Morgunblaðið - 02.11.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
Bhutan:
Konungurinn
kvæntist flórum
systrum á laun
Nýju Delhi. Reuter. Daily Teleg^aph.
Konungurinn af Bhutan, sem kvæntíst fjórum systrum á laun
fyrir níu árum, gerði hjónabandið opinbert á mánudag og var
þá efiit tíl nýrrar vígsluathafiiar að kröfu búddistamunkanna í
landinu. Útnefiidi konungurinn þá um leið þann, sem taka á við
af honum í fyllingu tímans.
Reuter
Sprengju var kastað inn í þessa ísraelsku langferðabifreið á sunnudag og biðu 26 ára gömul ísraelsk
kona og þijú ungabörn hennar bana. Sjö Palestínumenn hafa verið handteknir, grunaðir um aðild að
tilræðinu. Fréttaskýrendur spáðu því að atvikið yrði vatn á myllu hægriflokkanna í kosningunum í
ísrael, sem fram fóru í gær.
Jigme Singye Wangchuck, 32 ára
gamall konungur í „Landi þrumu-
drekans" í Himalajafjöllum, hefur
lengi verið talinn til álitlegri pipar-
sveina þótt landar hans margir hafi
vitað, að hann var kvæntur á laun.
Utanríkisráðherra Bhutans, Dawa
Tsering, kom á sunnudag til Nýju
Delhi á Indlandi til að skýra frá
opinberu vígslunni og sagði, að
konungurinn, sem kallaður er með-
Kosningarnar í ísrael:
Sigur Likud-flokksins myndi
liafa hörmulegar afleiðingar
- segir Zeid al-Rifa’i, forsætisráðherra Jórdaníu
Amman. Reuter.
ZEID al-Rifa’i, forsætisráðherra Jórdaníu, sagði í gær að bæri
Likud-flokkurinn sigur úr býtum í kosningunum í ísrael, sem
fram fóru í gær, myndi það hafa hörmulegar afleiðingar. Rifa’i
lét svo ummælt þegar ísraelar gengu að kjörborðinu eftir spenn-
andi kosningabaráttu milli Yitzhaks Shamírs, forsætisráðherra
ísraels og leiðtoga Likud-flokksins, og Shimons Peresar, utanríkis-
ráðherra og leiðtoga Verkamannaflokksins.
ástand" óhjákvæmilegt, en því hef-
ur verið haldið fram að viðtalið
hefði verið tekið að undirlagi að-
stoðarmanna Peresar, leiðtoga
Verkamannaflokksins. Peres er
hlynntur því að haldinn verði al-
þjóðleg ráðstefna um frið fyrir
botni Miðjarðarhafs. Shamir er
hins vegar algerlega mótfallinn
siíkri ráðstefnu og telur að hún
myndi leiða til þess að ísraelar
þyrftu að yfírgefa hemumdu svæð-
in.
al þegna sinn „Hinn dýrðlegi stjóm-
andi drekafólksins", hefði látið und-
an óskum búddaklerkanna um að
gera hjónabandið opinbert.
Stjörnufræðingar konungs höfðu
reiknað út upp á mínútu hvenær
vígslan skyldi fara fram en hún var
í Puakha, hinni fomu höfuðhorg
Bhutans. Hefur verið fyrirskipuð
þriggja daga hátíð í öllu landinu
en konungurinn útnefndi einnig
arftakann, elsta son sinn, sem er
átta ára gamall.
Eiginkonur Wangchucks eru af
góðum ættum, komnar af Shabd-
ung Nawang Namgyal, sem kom
til landsins frá Tíbet árið 1660 og
sameinaði það undir einni stjóm.
Afkomendur Shabdungs ríktu síðan
til ársins 1907 en því er trúað, að
þeir hafi í raun verið hann endur-
fæddur. Wangchuk-ættin hefur
síðan verið við stjórnvölinn. í Bhut-
an og raunar Nepal einnig er það
siðvenja, að konungar kvænist
systrum.
Wangchuck konungur gerir sér
mikið far um að hafa gott samband
við þegna sína, 1,3 milljónir manna,
og ferðast mikið um landið en þeim
mun sjaldnar erlendis.
„Ef Likud-flokkurinn ber sigur
úr býtum í kosningunum og ný
stjóm tekur upp yfírlýsta stefnu
hans, lítur á hernumdu svæðin sem
óaðskiljanlegan hluta ísraels og
Palestínumenn á Vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu sem útlendinga
á landi ísraela, hefur það augljós-
lega hörmulegar afleiðingar,"
sagði Rifa’i í samtali við fréttarit-
ara Reuters „Þá verða engar frið-
arviðræður og engar líkur á sam-
komulagi," bætti hann við.
„Þetta merkir þó ekki að friður
komist strax á sigri Verkamanna-
flokkurinn en hann er þó reiðubú-
inn að fara eftir ályktun Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna um að
ísraelar gefi landsvæði eftir til að
hægt verði að semja um frið,“
hélt Rifa’i áfram. „Forystumenn
Verkamannaflokksins hafa áttað
sig á því að Vesturbakkinn og
Gaza-svæðið em landsvæði Pal-
estínumanna sem ísraelar hafa
hemumið og jafnframt að Pa-
lestínumenn sem búa þar em her-
numin þjóð. Þar méð hefur skap-
ast gmndvöllur fyrir því að viðræð-
ur geti hafíst."
I síðasta mánuði lýsti Hussein
Jórdaníukonungur því yfír í viðtali
við bandaríska sjónvarpsstöð að
bæri Likud-flokkurinn sigur úr
býtum væri „algert hörmungar-
Noregur:
Lögrégla drepur
óðan byssumann
Óaló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKIR lögreglumenn skutu 22 ára gamlan mann frá Drammen
um síðustu helgi. Maðurinn lést af völdum skots er hann fékk í
magann eftir að hann hafði vísað á bug hvatningum um að gefast
upp að lokinni æsilegri eftirför lögreglubíla. Á meðan á henni stóð
skaut maðurinn mörgum sinnum á lögreglumennina með haglabyssu.
Lars Reidar Nordli, en svo hét Sérstök rannsóknamefnd komst
maðurinn, skaut fyrst í kringum sig að þeirri niðurstöðu í gær að Nordli
á allt sem hrærðist í miðbæ Dramm-
en, stal síðan bíl og flýði undan
vopnuðum lögreglunni. Að lokum
tókst 11 lögreglumönnum að um-
kringja hann við vegamót þar sem
hann var beðinn að gefast upp og
skotið var aðvörunarskotum. Nordli
svaraði með því að skjóta á lög-
reglumann en sá var í skotheldu
vesti og slapp hann því ómeiddur.
Því næst skutu lögreglumenn þrisv-
ar með vélbyssu á Nordli af tíu
metra færi; eitt skotanna lenti í
maga hans.
hefði verið drepinn af slysni og lög-
reglumennimir hefðu farið að sett-
um reglum. Þetta er í þriðja sinn á
síðustu 12 árum að norskir lög-
reglumenn drepa vopnaðan mann
sem þeir reyna að handtaka. 1976
var fallið frá ákæru á hendur lög-
reglumanni frá Ósló er hafði skotið
16 ára gamlan bílþjóf í bakið. 1985
var lögreglumaður frá Holmestrand
dæmdur fyrir manndráp af gáleysi
en hann hafði skotið drukkinn,
nítján ára gamlan mann fyrir utan
lögreglustöð bæjarins.
Eini farþeginn í Júmbó-
þotu frá Tókíó til London
London. New York Times.
ALLIR sem hafa mátt þola taf-
ir á flugvöllum, flogið með full-
setnum vélum og þurft að bíða
i röð eftir að komast á snyrting-
una og jafiivel verið boðið upp
á kaldan málsverð um borð,
þótt hann ætti að vera heitur,
skulu lesa þessa litlu frásögn
um ánægðan farþega um borð
í Júmbóþotu British Airways á
flugi 008.
Ung japönsk kona var eini far-
þeginn um borð í Boeing 747
þotu breska flugfélagsins sem
nýlega flaug frá Tókíó til London.
Flugið tók 13 klukkustundir og
gat konan valið úr 353 sætum,
horft á sex kvikmyndir og snætt
og drukkið að vild meðan þotan
brenndi um það bil 11.300 lítrum
af eldsneyti á klukkustund. Tutt-
ugu og ein flugfreyja og flugþjónn
sáu til þess áð hana skorti ekkert
og ekki þurfti hún að bíða í röð
til þess að fara á salernið.
Farþeginn, sem talsmenn flug-
félagsins segja að heiti Yama-
moto, fékk þjónustu sem aðeins
þekkist í ævintýrum. Og til að
kóróna allt hafði konan keypt
miða á ódýrasta farrými.
„Hún hefur gert bestu farmiða-
kaup í sögu farþegaflugsins,"
sagði David Kyd, starfsmaður
IATA, Alþjóðasamtaka flugfé-
laga, í Genf.
„Þetta er draumur hvers far-
þega,“ sagði John Silver, talsmað-
ur British Airways.
Atburðurinn stríðir gegn stefnu
allra flugfélaga. Skipulagning og
aukin alþjóðleg samkeppni hefur
Japönsk kona var eini farþeginn í Júmbó-þotu eins og þeirri, sem
hér sést, frá Tókíó til London.
leitt til þess að flugvélum er
sjaldnar en nokkru sinni fyrr flog-
ið með auð sæti. Að meðaltali eru
farþegaiými flugvéla um víða ver-
öld setin að þrem fjórðu hlutum.
Forsaga málsins er sú að vegna
vélarbilunar í London tafðist flug-
ið frá Tókíó um 20 klukkustund-
ir. 191 farþega sem hafði bókað
sig í flug 008 var gerð grein fyr-
ir töfínni og British Airways bauð
þeim að fljúga með öðrum flugfé-
lögum til London fyrr sama dag.
190 farþegar þáðu boðið, allir
nema ungfrú Yamamoto.
Henni var vísað á fyrsta far-
fymi fremst í vélinni og henni
boðið upp á drykki og málsverð
sem var grafinn lax, snöggsteikt
grísasteik, núðlur, ostur, kex og
ávextir. Síðan horfði hún á kvik-
myndina „Maður fyrir borð“, með
Goldie Hawn í aðalhlutverki. Þá
lagði hún sig og snæddi að lokum
hádegisverð rétt fyrir lendingu á
Heathrow-flugvelli.
Flugstarfsmenn segja að þjón-
usta sé óaðskiljanlegur þáttur
áætlunarflugs, jafnvel þótt af
þjónustunni leiði beint fjárhagstap
fyrir flugfélagið.
„Sumir halda að með áætlunar-
leyfí sé hægt að raka saman pen-
ingum, en það felur einnig í sér
að flugfélagið skuldbindur sig til
að halda uppi ferðum," sagði Kyd
hjá Alþjóðasamtökum flugfélaga.
„Þetta er skólabókardæmi um það
þegar flugfélag stendur við þá
skuldbindingu."
Hve miklu tapaði British Air-
ways á fluginu? Talsmenn flugfé-
lagsins gefa það ekki upp en segja
að það hefði hvort eð er orðið að
fljúga vélinni til London eins fljótt
og kostur var. Þó er ekki fjarri
lagi að áætla að tapið sé um
100.000 dalir eða sem samsvarar
4.6 milljónum ísl. króna.
Farmiði á ódýrasta fanými frá
Tókíó til London kostar tæpa
1.500 dali (69.000 kr.)