Morgunblaðið - 22.11.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
3
Hveragerði:
Skot hljóp úr byssu
inni í heimahúsi
Flying Tigers vill millilenda í Keflavík:
Fundið fé ef af
áformum verður
- segir Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri
BANDARÍSKA flutningaflugfé-
lagið Flying Tigers hefiir óskað
eftir upplýsingum um möguleika
á að vélar þess geti millilent á
Keflavíkurflugvelli. Pétur Guð-
mundsson flugvallarstjóri segir
að það sé fundið fé ef af þessum
áformum verður.
Gylfi Sigurlinnason hjá Flugleið-
um segir að í skeyti Flying Tigers
hafi eingöngu verið um að ræða
fyrirspurn um hvemig þeir ættu að
bera sig að við að fá nauðsynlega
þjónustu. Ennfremur væri gert ráð
fyrir að vélar Flying Tigers hefðu
hér viðkomu þrisvar til ellefu sinn-
um í viku á leiðinni milli Evrópu
og Japan. Gylfi segir að hann hafi
bent þeim á að hafa samband við
flugvallaiyfírvöld í Keflavík og hafí
hann ekki heyrt frá Flying Tigers
aftur.
Pétur Guðmundsson segir að
lendingargjald fyrir hverja vél í
Keflavík sé nú 2000 dollarar og
afgreiðlugjald 800 dollarar. Við
þetta myndu svo bætast eldsneytis-
kaup og taldi hann að þau yrðu
dijúg þar sem um breiðþotur er að
ræða. Gjaldeyristekjur af þessum
millilendingum, utan eldsneytissöl-
unnar, yrði því 380.000 krónur til
1,4 milljón krónur eftir tíðni lend-
inganna.
Pétur segir að vélar frá Flying
Tigers hafi að undanfömu millilent
á Keflavíkurflugvelli á leiðinni Evr-
ópa-Japan. Ekkert vandamál sé að
taka á móti þessum vélum og veita
þeim nauðsynlega þjónustu. Þá
munu forráðamenn Flying Tigers
hafa óskað eftir því að fá að koma
upp gagnasendingarbúnaði á flug-
vellinum. Hann reiknaði með að
Flying Tigers myndi nota sama
varaflugvöli á leiðinni hingað og
Flugleiðir, það er Prestwick á Skotl-
andi.
Gylfí Sigurlinnason segir að von
sé að mönnum frá Flying Tigers
hingað til lands seinna í vikunni til
skrafs á ráðagerða.
Flying Tigers er stærsta frakt-
flugfélag í heimi. Höfuðstöðvar þess
eru í Los Angeles en það hefur
skrifstofur í öllum heimshlutum.
Flugvélafloti þess samanstendur af
27 Boeing 747 breiðþotum og 28
DC-8 breiðþotum. Það starfar svo
til eingöngu í fraktflugi en býður
einnig þotur til leiguflugs með far-
þega. Nú starfa um 6000 manns
hjá Flying Tigers, þar af 4500 í
Bandaríkjunum.
SKOT hljóp úr haglabyssu í
húsi í Hveragerði á laugardags-
morgun, þegar ungir menn, sem
höfðu setið að drykkju um nótt-
ina, voru að kljást um vopnið.
Engan sakaði þó.
Lögreglunni á Selfossi barst til-
kynning um það á laugardags-
morgni að skot hefði hlaupið úr
byssu í íbúð í Hveragerði. Þegar
málið var kannað kom í ljós að
þrír ungir menn höfðu setið að
drykkju í íbúðinni um nóttina.
Húsráðandi hafði sýnt gestum
sínum nýja haglabyssu, sem hann
hafði fest kaup á. Undir morgun
fóru tveir mannanna að kýta og
greip sá þriðji þá haglabyssuna
og beindi að þeim. Eigandinn greip
um hlaup byssunnar og beindi
henni frá, en um leið hljóp skot
úr henni. Skotið olli smátjóni í eld-
húsi íbúðarinnar.
Sá sem hélt á byssunni gisti hjá
lögreglunni á Selfossi fram á
sunnudag, en var þá sleppt að lok-
inni yfírheyrslu. Ljóst er að illa
hefði getað farið og bendir lögregl-
an fólki á að vera ekki að leika
Tveir prest-
ar vígðir
BISKUP íslands, herra Pétur Sig-
urgeirsson, vígði tvo guðfræðik-
andídata við guðsþjónustu i Dóm-
kirkjunni síðastliðinn sunnudag.
Nýju prestarnir eru konur sem
voru vígðar til aðstoðarþjónustu
vegna veikindaforfalla.
Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir var
vígð aðstoðarprestur í Seljapresta-
kall og séra Sjöfn Jóhannesdóttir
aðstoðarprestur í Kolfreyjustaðapre-
stakall.
Séra Ólafur Skúlason vígslubisk-
up lýsti vígslu og var vígsluvottur
ásamt séra Þorleifi Kristmundssyni
á Kolfreyjustað og séra Gunnlaugi
Stefánssyni í Heydölum. Séra Hjalti
Guðmundsson dómkirkjuprestur
þjónaði fyrir altari.
Séra Gunnlaugur í Heydölum er
eiginmaður séra Sjafnar og verða
þau grannprestaf og þriðju hjónin í
þjónustu kirkjunnar.
Morgunblaðið/Bjami
Eftir vígsluathöfnina í Dómkirkjunni, fremri röð frá vinstri: Séra
Gunnlaugur Stefánsson, séra Sjöfii Jóhannesdóttir, herra Pétur Sig-
urgeirsson biskup íslands, séra Irma Sjöfii Óskarsdóttir og séra
Ólafúr Skúlason. í aftari röð eru frá vinstri talið: Séra Þorleifúr
Kristmundsson, séra Hjalti Guðmundsson og séra Valgeir Ástráðsson.
sér með skotvopn og meðhöndla
byssur ætíð sem væru þær hlaðn-
ar.
BMW og Ren-
ault-umboðin:
Ekki seld
NÚ er ljóst að ekki verður af
samningum milli fyrirtækisins
Véla og þjónustu og helstu hlut-
hafa Kristins Guðnasonar hf. um
kaup á því fyrirtæki ásamt BMW
og Renault bílaumboðunum. Virð-
ist ljóst að samningar hafi gengið
til baka eftir að 10 mánaða upp-
gjör fyrir Kristin Guðnason hf. lá
fyrir.
Ólafur Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Kristins Guðnasonar sagði í
samtali við Morgunblaðið að ekki
væri unnt að tíunda þær ástæður sem
orðið hafi þess valdandi að samning-
ar tókust ekki en kvaðst mundu reka
fyrirtækið áfram með áþekku sniði
og verið hefði.
Pétur Óli Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Véla og þjónustu, stað-
festi að samningar hefðu ekki náðst.
Búið hafi verið að gera ákveðinn
rammasamning milli fyrirtækjanna,
þar sem miðað hafi verið við ákveðn-
ar fjárhagslegar forsendur.
Þegar hins vegar 10 mánaða upp-
gjör fyrir Kristinn Guðnason hafi
legið fyrir, hafi komið á daginn að
ekki hafi verið fjárhagslegur grund-
völlur af Kristins Guðnasonar hálfu
til að ganga til þessara samninga á
grundvelli þess rammasamkomulags
sem fyrir lá.
Lánskjaravísitalan
hækkar um 0,09%
SAMKVÆMT útreikningi Seðla-
bankans verður lánskjaravísitala
fyrir desember 2274 stig, en það
jafngildir 0,09% hækkun frá
lánskjaravísitölu fyrir nóvember.
Hækkun lánskjaravísitölunnar
jafngildir 1,1% árshækkun. Breyt-
ing vísitölunnar síðustu 3 mánuði
jafngildir 3,6% árshækkun, og
síðustu 6 mánuði jafngildir hún
22,9% árshækkun. Síðustu 12 mán-
uði jafngildir breytingin 20,6% árs-
hækkun lánskjaravísitölunnar.
að ganga greiðlega í gegnum
möskvann.
„Ekki hægt að vinna undir
þessum kringumstæðum“
„Þetta eru sóðaaðferðir," sagði
Þórarinn í samtali við Morgunblað-
ið. „Þessari aðferð hefur ekki verið
beitt áður og í reglugerð um mæl-
ingu á möskva er hvergi minnst á
5 kílóa þunga. Hann samsvarar því
að ýtt sé með einum fingri á mæl-
inn. Ég er þrumu lostinn yfir þess-
um aðferðum og fékk menn frá
Hampiðjunni til að koma vestur og
mæla pokann og hann stóð mál.
Það er ekki hægt að vinna undir
þessum kringumstæðum. Auðvitað
á að vera eftirlit með veiðunum,
að menn séu ekki með ólögleg veið-
arfæri og þung refsing á að vera
við vísvitandi brotum. Ég var hins
vegar með löglegan poka, sem hafði
í engu verið breytt frá því við feng-
um hann. Trollin eru sett upp fyrir
okkur í Nótastöðinni á Akranesi og
netið kemur frá Hampiðjunni. Það
er því eins og verið sé að gera mig
að blóraböggli fyrir Hampiðjuna,
ekki getum við verið með mælinn
uppi alla daga og staðið í stöðugum
mælingum á möskvastærð. Það er
furðulegt að framleiðendur netanna
og Gæzlan skuli ekki fá sömu niður-
stöðu úr mælingunum," sagði Þór-
arinn.
Misræmi í mælingn
Gylfi Hallgrímsson, markaðsfull-
trúi hjá Hampiðjunni, sagði í þessu
máli væri ekki um svindl eða ólög-
legt athæfi að ræða. Um væri að
ræða misræmi í mælingu, sem svo
sannarlega væri nauðsynlegt að
koma í veg fyrir. Nú notuðu allir
nema Gæzlan gömlu mælispjöldin
og til þessa hefði enginn ágreining-
ur verið um notkun þeirra. Ráðu-
neytið yrði því að taka af skarið
og svo gætu menn unnið eftir því,
sem ákveðið yrði. „Við getum hnýtt
möskvann í hvaða stærð sem er.
Það er ekkert vísvitandi svindl á
ferðinni, heldur virðast þessi mál
byggð á misskilningi," sagði Gylfi.
„Danski mælirinn
er löggilt tæki“
Helgi Hallvarðsson, skipherra hjá
Gæzlunni, sagði ætlunin að fulltrú-
ar frá Gæzlunni, Hafrannsókna-
stofnun og Hampiðjunni færu vest-
ur á ísafjörð til að fara yfír po-
kann. Ennfremur færu menn frá
Gæzlunni í Hampiðjjuna með danska
mælinn til að mæla möskva. Þessi
danski mælir væri löggilt tæki og
ákveðinn þrýstingur notaður, alltaf
sá sami, til að forðast misræmi í
mælingum. Hins vegar þyrfti vissu-
lega að samræma mælinguna svo
menn væru örugglega að tala um
sama hlutinn. í því skyni mætti vel
hugsa sér að skipa til starfa ein-
hveija samráðshefnd hagsmunaað-
ila.
■ Gæzlan er að
dæma Hampiðju-
netin ólögleg,
segir Snorri
Snorrason skip-
sljóri
Óánægja með
starfsaðferðir
Jónas Haraldsson, lögfræðingur
LÍÚ, segir að upp á síðkastið hafi
gætt nokkurrar óánægju meðal út-
gerðarmanna og sjómanna með
starfsaðferðir Gæzlunnar og hafi
meðal annars verið kvartað undan
því bréflega. Svo virtist sem starfs-
menn Gæzlunnar vissu ekki alltaf
nógu vel eftir hvaða reglum þeim
bæri að starfa. Lögin um starfsregl-
ur Gæzlunnar væru ófullnægjandi
og þau þyrfti því að endurskoða.
Menn yrðu að taka afleiðingum
gerða sinna, yrðu þeir uppvísir að
ólöglegu athæfi, en það, sem nú
hefði verið að gerast, væri einungis
til að skapa óþarfa leiðindi. Farið
hefði verið fram á það við dóms-
málaráðherra, Halldór Ásgrímsson,
að skipuð yrði nefnd allra viðkom-
andi aðilja til að endurskoða þessar
reglur og hefði hann tekið því vél.
Snorri Snorrason, skipstjóri á
Dalborg EA, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann hefði fyrir
nokkru fengið menn frá Gæzlunni
um borð. Þeir hafí þá ekki þekkt
starfssvið sitt betur en svo að þeir
hafi ætlað að vísa honum í land
fyrir að vera með húðir á pokanum.
Fyrir einum og hálfum mánuði
hefðu þeir mælt hjá sér möskva í
poka. Útkoman hefði verið 170
millimetar og hann að sjálfsögðu
kvartað undan því við Hampiðjuna.
Þegar hann hefði komið í land,
hefðu Hampiðjumenn mælt þennan
poka og annan. Báðir hefðu þeir
staðið mál og annar verið heldur
rúmur. Hjá öðrum skipstjóra hefði
Gæzlan mælt pokann og skipað
honum að skipta um, þar sem
möskvinn væri of lítill. Hann hefði
hins vegar orðið að fara í land, því
hann hefði auðvitað ekki verið með
annað net um borð en frá Hampiðj-
unni. „Gæzlan er í raun aðeins að
dæma Hampiðjunetin ólögleg eins
og þau leggja sig með því að breyta
mælingum á möskvastærð. Skip-
stjórar verða líklega að fá löggilta
aðila til að taka út netin áður en
farið er með þau út.
„Hefur bara
öfiig áhrif ‘
Ég vil ekki sitja undir því ásamt
öllum flotanum að við séum að
drepa smáfisk og gerum það,
líklega vísvitandi, með því að vera
með ólögleg net frá framleiðandan-
um, eins og 1 til 4 millimetrar
skipti höfuðmáli. Gæzlan á að snúa
sér að raunverulegum aðgerðum.
Þeir finna ekkert ólöglegt með því
að vera innan um skipin á miðunum
eins og minkur í hænsahúsi. Það
dýfir þá engin ólöglegum veiðarfær-
um í sjó á meðan. Það væri miklu
nær fyrir þá að fylgjast með því
hvemig fiski skipin landa. Strangt
eftirlit er nauðsynlegt svo og viður-
lög við brotum, en svona vitleysa
hefur bara öfug áhrif,“ sagði Snorri
Snorrason.