Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
268. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunbláðsins
Efrurefiiahneyksli í Björgvin:
Hefði getað deytt
alla borgarbúa
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
ið með 1.800 lítra af blásýru í
geymslum sínum en hefði komið
upp eldur í þeim eða blásýran
komist í snertingu við aðrar sýr-
ur í geymslunum, hefði það getað
valdið dauða allra ibúanna,
200.000 manns.
Það, sem þykir þó enn verra, er,
að blásýran var márgflutt í gegnum
miðborg Björgvinjar á opnum vöru-
bílum án þess, að bflstjórarnir eða
aðrir starfsmenn fyrirtækisins
Wergelans Transport vissu hvað
þeir væru að flytja. Auk blásýrunn-
ar voru 7.000 lítrar af öðrum eitur-
efnum geymdir hjá fyrirtækinu og
hefði þetta eitur allt komist í snert-
ingu hvað við annað hefði blásýru-
ský lagst yfir bæinn með skelfíleg-
um afleiðingum.
Blásýran er komin frá fyrirtæk-
inu Bergen Galvaniske, sem varð
gjaldþrota 1986, en seinna komst
hún í eigu manns, sem segir, að
hún sé ekki lengur á sínum vegum.
í dag hefst - lögreglurannsókn á
þessu máli, sem valdið hefur gífur-
legri hneykslun meðal Norðmanna.
I Björgvin hefúr orðið uppvíst
um mesta eiture&iahneyksli í
norskri sögu. í eitt ár hefiu-
flutningafyrirtæki í bænum ver-
Mikilvægnr
OPEC-fimdur
V£n. Reuter.
Olíuráðherrar OPEC, Samtaka
oliuútflutningsrikja, hófú í gær
mikilvægan fúnd i Vin i Aust-
urríki. Hafa þeir gefið sjálfúm sér
fyo sólarhringa tii að leysa deilur
írana og íraka en segjast ella
verða að horfast í augu við nýtt
olíuverðhrun.
Viðfangsefni fundarins er að
koma í veg fyrir offramleiðslu en
samningar þar að lútandi stranda á
þeirri kröfu íraka, að þeim verði leyft
að framleiða jafn mikið og íranir.
Segja markaðssérfræðingar, að tak-
ist ekki að setja niður þessar deilur
muni offramleiðslan halda áfram og
olíuverðið lækka enn.
Sjá „Skammtíma bls. 28.
Veturíbæ
Reuter
Þótt veturinn hafí verið einmunagóður hér á landi
til þessa er hagn kominn með fjúki og frosti á meg-
inlandi Evrópu. Grimmdargaddur hefur verið á Norð-
urlöndum síðustu daga og aðfaranótt mánudagsins
gerði áhlaupsveður allt suður í Bæjaraland í Vestur-
Þýskalandi. Bfleigendur í Munchen máttu því byija
daginn með því að sópa snjóinn af rúðunum.
.nftlil
Reuter
Tvísýnar kosningar
Kanadamenn gengu að kjörborðinu
í gær í einhveijum tvísýnustu kosn-
ingum, sem þar hafa lengi verið
haldnar. Hafa verið miklar svipting-
ar í fylgi flokkanna í skoðanakönn-
unum en undir það síðasta virtist
íhaldsflokkur Brians Mulroney for-
sætisráðherra vera kominn með
nokkurt forskot. Nýgerður fríversl-
unarsamningur við Bandaríkin var
helsta kosningamálið og kosninga-
baráttunni lauk með því, að John
Tumer, leiðtogi Fijálslynda flokks-
ins, skoraði á stuðningsmenn ný-
demókrata að fella hann með því
að snúast á sveif með fijálslyndum.
Myndin var tekin af Mulroney for-
sætisráðherra þegar hann kaus í
gærmorgun og það var að sjá hann
væri sigurviss. Búist var við mikiili
kjörsókn.
Eystrasaltsríkin:
Reynt að lægja ólguna
með málamiðlunum
Moskvu. Reuter.
UMFERÐ stöðvaðist í gær i mið-
borg Vilnius, höfúðborg Lithá-
ens, þegar fjöidi manna safiiað-
ist þar saman til að kreQast
þess, að þingið iýsti yfir fúll-
veldi ríkisins. Sovésk þingnefind
hefúr ákveðið að stokka veru-
lega upp fyrirliggjandi drög að
stjómarskrárbreytingum í von
um að firiða með þvi Eistlend-
inga og aðrar Eystrasaltsþjóðir.
Fjöldi manna safnaðist í gær
saman í Vilnius, höfuðborg Lithá-
ens, og hafði fólkið uppi kröfur
um, að þingið og ríkisstjómin færu
að dæmi Eistlendinga og lýstu yfír
fullveldi landsins. Á föstudag sam-
þykkti þingið að mótmæla fyrir-
huguðum breytingum á sovésku
stjómarskránni en gekk þó ekki
svo langt að lýsa yfír fíillveldi.
Olli það mikilli óánægju meðal
margra og um helgina urðu marg-
ir til að hvetja til 10 mínútna alls-
heijarverkfalls í gær, mánudag.
Pravda, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, skýrði frá
því í gær, að verulegar breytingar
yrðu gerðar á tveimur greinum,
sem gagnrýnendur segja, að skerði
sjálfsákvörðunarrétt einstakra
sovétlýðvelda. Með annarri voru
kommúnistaflokknum og öðmm
samtökum tryggð ákveðin þing-
mannatala en í hinni sagði, að fyr-
irhugað fulltrúaþing gæti gert
samþykktir um innri málefni allra
Sovétríkjanna. í núverandi stjórn-
arskrá Sovétríkjanna hafa einstök
lýðveldi rétt til að segja sig úr
ríkjasambandinu þótt sá réttur sé
raunar aðeins að nafninu til.
í dag mun þingið í Lettlandi
koma saman og hefur þjóðfylking-
in þar hvatt það til að lýsa yfír
fullveldi þjóðarinnar. Ekki þykir
þó líklegt, að það verði gert enda
em leiðtogar lettneska kommún-
istaflokksins miklu íhaldssamari
en þeir í grannríkjunum.
Moskva:
Beðið fyrir fórn-
arlömbum Stalíns
Moskvu. Daily Telegraph.
BÆNASTUND var haldin f Moskvu á sunnudag og beðið fyrir
sálum þeirra, sem létu lífið í ofsóknaræði Stalínstimans á ofan-
verðum fíórða áratugnum. Fór athöfnin firam í Kalítníkovskoje-
kirkjugarðinum þar sem mörg fómarlamba einræðisherrans
voru husluð í fjöldagröf.
Við bænastundina vom engir
fulltrúar kommúnistaflokksins ef
undan em skildir öryggislög-
reglumenn, sem höfðu vakandi
auga með því, sem fram fór.
Kirkjan sjálf, sem setur sig sjald-
an upp á móti flokki og ríki, lét
hana líka afskiptalausa en henni
stjómaði andófspresturinn Gleb
Jakúnín, sem var látinn laus í
fyrra eftir átta ára vinnubúða-
vist.
Þátttakendur, sem vora um
300, vom flestir böm þeirra, sem
Stalín lét taka af lífi, og að lok-
inni bænastundinni spurðu ræðu-
menn þessarar spumingar:
„Hveijum var um að kenna?“
Svörin vom öll á þá lund, að
Stalín hefði ekki verið einn að
verki; kúgunina mætti rekja til
sjálfs kerfísins. Rithöfundurinn
Feliks Svyet sagði, að grimmdar-
æðið hefði hafíst með Lenín og
byltingunni árið 1917 og staðið
fram á níunda áratuginn.