Morgunblaðið - 25.10.1988, Side 54

Morgunblaðið - 25.10.1988, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988 fclk f fréttum ALEXANDRE VASSILIEV „Vil hafa líf mitt eins og það er“ Alexandre Vassiliev er 29 ára gamall rússneskur búninga- hönnuður. Hann kemur úr yfirstétt, faðir hans er þekktur leikmynda- hönnuður við Bolshoi í Moskvu og móðir hans þekkt leikkona. Alex- andre yfirgaf ættjörð sína fyrir sjö árum, á tímum Brezhnevs og hefur síðan haft aðsetur I Parísarborg. Hann er prófessor í sögu tískuhönn- unar við Parísarháskóla, en er á stöðugu fiakki um heiminn og þekktur víða fyrir list sína. Alexandre var fenginn til þess að sjá um búninga óperunnar „Æv- intýri Hoffmans" sem nú er verið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Þetta er ekki f fyrsta skipti sem hann hann- ar fyrir íslendinga, árið 1985 vann hann búninga fyrir „Villihunang". „Fólk í fréttum" hitti hann til þess að forvitnast nánar um þennan unga rússneska listamann. —Til að byija með, af hverju yfír- gafst þú Rússland? Ég vildi fara til Evrópu því þar hef ég svo marga möguleika sem ég hafði ekki í Rússlandi. Ég get starfað við kvikmyndir, ballet, óperu, eða við leikrit, en ég myndi aðeins starfa við leikhús þar. Ég vil starfa um allan heim við það sem ég óska mér, og gera það sem ég vil, svo einfalt er það. —En er ekki erfítt að vera á sífelldu flakki? Það var mjög erfitt í fyrstu. Ég er útlendingur alisstaðar, á ekkert föðurland lengur, en þetta venst. Þó að ég færi aftur til Rússlands myndi sjálfsagt ekki allt koma kunnuglega fyrir sjónir, vonandi ekki, það hafa orðið svo miklar breytingar þar. En þetta eru örlög mín. Nú ferðast ég um allan heim- inn, sé um sjö sýningar á ári, og vinn mjög mikið. —Hvemig líst þér annars á þær breytingar sem orðið hafa í Sov- étríkjunum? Mjög vel, ég sé í dagblöðunum að þeir eru famir að bera sig meira saman við Vesturheim, og skrifa opinberlega til dæmis um að þeir eigi við vandamál að stríða í land- búnaði, og þetta er mjög jákvæð þróun, því að áður höfðu þeir helst áhyggjur af vanda bænda í Hol- landi eða eitthveiju slíku. Fyrir í heilar tuttugu mínútur þurftu farþegar í vél frá New York til Nizza að bíða eftir flug- taki meðan að Stefanía stóð í stappi við flug- freyjumar með fá sæti. Hún átti bókað pláss meðal reykingarmanna en hafði fengið sæti þar sem ekki er leyfílegt að reykja. Það var ekki fyrr en flugmaðurinn kom fram að málið leystist, og einn farþeginn eftirlét henni sæti sitt svo að hún gæti reykt að vild. Mick Jagger og fyrrverandi kona hans Bianca, hafa átt fundi sam- an upp á síðkastið. Ástæðan er sögð áhyggjur af 16 ára dótt- ur þeirra, Jade sem lifir hinu ljúfa lífi þó ung sé og hefur víst farið heldur hátt og heldur hratt inn á þær brautir. Hún sést alloft og næturlangt með dóttur Iru von Furstenberg ásamt botnfallinu í versta hverfi New York borgar og þar segja þau ekki ákjósanlegan félagskap að finna fyrir dótturina. Alexandre Vassiliev. skömmu kom til dæmis móður mín í heimsókn og sá ég hana þá í fyrsta sinn frá því að ég fór. En mér finnst slæmt að í landi þar sem em jafn miklar náttúruauðlindir, olía, gull og skógar, skuli vera pappírsskortur og að þeir þurfi að kaupa pappír frá útlöndum. En steftia Gorbatsjovs hefur leitt ótrú- lega margt gott af sér, einkafram- takið er komið til sögunnar og landamærin hafa verið opnuð meira en áður. Og kannski er einna mikil- vægust sú staðreynd að fólki er nú sagður sannleikurinn, til dæmis um kúgun á tímum fyrri leiðtoga. —Hvað heldur þú að fólkinu sem býr þar fínnist um stefnu Gorbat- sjovs? Ég held að þjóðin taki breyting- unum með blöndnu geði og að það taki ein tíu ár að læra tökin. Menn em án vafa fegnir stefnu Gor- batsjovs en fólk er jafnframt hrætt, því að það em önnur öfl sem ekki fylgja Gorbatsjov að máli. Líttu á síðustu 70 ár. Hvað hefur gerst eftir byltinguna? Sérhveijum leið- toga hafa fylgt einhveijar breyting- ar. En ég held að fólk sé hrætt við frelsið, og viiji fara varlega. Hvað gerist þegar Gorbatsjov hættir? Getur fólk treyst því að að það verði ekki fangelsað fyrir eitthvað sem er að verða sjálfssagt og eðli- legt I dag, eins og til dæmis það að eiga eignir, eða bara það að fylgja stefnu Gorbatsjovs? Það er margt sem enn má bæta í þessu risalandi. Hvað gátu íslend- ingar ekki gert á 40 ámm, og sjáðu til, við sem höfðum 70 ár? Eg veit að þjóð ykkar er fámenn. Og hvað áttuð þið, fisk og sauðfé? Nú eiga menn hér bókstaflega allt. Hér er lág glæpatíðni, fólk býr í fallegum húsum, á fallega bíla, fer til útlanda á hveiju ári, þið eigið mörg böm, ykkur skortir ekki fæðuúrval, og til dæmis hef ég hvergi í heiminum séð eins mörg fómarlömb tískunnar og hér í Reykjavík. Auðvitað veit ég að hér em líka vandmál við stjóm landsmála, en líttu samt á möguleikana. —Þráir þú aldrei ættland þitt? Ég færi þangað með mikilli ánægju sem gestur og sem lista- maður, eða til þess að heimsækja foreldra mína, en ég vil ekki vera þar alla ævi. Ég held ekki að ég ætti að gera það af þeirri einföldu ástæðu að í Evrópu og annarsstað- ar í heiminum bý ég við listrænt frelsi, og ég vel það fram yfír ann- að. Sjáðu til, ég elska Rússland, ég er rússneskur listamaður, ég elska rússneska menningu og listir, allt sem ég geri er rússneskt en þessa stundina vil ég hafa líf mitt eins og það er. Álexandre er farinn héðan til Parísar. Þaðan heldur hann til Ameríku, þá til Tyrklands, Svíþjóð- ar og loks Japans. Sýning teikninga á búningum í „Ævintýri Hoffmans" er þessa dagana í Gallerí Borg. SKIÐAFERfilR VETRAMNS: Austurríki - Sviss Nú bjóðum við 2ja vikna ferðirtil paradísarskíða- manna Ischgl í Austurríki og Samnaun í Sviss, sem bjóða upp á sameiginlegan skíðapassa fyrir Silvretta skíðasvæðið. Gisting á góðum hótelum eða í íbúðum. Brottfarardagar: Óll nÚtíma þægindi. 4. febrúar, 10 daga páskaferð til Ischgl og Crans-Montana 18.-27. mars. Leitið upplýsinga. FERÐASKRIFSTOFA 18. febrúarog 4. mars Verð frá kr. 52.500,- GUÐIUIUNDARiONASSONAR HF. Borgartúni 34, sími 83222. COSPER -Slepptu strax, það er kvenmaður að koma. ALP0VA ELDHUS alvegframtilpia 'urrv l Vindaloo úðay l Svínakjöt vindalc bhajias 1 Rogansjosu ;teikt I Larnb neti b 1 með hnetum Korma Gosht Kjöt í karry Tandoori HLAÐBORÐ með fjölmörgutn girnilegum karrúréttum kl 1830-22.00. tandoon ÓÐINSVf Ih^restaurani iRnrðapantanir, si^-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.