Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 Góð loðnuveiði við Kolbeinsey — GÓÐ loðnuveiði hefur verið fyr- ir austan Kolbeinsey að undan- förnu. Á miðnætti í fyrrinótt var búið að tilkynna um 122.250 Gæsluvarð- hald í 60 daga SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur úrskurðað að Bjarni Bernharður Bjarnason, 38 ára gamall Reykvíkingur, skuli sæta gæsluvarðhaldi í 60 daga, til 20. janúar næst- komandi, og gangast undir geðrannsókn. Úrskurðurinn tengist rann- sókn morðsins á Jóhanni Jú- líussyni, 67 ára gömlum manni. Við yfirheyrslur hefur Bjarni játað á sig verknaðinn. tonna afla en 118.320 tonna afla á sama tíma í fyrra, að sögn Ástráðs Ingvarssonar starfsmanns loðnunefndar. Síðdegis í gær höfðu 5 skip til- kynnt um afla: Albert 750 tonn óákveðið hvert, Súlan 750 til Krossaness, ísleifur 740 til Fær- eyja, Sunnuberg 630 til Grindavík- ur og Dagfari 520 óákveðið hvert. Á sunnudaginn tilkynntu 18 skip um afla: Guðmundur Ólafur 600 tonn til Raufarhafnar, Bergur 520 til Siglufjarðar, Skarðsvík 640 til Raufarhafnar, Öm 750 til Fær- eyja, Harpa 620 til Siglufjarðar, Huginn 550 til Sigluíjarðar, Keflvíkingur 500 til Raufarhafnar, Hilmir II 590 til Raufarhafnar, Húnaröst 600 til Hafnarfjarðar, Valaberg 450 til Grindavíkur, Hilmir 1.300 til Noregs, Björg Jónsdóttir 470 til Þórshafnar, Þórshamar 550 til Raufarhafnar, Gullberg 580 til Bolungarvíkur, Unnið við loðnufrystingu. Víkurberg 580 til Siglufjarðar, Fífill 400 til Raufarhafnar, Höfr- ungur 430 til Raufarhafnar og Erling 600 til Raufarhafnar. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 22. NÓVEMBER YFIRLIT í GÆR: Yfir (rlandi er 1033 mb hæð sem þokast suður, hægðardrag fyrir Norð- og Norðausturlandi á hreyfingu suðaustur. Um 600 km suösuðaustur af Hvarfi er 988 mb lægö á leið norð- norðvestur. í innsveitum á Norðaustur- og Austurlandi verður hiti um eða rétt undir frostmarki, en 3—6° hiti í öðrum landshiutum. SPÁ: Á morgun verður vestan- og suðvestanátt á landinu, sums staðar stinningskaldi nyrst á landinu, annars gola eða kaldi. Dálítið súld við vesturströndina; en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 3 til 7 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Suðvestanlægátt, súld eða rigning á Suður- og Vesturlandi, en þurrt og oftast bjart veður um norðaustanvert landið. Hiti 3—7° suövestan til, en ná- lægt frostmarki á norðaustan- og austanlands. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað œm Alskwað y, Norðan, 4 vindstig: U vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / r / r Rigning r r r * r * r * r * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —4- Skafrenningur fT Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veftur Akureyri 4 hálfskýjað Reykjavík 4 alskýjað Borgen +1 skýjað Helsinki +8 léttskýjað Kaupmannah. vantar Narssarssuaq 13 skýjað Nuuk 2 rigning Osló +4 skýjað Stokkhólmur 8 léttskýjað Þórshöfn 5 skýjað Algarve 18 skýjað Amsterdam 3 léttskýjað Barcelona 11 mistur Chicago +1 alskýjað Feneyjar 4 rigning Frankfurt +1 iéttskýjað Glasgow 2 léttskýjað Hamborg +1 léttskýjað Las Þalmas 22 léttskýjað London 3 skýjað Los Angeles 10 helðskirt Luxemborg +3 léttskýjað Madrid 7 þokumóða Malaga 1B rigning Mallorca 13 alskýjað Montreal 0 snjókoma New Vork 8 skýjað Parfs 2 léttskýjað Róm 14 rigning San Diego 9 heiðskfrt Winnipeg +8 sakfrenningur Ungfilí heimur í sviðsljósinu: Tekjur Lindu gætu orðið yfir 8 milljónir LINDA Pétursdóttir, hin nýkrýnda Ungfrú heimur, er fúllbókuð hvern einasta dag fram í miðjan næsta mánuð og hefúr ekki tíma til að koma heim til íslands fyrr en fer að líða að jólum. Lindu eru tryggðar lágmarkstekjur af fyrirsætu- og auglýsingastörfúm fyrir 25.000 ensk pund, eða rúmar tvær milljónir íslenskra króna, fyrir utan verðlaunin, sem eru 5.000 pund. Bresku blöðin segja þó að tekjur Lindu kunni að verða yfir 8 milljónir króna þegar upp er staðið eftir 12 mánaða „valdatíma" hennar sem fegurðar- drottningar. Keppnin í ár verður líklega sú síðasta sem haldin verður í Bret- landi og því er Ungfrú heimur ennþá ásetnari en venjulega. Linda hefur aðallega komið fram fyrir Top Shop verslanimar hingað til, en mun ferðast um Bretland í „embættisskyldum" þangað til hún kemur heim í jólafrí. Á næsta ári hefjast svo ferðalögin fyrir al- vöru og mun Linda þá meðal ann- ars fara um Evrópu og til Afríku og Austurlanda fjær. Bresku blöðin fjölluðu töluvert um keppnina og birtu myndir af Lindu í hásætinu og frá blaða- mannafundi morguninn eftir. Þar hélt „ísdrottningin" eða „Jarðar- berjaljóskan", eins og breska pressan kýs að kalla Lindu, upp á sigurinn með ferskum jarðarbeij- um og kampavíni og skrifaði und- ir samninginn um skyldur sínar og tekjur sem Ungfrú heimur næsta árið. Mikil óvissa ríkir um framhald keppninnar þar sem samningur aðstandenda hennar og Thames- sjónvarpsstöðvarinnar rennur út um áramótin. Það þykir þó víst að keppnin muni halda áfram, annaðhvort utan Bretlands eða með aðstoð gervihnattarsjónvarps. „Það eru alltaf einhveijar sjón- varpsstöðvar til sem hafa áhuga á keppni sem 700 milljónir manna í 60 ríkjum horfa á,“ hafði eitt bresku blaðanna eftir Eric Morley, formanni dómnefndar. Þannig fjölluðu bresku blöðin um sigur Lindu. Einnig eru hér úr- klippur úr svissneska blaðinu Blick, sem birti mynd af Ungfrú heimi á forsiðunni. Morgunblaðið/Emilla Kári Arnórsson, skólastjóri Fossvogsskóla, í tónmenntastofúnni, sem er mikið skemmd eftir eldinn á laugardagskvöld. íkveikja í Fossvogsskóla TÖLUVERÐAR skemmdir urðu á Fossvogsskóla þegar eldur kom upp í kjallara hans á laugardag. Talið er víst að um íkveikju hafi verið að ræða. Slökkviliðinu barst tilkynning um eldinn um kl. 23 á laugardags- kvöld, frá íbúa í Kópavogi, sem sá reyk leggja frá skólanum. Þegar á staðinn var komið var mikill reykur í stofu í kjallara, þar sem kennd er tónmennt. Þrír reykkafarar réð- ust strax til atlögu við eldinn og gekk greiðlega að ráða niðurlögum hans. Miklar skemmdir urðu á tón- menntastofunni og eru hljóðfæri illa farin, ef ekki ónýt. Þá komst reyk- ur og sót um skólann og olli tölu- verðu tjóni. Talið er fullvíst að um íkveikju hafi verið að ræða. Rúða á stofunni var brotin þegar að var komið. Góð sfldveiði í Mjóafírði MJÖG GÓÐ sildveiði var í Mjóa- firði í fyrrakvöld og -nótt, að sögn Kristjáns Jóhannessonar birgða- og söltunarstjóra síldar- útvegsnefndar. Reiknað var með að búið yrði að salta í um 197.000 síldartunnur i gærkvöldi en í fyrrakvöld hafði verið saltað í 192.845 tunnur. I fyrrakvöld hafði verið saltað í 33.870 tunnur á Eskifirði, 32.257 tunnur á Höfn í Homafirði, 23.576 tunnur á Seyðisfírði, 19.240 tunnur í Grindavík og 19.049 tunnur á Reyðarfirði. Þá hafði verið saltað í 19.562 tunnur í Fiskimjölsverk- smiðju Homafjarðar, 13.881 tunnu í Pólarsíld á Fáskrúðsfirði, 12.738 tunnur í Strandarsíld á Seyðisfirði, 12.576 tunnur í Skinney á Höfn í Hornafirði, 10.838 tunnur í Norð- ursíld á Seyðisfirði og 10.111 tunn- ur í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.