Morgunblaðið - 02.11.1988, Side 2

Morgunblaðið - 02.11.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988 Skattur tekinn af dagpeningum Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Rússneska samninganefhdin skoðar síldina Einar Benediktsson aðstoðarframkvæmdasijóri Síldarútvegsneíhdar fór í gær ásamt rússnesku samninganefndinni að skoða síldarsöltun hjá Hópsnesi hf. í Grindavík. Ánægjan leymr sér ekki yfir gæðum sildarinnar. Flugleiðir: ÞAÐ VORU ekki margar krónurnar sem flugmenn Flugleiða fengu í launaumslögum sínum um þessi mánaðamót. Tekin var af þeim stað- greiðsla skatta af dagpeningum afturvirkt til síðustu áramóta eða fyrir 10 mánaða timabil. Már Gunnarsson starfsmanna- stjóri Flugleiða segir að þetta hafí verið gert í samræmi við fyrirmæli frá ríkisskattstjóra. Flugleiðir hafa að undanfomu átt í viðræðum við skattstjóra um þetta mál þar sem reglugerð um þessa skattheimtu lá Kaupmannahöfn: Kjarvalsmynd var slegin á hálfa milljón Jónshúsi, Kaupmannahöfn. ÞINGVALLAMYND eftir Kjar- val var seld á nær 550 þúsund krónur á upgboði í Kaupmanna- höfii i gær. Onnur íslensk mynd var á þessu sama uppboði eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal og var hún slegin á tæpar 70 þúsund. Kjarvalsmyndin var máluð 1937 á Þingvöllum. Sýnir hún hraun í forgrunni en Botnssúlur og Ár- mannsfell í baksýn. Fyrir uppboðið var myndin metin á 60—70 þúsund danskar krónur en var slegin á 80 þúsund á uppboðinu sem er nálægt 550 þúsund íslenskum krónum. ekki skýrt fyrir að mati fyrirtækis- ins. í síðasta mánuði barst svo frá skattstjóra bréf með útskýringum sem taka af öll tvímæli um þessa skattheimtu. „Lögin um staðgreiðsluna tóku gildi um áramót og því urðum við að taka af dagpeningum flugmanna til þess tíma samkvæmt lögum,“ segir Már Gunnarsson. Vilhjálmur A. Þórðarson for- maður Félags íslenskra atvinnuflug- manna segir að þetta hafí komið flugmönnunum á óvart og sé félagið nú að kanna hvað það geti gert til að mæta þessu. „Við bjuggumst ekki við að þurfa að greiða skatt af þessum peningum. Málið er í at- hugun hjá okkur og meira er ekki hægt að segja um það nú,“ segir Vilhjálmur A. Þórðarson. Orðrómur um misferli við útflutning á ísfiskinum hver key^í myndmr kunnugtum Eftirlitsmaöur frá sjávarútvegsráðuneytinu fylgist með fisksölunni ytra Myndin eftir Guðmund frá Mið- dal er stórt olíumálverk málað 1934 og sýnir það fjöll í nálægð Reykjavíkur með eldgos í bak- grunni. Sjaldgæft er orðið að mái- verk eftir Guðmund séu á upp- boðum í Kaupmannahöfn og fór þessi á 10 þúsund danskar eða tæpar 70 þúsund krónur íslenskar. Málverkauppboð þetta fór fram hjá Brun Rasmussen í Bredegade og er hið 516. í röðinni sem þetta þekkta uppboðsfyrirtæki heldur. - G.L.Ásg. ÞRÁLÁTUR orðrómur er nú uppi um misferli við útflutning isfisks í gámum. Gífúrleg ásókn hefiir verið í útflutning á þorski og ýsu, langt umfram það, sem heppilegt hefiir verið talið að færi utan. Umsóknir hafa því verið skornar niður, en við það hefiir útflutning- ur á öðrum tegundum, sem ekki eru leyfisbundnar, aukizt verulega. Grunur er því uppi um að annað fari utan en tekið er fram við umsókn útflutningsley&. Eftirlitsmaður á vegum sjávarútvegsráðu- neytisins er nú kominn á Humber-svæðið (Hull og Grimsby) til að fylgjast með því að réttur útflutningur sé gefinn upp og kvótaskýrsl- ur standist. Stefán Gunnlaugsson, deildar- stjóri utanríkisviðskipta í utanríkis- ráðuneytinu, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki geta staðfest hvort orðrómur þessi ætti við rök að styðjast. Það hlyti að koma í ljós Fj órburafeeðingin gekk vel Móður og flórum dætrum heilsast ágætlega FJÓRBURAR fæddust á Fæð- ingardeild Landspítalans í gær. Það voru Qórar stúlkur sem teknar voru með keisara- skurði og tókst aðgerðin mjög vel í alla staði. Systumar §ór- ar fæddust sex vikum fyrir tímann, en voru sprækar og vógu þijár þeirra sjö merkur en ein vóg sjö og hálfa mörk. Foreldrar fjórburanna eru Margrét Þóra Baldursdóttir Stórkostleg upplifim - segir Guðjón Sveinn Valgeirsson faðir Qórburanna „ÞETTA var stórkostleg upp- lifun,“ sagði Guðjón Sveinn Valgeirsson, faðir Qórburanna, aðspurður hvernig honum hefði liðið við fæðinguna. Guð- jón Sveinn var viðstaddur þeg- ar dæturnar fjórar komu í heiminn og fylgdist með öllu. „Þetta er upplifún sem fáir hafa fengið að njóta og svo sannarlega ógleymanleg, sér- staklega þar sem allt gekk svona vel,“ sagði Guðjón. Þau Margrét Þóra Baldurs- dóttir og Guðjón Sveinn áttu fyrir einn son, fjórtán ára gamlan, og var Guðjón spurður hvemig hon- um litist á systumar. „Hann er mjög hreykinn og glaður og ég held honum lítist bara mjög vel á þetta." Guðjón sagði þau hjónin ekki vera farin að gera neinar framtíð- aráætlanir, þau hefðu viljað bíða þar til allt væri afstaðið. Enda gæfíst nægur tími til þess, þar sem systumar yrðu að vera i súr- efniskössum þar til þær væru orðnar 2 kíló og það gæti tekið nokkrar vikur. Hann sagði líðan móðurinnar vera góða, en hún hefði verið orð- in mjög þreytt undir það síðasta. „Það má segja að það sé þungu fargi af henni létt, í bókstaflegum skilningi," sagði Guðjón Sveinn Valgeirsson að lokum. og Guðjón Sveinn Valgeirsson, tannlæknir. Þau áttu fyrir einn 14 ára gamlan son. Að sögn Auðólfs Gunnarsson- ar, fæðingarlæknis, var ákveðið að taka bömin með keisaraskurði þegar móðirin væri gengin með 34 vikur, bæði til að létta á henni og eins sagði Auðólfur að vöxtur fóstranna gæti stöðvast þegar of þröngt væri orðið um þau í leginu. Aðgerðin var framkvæmd eftir að móðirin hafði fengið mænurótardeyfingu og gekk, að sögn Auðólfs, eins og best verður á kosið. Gunnar Biering, yfirlæknir bamadeildar Landspítalans, sagði að systrunum heilsaðist vel eftir atvikum, engin vandkvæði hefðu komið upp í sambandi við öndun þeirra, en á því væri mest hætta þegar fyrirburar ættu í hlut þar sem lungun væru ekki orðin nægilega þroskuð. Gunnar sagði þetta vera aðra fjórbura- fæðinguna hérlendis síðan skrán- ing hófst árið 1881, fjórburar hefðu einnig fæðst 1957. Ekki fékkst leyfí til að ná tali af móðurinni. við eftirlit Þórðar Árelíussonar frá sjávarútvegsráðuneytinu, sem nú væri kominn út. Ásókn í útflutning á þorski og ýsu væri með ólíkind- um. Sótt hefði verið um útflutning á 2.900 tonnum af þorski og ýsu í gámum til sölu í næstu viku, þegar ráðlagt væri að selja ekki meira en 1.200 tonn. 500 tonn með fiskiskip- um væm þegar ákveðin og því færi ekki meira en 800 í gámunum. Hve mikið færi utan af öðram teg- undum sagði Stefán ekki endanlega ljóst fyrr en undir vikulokin, þegar lestun skipanna lyki. Til sölu í þessari viku fóru utan í gámum 850 tonn af þorski og ýsu og 550 tonn af öðrum tegundum, en svo mikið af öðram tegundum en þorski og ýsu hefur ekki farið utan lengi. Það er meðal annars þess vegna, sem orðrómur um mis- ferli hefur komið upp. Vilhjálmur Vilhjálmsson sér um skipulagningu ísfísksölunnar hjá LÍÚ. Hann sagð- ist í samtali við Morgunblaðið hafa heyrt þennan orðróm en hvort hann ætti við rök að styðjast vissi hann ekki enn. Kristján Skarphéðinsson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðu- neytinu, segir að vegna mikillar ásóknar í útflutning á ísfiski hafi ráðuneytið ákveðið að hafa mann ytra lungann úr nóvembermánuði til að fylgjast með því hvort kvóta- skýrslur stæðust. Pétur Björnsson er aðaleigandi fyrirtækisins ísbergs í Hull, en það á mesta hlutdeild í ísfiskmarkaðn- um ytra. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að til þessa hefði ekki komið í ljós misræmi milli út- flutningspappíra og innihalds gám- anna, sem fyrirtækið hefði selt úr. Á þeim pappíram, sem heim færu, væri allur fískur kallaður réttum nöfnum. Lánsfjáráætlun fyrir næsta ár: Heildarlánsfiárþörf áætluð 28,9 milljarðar Heildarlántökur opinberra aðila á næsta ári eru taldar verða 29,8 milljarðar króna, samkvæmt lánsfjáráætlun, en útlit er fyrir að í ár nemi lántökur þessara aðila 31,7 milljörðum. Innlendar lántökur eru áætlaðar 15,6 milljónir en erlendar lántökur 14,2 milljarðar. Stærstur hluti innlenda lánsfjár- Áætlað er að taka lán erlendis ins er frá lífeyrissjóðum, eða 9,4 að upphæð 14,2 milljarðar. Þar af milljarðar, sem rennur nær allt til húsbyggingarsjóðanna. Þá er stefnt að því að afla 4,7 milljarða króna með sölu spariskírteina á næsta ári en jafnframt er geit ráð fyrir að innleyst verði eldri skírteini fyrir 4,1 milljarð. I lánsfjáráætlun segir að sam- kvæmt þessu verði ekki lagðar auknar byrðar á innlenda Iána- markaðinn á næsta ári og líklegt sé að áframhaldandi samdráttur fjárfestinga dragi úr eftirspum eft- ir lánsfé. Hins vegar bendi reynsla ársins 1988 til vaxandi þarfar at- vinnuveganna fyrir rekstrarfé, m.a. vegna mikils fjármagnskostnaðar af fjárfestingum undanfarinna ára. taki opinberir aðilar 1,5 milljarða að láni, opinberir lánasjóðir taki 4,4 milljarða og atvinnufyrirtæki 8,3 milljarða. Ekki er gert ráð fyrir áð ríkissjóður sjálfur taki erlend lán á árinu. Samkvæmt lánsfjárlögum fyrir þetta ár áttu erlend lán að nema 9,3 milljörðum króna, en horfur eru á að lánin nemi 18 milljörðum. Aukningin hefur orðið mest hjá opinberum aðilum, eða úr 1,85 milljörðum samkvæmt áætlun í 5,75 milljarða. Áformað var að ríkissjóður tæki 905 milljónir að láni erlendis en hann mun taka 4,62 milljarða að láni á árinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.