Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988 45 Óhagganlegir forystumenn eftir Metúsalem Þórisson íslendingar þurfa aldeilis ekki að skammast sín fyrir framgöngu Halldórs Ásgrímssonar sjávarút- vegsráðherra í hvalveiðimálinu. Er- lendir kaupendur fiskafurða eru þó óðum að guggna á því að kaupa af íslendingum útflutningsafurðir þeirra, fyrst Long John Silver í Bandaríkjunum og nú síðast Teng- elmann í Þýskalandi. Stolt íslands Dóri stendur sig með prýði í bar- áttunni, eins og klettur úr hafinu, og þó að íslenskir framleiðendur tapi kannski nokkur hundruð millj- ónum króna í þessari sjálfstæðis- baráttu þá er það nú ekki mikið miðað við það sem aðrar þjóðir eyða í það að vetja sitt stolt. I rauninni megum við vera fegin á meðan við þurfum ekki að fóma mannslífum í þessari baráttu. Að vísu tekst okkar mönnum ekki alveg nógu vel í áróðursstríðinu, en það er nú orð- inn snar þáttur í öllum stríðsrekstri. Ábatalaus vísindi Heyrst hefur að aðstoðarmenn hershöfðingjans Halldórs séu að safna fé til að leggja í áróðurs- herferð. Ekki mundi duga minna en hundrað milljónir ef okkur á að verða eitthvað ágengt í þessu stríði. En hvað gera menn ekki fyrir þjóð- arstoltið. Best væri að fá auglýsingastof- una sem sá um kosningaáróðurinn fyrir Framsóknarflokkinn fyrir síðustu kosningar til að annast þetta. Miðað við fyrri árangur þá ætti þeim að veitast auðvelt _að sannfæra jarðarbúa um það að ís- lendingar viti best hvað hvalnum er fyrir bestu. Það mun líka veitast auðvelt að skýra fyrir fólki að í rauninni stundi íslendingar ekki hvalveiðar, heldur vísindarannsókn- ir á hvölum og auðvitað er ekki hægt að rannsaka lifandi hvali, svo að það verður að drepa þá. Allir vita að vísindarannsóknir eru stund- aðar á þann hátt að endurtaka verð- ur í sífellu rannsóknir til að geta borið saman niðurstöður. Þannig verður því að sjálfsögðu að drepa marga hvali í þágu vísindanna og engin ástæða til annars en að selja þá kjötið. Hér er þó alls ekki um hvalveiðar í ábataskyni að ræða, enda samþykktum við það í Alþjóða hvalveiðiráðinu að stunda ekki svo- leiðis veiðar til ársins 1990. Það er nú sjálfsagt erfitt fyrir venjulegt fólk að skilja þetta með vísindaveiðamar, slíkt er ekki á færi nema vísindamanna og sérlega glöggra manna. Halldór sannfærandi Það er þó fleira en auglýsinga- herferð sem getur orðið okkur til hjálpar í þessu stríði. Auk þess að vera mikill hershöfðingi þá er Hall- dór Ásgrímsson með svo mikinn sannfæringarkraft að íslenskir út- flytjendur fá hann til að tala um fyrir þeim kaupendum sem neita að kaupa íslenskar vömr vegna hvalveiðanna. Það má búast við því að á næstunni verði mikið annríki hjá Dóra þegar hann fer að vinna í því að sannfæra hina ýmsu kaup- endur um að halda áfram að versla við okkur, jafnvel þótt allir hætti að versla við þá sjálfa. Friðelskandi þjóð Það er mikið lán fyrir hveija þjóð að eiga forystumenn sem em fastir fyrir og láta ekki hagga sér þegar þjóðir sem em miklu stærri em að reyna að hafa áhrif á okkur. Hvað em líka Kanar að skipta sér af hvalveiðum okkar, nokkmm hvöl- um. Vom þeir ekki í Víetnam hér Áskriftarsiminn er 83033 um árið og drápu fólk í hrönnum og auk þess em þeir úti um allan heim með morðtól tilbúnir að drepa ef þeim finnst ástæða til. Dóri Ásgríms og félagar leyfa þeim meira að segja að vera með tals- vert af tólum hér uppi á Miðnes- heiði svo ég veit ekki hvaða van- þakklæti þetta er. Okkar menn styðja þá með vígvélarnar með ráð- um og dáð og svo megum við ekki einu sinni drepa nokkra hvali, ekki einu sinni í vísindaskyni, þá ætlar allt vitlaust að verða. Hvað með það þó Sambandið og einhveijir aðrir græði nokkrar krónur á herstöð- inni, það er nú það minnsta að við fáum einhveija aura fyrir að hafa þessar vígvélar héma, einkum og „Það er nú sjálfsagt erfítt fyrir venjulegt fólk að skilja þetta með vísindaveiðarnar, slíkt er ekki á færi nema vísindamanna og sér- lega glöggra manna.“ sér í lagi vegna þess að við erum friðelskandi þjóð og ekki frítt við að við höfum samviskubit að vera svona vopnaðir. Allir vita að vopn eru nefnilega til þess að drepa með fólk eða þá hræða úr því líftóruna. Öfgafull samþykkt Hvað sem öðru líður þá getum við verið stolt af okkar mönnum, þeir eru fastir fyrir og haggast ekki eða skipta um skoðun hvað sem á dynur. Við íslendingar látum ekki öfgahópa í náttúruvemd hveiju nafni sem þeir nefnast, knésetja okkur með hótunum. Auðvitað em þetta bara öfgar að vilja að farið sé eftir samþykktum Alþjóða hval- veiðiráðsins og eins með það að vilja ekki að geislavirkum úrgangi sé sökkt á hafsbotn og þess háttar. Höfundur er félagi í Samtökum græningja. Metúsalem Þórisson íslandsmótið í handbolta 1988 er hafið Fyrsti heimaleikurá Hlíðarenda íslands- og bikarmeistarar Vals hefja í dag titilvörn sína gegn léttleikandi og skemmtilegu liði Breiðabliks. Komið og sjáið nýtt meistaraflokkslið Vals, þá Sigurð Sveinsson, Einar Þorvarðarson, Jakob Sigurðsson, Valdimar Grímsson, Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson, Jón Kristjánsson og allar hinar hetjurnar, sterkari en nokkru sinni fyrr! Hittumst heil á Hlíðarenda kl. 18.00. ffl Yernd hf. »hummel^p SPORTBÚÐIN VOSSEN /HIKUG4RDUR MARKAÐUR VIÐSUND STODTVO AKO Bókabúðin Embla, sími 76366. Gisli Jónsson & Co. POLAR HKD VALS FLÝGUR MEÐ ARNAR FLUGI INNANLANDS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.