Morgunblaðið - 02.11.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988
Tæplega 40 starfemönnum Dags og Dagsprents sagt upp störfum:
Viljum minnka yfirvinnu
og endurráða sem flesta
- segir Valur Amþórsson stjómarformaður fyrirtækjanna
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Blaðamennimir Margrét Þóra Þórsdóttir og Vilborg Gunnarsdóttir
við vinnu sína á Degi í gær.
Tæplega 40 starfsmönnum
Dags og Dagsprents var sagt upp
störfum sl. mánudag vegna end-
urskipulagningar fyrirtækisins.
Valur Amþórsson stjómarform-
aður fyrirtækjanna sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þessi
aðgerð væri hluti af hagræðing-
arátaki og meiningin væri að
endurráða flesta starfsmennina
aftur, en þó með breyttum for-
sendum.
„Markmiðið með hagræðingu er
að ná betri rekstri og laga sig að
breytingum, sem orðnar eru í efna-
hagskerfinu og þjóðfélaginu. Þær
lýsa sér m.a. í því að útgjöld hafa
vaxið meira en tekjur, sem er í
samræmi við almenna reynslu at-
vinnulífsins í dag. Þeirri efnahags-
legu staðreynd þurfa Dagur og
Dagsprent að laga sig að. Ég vil
ekki beint segja að staða fyrirtækj-
anna sé slæm, en vaxtakostnaður-
inn í þjóðfélaginu er orðinn hrika-
legur. Vegna þessa háa vaxtakostn-
aðar, hafa áætlanir engan veginn
staðist og þá er vissulega erfiðara
að standa undir skuldum. Aðallega
hefur tvennt farið verulega fram
úr áætlunum, vaxtakostnaður og
vinnulaunakostnaður, en ég vil taka
það skýrt fram að þetta er ekkert
annað en endurspeglun á þeim al-
mennu erfiðleikum, sem eru í
íslensku atvihnulífí. Þá hefur sam-
dráttur í auglýsingatekjum orðið
talsverður," sagði Valur.
„Vafalaust verða flestir starfs-
mannanna endurráðnir, en í því
sambandi þurfa tvö sjónarmið að
geta mæst, annars vegar sjónarmið
fyrirtækjanna tveggja og hinsvegar
viðkomandi starfsfólks. Það er m.a.
óhjákvæmilegt að forsendur breyt-
ist og þá er ég sérstaklega að tala
um að draga úr yfirvinnu," sagði
Valur. Nýlega flutti Dagur í nýtt
húsnæði, sem verið hefur í bygg-
ingu siðasta ár. Nýbyggingin er um
900 fermetrar og nemur kostnaður
við hana um 40 millj. kr. Breyting-
ar á útkomudögum Dags eru ekki
fyrirhugaðar. Afram er stefnt að
því að blaðið verði dagblað, en ný-
lega var mánudagsútgáfu blaðsins
hætt og í staðinn gefíð út helgar-
blað á laugardögum. Blaðið kemur
Ráðist á karl og konu
RÁÐIST var á karl og konu í
miðbæ Akureyrar um kl. 2.20
aðfaranótt laugardags. Munu
þau hafa hlotið smá áverka og
kærðu þau atburðinn þá strax
um nóttina. Bakkus mun hafa
verið í spilinu er atburðurinn
átti sér stað.
Umferðarslys varð um kl. 2.40
aðfaranótt sunnudags á Brekku-
götu. Léttu bifhjóli var ekið á gang-
andi vegfaranda. Vegfarandinn
brotnaði á fæti og einhver höfuð-
meiðsl voru að auki. Unnið var
skemmdarverk á fólksbifreið kl.
21.35 á sunnudagskvöld. Reiðhjóli
var hent ofan af húsi á bíl, sem
stóð við þvottahúsið Mjöll, Kaup-
vangsstræti. Hjólið er ónýtt og
bfllinn er mikið skemmdur. Þak
bflsins skemmdist, vélarlok, fram-
bretti og hurð og framrúða brotn-
aði.
Þá voru tvær rúður brotnar á
Akureyri um helgina, önnur í versl-
uninni Garðshorni og hin í íbúðar-
húsi. Þá var tilkynnt um innbrot í
mannlausa íbúð í Glerárþorpi. Engu
var þó stolið. Rótað hafði verið í
skúffum og skápum, en einskis var
saknað. Þrír árekstrar urðu á Akur-
eyri um helgina án þess að meiðsl
hafí orðið á fólki. Fimm ökumenn
voru teknir fyrir of hraðan akstur
innanbæjar.
Hættir rækjuvinnslan Dög-
un á Sauðárkróki rekstri?
ÖLLU starfsfólki rækjuvinnslunnar Dögunar á Sauðárkróki var
sagt upp störfum um mánaðamótin september/október. Ástæða
þessa eru erfiðleikar í hráefiiisöflun. Skip félagsins, Röst, sem
staðið hefur undir hráefnisöflun til verksmiðjunnar, liggur nú
bundið við bryggju með útrunnið haffærnisskírteini og ekki hefiir
fengist heimild frá Fiskveiðisjóði til kaupa á nýju skipi eða til að
láta endurbyggja Röstina.
Garðar Sveinn Amason, fram-
kvæmdastjóri Dögunar, sagði að
búið hefði verið að ná samningum
við hollenskt fyrirtæki um ot.iíði
nýs skips nú þegar eftir áramótin,
en heimild hefði ekki fengist frá
Fiskveiðisjóði til þeirrar fram-
kvæmdar. Þegarþessi synjun barst
hefði verið brugðið á það ráð að
leita eftir möguleika á því að end-
urbyggja Röstina og leysa þannig
vanda fyrirtækisins, en því hefði
einnig verið hafnað.
Sagði Garðar Sveinn að þessi
ákvörðun Fiskveiðisjóðs hefði kom-
ið sér og stjóm félagsins mjög á
óvart og nú virtist sem fyrirtækið
stæði á krossgötum, en aðalfundur
félagsins, sem haldinn verður í
byijun nóvember, myndi væntan-
lega taka ákvörðun um hvað gert
verður.
Garðar Sveinn sagði Dögun bet-
ur í stakk búna til að hætta rekstri
en marga aðra aðila sem fást við
rækjuvinnslu, því eiginfjárstaða
fyrirtækisins væri góð, erfíðleik-
amir sem nú steðjuðu að væru
eingöngu vegna hráefnisöflunar.
Þannig hefði Dögun skilað einnar
milljón króna hagnaði á síðasta ári
eftir að afskriftir hefðu numið sjö
milljónum og greiddar fjórar millj-
ónir í verðjöfnunarsjóð.
Þessvegna væri möguleiki á að
selja skip félagsins í því ástandi
sem það nú er, með kvótanum sem
því fylgir, gera upp skuldir fyrir-
tækisins og eiga verksmiðjuna og
sjá svo til hvort ekki rætist úr síðar
eða fara þá leið að leita eftir kaup-
um innanlands á öðm skipi í stað
Rastar til þess að halda starfsem-
inni gangandi.
Augljóst væri sagði Garðar
Sveinn að rækjuvinnsla eins og
Dögun gæti ekki gengið nema eiga
sitt eigið skip, svo sem rekstur
fyrirtækisins á síðasta ári sýndi,
því að ekki væri gerlegt að reka
verksmiðjuna með tilfallandi kaup-
um á hráefni, leigu á skipi með
umtalsverðum kostnaði eða stöð-
ugum yfirboðum í afla.
Hjá rækjuvinnslunni Dögun
voru í ágúst sl. 28 á launaskrá og
launagreiðslur í þeim mánuði 3,5
milljónir króna þannig að augljóst
er hversu alvarlegur hlutur það er
ef fyrirtækið neyðist til að hætta
rekstri, þó að marga aðra mánuði
ársins séu færri starfandi og um-
svif fyrirtækisins minni en um
hásumarið.
Dagur hefiir nýlega flutt í nýtt húsnæði og Dagsprent fékk allt
gamla húsnæðið til afiiota.
út fímm sinnum í viku. Sú breyting
var fyrsti liðurinn í hagræðingará-
takinu. Búist er við að gengið verði
frá endurráðningu starfsfólksins í
lok nóvember.
Stefán Sæmundsson trúnaðar-
maður blaðamanna á Degi sagði
starfsfólkið hafa haft pata af
rekstrarerfiðleikum fyrirtækjanna,
en að það hefði vissulega komið á
óvart er starfsmönnum voru afhent
uppsagnarbréfin á fundi fulltrúa
blaðstjórnar með fólkinu á mánu-
dag. „Við vorum hálf-slegin á fund-
inum. Það er mikið rætt og spáð.
Annars er fólk að jafna sig á þess-
um fréttum nú og heldur bara
áfrain að vinna sín störf. Við eigum
eftir að heyra hvaða hugmyndir eru
uppi hjá blaðstjóm um breyttar for-
sendur fyrir endurráðningu okkar.
Hinsvegar gerum við okkur grein
fyrir almennum rekstrarerfiðleikum
í þjóðfélaginu og því skyldu þeir
ekki bitna á okkur eins og öðmm
þjóðfélagsþegnum? Ef til er hag-
kvæmari leið í rekstri blaðsins, þá
erum við auðvitað tilbúin til að fara
þá leið. Sem betur fer er stutt þang-
að til málin skýrast, en okkur skilst
að þetta snúist að mestu um breytt
vinnufyrirkomulag. Til dæmis hefur
verið rætt um að blaðamaður á
vakt taki jafnframt við prófarka-
lestri eftir kl. 17.00 og annað í
þeim dúr," sagði Stefán.
Fjórir starfsmanna fyrirtækj-
anna fengu ekki uppsagnabréf. Það
eru Bragi Bergmann ritstjóri, Jó-
hann Karl Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri, Kristján Kristjáns-
son fréttastjóri og Guðjón Sigurðs-
son prentsmiðjustjóri. Blaðstjóm
hefur ákveðið að hafa þá til halds
og trausts við endurskipulagningu
og endurráðningu starfsmanna.
Bragi Bergmann sagði í samtali við
Morgunblaðið að halli fyrirtækisins
miðað við 7 mánaða uppgjör væri
ekki mikill, en nú væri beðið eftir
tíu mánaða uppgjöri. „Þetta em
ekki neinar bráðaaðgerðir. Við vit-
um um að það em erfiðleikar í at-
vinnulífínu og emm við farnir að
fínna fyrir þeim eins og eflaust öll
blöðin. Það er örlítið minna auglýs-
ingamagn en verið hefur og sjáum
við fram á að þetta samdráttar-
skeið í þjóðfélaginu standi að
minnsta kosti fram á mitt næsta
ár. Það kom t.d. fram á Fiskiþingi
nú í vikunni að þjóðartekjur okkar
muni ekki aukast á næstu mánuð-
um. Við emm eingöngu að reyna
að aðlaga okkur þeim erfíðleikum,
sem við sjáum fram á á næstu
mánuðum. Mjög þýðingarmikið er
að dregið verði úr yfirvinnu hjá
fyrirtækjunum við svona aðstæður
og heilmiklu er hægt að hagræða
með því að breyta vaktafyrirkomu-
lagi,“ sagði Bragi Bergmann.
Stjóm Blaðamannafélags Islands
ræddi þetta mál á fundi sínum í
gær og mun hún fylgjast með fram-
vindunni.
Fagranes ÞH 123, sem keypt hefiir verið til Húsavíkur.
Húsavík:
Nýr bátur keyptur
Húsavik.
NÝR bátur bættist í bátaflota Húsvíkinga fyrir skömmu, Fagranes
ÞH 124, sem Guðmundúr A. Hólmgeirsson útgerðarmaður hefúr
keypt frá Þórshöfii. Báturinn hét áður Björg Jónsdóttir og var þá
gerður út firá Húsavík.
Þetta er 76 lesta eikarbátur,
smíðaður 1959, en síðar endurbætt-
ur, t.d. sett í hann ný vél og nýtt
stýrishús. Fagranesið verður fyrst
gert út á línu og verður eigandinn
skipstjóri.
Eigendaskipti hafa orðið á öðrum
húsvískum bát, Fanney ÞH 130,
sem bræðumir Ásþór og Ólafur
Sigurðarsynir hafa keypt og verður
hann áfram gerður út frá Húsavik.
- Fréttaritari