Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988 Fjárlagafrumvarpið 1989 lagt fram Skattahækkanir um 2,5 milljarða króna: Tekju- og eignaskattar hækka um 1,5 milljarð SKATTAR munu hækka um rúma 2,5 milljarða króna, eða um 4%, miðað við verðlag þessa árs, sam- kvæmt Qárlagafrumvarpinu. Tekjur ríkissjóðs á næsta ári eiga að vera 77,3 milljarðar króna miðað við meðalverðlag næsta árs, sem samsvarar rúmum 69 milljörðum á verðlagi þessa árs. Tekjur ríkissjóðs á þessu ári eru hins vegar áætlaðar 66,5 milljarð- ar króna. Beinir skattar, þ.e. tekju- og eignaskattur einstaklinga og fyr- irtækja, eiga að gefa 14 milljarða króna, sem er hækkun um 1,5 milljarða, eða 19%, frá innheimtu þessa árs, miðað við sömu verð- lagsforsendur. Óbeinir skattar eiga að gefa af sér 59,8 milljarða króna, sem er hækkun um 1 millj- arð, eða tæp 2% að raungildi. „Aðrar tekjur“ eiga að gefa af sér 3,5 milljarða króna, sem er lítilsháttar töluleg hækkun, en lækkun í raungildi. Hér á eftir fara helstu atriðin í tekjuöflunarhlið fjárlagafrumvarps- ins: ► Tekjuskattur einstaklinga á að skila um 9 milljörðum króna í ríkis- sjóð, eða um 500 milljónum króna í auknar tekjur. Fyrirhugað er að hækka skatthlutfallið, en ekki er ljóst hve mikið. Persónuafsláttur á að hækka á móti þannig að skattar hækki lítið sem ekkert á tekjur und- ir 60-70.000 krónur á mánuði. Bamabætur eiga einnig að hækka. Til athugunar er að setja á nýtt skattþrep á háar tekjur. ► Eignarskattar einstaklinga og fyrirtækja munu hækka almennt úr 0,95% í 1%. Þá verður sett hærra skattþrep á skuldlausa eign yfír ákveðin mörk, til dæmis 12 milljónir króna hjá hjónum, en það myndi ná til 6-8.000 manns, samkvæmt áætl- un fjármálaráðuneytisins. Þessi hækkun eignaskatts á að skila um 200 milljónum króna. ► Skattar á vexti, eða íjármagns- tekjur, eiga að skila um 150-200 milljónum króna. Hugmyndir um slíkan skatt eru þó á frumstigi og frumvarp yrði væntanlega ekki lagt fram fyrr en nokkuð er liðið á næsta ár. ► Leggja á 12% söluskatt á sölu happdrættismiða og hliðstæða starf- semi. Velta happdrætta er áætluð 4 milljarðar króna á næsta ári og sam- kvæmt því myndi þessi liður skila 480 milljónum króna í ríkissjóð. í greinargerð fj ármálaráðuneytisins segir að þessi kostnaður myndi líklega verða borinn af þeim sem miðana kaupa. Fjármálaráðherra vill þó halda þeim möguleika opnum að í stað þess að skattleggja sum happ- drætti verði happdrættisfé notað til rekstrar á viðkomandi starfsemi til að létta á opinberum sjóðum. ► Ýmsir óbeinir skattar eiga að hækka, svo sem vörugjald, bensín- gjald og innflutningsgjald á bílum. Vörugjald á að skila 2,7-2,8 milljörð- um króna eftir breytingar á því, en skilar um 1,2 milljarði í ár. Morgunblaðið/Þorkell Ólafúr Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, á fréttamannafúndi þar sem Qárlög ársins 1989 voru kynnt. Olafttr Ragnar Grímsson flármálaráðherra: Tekjuafgangur til að greiða halla fyrri ára „Fjárlagafrumvarpið fyrir 1989 er enginn gleðiboðskapur," sagði Ólafúr Ragnar Grímsson, (jármálaráðherra, í upphafí ftmdar þar sem hann kynnti frumvarpið. Hann sagði að tekjuafgangur ríkissjóðs upp á nær 1,2 milljarða króna hamlaði Dregið úr framkvæmdum og launakostnaði ríkisins ÚTGJÖLD ríkissjóðs eru skorin niður um 1,7 milljarða króna frá upphaflegri áætlun Fjárlaga- og hagsýslustofnunar. Heildarút- gjöld eru áformuð 76,1 milljarður króna á verðlagi næsta árs. Hér á eftir fer yfirlit yfir helstu breytingar á útgjaldahlið fjárlaga- frumvarpsins: ► Draga á úr framkvæmdum ríkisins með því að ekki verði ráðist í neinar nýjar framkvæmdir og dreg- ið úr framkvæmdahraða þannig að þeim verður dreift á 12 mánuði í stað 20. Fjárfestingar ríkissjóðs eiga að dragast saman um 7% að raun- gildi og allar opinberar fjárfestingar eiga að dragast saman um 3%. Sem dæmi má nefna að fé til innréttinga á húsnæði ráðuneyta, svo sem við Sölvhólsgötu, og til framkvæmda Ríkisspítala, svo sem við K-bygg- ingu, er takmarkað. Fjárfestingar Pósts og síma eru skornar niður í 200 milljónir króna, en þeir höfðu lagt fram beiðni um 900 milljónir í þann lið. Þá eru fjárfestingar Ríkisútvarpsins, Áburðarverksmiðj- unnar og fleiri fyrirtækja. ► Dregið verður úr launaútgjöld- um um 2,5% á næsta ári, eða sem svarar um 250-300 stöðugildum. Þetta á að gera með því að draga úr yfirvinnu og vinnu lausráðins verkefnafólks og með því að ráða ekki í stöður sem losna. ► Starfsemi ýmissa stofnana verður tekin til athugunar og þær lagðar niður, ellegar starfcemi þtirra hagrætt eða flutt til annara. Dæmi um slíkar stofnanir eru Skipaútgerð ríkisins, Sala varnarliðseigna, lög- og tollgæsla á Keflavíkurflugvelli, og skiparekstur og vitaþjónusta á vegum Vitastofnunar. ► Aðrar stofnanir, svo sem Vinnueftirlit ríkisins, Rafmagn- seftrilit ríkisins og Húsameistari ríkisins, verða látnar selja þjónustu sína í samræmi við tilkostnað. ► Lög um framhaldsskóla koma ekki til framkvæmda á árinu 1989 að því að útgjöld og kostnað ríkisins varðar og er reiknað með að það muni spara um 200 milljónir króna. ► Spamaður í heilbrigðiskerfinu verður stóraukinn með því að taka upp tilvísunarkerfi upp að nýju, þannig að menn leiti fyrst til heimil- islækna, en fari ekki beint til sér- fræðinga. Þá á að breyta skipulagi og verðákvörðunum í lyfjasölu og rekstri rannsóknarstofa hagrætt. ► Ýmis framlög verða óbreytt að krónutölu á milli ára og lækka því að raungildi. Þetta á meðal annars um framlög til margra fram- kvæmdasjóða og endurgreiðslu sölu- skatts í sjávarútvegi og jöfnunar- gjalds í iðnaði. ► Gera á strangari kröfur til um kostnaðaráætlanir og -mat fram- kvæmda til að efla ráðdeild ? rekstri og framkvæmdum. gegn þenslu og væri nauðsyn- legur til að greiða niður skuld- irnar vegpia hallareksturs und- anfarinna ára. Auknir skattar væru einkum sóttir til þeirra sem hefðu miklar tekjur og við niðurskurð á ríkisútgjöldum hefði verið reynt að hlífa vel- ferðarþjónustu og starfsemi á sviði menningar-, félags- og umhverfísmála. Ólafur Ragnar sagði að mark- mið fjárlaganna væri einkum að draga úr verðbólgu, erlendri skuldasöfnun og viðskiptahalla. Þannig væru gjöld lögð á ýriisar vörur til að draga úr innflutningi. Hann sagði að fara þyrfti allt aftur til ársins 1980 til að fínna frum- varp með jafn miklum tekjuaf- gangi. Tekjuafgangur væri lykilat- riði í efnahagsstefnu ríkisstjórnar- innar og því mjög mikilvægt að hann stæði eftir endanlega af- greiðslu Alþingis á frumvarpinu. Fjármálaráðherra sagði brýnt að hamla gegn sjálfvirkri aukningu ríkisútgjalda, því hætta væri á að sóun og óhagkvæmni festist í sessi í kerfinu. Hann minntist meðal annars á sparnað í heilbrigðiskerf- inu og sagði að stefnt væri að snúa við frá því allt of dýra sér- fræðingakerfi sem þróast hefði hér í heilsugæslu með því að taka upp að nýju tilvísunarkerfi hjá heimilis- læknum. Fjármálaráðherra sagði að skattar hækkuðu aðeins um tæp- lega 1 milljarð króna frá fjárlögum 1988, eða um 1,25% að raungildi. Hins vegar þyrfti einnig að vinna upp halla upp á 3 milljarða króna á fjárlögum þessa árs. Hann sagði að nýir skattar kæmu einkum nið- ur á þeim sem mestar tekjurnar hefðu og tók sem dæmi fyrirhugað nýtt þrep á eignaskatti, sem hann sagði að myndi ná til um 4-6.000 manns, sem byggju í húsum eins og sjá mætti til dæmis á Arnarnes- Pálmi Jónsson alþingismaður um fjár lagafr um varpiö: Skattar hækka um 50 þúsund á flögurra manna fjölskyldu „HLUTFALLSLEG aukning ríkisrekstrarins í ráðstöfimarfé þjóð- arinnar er það sem kalla mætti kjarna þessa fjárlagafrumvarps og það er út af fyrir sig engin nýlunda þegar vinstri menn eru við stjórn," sagði Pálmi Jónsson alþingismaður og fulltrúi Sjálf- stæðisflokks í fjárveitinganefnd Alþingis, þegar Morgunblaði leit- aði álits hans á Qárlagafrumvarpinu í gær. Hann segir aukna skattheimtu samkvæmt frumvarpinu nema 50 til 60 þúsundum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu og gagnrýnir harðlega að ríkisútgjöld aukist að raungildi á sama tima og almennur sam- dráttur er í þjóðfélaginu. „Það einkennir helst þetta frum- varp, að það er með tólf hundruð milljóna króna tekjuafgangi," sagði Pálmi, „...sem er náð með mjög aukinni skattheimtu sem að raungildi er þrír og hálfur til fjór- ir milljarðar króna, eða sem næst 50 til 60 þúsundum króna á hveija fjögurra manna fjölskyldu. Þetta er hækkun ríkistekna úr 26,2% af landsframleiðslunni í fjárlögum 1988, í 28,1% í fjárlagafrumvaipi fyrir næsta ár. Markmið ríkis- stjómarinnar um að ríkisútgjöldin vaxi ekki hefur ekki náðst, því að þau vaxa að raungildi sam- kvæmt þessu frumvarpi um 0,8%. Ríkisstjómin hefur gefíð í skyn að hún hyggist ná þessum auknu skatttekjum af eignamönnum og af hátekjumönnum, en ljóst er að einkum er um almenna skattlagn- ingu að ræða. Gert er ráð fyrir hækkun á vörugjaldi, bensíngjaldi og influtningsgjaldi af bílum. Hækka á eignaskatta og talað er um nýtt skattþrep. Einnig tekjuskatta einstaklinga og í at- hugun er að taka þar upp nýtt skattþrep og áformað að orkufyr- irtæki verði skattlögð með al- mennum hætti og þar með tekinn upp orkuskattur. Áformað er að leggja 12% sölu- skatt á happdrætti og hliðstæða starfsemi, það er lottó. Það er skattur á öryrkja og íþróttamenn. Þrátt fyrir að raunútgjöld fjár- lagafrumvarpsins aukist er niður- skurður á ýmsum þýðingarmikl- um verklegum framkvæmdum, gjaman þannig að fjárfestingar- liðir eru óbreyttir að krónutölu eða fá óverulega hækkun. Á hinn bóg- inn hækka einstakir aðrir liðir, sem njóta að því er virðist sérs- taks velvilja núverandi valdhafa, svo sem aðalskrifstofa fjármála- ráðuneytisins sem hækkar um 63% og Alþýðuleikhúsið hækkar um 159%, sem er auðvitað smálið- ur og allra góðra gjalda verður, en þetta sýnir hve lítið samræmi er í þessum málum. Á sama tíma til dæmis hækka námskeið fyrir fiskvinnslufólk aðeins um 11%. Ekki skal kastað rýrð á að ná jöfnuði í ríkisfjármálum og að hallarekstri verði þar hætt, þó hlýtur að verða að spyija hvort það sé eðlilegt að ríkisreksturinn taki til sín svo mikla fjármuni þegar að kreppir hjá öllum al- menningi og gert er ráð fyrir að kaupmáttur launa dragist saman um 7% á næsta ári og forsendur fjárlagafrumvarpsins byggja á að laun hækki aðeins um 8% til miðs næsta árs og mun sú hækkun að mestu vera þegar komin fram.“ Boðað er aukið réttlæti í skattamálum, verður sú raunin? „Þessi fullyrðing um aukið rétt- læti í skattamálum er eins og hvert annað slagorð. Eins og fyrir- ætlanir ríkisstjórnarinnar eru skýrðar út, fæ ég ekki séð að þær samrýmist því markmiði." Vaxtalækkun er boðuð, hvaða áhrif hefur hún á hagkerfið? „Vaxtastigið er nátengt verð- bólgu og verðlagshækkunum og ef raunvöxtum er ekki haidið, þá er vissa fyrir því að sparnaður muni dragast saman. Það er þó óhjákvæmilegt að vextir lækki með lækkandi verðlagi og minnk- andi þenslu, en sú vaxtalækkun sem þegar er orðin, var að miklu leyti komin fram í september áður en fyrrverandi ríkisstjóm fór frá.“ Ef sparnaður dregst saman, er þá hægt að standa við þau mark- mið að ríkissjóður taki engin er- lend lán á næsta ári, eins og boð- að er? „Það er auðvitað engin vissa fyrir því að það takist. Frumvarp til lánsfjárlaga er ekki komið fram, þar eru lántökur ríkisins að mestu ákveðnar,“ sagði Pálmi Jónsson að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.