Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 51
r MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988 Þessir hringdu . . Reykjanesbraut er að verða ógreiðfær Suðurnesjamaður hringdi: „Reykjanesbraut var eins og menn vita tekin í notkun árið 1965, fyrir 23 árum síðan. Sam- kvæmt áætlun verktaka, þ.e. ís- lenskra aðalverktaka, átti að leggja nýtt steypt slitlag á veginn 10 árum síðar eða 1975. Nú eru liðin 13 ár fram yfir þann tíma en slitlagið hefur ekki verið end- umýjað og var þó sú umferðarspá sem miðað var við allt of lág. Það eina sem gert hefur verið er að Vegagerðin hefur fræsb- verstu kaflana en það er einungis bráða- birgðalausn. Umferð þungra bfla hefur verið miklu meiri en gert var ráð fyrir. Víða eru komnar sprungur í slitlagið og þar er það orðið næfur þunnt. Myndast hafa í veginn djúpar dældir serh fyllast af vatni í rigningum og hefur þetta valdið mörgum slysum. Verði ekki lagt nýtt slitlag áður en langt líður verður Reykjanes- brautin mjög ógreiðfær og alls ekki hæf til að þola hin mikla umferðarþunga sem þama er. Suðumesjamenn hafa miklar áhyggjur af þessu máli og vil ég hvetja til þess að á því verði tekið sem allra fyrst.“ Einkennilegt orðalag? Eggert Jósefsson hringdi: „Er það ekki dálítið einkenni- legt orðalag að tala um að ein- hver eigi svo eða svo mikið ólif- að? Mér finnst orðið ólifað ekki rökrétt. Réttara finnst mér að segja að viðkomandi eigi eftir þetta eða þetta langt lifað.“ Helgimynd Eldri kona hringdi: „Um aldamótin vom seldar hér á landi fagrar helgimyndir af Maríu með Jesúbamið. Á einni slíkri mynd er móðirin að gefa barninu að sjúga vinstra bijósið, sem hún styður með hægri hendi, og em bæði mæðginin gullhærð og bláeygð. Móðirin er í rauðum kirtli með löngum ermum. Hvít slæða er yfir hárinu og yfir um hálsinn. Yfir höfðum þeirra beggja em geislabaugar. Mig langar mikið til að sjá þessar myndir aftur og ef einhver á þær bið ég hann eða hana að hafa samband við mig í síma 29385. Gullarmband Gullarmband tapaðist við Engi- hjalla 11 hinn 28. október. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 33237. Vandaður kristalsborðbúnaður frá KOSTA BODA. Hönnuður: Gunnel Sahlin. 10% kynningarafsláttur út þessa viku. Notum íslensku í útvarpi Til Velvakanda. Í þættinum „Á dagskrá" í Ríkisútvarpinu var verið að ræða um flugvélar Flugleiða en þær vom sagðar komnar til ára sinná. Þar vom tilfærð ýmis ummæli sem við- höfð hafa verið um flugvélarnar. Annar umsjónarmannanna'tók svo til orða að hann hefði það á tilfinn- ingunni að umræddar vélar væm „teipaðar" saman. Átti þetta að sýna álit manna á traustleika vél- anna. Mér finnst að ekki sé hægt að hafa slík ummæli eftir í íslensku útvarpi vegna þess að þetta er ekki íslenska. Það er lágmarks tillitssemi við hlustendur að þeir sem koma fram í fjölmiðlum noti íslenskan orðaforða fyrir utan að nú er það lagaskylda. Viti umsjónarmennimir ekki betur þá má benda þeim á ótal íslensk orð og orðasambönd sem nota má í stað ensku sagnar- innar „to tape“. Segja má til dæm- is að vélamar séu límdar saman, haldið saman með límbandi, hangi saman á límbandi o. s. frv. þyrfti á annað borð að fjölyrða eitthvað um þetta. Hallgrímur Helgason TROPIC VELVAKANDI SVARAR I SÍMA 691282 KL 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS tíá MUUM AUGLYSIR: Áttu í erfiðleikum meðaðfá á þig föt? Við sérsaumum og vandinn er leystur. Herra- og dömujakkaföt úr bestu fáanlegum ullarefnum. Góð og vönduð þjónusta Veriðvelkominog pantið tímanlega. Opiðtil kl. 22.00 og laugardagtil kl. 16.00. Sérstakar tímapantanir fyrirsunnudaga. * Avalltvel klædd(ur) í fötum frá Lilliendahl KLÆÐSKÉRI Garðastræti 2, s. 91-17525. KOSTABODA KRINGWN KtSIHeNM. Sími 689122 Bankastræti Sími 13122.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.