Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 Nýjar sögur um Kugg BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hcfur sent frá sér bókina Kuggur til sjávar og sveita eftir Sigrúnu Eldjárn. Bókin hefur að geyma nýjar sögur um snáðann Kugg Sigrún Eldjárn og um 40 litmyndir eftir höfúnd- inn í fréttatilkynningu frá Forlaginu segir m.a.: „Kuggur til sjávar og sveita segir frá kostulegum ævin- týrum sem þau lenda í — Kuggur og vinir hans. Það eru þær Málfríð- ur og mamma hennar — kostulegar kerlingar sem ekki kalla allt ömmu sína þegar taka skal til hendinni, að ógleymdum Mosa — glaðlyndu og hrekkjóttu kríli sem býr yfír ótrúlegum hæfíieikum. Þau eru á eilífum þeytingi til sjávar og sveita, bregða sér í útilegu, fara á skak og stunda umsvifamikil garðyrkju- störf — þó meir af kappi en forsjá. Og síðast en ekki síst bregða þau sér í geimferð til annarrar stjömu þar sem Málfríður giatar pilsinu sínu og kemur aftur til jarðarinnar á brókinni. Kuggur til sjávar og sveita er 32 biaðsíður. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Úrval ljóða Sigurðar A. Magnús- sonar HJÁ MLÁLI og menningu er komin út bókin Hvarfbaugar — Úrval ljóða 1952—1982 eftir Sigurð A. Magnússon. í henni er að finna úrval úr ljóðabókum hans, Krotað i sand (1958), Haf- ið og kletturinn (1961), Þetta er þitt líf (1974) og í Ijósi næsta dags (1978). í fréttatilkynningu frá útgef- anda segir, að bókinni sé ætlað að bregða upp heillegri mynd af þróun Sigurðar sem ljóðskálds á tuttugu ára tímabili. Þetta sé ástríðufullur og hispurslaus kveð- skapur hvort sem um er að ræða Sigurður A. Magnússon ádeilukvæði eða persónuleg ljóð. Bókin er 182 blaðsíður, prentuð í Prentsmiðjunni Odda. Hilmar Þ. Helgason gerði kápumynd. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Bryndís Ólafsdóttir sundkona tekur fyrstu skóflustunguna að nýju iþróttahúsi í Þorlákshöfh. Þorlákshöfn: Fyrsta skóflustungan tekin að nýju íþróttahúsi Þorlákshö&i. BRYNDÍS Ólafsdóttir sundkona tók fyrstu skóflustunguna að nýju íþróttahúsi í Þorlákshöfii laugardaginn 12. nóvember. Lengi hefúr verið rætt um íþróttahús hér en lítið verið gert fyrr en hreppsnefhd setti nýskipaðri undirbúningsnefhd starfsreglur í október 1986. Þessi undirbúningsnefnd skil- aði hreppsnefíid áliti sínu síðast- liðinn vetur og upp úr því hófust viðræður við verkfræði- og teikni- stofuna á Akranesi ásamt fleiri verkfræðistofum. Gengið var til samstarfs við Verkfræðistofuna á Akranesi sem tók að sér að hanna og teikna mannvirkið í tímavinnu. Stuðst var við íþróttahúss- byggingu íþróttabandalags Akra- ness sem sömu aðilar hönnuðu. Að mati allra hefur tekist mjög vel til að tengja hið nýja hús sund- lauginni og búningsklefunum sem fyrir eru. Kostnaður við undirbúninginn er einn sá allra lægsti sem heyrst hefur um slík mannvirki. Húsið verður stálklætt límtrés- hús, 1.522 fermetrar, með 10 metra lofthæð og salurinn er 20x40 metrar. Teikningar voru samþykktar í byggingamefnd 19. apríl sl. og verkið boðið út í haust. Alls bár- ust átta tilboð og var munur á hæsta og lægsta tilboði nokkuð mikill eða um 20 milljónir. Lægsta tilboðinu var tekið og kom það frá Trésmiðju Heimis Guðmundssonar í Þorlákshöfn og hljóðaði það upp á tæpar 40 millj- ónir. Verkinu á að skila fyrir 15. ágúst 1989 og á húsið þá að vera fullfrágengið að utan og fokhelt að innan. Það hefur verið stefna sveitar- stjóma hér undanfarin ár að þeg- ar verk er hafið náist best hag- kvæmni með því að byggingartími sé sem stystur. Þetta reyndist vel þegar hér var byggð sundlaug á 18 mánuðum 1981 og því er stefnt að sem stystum byggingartíma nú. Þó Þorlákshöfn sé aðeins 1.200 manna byggðarlag hafa margir á orði að í raun megi segja að verið sé að byggja fyrir allt að 2.500 manns því með tilkomu Óseyrar- brúar muni Eyrarbakki og Stokkseyri nýta sér þetta íþrótta- hús á næstu árum. Skólaböm frá Stokkseyri eru nú í skólasundi í sundlaug Þor- lákshafnar þannig að þessi full- yrðing er ekki Qarri lagi. - J.H.S. Morgunblaðifl/Eyjólfur M. Guðmundsson Þingmenn Reykjaneskjördæmis ásamt sveitarstjóraarmönnum í Vogum. Þingmenn Reykjaneskjör- dæmis í heimsókn Vogum. Alþingismenn Reykjaneskjör- dæmis heimsóttu sveitarstjórann í Vogiun fyrir skömmu. Þing- mennirnir voru í árlegri ferð sinni um kjördæmið. Ómar Jónsson oddviti greindi þingmönnum frá stöðu fjármála sveitarfélagsins og þeim erindum sem sveitarstjóm hefur sent §ár- veitinganefnd Alþingis. Vilhjáimur Grímsson sveitarstjóri gerði grein -fyrir atvinnumálum. Þá greindi hann frá laxeldisfyrirtækjunum og vonum sínum um atvinnurekstur er byggi á úrvinnslu framleiðslu laxeldisfyrirtælq anna. í heimsókninni var þingmönnun- um sýnd nýja þjónustumiðstöðin og vakti oddvitinn athygli á stöðu bankamála í hreppnum eftir að Útvegsbankinn hf. lokaði afgreiðslu í Vogum sinni um síðustu mánaðamót. Síðan þurfa hreppsbúar að fara til ann- arra byggðarlaga til að sinna sínum bankaerindum, en í þjónustumið- stöðinni stendur tómt húsnæði sem var sérstaklega hannað fyrir banka eftir kröfum Útvegsbankans. Miklar vonir eru bundnar við að fá banka til starfa á þessum stað. - EG Ráðstefiia um flár- mál sveitarfélaga JÓHANNA Sigurðardóttir félags- málaráðherra flytur ávarp og Ólafur Ragnar Grímsson Qár- málaráðherra framsöguerindi um Qármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga á ráðsteftiu sem Samband íslenskra sveitarfélaga efnir til um Qármál sveitarfélaga á Hótel Sögu í dag og á morgun. Einnig hefur Gunnar Hilmarsson, formaður stjóraar Atvinnutrygg- ingarsjóðs, framsögu um sveitar- félögin og atvinnurekstur. Á ráðstefíiunni verður einnig rætt um álagningu og innheimtu f stað- greiðslu, um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og um breytingar á lögum um telq'ustofna sveitarfélaga. Einnig verða að vanda kynntar for- sendur fjárhagsáætlana sveitarfé- laga fyrir komandi ár. Unglingabók eftir Andrés Indriðason Andrés Indriðason MÁL OG menning hefúr gefið út nýja unglingabók, Alveg milljón, eftir Andrés Indriða- son. í kynningu útgefanda segir: „Sagan er um 14 ára strák sem verður vitni að ráni á Laugavegin- um. Hann hikar við að láta lögg- una vita og tekur málin í sínar hendur þegar hann kemst á slóð ræningjanna. Sagt er frá átökum stráksins við skúrkana en jafn- framt kemur skólalífíð og fjöl- skyldan við sögu og síðast en ekki síst vinkona sem hann eignast óvænt." Bókin er 190 blaðsíður, unnin í Prentsmiðrjunni Odda. Kápumynd gerði Brian Pilkington.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.