Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.IUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
36. þing Alþýðusambands íslands:
Samnmgsréttur, mannréttindi
og skipulag fyrirferðarmest
Búist við að Ásmundur Stefánsson leiti endurkjörs sem forseti sambandsins
Barátta gégn afhámi samnings-
réttarins, mannréttindamál og
innri skipulagsmál ASÍ verða
meðal helstu mála 36. þings sam-
takanna sem hófst í gær. 467
fulltrúar höfðu komið til þingsins
í gær, en það er að þessu sinni
haldið í íþróttahúsi Digranes-
skóla í Kópavogi. Forseti, vara-
forsetar og miðstjóm verða kos-
in á morgun miðvikudag og er
búist við að Ásmundur Stefáns-
son núverandi forseti leiti eftir
endurkjöri, en hann hafði ekki
tilkynnt það I gær.
Asmundur Stefánsson flutti ræðu
við setningu þingsins og gagmýndi
þar harðlega afnám samningsrétt-
arins og stjómun eftiahagsmála
síðustu misseri. Ennfremur gagn-
týndi hann mjög áætlanir stjóm-
valda um launaþróun á næsta ári,
eins og fram koma í fjárlagaffum-
varpinu. Þar er gert ráð fyrir 2-3%
kauphækkunum á árinu. Hann
hvatti til sóknar og öflugri sam-
stöðu verkalýðsfélaga og sambanda
til að ná fram bættum kjörum og
að vemda réttindi sín.
A morgun, miðvikudag, verður
kosið í helstu trúnaðarmannastöður
ASÍ. Þar á meðal verða kjömir for-
seti og varaforsetar. Heimildar-
menn Morgunblaðsins á þinginu
töldu allar líkur benda til að Ás-
mundur Stefánsson núverandi for-
seti sambandsins leitaði eftir endur-
kjöri, en hann hefur hins vegar
ekki tilkynnt það formlega enn.
Báðir varaforsetar munu láta af
störfum, þau em Bjöm Þórhallsson
og Guðríður Elíasdóttir. Þá mun
kosið í miðstjóm á morgun og er
fyrirsjáanlegt að allmikil endumýj-
un verður, þar sem nokkrir núver-
andi miðstjómarmenn hafa lýst því
yftr að þeir muni ekki gefa kost á
sér til endurkjörs.
Helstu mál þingsins, auk samn-
ingsréttarins, em mannréttinda- og
friðarmál og innri skipulagsmál, en
auk þeirra liggur fjöldi tillagna fyr-
ir m.a. um lagabreytingar. Endur:
flutt er tillaga frá 35. þingi ASÍ
um innra skipulag þar sem hvatt
er til aukins hiutverk landssam-
banda og stoftiunar fagfélaga í
ríkari mæli en nú er, auk þess sem
hvatt er til deildaskiptingar ein-
stakra félaga þar sém því verður
við komið.
Þing ASÍ stendur fram á föstu- .
dag.
virða hann ekki. Hann sagði frá
lögum sem stefnt hefur verið gegn
kjarasamningum og sagði síðan:
„Pyrsta skref núverandi ríkisstjóm-
ar veit ekki á gott. Það var ekki
að fella úr gildi bann við gerð kjara-
samninga. Þvert á móti festi hún
það í sessi og lagði þar að auki
bann við samningsbundnum kaup-
hækkunum nú í haust. Það er því
eðlilegt að við spyijum: Hvað næst?
Verða sett lög á verkfall sjómanna
í febrúar, verkfall flugfreyja í mars
og verkfall fískverkafólks í aprfl?"
Ásmundur sagði síðan frá for-
sendum fjárlaga og gagnrýndi ríkis-
stjómina fyrir að binda þar hendur
verkalýðshreyfingarinnar. „I fjár-
lagaraeðu sinni sagði flármálaráð-
herra litlu skipta hvort þær áætlan-
ir stæðust eða ekki. Hann skýrði
það út með því einfaldlega að segja
okkur að ef við næðum fram meiru
en 2-3% kauphækkun mundu verð-
hækkanimar bara verða þeim mun
meiri og allt þar með jaftiast út.“
Eftir að hafa rakið þetta ástand
og gagnrýnt það, blés Ásmundur
til sóknar. Til þess sagði hann í
fyrsta lagi þurfa samhentari vinnu-
brögð, m.a. til þess að hafa vald á
atburðarásinni, „... að við látum
ekki leiða okkur heldur leiðum við
aðra þangað sem við teljum réttast
að fara.“ I öðm lagi þarf skipulags-
breytingar á innra starfí verkalýðs-
sambandanna, í þriðja lagi að móta
skýra stefnu í atvinnu og efnahags-
málum, í fjórða lagi að reka öflugt
áróðursstarf. „í fimmta lagi verðum
við að gera okkur grein fyrir því
að innbyrðis deilur færa okkur ekk-
ert áleiðis. Auðvitað höfum við ekki
öll sömu skoðun. En við verðum að
leggja áherslu á allt það sem er
okkur sameiginlegt.“
Gjaldþrot
þráhyggjunnar
Ásmundur vék að efnahasmál-
um: „Ástandið er augljóslega alvar-
legt. kannski er það ekki undarlegt
*
Nokkrir þingfúlltrúar fylgjast með ræðu forseta samtakanna.
Ætlum við að láta allt þetta
yfir okkur ganga, lengi enn?
- sagði Ásmundur Stefánsson í setningarræðu um af-
skipti stjórnvalda af kjarasamningum
„Okkur er það áhyggjuefhi
þegar lagðir eru fjötrar á pólsku
verkalýðssamtökin Solidarnos.
Stjórnvöld á íslandi lýstu einnig
áhyggjum sínum og fordæmdu
mannréttindabrot pólskra stjórn-
valda. Á hinn bóginn virðast
þessi sömu stjórnmálaöfl telja
það einfalt smekksatriði hvort
samningar stéttarfélaga á ís-
landi séu virtir, þeim rift eða
þeir bannaðir með lögum. Ætlum
við að láta allt þetta yfir okkur
ganga lengi enn? Ég segi nei.
Nú er fjandinn hafiþað nóg kom-
ið.“ Þannig fórust Ásmundi Stef-
ánssyni forseta Alþýðusambands
Islands orð í setningarræðu á 36.
þingi samtakanna. Þungamiðjan
í ræðu Ásmundar var hörð gagn-
rýni á stjómvöld fyrir afskipti
af kjarasamningum og á efha-
hagssfjórn undanfarinna miss-
era.
Ásmundur hóf mál sitt með því
að lesa upp ímyndaðan kafla úr
íslandssögubók á næstu öld, þar
sem segir af því að ASÍ hafí verið
lagt niður árið 2000 í framhaidi af
afnámi samningsréttar. Bann á
kjarasamninga árið 1988 hafi leitt
til þess að verkföll voru bönnuð og
kjarasamningar hafí misst gildi sitt.
Síðan sagði Ásmundur: „Verður
hann svona kaflinn um starfsemi
verkalýðsfélaga sem böm okkar og
bamaböm munu læra í íslandssög-
unni sinni upp úr næstu aldamót-
um? Er þetta sú framtíðarsýn sem
við okkur blasir? Munu stjómvöld
eyðileggja grundvöllinn að starf-
semi allra stéttarfélaga með stöð-
ugum íhlutunum í málefni þeirra á
næstu árum?“
Hann ræddi síðan gildi samn-
ingsréttarins og sagði frá gagnrýni
á stjómvöld annarra ríkja fyrir að
Moigunbíaðið/Ámi Sæberg '
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ flytur ræðu sína.
að æðstu ráðamenn þjóðarinnar
tali um að þjóðin sé nánast gjald-
þrota, það blasir við gjaldþrot. Það
er hins vegar rangt að þjóðin sé
gjaldþrota. Við stöndum frammi
fyrir gjaldþrotiu þeirrar þráhyggju,
að allur vandi verði alltaf leystur
með kjaraskerðingu. Við stöndum
frammi fyrir gjaldþroti þeirrar þrá-
hyggju að kjaraskerðing sé lausn á
rekstrarvanda atvinnulífsins, kjara-
skerðing sé lausn á verðbólguvand-
anum og viðskiptahallanum. Sú
þráhyggja að allt skuli fijálst nema
rétturinn til að semja um kaup og
kjör, að hið opinbera eigi hvergi að
grípa inn nema til þess að skerða
kaupið, sú þráhyggja hefur beðið
skipbrot. Ranghugfmyndin er gjald-
þrota. Þjóðin er hins vegar enn
sæmilega megandi."
Hann nefndi síðan að uppstokk-
unar er þörf til dæmis í sjávarútveg-
inum og að með styttri vinnutíma
lýma kjörin. „Mér er vandinn ljós.
Eg geri ekki lítið úr honum. Ég er
hins vegar ekki tilbúinn til þess að
leggjast upp í loft og gefast upp.
Við emm ósköp einfaldlega ekki í
vonlausri stöðu. Þegar röng pólitík
verður gjaldþrota hljótum við að
hugsa málið upp ánýtt.“
Ásmundur gerði velferðarkerfíð
að umtalsefni og gagnrýndi hug-
myndir um að markaðsöfl ráði í
velfarðarkerfinu. „Við eigum rétt á
að fá umönnun á sjúkrahúsi, rétt á
að bömin okkar gangi í skóla og
við eigum rétt á að hafa að minnsta
kosti lágmarks framfærslueyri. Við
kaupum okkur ekki aðgang að
grundvallarmannréttindum. Við
eigum rétt á þeim. Óheft markaðs-
hyggja á alls ekkert erindi í mann-
legum samskiptum þar sem hver
og einn á sinn rétt.“
Máli sínu lauk Ásmundur Stef-
ánsson með því að biýna félaga
sína til sóknar. „Ef verkalýðshreyf-
ingin stendur sameinuð hlýtur
hennar viðhorf að vera ráðandi. Við
skulum horfa fram á veginn, leita
nýrra leiða.“
ísafjarðardjúp:
Góður afli hjá línubátum
ísafirði.
MJÖG góður afli er nú hjá línu-
bátum á norðanverðum Vest-
fjörðum. Fimmtudagskvöldið 17.
nóvember lönduðu 3 linubátar á
Isafirði um 60 tonnum eftir tvær
legur. Víkingur III var aflahæst-
ur en hann var með tæp 30 tonn.
Ótið hefúr hamlað veiðum í haust
en þegar bátamir komast á djúp-
mið er yfirleitt góður afli.
Þrír bátar, Guðný, Orri og
Víkingur III, hafa stundað línuveið-
ar héðan um árabil og hefúr yfír-
leitt gengið ágætlega að manna þá.
Nú er hins vegar orðið erfítt að fá
beitingarmenn og mun því einn
bátanna, Víkingur III, hætta veið-
um um áramót, en hann fer úr landi
í stað nýs báts sem Norðurtanginn
hf. er að láta smíða í Noregi. Nýi
báturinn er nokkru stærri og ekki
er gert ráð fyrir að hann stundi
dagróðra.
Mestur hluti aflans fer til vinnslu
hjá Norðurtanganum hf. en þó setja
sjómennimir að jafnaði í nokkra
gáma á mánuði til útflutnings.
Þannig fer afli Guðnýjar úr þessari
veiðiferð í gám og svo væntanlega
í næstu viku afli annars hvors hins
bátsins. Virðist gott samkomulag
hafa náðst þama milli veiða og
vinnslu, báðum aðilum til hagsbóta.
- Ulfar
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Línubáturinn Orri að landa afla á ísafirði. Línusjómenn á ísafirði
setja allan afla um borð í kör og ef þeir landa ekki daglega slægja
þeir um borð. Karavæðingin bætir mjög meðferð aflans auk þess
sem hún flýtir mjög fyrir við löndun.
Fræðslufund-
urummatar-
æði og heilsu
Náttúrulækningafélag
Reykjavíkur heldur almennan
fræðsluftind þriðjudagskvöldið
22. nóvember.
Fundurinn verður haldinn á
Hótel Lind við Rauðarárstíg og
hefst kl. 20.30 stundvíslega.
Örn Jónsson náttúmráðgjafi
flytur erindi um tengsl mataræðis
og heilsu og orkustreymi yin og
yang í fæðunni í tengslum við
austræna heimspeki.