Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
Sovétríkin:
80 handteknir í
borginni Mínsk
Táragasi beitt gegn þúsundum manna
Moskvu. Reuter.
SVEITIR sovéskra lögreglumanna beittu táragasi gegn þúsundum
manna sem safnast höfðu saman í borginni Mínsk í Hvíta-Rússlandi
á sunnudag. Talsmaður Minnisvarðahreyfíngarinnar en svo nefinast
samtök sem berjast fyrir því að fórnarlömb ógnarstjórnar Jósefs
Stalíns, fyrrum Sovétleiðtoga, fái uppreisn æru, skýrði frá þessu í
viðtali við Reuíers-fréttastofuna í gær. Talsmaðurinn, Karína Músa-
eljan, sagði að 80 manns hefðu verið handteknir en hinir ýmsu hóp-
ar sem beijast fyrir auknum lýðréttindum í Hvíta-Rússlandi boðuðu
til mótmælanna.
Heimildarmaður Reuters sagði
að á meðal þeirra sem þátt tóku í
mótmælunum hefðu verið félagar í
nýstofnaðri Þjóðfylkingu Hvíta-
Rússlands en sambærileg samtök
hafa á undanfömum mánuðum
hlotið viðurkenningu stjórnvalda í
Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Dmítrí Leonov, sem er félagi í Minn-
isvarðahreyfingunni, sagði yfirvöld
í Mínsk í fyrstu hafa gefið munn-
legt leyfi fyrir fundahöldunum.
Tveimur dögum síðar hefði leyfið á
hinn bóginn verið afturkallað á þeim
forsendum að ekki væri hefð fyrir
slíkum fjöldafundum í borginni.
Kvað hann fundarmenn engu að
síður hafa safnast saman nærri
kirkjugarði einum í úthverfi Mínsk
á sunnudag og hefðu lögreglusveit-
ir beitt táragasi til að dreifa mann-
fjöldanum. Ótiltekinn fjöldi fólks
hefði þá afráðið að boða til fundar
í Kúrapatí-skógi í nokkurra kíló-
metra íjarlægð. Lögreglan hefði
lokað svæðinu af og beitt táragasi
gegn fólki sem safnast hefði saman
á akri einum í nágrenninu. Nýverið
fundust fjöldagrafir í Kúrapatí-
skógi og reyndust þær geyma jarð-
neskar leifar fólks sem sveitir ör-
yggislögreglu myrtu í valdatíð
Stalíns.
Að sögn Karínu Músaeljan tóku
á milli 10.000 til 30.000 manns
þátt í mótmælunum í Mínsk. A
sama tíma og lögregla lét til skarar
skríða í Mínsk sóttu um 600 félag-
ar í Minnisvarðahreyfingunni úti-
fund í Moskvu, sem stjórnvöld höfðu
lagt blessun sína yfir.
ísraelskir hermenn standa vörð við bifreið sem
varð fyrir sprengjuárás í Jerúsalem í gær. Þrír
ísraelar særðust í árásinni. Á innfelldu myndinni
greiðir Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels
og leiðtogi Likud-flokksins, atkvæði i þingkosning-
unum en Shamir lýsti yfir því í gærkvöldi að hann
gæti myndað nýja meirihlutastjórn í ísrael.
Reuter
Hægri flokkar og heittrúarmenn auka fylgi sitt í þingkosningunum í ísrael:
Shamir kveðst seta mynd
meirihlntastj óm
að nvia
Jerúsalem. Reuter.
Afganistan:
Sovéskar
eldflaugar
í skotstöðu
Washington. Reuter.
TALSMAÐUR bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins sakaði Sovét-
menn í gær um að hafa komið upp
eldflaugum af gerðinni „Scud“ í
Afganistan. Kvað hann stjórnar-
herinn í Afganistan geta beitt eld-
flaugum þessum til árása á stöðv-
ar afganskra frelsissveita í Pakist-
an og hét sfjórnvöldum í síðar-
nefhda landinu fúllum stuðningi
Bandaríkjamanna.
Talsmaðurinn, Charles Redman,
sagði ekki hversu margar eldflaug-
araar væru en kvað þær vera í skot-
stöðu. Á mánudag skýrði Redman
frá því að herþotur frá Sovétríkjun-
um hefðu verið sendar til árása á
stöðvar afganskra skæruliða auk
þess sem leppstjóm Sovétmanna í
Afganistan hefði nýlega borist 30
háþróaðar orustuþotur frá Sovétríkj-
unum. Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins viðurkenndi á mánu-
dag að stjórnarhemum í Afganistan
hefði verið send ný og fullkomin
vopn til að vega á móti vopnasend-
ingum Bandaríkjamanna til skæru-
liða. Charles Redman sagði upplýs-
ingar þessar vekja upp efasemdir um
að Sovétmenn vildu í raun stuðla að
pólitískri lausn ófriðarins í Afganist-
an.
HVORUGUR stjórnarflokkanna í
ísrael nær hreinum meirihluta á
þingi ef marka má spá israelska
ríkissjónvarpsins um úrslit þing-
kosninganna, sem birt var í gær-
kvöldi skömmu eftir að kjörstöð-
um var lokað klukkan 20 að
íslenskum tíma. Yitzhak Shamir,
leiðtogi Likud-flokksins og for-
sætisráðherra Israels lýsti því
hins vegar yfir seint í gærkvöldi
að hann gæti myndað nýja meiri-
hlutastjórn með stuðningi ann-
arra hægri flokka og samtaka
heittrúarmanna, sem spáð er
auknu fylgi. Stjórnarflokkunum,
Likud-flokknum og Verkamanna-
flokki Shimons Peresar, utanrík-
isráðherra, var báðum spáð fylg-
istapi. Endanleg úrslit kosning-
anna verða ekki kunn fyrr en
eftir þijá daga.
Embættismenn sögðu kosninga-
þátttökuna hina mestu frá árinu
1949 er fyrst var kosið til þings í
Israel. Stjórnmálaskýrendur höfðu
látið það álit í ljós að mikil kosninga-
þátttaka kæmi hægri mönnum til
góða. Þá höfðu sérfræðingar einnig
sagt að árás Palestínumanna á stræt-
isvagn í Jeríkó á sunnudag, sem
kostaði ísraelska móður og þijú börn
hennar lífið, myndi að líkindum leiða
til fylgisaukningar, hægri manna.
Samkvæmt tölvuspá sjónvarpsins,
sem byggð var á svörum almennings
á 46 kjörstöðum í landinu, vinna
flestallir flokkar heittrúarmanna og
hægri manna, að frátöldum Likud-
flokknum, á í kosningunum. Þannig
mun nýr flokkur öfgafullra hægri
manna, Moledet (Fóstuijörðin) fá tvo
menn kjöma en samtök þessi hafa
það á stefnuskrá sinni að flytja alla
araba frá ísrael. Verkamannaflokk-
urinn mun, samkvæmt spánni, tapa
tveimur þingsætum og fá 39 menn
kjöma en Likud-flokkurinn 40 menn
og þannig tapa þremur þingsætum
frá í síðustu kosningum.
Yitzhak Mondai, einn ráðherra
Likud-flokksins í fráfarandi ríkis-
stjóm, lýsti yfir því í gærkvöldi að
flokkur hans gæti myndað nýja
meirihlutastjóm ásamt öðmm flokk-
um hægri manna og samtökum heit-
trúarmanna. Flokkar þessir hefðu
samtals 62 sæti en 120 menn sitja
á ísraelsþingi. Shimon Peres vildi
sem minnst segja um tölvuspána og
kvað of snemmt að segja til um úr-
slitin.
2,9 miljónir manna vom á kjör-
skrá þar af 347.000 arabar og drús-
ar. Rúmlega 1,7 milljón Palestínu-
manna á herteknu svæðunum hafði
hins vegar ekki kosningarétt en
meginmál kosninganna var hvemig
bregðast bæri við uppreisn þeirra,
sem staðið hefur í tíu mánuði. Leið-
togar Palestínumanna höfðu hvatt
til tveggja daga verkfalls en ísraelsk-
ir hermenn lokuðu vesturbakka Jórd-
anár og Gaza-svæðinu og komu á
útgöngubanni. ísraelskar herþotur
gerðu í gærmorgun árásir á stöðvar
Palestínuskæruliða í Líbanon og féllu
að minnsta kosti fjórir. Þá særðust
þrír ísraelar er sprengja sprakk í
austurhluta Jerúsalemborgar.
Sjá einnig frétt á bls. 24.
Noregur:
Þungt vatn
selt áfram
til Indlands
Osló. Reuter.
YFIRVÖLD í Noregi staðfestu í
gær að 15 tonn af þungu vatni,
sem norska fyrirtækið Norsk
Hydro seldi vestur-þýsku fyrir-
tæki, Rohstoff-Einfúhr, árið 1983,
hefðu verið seld áfram til Ind-
lands.
Þungt vatn má nota til að fram-
leiða kjamorkusprengjur en sam-
kvæmt alþjóðareglum er óheimilt að
selja Indveijum meira en eitt tonn
af þungu vatni.
Að sögn Tors Axels Busch, aðstoð-
arríkissaksóknara Noregs, var þunga
vatnið flutt frá Noregi til Basel í
Sviss en þaðan var það flutt til
Bombay á Indlandi. Kvað hann norsk
yfirvöld einnig hafa sannanir fyrir
því að 6,7 tonn af þungu vatni frá
Sovétríkjunum hefðu verið fiutt til
Indlands með sömu flugvél,-
Reuter
Kohl ogMitterrand heiðraðir
ÞEIR Francois Mitterrand Frakklandsforseti (t.v.) og Helmut Kohl, kansl-
ari Vestur-Þýskalands, veittu í gær viðtöku verðlaunum sem kennd em
við Karlamagnús konung Franka og keisara Hins heilaga rómverska
keisaradæmis, sem safnaðist til feðra sinna snemma á níundu öld. Verð-
laun þessi em veitt á ári hveiju og em viðurkenning til handa þeim sem
þykja hafa stuðlað að aukinni einingu meðal Evrópuþjóða. Kurt Me-
langré (t.h.), sem á sæti á þingi Evrópubandalagsins, afhenti leiðtogunum
verðlaunin.