Morgunblaðið - 25.10.1988, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Þeir sem komnir eru til vits og
ára muna áreiðanlega margir eft-
ir afbragðsgóðum fiskibollum,
bestu fískibollum I heimi, hjá
mömmu eða ömmu, farsið búið
til með gamla laginu, fiskurinn
marghakkaður í handsnúinni
hakkavél og saman við hann sett
sitt lítið af hveiju eftir tilfinningu.
Það var ekkert vigtað eða
mælt í þessar bollur og uppskrift
ekki handbær þegar til átti að
taka. Því bera tilraunir ekki alveg
tilætlaðan árangur, að ná sér-
stæðu bragði og áferð sem enn
er munað eftir áratugum síðar.
Kannast einhver við þessa iýs-
ingu?
En þó við getum ekki búið til
allra bestu fiskibollur í heimi er
ekki ástæða til að sniðganga þann
ágæta mat, heldur búa til fiskfars
heima enda taka flestir það fram-
yfir það aðkeypta.
í vikulegu Heimilishomi eru
uppskriftir að fiskfarsi sem von-
andi koma einhveijum að notum.
Norskt fiskfars
1 kg ýsu- eða þorskflak,
2 tsk. salt,
2 msk. kartöflumjöl,
6-7 dl. mjólk,
V4 tsk. múskat.
Fiskurinn er hakkaður 1-2
sinnum með salti og kartöflu-
mjöli. Sett í blandara eða hrært
með hrærivél, mjólkinni bætt
smám saman í og hrært vel á
milli. Úr farsinu em gerðar boll-
ur, soðnar eða steiktar, auk físk-
búðings.
Soðnar bollur:
Farsið tekið með matskeið og
sett í sjóðandi saltað vatn, látið
sjóða í 10 mín.
Steiktar bollur:
Bollumar sömuleiðis teknar
með matskeið, settar út í heitt
smjör á pönnu, aðeins þrýst niður
til að gera þær flatari, brúnaðar
við vægan straum báðum megin.
Fiskbúðingur:
Fiskfarsið sett í smurt form
sem sett er í vatn í potti í ca. 1
klst. Einnig er hægt að baka hann
í ofni í vatnsbaði eða án, í ca. 1
klst. við 125°C.
Þess má geta að ef búinn er
til stór skammtur af fískbúðingi
er hægt að frysta hluta hans eft-
ir suðu, síðan er hann skorinn í
sneiðar og brúnaður á pönnu. Það
verður allt annar matur og því
óhætt að segja að hægt sé að slá
tvær flugur í einu höggi sem get-
ur komið sér vel á síðustu og
verstu annatímum.
Danskt fiskifars
500 g ýsu- eða þorskflak,
2 egg,
4 msk. bráðið smjör eða
smjörlíki,
5 dl ijómabland (mjólk og ijómi
til helminga) eða kaffíijómi,
IV2 msk. kartöflumjöl,
salt og pipar.
Fiskurinn hakkaður 2-3 sinnum
í hakkavél, saman við er hrært
eggjum sem áður eru þeytt, kældu
bræddu smjöri, ijómablandi og
þurrefnum. Það er sjálfsagt að
nota hrærivélina við verkið.
Úr farsinu er hægt að gera
bollur eða fiskbúðing, eins og lýst
er hér að framan.
íslenskt fiskfars
í bók Helgu Sigurðardóttur,
Matur og drykkur, eru eftirfar-
andi uppskriftir orðréttan
Fiskdeig I.
400 g beinlaus fiskur,
2 tsk. salt,
2 msk. hveiti eða heilhveiti,
'/6 tsk. pipar,
(1-2 laukar)
3- 4 dl mjólk eða fisksoð.
Fiskdeig II.
600 g beinlaus fiskur,
2-3 tsk. salt,
2V2 msk. heilhveiti eða hveiti,
1 msk. kartöflumjöl,
V6 tsk. pipar,
1-2 egg,
4- 5 dl mjólk eða fisksoð.
1. Fiskurinn er hreinsaður,
flakaður og skorinn úr roðinu.
2. Saxaður 2-7 sinnum í kvöm
(söxunarvél), eftir því hve fínt
fiskdeigið á að vera, eða skorinn
smátt og hrærður í hrærivél. Gott
er að saxa fiskinn með saltinu því
það gerir hann seigan og sam-
felldan. Laukurinn er einnig sax-
aður með.
3. Hveiti, mjöli og kryddi bland-
að í og þynnt út með vökvanum
smátt og smátt. Hrært vel. Deigið
verður því betra sem það er meira
hrært. Egg eru þeytt i sundur
áður en þeim er blandað í deigið.
4. Deigið látið bíða um stund
(10 mín.) og reynt hvort það er
mátulega þykkt og kryddað með
því að sjóða eða steikja eina iitla
bollu og bragða á henni. Fiskdeig
í soðnar bollur þarf að vera þykk-
ara en í þær steiktu.
Svo segir í Helgu-bók.
Ef til vill leynist uppskrift að
„bestu fiskibollum í heimi" á ein-
hveiju heimilinu — mikið væri það
vel þegið ef slíkri uppskrift væri
komið á framfæri við undirritaða
sem gæti þá birt hana í Heimilis-
hominu.
Með kveðju,
Bergljót.
Heímalagað
fiskfars
Klapp, klapp
LAUGARDAGINN 1. október hólt bandaríska hljómsveitin Pere Ubu
tónleika í Tunglinu, þó skemmtilegustu sem ég hef sóð hérlendis
lengi. Bæði Pere Ubu og S/H Draumur, sem hituðu upp fyrir þá, stóðu
sig mjög vel.
Djöflarokksveitin Ham átti að
koma fram þetta kvöld, en því
miður varð ekki af því, þar eð David
Thomas, forsprakki Pere Ubu, stóð
fast á samningsákvæði er lagði
blátt bánn við upphitunarsveitum
sem flyttu árásargjarna tónlist.
Þetta er leiðindamál sem tæpast
Ljósmynd/BS
er neinum að kenna nema skipu-
leggjendum tónleikanna, — þeir
áttu að lesa samninginn betur.
S/H Draumur kom nú fram í
fyrsta og næstsíðasta sinn í langan
tíma. Væntanleg er frá þeim tólf-
tomma og einir kynningartónleikaj^
— og síðan hætta þeir að líkindurfi,
félagarnir. Það verður mikill missir
að Draumnum, bestu íslensku
rokksveitinni. — Þetta kvöld voru
þeir ögn ónákvæmir, en bættu það
upp og meira en það með ótrú-
legri spilagleði og hrífandi ákafa;
sprengdu sólir í svo til hverjú lagi
og vörpuðu halastjörnum fram í
sal í uppklappinu, hinu gamal-
kunna Mónakó. Helst mátti finna
að því hversu stutt þeir voru á
sviðinu: tæpast méira en hálftíma^
Pere Ubu mátti hafa sig alla við"
að bæta frammistöðu Draumsins,
en tókst það þó í nokkrum lögum.
David Thomas, fitubollan með
smjörhnífsröddina, var uppistaðan
og sálin í sveitinni, sem flutti
kraftmikið, seiðandi rokk af miklum
ákafa og list. Allir stóðu sig mjög
vel, en sérstaklega þótti mér samt
gaman aö fylgjast með samleik
trommaranna tveggja. í stuttu
máli sagt: stórskemmtilegt. Gott
hjá ykkur, strákar! Haldið endilega
áfram á þessari braut.
Baldur A. Kristinsson
Ljósmynd/BS
Klassísk tólf
laga plata
Ljósmynd/BS
Síðan skein sól er rétt nýlokin
við fyrstu breiðskffu sína sem
væntanleg er 1 enda næsta mðn-
aðar. Sveitin vann þá plötu f
Hljóðrita f samvinnu við breskan
upptökustjóra, Tony Clarke.
Rokksíðuútsendari hitti á sveit-
ina á síðasta degi hennar í hljóð-
veri til að forvitnast um plötuna.
Nú er upptökum lokið; var
þetta erfitt?
Þetta er búið að vera strembið,
já.
Hefur allt gengið upp?
Já, það má segja það. Við höfum
leyft okkur að prófa hitt og þetta;
leikið okkur svolítið með grunna
og leyft okkur að taka þá upp á
mismunandi hátt, en það á eftir
að skila sér.
Hefur tónlistin tekið breyting-
um í upptökunum?
Tónlistin er vitanlega mýkri en
á tónleikum, en hún hefur ekki
breyst í grundvallaratriðum. Við
höfum að vísu leyft okkur aö fara
í ýmsar áttir, enda eru fleiri tæki-
færi til þess í hljóðveri.
Hvað tókuð þið mikið upp?
Við tókum upp fjórtán grunna,
en fullunnum tólf lög, þetta verður
klassísk tólf laga plata, eins og
Svavar Gests myndi segja.
Hvernig hefur verið að vinna
með Tony?
Það hefur gengið mjög vel. Það
er gaman að vinna meö manni sem
hefur þetta mikla reynslu og mað-
ur fær þaö aldrei á tilfinninguna
að maður sé fyrir eins og hjá mörg-
um íslenskum upptökustjórum.