-
stúdentar 1943 til að gleðjast sam-
an í tilefni 45 ára stúdentsafmælis.
í þeim fagnaði voru, að vanda,
drukkin minni nærstaddra, fjær-
staddra og svo þeirra, sem horfnir
eru yfir landamæri lífs og dauða. í
hópi ijærstaddra var Pálmi MöIIer
tannlæknir en hann hefur, vegna
búsetu erlendis, oft verið í þeim
hópi, þegar við stúdentamir frá
1943 höfum hist. Fám vikum síðar
var hann kominn í þriðja hópinn,
hóp hinna horfnu.
Pálmi Möller fæddist á Sauðár-
króki 4. nóvember 1922, sonur
hjónanna Jóhanns Georgs Möller
verslunarstjóra þar og Þorbjargar
Pálmadóttur Möller. Hann lauk
stúdentsprófí frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1943 og efnaffæðiprófí
frá læknadeild Háskóla Islands
1944, en hélt sfðan til Banda-
ríkjanna og lauk prófí í tannlækn-
ingum (cand. odont.) frá Tufts-
háskólanum í Boston 1948. Að því
námi loknu sneri hann heim, og
stundaði hér tannlækningar næstu
10 ár, eða til 1958.
Hugur Pálma stóð þó ekki til að
bora og fylla göt í tönnum. í eðli
sínu var hann vísinda- og fræðimað-
ur, en á þeim tíma voru möguleikar
til fræðaiðkana í hans fagi ták-
markaðir hér á landi. Því sneri hann
aftur til Bandaríkjanna, að þessu
sinni til tannlæknaháskólans í
Birmingham í Alabama-fylki, og
lauk þaðan meistaraprófí árið 1962.
Hann varð kennari þar við þann
háskóla 1961, fyrst aðstoðarpróf-
essor en frá 1970 prófessor, og var
það til dauðadags.
Jafnframt kennslustörfum fékkst
Pálmi við vísinda- og fræðistörf,
og ritaði margar greinar í erlend
og innlend tímarit um tannlækning-
ar og faraldursfræði tannskemmda,
og voru flestar þessara greina
byggðar á rannsóknum sem hann
gerði hér á landi. Við rannsóknir á
tannskemmdum íslenskra bama
vaknaði hjá honum áhugi á varar-
og gómskörðum. Hann hóf rann-
sóknir á tíðni og erfðamynstri þessa
fæðingargalla hjá íslendingum og
varð sá árangur af þeim rannsókn-
um, að 1971 varði hann doktorsrit-
gerð sína, „Cleft Lip and Palate in
Iceland", við háskóla íslands, fyrst-
ur íslenskra tannlækna. Rit þetta
var mjög vandað og telst nú grund-
vallarrit um þessa fæðingargalla
hér á landi og víða er til þess er
vitnað í erlendum ritum um þessi
efni.
Hinn 12. júní 1945 kvæntist
Pálmi Málfríði Óskarsdóttjr, Lárus-
sonar skókaupmanns og Önnu Sig-
uijónsdóttur og eignuðust þau þijá
syni, Pálma, Óskar og Jóhann.
Málfríður eða Dadda, eins og vinir
og kunningjar kalla hana, starfaði
með manni sínum að rannsóknum
hans hér á landi, ferðaðist með
honum og leitaði upp og skráði
upplýsingar. Þau störfuðu mjög vel
saman og átti Dadda sinn ríka þátt
í þeim árangri, sem Pálmi náði í
rannsóknum sínum.
Pálmi var glæsilegur á velli,
ríflega meðalmaður á hæð og bar
sig vel. Hann var vel íþróttum búinn
og á skólaárunum var hann f úrvals-
liðum bæði í handknattleik og
knattspymu. í eðli sínu var hann
alvarlegur, en glaðvær á góðri
stund með góðum vinum. Stundum
jaðraði glaðværð hann við gálga-
húmor, og má vera að það hafí
verið viðbrögð hans við návist ætt-
ardraugsins, sem smátt og smátt
lagði að velli systkini hans, sum
löngu fyrir aldur fram. Sá draugur
sótti að Pálma þegar á ungum
aldri, tókst aldrei að beygja hann,
en braut hann um síðir.
Enn eitt skarð er komið í hópinn,
sem kvaddi Hinn almenna mennta-
skóla í Reykjavík vorið 1943. Skarð
Pálma verður ekki fyllt, fremur en
hinna, sem á undan eru gengnir.
Við þökkum honum góða samfylgd
og vottum Döddu og sonum þeirra
dýpstu samúð.
Reykjavíkurstúdentar 1943
ari, sem breytir bílflökum f brota-
jám, en slíkt tæki kostar um 70
milljónir króna.
Fjárfestingarlán til stálverk-
smiðjunnar verða alis um 210
milljónir króna og er gert ráð fyr-
ir þvf að það komi frá SE- bankan-
um og P.K. bankanum og frá Iðn-
þróunarsjóði. Jafnframt verður
Búnaðarbanki íslands viðskipta-
banki félagsins og mun leggja til
rekstrarlán. Samstarfsaðilinn Ip-
asco Holding Limited leggur til
tækniþekkingu og aðra aðstoð í
upphafí og A.Johnson í Svíþjóð
leggur fram sölusamning á allri
framleiðslunni til að minnsta kosti
7 ára.
íslenska stálfélagið ráðgerir að
flylja inn notað stálgrindarhús,
sem keypt er frá stálverksmiðju í
Frakklandi. Húsið er um 2500
fermetrar og verður sett á það ný
klæðning. Einnig verða reist
starfsmannahús og skrifstofuhús-
næði á lóð félagsins við Markhellu
í Hafnarfírði. Áætlað er að
bræðsla geti hafíst haustið 1989,
þegar rafmagn er komið frá
Landsvirkjun.
Afkastageta verksmiðjunnar
getur orðið allt að 60.000 tonn
af stálhleifum á ári, en fyrstu árin
verður miðað við 20.000 tonna
framleiðslu. Vonast er til þess, að
á íslandi falli til nægt brotajám
til að standa undir þeirri fram-
leiðslu. Stefnt er að því að losa
landið við allt brotajám og bílflök
á fyrstu tveimur til þremur
starfsámm verksmiðjunnar. Því
hefur verið samið við sorpeyðing-
arstöð höfuðborgarinnar um að
hún afhendi allt brotajám sem til
fellur á svæðinu og unnið er að
samningi við sorpeyðingu Suður-
nesja. Síðan er ætlunin að leita
samninga við önnur sveitarfélög.
í stjóm íslenska stálfélagsins
hf. em: Hjörtur Torfason formað-
ur, Kristján Ágústsson, Haraldur
Þór Ólason.Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, Leifíir Hannesson,
Bjöm Hallenius, Karl - Erik Öberg
og Sören Collins.
Ekið á dreng"
og konu
EKH) var á sjö ára pilt við versl-
unina Nóatún í Nóatúni um
ldukkan hálftvö á laugardag.
Drengurinn slapp lítt meiddur
en var fluttur til skoðunar á
slysadeild. Hann hafði hlaupið
milli kyrrstæðra bíla i veg fyrir
annan sem ekið var um bifreiða-
stæði við verslunina.
Þá var ekið á konu á sextugs-
aldri á gangbraut á mótum Lauga-
vegar og Rauðarárstígs um klukkan
hálfníu að kvöldi laugardagsins.
Meiðsli konunnar vom ekki talin~s~
alvarleg en hún var flutt á slysa-
deild.
Nafii skólasyst-
ur féll niður
í viðtali við Þóranni Kvaran í
sunnudagsblaði féll niður lína og þar
með nafn einnar af átta skólasystr-
um Þómnnar úr menntaskóla, svo
sem sjá mátti af textanum. Sú skóla-
systir hennar var Kristín Bjamadótt-
ir, sem giftist skólabróður þeirra
Helga Tómassyni, yfírlækni. Er Þór-
unn og aðrir beðnir velvirðingar á
þessu.
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall eigin-
manns míns, fósturfööur og bróður,
INGVARS B. GUÐNASONAR,
LJósheimum 8.
Valborg Guömundsdóttir,
Eydfs Erna Ólsen,
systklnl og aörlr vandamenn.
Lokað
eftir hádegi vegna jarðarfarar ÞORVALDAR ÁSGEIRS-
SONAR. Pólaris hf., Hafnarstræti 20.