Morgunblaðið - 02.11.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
31
Veiðin orðin um 57.000 tonn
BÚIÐ var að tilkynna um veiðar á 57.180 tonnum af loðnu í gær,
þriðjudag, en tilkynnt hafði verið um 17.845 tonna loðnuafla 31.
október í fyrra.
A föstudaginn tilkynnti Helga
II RE um 150 tonn til Siglufjarð-
ar.
Á laugardaginn tilkynnti Hilmir
II SU um 550 tonn til Siglufjarð-
ar, Börkur ,NK 1.200 tonn til
Neskaupstaðar, Skarðsvík SH
640 tonn til Siglufjarðar og Al-
bert GK 650 tonn til Siglufjarðar.
Á sunnudaginn tilkynnti Örn
KE um 750 tonn til Krossaness,
Guðrún Þorkelsdóttir SU 720
tonn til Eskifjarðar, Sunnuberg
GK 640 tonn til Grindavíkur,
Gullberg VE 620 tonn til Hafnar-
fjarðar, Súlan EA 720 tonn til
Færeyja, Höfrungur AK 650 tonn
til Siglufjarðar, Keflvíkingur KE
530 tonn til Bolungarvíkur, Guð-
mundur Ólafur ÓF 640 tonn til
Siglufjarðar og Þórður Jónasson
EA 650 tonn til Siglufjarðar.
Á mánudaginn tilkynnti Kap
IIVE um 650 tonn til Vestmanna-
eyja, Harpa RE 550 tonn til
Njarðvíkur og ísleifur VE 580
tonn til Bolungarvíkur.
I gær, þriðjudag, tilkynnti Sig-
hvatur Bjarnason VE um 670
tonn til Vestmannaeyja, Beitir
NK 1.230 tonn til Neskaupstaðar,
Jón Kjartansson SU 870 tonn til
Eskifjarðar, Albert GK 720 tonn
til Færeyja og Grindvíkingur GK
850 tonn til Færeyja.
Viðtalstímar al-
þingismanna Sjálf-
stæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn hefiir lengi gengist fyrir fóstum við-
talstímum borgarfulltrúa í Reykjavík og sveitarsfjórnarmenn
hans og alþingismenn efiia gjarnan til viðtalstíma af þessu tagi
í kjördæmum sínum um land allt.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa nú ákveðið að efna til sér-
stakra viðtalstíma í nóvember-
mánuði. Þingmennirnir verða til
viðtals í skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins, Valhöll, Háaleitisbraut
1, þriðjudaga, miðvikudaga og
fímmtudaga, á tímum sem nánar
verða auglýstir. Ætlunin með
þessum viðtalstímum er að auð-
velda mönnum að ná tali af ein-
stökum þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins á föstum tilteknum aug-
lýstum tíma. Bæði verður hægt
að koma í Valhöll og hitta þing-
mennina eða hringja í síma 82900
og ná sambandi við þá þannig eða
leggja fyrir þá skilaboð.
Fyrst um sinn hefur verið
ákveðið að hafa þessa viðtalstíma
í nóvember, en þeir munu verða
endurteknir með svipuðum hætti
eftir áramótin. Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins vonast til að
hverjir þeir er ná þurfa sambandi
við þá notfæri sér þessa við-
talstíma, en auk þess er að sjálf-
sögðu hægt að ná sambandi við
alþingismenn Sjálfstæðisflokksins
á skrifstofum þeirra í Alþingi, en
síminn þar er 11560.
Fyrstu viðtalstímarnir eru sem
hér segir: Miðvikudag 2. nóvem-
ber verða Ólafur G. Einarsson og
Egill Jónsson til viðtals kl.
10.00—12.00. Fimmtudaginn 3.
nóvember verða Kristinn Péturs-
son og Birgir ísleifur Gunnarsson
til viðtals kl. 10.00—12.00 og
Friðjón Þórðarson og Salóme Þor-
kelsdóttir kl. 17.00—19.00.
(Fréttatilkynning)
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 1. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 46,00 30,00 33,56 54,721 1.836.689
Undirmál 15,00 15,00 15,00 3,860 57.907
Ýsa 80,00 31,00 49,95 20,972 1.047.501
Ufsi 16,00 16,00 16,00 1,773 28.371
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,091 1.378
Steinbítur 15,00 15,00 15,00 2,018 30.278
Lúða 285,00 170,00 228,99 0,612 140.208
Koli 52,00 52,00 52,00 0,117 6.110
Tindaskata 4,00 4,00 4,00 0,036 143
Samtals 37,39 84,204 3.148.485
Selt var aðallega úr Otri HF, Haraldi Böðvarssyni AK, frá Odda
hf. á Patreksfirði og Fiskverkun Drafnar. ( dag veröur meðal
annars selt óákveðið magn af þorski og ýsu úr Stakkavík ÁR
og fleiri skipum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 36,50 26,00 34,11 31,337 1.068.910
Þorskur(ósL) 35,00 30,00 31,95 0,064 2.045
Ýsa 49,00 35,00 42,69 0,106 4.525
Ýsa(óst) 80,00 52,00 72,23 0,952 68.762
Ýsa(smá) 33,00 15,00 28,50 0,112 3.192
Ufsi 12,00 12,00 12,00 0,110 1.320
Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,265 3.975
Lúða(smá) 160,00 160,00 160,00 0,020 3.200
Samtals 35,06 32,966 1.155.932
Selt var úr Ásbirni RE. í dag verður selt úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 47,50 38,00 44,87 7,096 318.382
Ýsa 75,00 20,00 61,56 3,683 226.763
Ufsi ' 20,00 15,00 18,56 23,268 431.966
Karfi 27,50 12,00 25,49 20,380 519.401
Lúða 195,00 65,00 171,36 0,290 49.694
Blálanga 20,00 19,00 19,96 1,426 28.479
Hlýri+steinb. 15,00 15,00 15,-00 0,170 2.559
Keila 17,00 12,00 12,59 0,700 9.468
Síld 7,79 7,79 7,79 29.150 227.078
Samtals 21,05 86,309 1.816.513
Selt var aðallega úr Bergvfk KE, Guðfinni KE, Þorsteini Gisla-
syni GK og Þresti KE. í dag verða meðal annars seld 45 tonn
af þorski, 13 tonn af undirmálsþorski, 24 tonn af ufsa, 4 tonn
af ýsu og 2 tonn af steinbít úr Aðalvík KE. Einnig verður selt
óákveðiö magn af síld úr Kópi GK, Geirfugli GK og Hrungni GK.
Grænmetisverð á uppboðsmörkuðuml nóvember.
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Gúrkur 125,00 0,385 48.125
Tómatar 127,00 3,126 560.868
Paprika(græn) 351,00 0,135 47.385
Sveppir 450,00 0,606 272.700
Steinselja 31,00 800 búnt 24.800
Gulrætur(ópk.) 89,00 0,550 48.950
Gulræturjpk.) 107,00 2,700 287.700
Kínakál 117,00 3,504 408.780
Hvítkál 66,00 6,840 453.880
Grænkál 32,00 100 búnt 3.200
Salat 63,00 0,870 54.960
Samtals 2.250.248
Söngvarar sýningarinnar, frá vinstri í fremri röð: Arnar Freyr látúnsbarki, Richard Scobie, Anna
Ólafsdóttir, Hafsteinn Hafsteinsson, Shady Owens, Elín Ólafsdóttir og Bjarni Arason látúnsbarki
ásamt dönsurum.
Diskósýning í Broadway:
„Gæjar og* glanspíur“
frumsýnt um helgina
GÆJAR og glanspiur nefhist sýning, sem verið er að setja upp
í veitingahúsinu Broadway, og frumsýnd verður á fostudaginn.
Hún Qallar um blómaskeið diskótekanna um 1980. Hátt í þriðja
tug manna koma fram í sýningunni, þar á meðal átta söngvarar
og átta manna dansflokkur. í hópi söngvaranna eru látúnsbark-
arnir tveir, Bjarni Arason og Arnar Freyr. Á undan sýningunni
er boðið upp á kvöldverð.
I fréttatilkynningu um sýning-
una segir svo: „Á nokkurra ára
bili sitt hvorum megin við 1980
greip um sig ógurlegt fár alls
staðar þar sem pláss var fyrir tvo
fætur eða fleiri til að bregða á
skrautlegri og tilþrifameiri dans
en lengi hafði þekkst. Ekki sakaði
að lofthæð væri líka nógu mikil
til að hægt væri að teygja upp
armana með áhrifamiklum hætti
og líkja þar með eftir frægri stell-
ingu Johns nokkurs Travolta, sem
sást svo í eftirlíkingum gangandi
um götur og torg. Brilliantínið var
dregið fram úr rykugum fylgsnum
á gleymdum rakarastofum og
strákamir, sem áður höfðu iðu-
lega verið í algjörum aukahlut-
verkum á dansgólfunum, urðu
núna kóngar á kvöldin.
Danskennarar upplifðu sín
sfldarár. Torfur af töffúrum syntu
inn í salina þeirra og sýndu svo
listir sfnar á diskótekunum á
kvöldin. Þau voru troðfúll jafnt
virka daga sem um helgar.
Diskódúndrið var í algleymingi
og lögum með John Travolta og
Oliviu Newton-John var þrumað
út úr plötusnúðabúrunum ásamt
fjöldanum öllum af svokölluðum
diskólögum. Hveijir muna ekki
lög eins og „He’s the greatest
dancer" og „In the Navy“?“
Handrit er eftir Ásgeir Tómas-
son, sviðssetningu hefur annast
Sóley Jóhannsdóttir, Ástrós
Gunnarsdóttir er höfundur dansa,
leikmynd er eftir Jón Þórisson og
hljómsveitarstjóri er Grétar Örv-
arsson.
Frumvarp um prestaköll og prófastsdæmi:
Prestaköllum fækk-
ar en prestum ekki
Á KIRKJUÞINGI er nú til umfjöllunar og afgreiðslu frumvarp til
laga um skipan prestakalla og prófastsdæma og neftidarálit um
starfsmenn þjóðkirkju íslands. í greinargerð sem Morgunblaðinu
hefur borist frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu segir, að í um-
fjöllun um frumvarpið hafi gætt rangtúlkunar á einstökum atriðum
og því sé rétt að greina frá nokkrum megin breytingum sem frum-
varpið felur í sér.
Meginatriðin í fmmvarpinu eru
ellefu:
1. Prestakallaskipunin utan
Reykjavíkur og Reykjaneskjör-
dæmis er ákveðin með lögum eins
og verið hefur.
2. í Reykjaneskjördæmi og
Réykjavík er prestakallaskipanin
ákveðin af ráðherra eftir tillögum
biskups, safnaða og safnaðaráða.
Þessi skipan hefur verið í gildi í
Reykjavík.
3. Lagt er til að Reykjavíkurpróf-
astsdæmi verði skipt í Reykjavíkur-
prófastsdæmi og Reykjavíkurpróf-
astsdæmi eystra, sem nær yfir
eystri hluta Reykjavíkur, Kópavog,
Mosfellsprestakall og Reynivalla-
prestakall.
4. Fjöldi prófastsdæma utan
Reykjavíkur og Reykjaneskjör-
dæmis verður sá sami. í nokkrum
tilfellum eru gerðar breytingar á
mörkum prófastsdæma.
5. Gert er ráð fyrir að aðeins
einn sóknarprestur starfi í hveiju
prestakalli, en jafnframt er í frum-
varpinu opnuð leið til þess að ráða
aðstoðarpresta í prestaköll þar sem
verkefni eru ofviða einum presti að
sinna.
6. í frumvarpinu er opnuð heim-
ild til þess að ráða farprest eða
farpresta er starfi í heilum prófasts-
dæmum og sinni forfallaþjónustu
og aðstoðarþjónustu í víðlendum og
fjölmennum prestaköllum og annist
tiltekin sérverkefni.
7. Lagt er til að 7 prestaköll
verði lögð niður og sameinuð öðrum
og jafnframt að éitt nýtt prestakall
utan Reykjavíkur og Reykjanes-
svæðis verði tekið upp. Ekki er
gert ráð fyrir að prestum fækki á
þessu svæði, þar sem nýttar yrðu
heimildir fyrir farpresta innan próf-
astsdæmis, a.m.k. jafn margar og
næmi fjölda niðurlagðra presta-
kalla.
8. Bent er á nauðsyn þess að
fjölga þurfi prestum í Reykjavík og
Reykjaneskjördæmi, en presta-
kallaskipunin er ekki ákveðin með
lögum og því eigi tilgreindur þar
viðbótaifyöldi presta í frumvarpinu.
9. Lögð er áhersla á aukna
prestsþjónustu á sjúkrahúsum.
Jafnframt eru lýmkaðar heimildir
til þess að ráða presta til sérþjón-
ustu.
10. Frumvarpið gerir ráð fyrir
auknu samstarfi presta innan hvers
prófastsdæmis.
11. Frumvarpið gerir ráð fyrir
að ráðherra sé heimilt að taka upp
ný prestaköll án lagabreytinga, þar
sem fólksfjölgun gerir það eðlilegt.
Einnig er heimilað að leggja niður
prestaköll ef íbúafjöldi í prestakalli
fer niður fyrir 250 manns.
Þá hefur nefnd farið yfir frum-
varp til laga um starfsmenn þjóð-
kirkjunnar og kannað möguleika á
að samræma það frumvarpi til laga
um skipan prestakalla og prófasts-
dæma. Tillögur nefndarinnar gera
ráð fýrir að sameina þessi tvö fram-
vörp. Lagt er til að landið verði
áfram eitt biskupsdæmi, en núver-
andi vígslubiskupsembætti efld
verulega og vígslubiskupar verði í
framtíðinni staðsettir á hinum fomu
biskupssetrum. Þá er í tillögum
nefndarinnar gert ráð fyrir að
ákvæði frumvarps til laga um
starfsmenn þjóðkirkjunnar, emb-
ættisgengi presta og fleiri ákvæði,
m.a. um prófasta, verði tekin upp
í hið nýja frumvarp.
Umrætt nefndarálit og frumvörp
verða afgreidd á Kirkjuþingi á
morgun, fimmtudag, sem er loka-
dagur Kirkjuþings.