Morgunblaðið - 25.10.1988, Qupperneq 43
43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
Viðtalskafli endurbirtur
f MORGUNBLABINU sl. sunnu-
dag birtist viðtal við Valgerði
Gísladóttur og Guðlaug Gunnars-
son, kristinboða. Þau mistök
urðu við birtingu greinarinnar,
að niðurlagið féll niður. Birtist
síðasti kafli viðtalsins í heild hér
á eftir:
Við ætlum okkur ekki að ná fram
neinni stökkbreytingu í þessum efn-
um frekar en í sjálfu kristniboðs-
starfinu. Við förum ekki til að
umbreyta þjóðum. En við förum til
að boða kristna trú og við förum
til að kenna fólkinu það sem við
kunnum og vitum að verður til
hjálpar í daglegu lífi. Við förum
heldur ekki til að heimta að fólkið
afleggi siði og venjur. Það gerir sér
sjálft grein fyrir því sem beinlínis
er í andstöðu við þann sem verður
kristinn og sér og finnur að trúin
færir honum ýmislegt sem hann
naut ekki áður.
En er bara ekki miklu auðveldara
að fá sér vinnu hér heima? Þau
hjónin eru sammála um svarið:
— Nei, okkur finnst Guð hafa
kallað okkur til þessara starfa og
eftir að hafa kynnst aðstæðum
þessa fólks síðustu árin erum við
enn ákveðnari í að fara aftur. Þetta
hefur verið mjög þroskandi og gef-
andi starf og við fínnum svo ákveð-
inn tilgang með þessum störfum —
ekki síst þegar við sjáum hvaða
árangur það hefur borið. Við höfum
fengið að miðla trú okkar og þeirri
blessun sem hún hefur gefíð okkur
og það vonum við að geti einnig
gerst meðal Voito-manna.
Auðvitað söknum við fjölskyldu
og náinna vina sem við sjáum ekki
næstu fjögur árin, en við eigum
einnig góða vini úti í Eþíópíu og
norsku kristinboðamir, sem við er-
um í nánu samstarfí við, eru allir
eins og hluti af fjölskyldunni. Það
má kannski segja að eins konar
heimþrá grípi um sig við sérstök
tækifæri, á jólum eða afmælis-
dögum í fjölskyldunni og öðrum
stórhátíðum en sambandið milli
landanna hefur farið batnandi með
ári hveiju og nú er ekkert tiltöku-
mál að hringja til íslands sem fyrir
fáum árum var nánast útilokað.
Og þegar þetta birtist eru þau
hjónin trúlega farin til starfa þar
suður frá. A vegum Sambands ísl.
kristniboðsfélaga starfa nú einnig
tvenn hjón í Kenýa, Hrönn Sigurð-
ardóttir og Ragnar Gunnarsson og
Valdís Magnúsdóttir og Kjartan
Jónsson. Um þessar mundir em
einnig kristniboðar í námi til undir-
búningsstarfa ytra á vegum SÍK.
Upplogið forsíðuefini
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Skuggastræti („Street Smart“).
Sýnd í Regnboganum.
Bandarisk. Leikstjóri: Jerry
Schatzberg. Handrit: David
Freeman. Framleiðendur: Yor-
am Globus og Menahem Golan.
Kvikmyndataka: Adam Holend-
er. Helstu hlutverk: Christop-
her Reeve, Kathy Baker, Mimi
Rogers, Jay Patterson, Andre
Gregory og Morgan Freeman.
„Dagur í lífi melludólgs" er góð
hugmynd að grein í New York
tímarit eða það fínnst a.m.k. rit-
stjóra Jonathans Fishers (Chri-
stopher Reeve) þegar Fisher ber
hana upp. En Fisher kemst fljótt
að því að melludólgar eru ekki
þessir menn sem breiða yfírleitt
úr sér á forsíðum tímarita og nær
ekki sambandi við neinn. Skila-
fresturinn er að renna út. Hvað
getur Jonathan gert? Farið til rit-
stjórans og skýrt málið? Nei, þá
missir hann þetta litla tak sem
hann hefur á vinnunni. Skálda
grein um melludólg? Jonathan
hefur alltaf haft meiri áhuga á
frama sínum en Siðanefnd blaða-
mannafélagsins og líst betur á
þann kostinn.
Hann er einn af þessum sem
fínnst allt (lagi að svindla ef eng-
inn kemst að því. Greinin hans
slær í gegn og hann verður aðal-
maðurinn í bænum. En brátt vill
ritstjórinn fara að hitta þennan
melludólg og ákveðinn saksóknari
er líka kominn í málið því hann
þykist vita hver melludólgur Jon-
athans er og það sem verra er,
melludólgurinn sá vill hittá Jonat-
han.
Skuggastræti („Street
Smart“), sem sýnd er í Regn-
boganum, fjallar um þessa miklu
og á endanum lífshættulegu
klemmu sem Jonathan kemur sér
í þegar hann ákveður að velja
auðveldu leiðina í blaðamenns-
kunni og skálda. Það sem byijar
sem tiltölulega saklaust svindl
(„Ég bjóst aldrei við að þetta
færi á forsíðuna") endar í morðum
og meiðingum. Leikstjórinn, Jerry
Schatzenberg, heldur þétt utan
um efnið og víkur sjaldan af leið
en fjallar um það með ágætu og
mjög svo jarðtengdu handriti
David Freeman á snaggaralegan,
fyndinn, spennandi og athyglis-
verðan hátt. Það er nokkuð af
ofbeldi í myndinni en Schatzen-
berg fer óvenju vel með það og
misnotar það aldrei.
Freeman starfaði sjálfur í tíma-
ritablaðamennsku í New York
eins og aðalpersónan hans og
byggir því á eigin reynslu. Hann
fjallar um stöðu Jonathans af inn-
sæi og þekkingu og kann
skemmtilega á götumálið en mik-
ið af myndinni gerist um nætur-
bil á 42. tröð. Melludólgurinn, sem
allir halda að Jonathan eigi við í
greininni sinni, er virkilegur
skíthæll (frábærlega leikinn af
Morgan Freeman, svalur og
grimmur) og ákærður fyrir morð
en myndin gerir mikið úr þeirri
spumingu hvort blaðamaðurinn
eigi að vinna með réttvísinni í
slíku tilfelli eða halda öllum upp-
lýsingum sínum leyndum eins og
starfsheiðurinn bíður. Það flækir
auðvitað málið að Jonathan hefur
ekkert undir höndunum um dólg-
inn og dólgur veit það.
Christopher Reeve er talsvert
góður í hlutverki hins klemmda
Jonathans sem kemst að því um
síðir að það er ekki þess virði að
deyja fyrir forsíðugrein. Aðrir
leikarar standa sig með mikilli
prýði í skemmtilegum og vönduð-
um aukahlutverkum; Mimi Rogers
leikur kæmstu Jonathans, Kathy
Baker er mella sem vingast við
hann, Jay Patterson leikur stífan
saksóknara og Andre Gregory er
óborganlegur í hlutverki ritstjóra
Jonathans.
Cannon þeirra Golans og Glo-
busar framleiðir myndina sem
greinilega er gerð af litlum efnum
en miklum áhuga. Sagan segir
að Reeves hafi kreist hana útúr
þeim með því skilyrði að hann
léki í Superman IV fyrir þá í stað-
inn. Hún er vel fómarinnar virði.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Hverfisgata 4-62
Lindargata 39-63
Austurgerði o.fl.
Byggðarendi
Laugarásvegur 39-75
INGERSOLL-RAND
Loíthamiar 18 ■ 45 kg.
Spiengiholuborar 37 kg.
Loítþjöppur 30 L/S(65 cím)
og 60 L/S(125 cím)
fulHEKLAHF
I Laugavegl 170-172 Síml 695B00