Morgunblaðið - 02.11.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
17
Brúðkaupsklæðín
eftir dr. Jakob
Jónsson
Eg hefi víst sofíð svefni andvara-
leysisins, þegar þau ræddust við í
útvarpinu, síra Bemharður Guð-
mundsson og Guðrún Helgadóttir
alþingismaður. Veit því ekki, hvað
þeim fór á milli. Þó vitnar Sigurjón
Sigurbjömsson til þess, að þau hafi
komið auga á bardaga, meiðingar
og manndráp í guðspjalli dagsins.
Og satt er það. „Það má sjá minna
grand í mat sínum." En það, sem
Siguijón nemur staðar við, er þó
fyrst og fremst það furðulega at-
riði, að konungurinn skuli ætlast
til þess, að maður komi beint af
götunni til veizlunnar og sé í brúð-
kaupsklæðum. Hann minnist á
skýringu Helga biskups Thordersen
sem raunar er alkunn, en mörgum
þykir þó vafasöm. Þess vegna er
ekki úr vegi að taka fleiri skýringar
til athugunar.
Rabbíar gyðinga ræddu um allt
milli himins og jarðar, m.a. um
brúðkaupsklæði. Sumir þeirra héldu
því fram að minnsta kosti, að menn
væru gjaldgengir í brúðkaupsveizlu
ef þeir væru hreinir í framan og
um hendurnar. Sem sagt: Ekki sóð-
ar. Til er dæmisaga, eignuð Zakkai,
um konung, sem bauð til veizlu
með góðum fyrirvara. Allir skyldu
vera viðbúnir, þegar kallið kæmi.
En þá voru sumir óhreinir og illa
tilhafðir og var ekki hleypt inn.
Sóðarnir þóttu ekki veizluhæfir.
Dr. Jakob Jónsson.
„Sumir, sem lesa guð-
spjöllin virðast álíta, að
allt, sem Jesús sagði,
hafi verið tekið á segnl-
band og síðan skrifað
orðrétt og engu haggað
síðan.“
Það er auðvitað aukaatriði, hvort
konur eru nefndar sérstaklega. Ég
get ekki fundið því stað, sem Sigur-
jón heldur fram, að hjá gyðingum
hafi konur ekki þótt veizluhæfar. í
V er slunarrekstri
hætt 1 Þykkvabæ
Selfossi. t/
Selfossi.
FRÁ og með mánaðamótunum,
1. nóvember, er engin -verslun
starfrækt í Þykkvabæ. Tvær
konur sem tóku hús og lager
verslunar Friðriks Friðrikssonar
hf. á leigu í júní hafa hætt starf-
rækslu hennar.
Laugarneskirkja
„Þetta hefur gengið alveg ágæt-
lega og batnað með hverri vikunni
og ég held þetta hafi verið orðið
þokkalegt undir lokin,“ sagði Hall-
dóra Gunnarsdóttir sem ásamt
Höllu Maríu Ámadóttur tók verslun
Friðriks Friðrikssonar hf. á leigu í
júní þegar fyrirtækið hætti starf-
semi. Verslunin á sér langa sögu,
hefur verið starfrækt í Þykkvabæ
í hálfa öld.
Þær Halldóra og Halla María
unnu hjá Friðriki Friðrikssyni hf.
og tóku verslun og lager á leigu.
Halldóra sagði að þær ættu eftir
að gera upp eftir tímabilið og kvaðst
vona að þær væru réttu megin við
núllið. Hún sagði að þar sem þetta
var eina verslunin á staðnum þá
væm þeir eðlilega óánægðir sem
notuðu hana eingöngu. Um fram-
haldið vildi hún engu spá en sagði
að þær hefðu ekki lagt í að halda
áfram og takast á herðar þær fjár-
festingar sem þyrfti til að halda
áfram svona rekstri. Þær hefðu
tekið að sér að halda versluninni
gangandi með þessum hætti í þijá
mánuði en þeir væra nú orðnir fjór-
ir. — Sig. Jóns.
Laugarneskirkja:
Námskeið um
hjónabandið
STUTT námskeið um málefni
hjónabandsins verður haldið
laugardaginn 5. nóvember. Nám-
skeiðið verður haldið í Safnaðar-
heimili Laugarneskirkju og
stendur frá kl. 13.00—19.00.
Leiðbeinendur verða sr. Þorvald-
ur Karl Helgason, sr. Birgir Ás-
geirsson og sr. Jón D. Hróbjarts-
son. Námskeiðið er haldið í sam-
vinnu við Reykjavíkurprófastsdæmi
og er ætlað fólki, sem er í sambúð,
guðspjöllunum er getið um konur í
veizlum, svo sem Maríu móður Jesú,
Maríu í Betaníu, Herodías og
Salóme.
Sagan um brúðkaup konungs-
sonarins er í Matt. 22,1—14. Hún
á sér nána hliðstæðu I dæmisög-
unni um hina miklu kvöldmáltíð hjá
Lúkasi 14, 15.—24. Þó er mikill
munur á þessum tveim sögnum.
Hjá Lúkasi er ekkert getið um
refsiaðgerðir gegn þeim, sem ekki
þýðast heimboðið. Áðeins sagt, að
húsbóndinn hafi reiðst og snúið sér
að öðram. Sagan virðist vera sögð
til að lýsa því, hvemig tollheimtu-
menn og syndarar vora hæfari til
að fara úr boði Krists en fræðimenn
og farísear.
Dæmisagan um brúðkaup kon-
ungssonarins hjá Mattheusi hefir
allt annan blæ. Hann segir söguna
á þá leið, að jafnan er auðfundið,
hvemig hann heimfærir hana til
einhvers sem honum er kunnugt
um. Hann hefir ekki aðeins kenn-
ingu Jesú í huga, heldur sögu fram-
kristninnar. Tvisvar hefir konung-
urinn sent út þjóna til að bjóða til
brúðkaupsins. Fyrst spámennina,
síðan Krist og postulana. En þeir,
sem áttu að taka boðinu, smánuðu
þá og drápu. En konungurinn
brenndi borg þeirra í staðinn. Hér
hefir Matteus í huga eyðingu Jerú-
salemborgar, sem hann lítur á sem
hegningu fyrir það, að Jerúsal-
embúar höfðu „myrt" Jesúm. En
að svo búnu er boðinu beint til heið-
ingjanna, þangað til salurinn er
fullur af veizlufólki. Þá skeði þetta
óhapp með sóðann, sem fær heldur
en ekki óblíða meðferð. Hann er
bundinn á höndum og fótum og
honum er hent út í myrkrið, þar
sem hryggð og reiði fá útrás í gráti
og gnlstran tanna.
Það er engin furða, þótt mönnum
blöskri aðfarimar I þessari sögu.
En þar ber tvennt til. Matteus er
ekki fyrst og fremst að segja sögu,
heldur að útleggja sögu sem sann-
arlega var blóði drifin. En í öðra
lagi er sagan I stíl við dæmisögu
sumra rabbíanna, sem alls ekki áttu
að lýsa „sönnum“ atburðum, heldur
draga upp myndir sterkra and-
stæðna og dauðarefsing var sjálf-
sögð refsing á illvirkjana. Þama
kemur fram svipað einkenni og oss
er kunnugt úr ævintýranum, sem
íslenzk alþýða fékk frá Mið-Evrópu
mörgum öldum síðar. Ég man ekki
til þess, að sú elskulega bamakyn-
slóð, sem ég sjálfur tilheyrði, tárað-
ist yfir því, þó að tröllin eða vondu
stjúpumar fengju fyrir ferðina. Það
var bara „gott handa þeirn". — Svo
var einnig um grát og gnístran
tanna.
Málið er ekki alveg afgreitt með
því, sem hér hefir verið sagt. Sum-
ir, sem lesa guðspjöllin virðast álíta,
að allt, sem Jesús sagði, hafi verið
tekið á segulband og síðan skrifað
orðrétt og engu haggað síðan. Auð-
vitað æfðu menn sig í að leggja
mikið á minnið og utanaðlærdómur
gerði frásagnir áreiðanlegri en ella.
Samt hlutu sögur að breytazt í
meðföram. Guðspjöllin era fyrst og
fremst kennslubækur. Kennarar
breyta og bæta inn í frásögnina til
að gera hana skiljanlegri næstu
kynslóð. Þannig virðisfmálið liggja
fyrir hér. Jesús hefir sagt dæmi-
sögu, sem átti sér að bakhjarli at-
vik úr samkvæmislífi almennings.
Hann notar stíl, sem er kunnur frá
kennslu rabbíanna, er gjaman segja
öfgafull ævintýri, sem ekki gerast
í „alvöranni". Matteus endursegir
söguna þannig, að hún verður
myndræn lýsing á ofsóknartíma
frumkirkjunnar.
Það er ógemingur að gera sér
nákvæmlega grein fyrir upphaflegu
orðalagi Jesú. Kannski hafa þeir
rétt fyrir sér, sem álíta, að tvær
sögur hafi rannið saman í eina. En
hitt ættu allir að geta fallizt á, að
Nýja testamentið færir oss ekki
aðeins boðskap meistarans, heldur
einnig túlkun þeirra, sem fyrstir
skrifuðu um hann. Það má líkja
Jesú við ljós I marglitum vita, þar
sem þeir lögðu til glerin, sem ljósið
skín í gegnum, — Matteus, Mark-
ús, Lúkas, Jóhannes, Pétur, Páll,
Jakob og fleiri.
Höfundur er doktor i guðlræði
og fyrrverandi sóknarprestur.
hjónabandi eða er að undirbúa sig
undir hjúskap og vill auðga sam-
skipti sín í milli, styrkja sambandið
og efla sjálfsvitund sína og stöðu
gagnvart maka sínum.
Upplýsingar fást og skrásetning
fer fram í Safnaðarheimili Laugar-
neskirkju dagana 1.—4. nóvember
milli kl. 15.00 og 17.00. Ennfremur
má tala við einhvern leiðbeinand-
ann.
(Fréttatilkynning)
CITROÉN
TAKA HONDUM SAMAN
OG EFLA VIÐGERÐAR ÞJÓNUSTUNA.
5%
KYNNINGARAFSLÁTTUR
TIL ÁRAMÓTA.
Eitt fullkomnasta þjónustuverkstæði
landsins hefur tekið til starfa.
Við bjóðum af þessu tilefni 5% kynningar-
afslátt á almennum viðgerðum og vara-
hlutum tengdum þeim.
Bjóðum einnig:
- Reglubundnar kílómetraskoðanir á föstu
og hagstæðu verði.
- Vetrarskoðanir frá kr. 5000.
Sértilboð:
Varahlutaverslun okkar býður ýmsa auka-
hluti í Citroén og Saab bifreiðar með góðum
afslætti.
Láttu reyna á nýja þjónustu.
Við tökum vel á móti þér.
G/obus?
Lágmúla 5, Sími 681555