Morgunblaðið - 22.11.1988, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
Evrópubandalagið:
Fundur Þjóðarráðs Pal-
estínu skref í rétta átt
Brussel. Reuter.
Á FUNDI utanríkisráðherra Evr-
Reuter
Christina Onassis heldur á barni sínu, Aþenu, á skemmtisiglingu
með fjórða eiginmanni sínum, Thierry Roussel, árið 1985. Christina
Iést á laugardag og mun Aþena erfa Onassis-auðinn.
Christina Onassis:
Sögð hafa látist af
völdum lungnakvilla
Buenos Aires. Reuter. Daily Telegraph.
ARGENTÍSKUR dómari skýrði
ópubandalagsins í Brussel f gær
um deiluna fyrir botni Miðjarðar-
hafs var samþykkt ályktun þar
sem segir að ákvarðanir Þjóðar-
ráðs Palestfnu í ALgeirsborg i
sfðustu viku séu skref f átt til frið-
Skáldið lýsti jrfir stuðningi sínum
við umbótatilraunir Míkhaíls Gorb-
atsjovs Sovétleiðtoga og sagði: „Á
hverjum degi lærum við eitthvað
um lýðræði, stundum þó án sýnilegs
árangurs." Jevtúsjenko lagði
áherslu á að Sovétríkin yrðu að eiga
samstarf við aðrar þjóðir til að
samlegrar lausnar deilu araba og
Israela. Hins vegar var hið nýja
ríki Palestínumanna ekki viður-
kennt formlega.
í yfirlýsingunni var því fagnað að
Þjóðarráðið skyldi fallast á ályktanir
Sameinuðu þjóðanna númer 242 og
bæta efnahag þjóðarinnar. „Sov-
étríkin bjóða upp á ótrúlega mögu-
leika til samstarfs þjóða á milli. En
til þess að geta talist áreiðanlegir
og traustir aðilar að Evrópubanda-
laginu verðum við fyrst að geta
skipt rúblunni í aðra gjaldmiðla,"
sagði Jevtúsjenko.
338 sem grundvöll alþjóðlegrar frið-
aráðstefnu um Miðausturlönd. Ráð-
herramir segja að þessi ákvörðun
Þjóðarráðsins sé óbein viðurkenning
á tilverurétti ísraels. „Fýrir aðild-
arríki Evrópubandalagsins er þetta
nauðsynlegt skilyrði fyrir varanleg-
um og réttlátum friði í Miðausturl-
öndum," segir í ályktuninni.
í yfirlýsingunni lýsa ráðherramir
ánægju sinni með að Þjóðarráðið
skuli hafna hryðjuverkum. Ðeiluaðil-
ar em hvattir til að grípa tækifærið
og leita friðar á eina mögulegan
mátann, þ.e. með því að halda al-
þjóðlega friðarráðstefnu á vegum
Sameinuðu þjóðanna.
Lokakafli yfirlýsingár Evrópu-
bandalagsins var settur inn að ein-
dregnum tilmælum Frakka og ítala.
Þar er lýst yfir miklum áhyggjum
af ástandinu á hemumdu svæðunum.
Þrjátíu og fimm ríki hafa nú viður-
kennt ríki Palestínumanna. Kínveijar
gerðu það í gær og Egyptar á sunnu-
dag. ísraelsk stjómvöld hafa brugð-
ist ókvæða við viðurkenningu Egypta
á ríki Palestínumanna. Yitzhak Rab-
in, vamarmálaráðhera ísraels, sakaði
Egypta um að hafa með því brotið
Camp David-samkomulagið. í því
segir að staða hemumdu svæðanna
skuli haldast óbreytt uns samið hafi
verið um framtíð þeirra.
frá því f gær að Chnstina Onass-
ís, sem andaðist á laugardag í
Argentínu, hefði látist af völdum
lungnakvilla. Krufiiingar og
rannsóknar var krafist eftir að
annar dómari hafði lýst því yfir
að andlátið væri grunsamlegt.
Læknir sem Reuters ræddi við
sagði að Christina hefði látist eftir
að blóð hefði safnast í lungunum.
Ættingjar hennar höfðu áður vísað
á bug sögusögnum um að hún hefði
fyrirfarið sér.
Komið var að Christinu meðvit-
undarlausri fyrir utan setur vinkonu
hennar í einu úthverfa Buenos Air-
es. Hún var úrskurðuð látin þegar
hún var færð á sjúkrahús í borginni.
Christina heimsótti oft vini sína
í Argentínu, þar sem faðir hennar
hóf viðskiptaferil sinn á þriðja ára-
tugnum. Vinir hennar segja að hún
hafi ætlað að kaupa eða leigja hús-
næði í Buenos Aires.
Christina Onassis varð ein af
ríkustu konum heims þegar hún
erfði eigur foður síns, gríska skipa-
kóngsins Aristotelesar Onassis, árið
1975. Hún átti fjjögur mislukkuð
hjónabönd að baki og átti við offitu
að stríða, þyngdist til að mynda um
rúm átta kfló á „megrunarstöð“ í
Sviss.
Hún var annað bam skipakóngs-
ins og Aþenu Livanos, dóttur ann-
ars skipakóngs, en þau skildu vegna
sambands Onassis við óperusöng-
konuna Maríu Callas. Bróðir Christ-
inu fórst í flugslysi í Aþenu árið
1973, ári síðar lést móðir hennar
og árið þar á eftir andaðist faðir
hennar.
Christina giftist tvítug miðaldra
Bandaríkjamanni, Joseph Bolker
fasteignasala, sem var fráskilinn
og átti fjögur böm frá fyrra hjóna-
bandi. Árið eftir skildu þau. Síðan
giftist hún Alexander Andreadis,
erfingja skipakóngs, og þau skildu
árið eftir. Arið 1978 játaðist hún
Sovétmanninum Sergej Kaúzov,
starfsmanni sovéskrar skipamiðlun-
ar, og þau bjuggu í lítilli íbúð í
Moskvu þar til þau skildu eftir
tveggja ára hjónaband. Hún var
gift Thierry Roussel, frönskum fjár-
málamanni, frá 1984 til 1987, og
eignuðust þau bam, Aþenu, sem
erfir Onassis-auðinn.
írak:
Sonur forset-
ans sakað-
ur um morð
Bagdað. Reuter.
SADDAM Hussein forseti íraks
lét þau boð út ganga í gær að
elsti sonur hans yrði sóttur til
saka fyrir að ráða ráðgjafa for-
setans af dögum.
í tilkynningu frá forsetanum seg-
ir að 18. október síðastliðinn hafi
kylfuhögg orðið ráðgjafanum að
bana. Uday, elsti sonur Husseins,
situr nú í fangelsi og hefur þrisvar
reynt að svipta sig lífí. Hann hefur
verið sviptur formennsku í
Ólympíunefnd íraks og Knatt-
spymusambandi landsins.
Fundiir samtakáolíuútflutningsríkja:
Skammtímahagsmunir kunna
að hafa hættur í för með sér
SÉRFRÆÐINGAR telja að takist samtökum olíuútflutningsríkja
(OPEC) ekki að ná samstöðu um leiðir til að draga úr ofifram-
leiðslu í þeim tilgangi að ná fram hækkun olíuverðs megi gera
ráð fyrir frekara verðhruni. Fulltrúar aðildarrikjanna funda
þessa dagana I Vínarborg og þrátt fyrir ákafar tilraunir hefur
ekki tekist að sætta sjónarmið fjandrikjanna tveggja, írana og
íraka. Dr. Subroto, framkvæmdastjóri OPEC, sagði er hann var
á ferð í Noregi nú nýverið að undirrituðu Irakar samning um
takmarkanir olíuframleiðslu teldi hann góðar líkur á þvi að oliu-
verð færi hækkandi á ný. Reynslan sýnir hins vegar að Qölmörg
riki OPEC láta fyrst og fremst stjórnast af skammtimahagsmun-
um en þetta sjónarmið kann að hafa hættur í för með sér. Þá
snertir fundurinn einnig hag olíuframleiðslurikja sem standa
utan samtakanna, ekki síst Sovétmenn.
Deila írana og íraka hefur
spillt mjög fyrir þeirri viðleitni
aðildarríkja OPEC að takmarka
olíuframleiðslu. frakar krefjast
þess að framleiðslukvóti þeirra
verði hinn sami og frana en þeir
síðamefndu hafa þráfaldlega
vísað kröfu þessari á bug.
Undanfarin tvö ár hefur
OPEC-ríkjunum í raun ekki tekist
að ná samkomulagi um neitt það
sem gæti haft hækkun olíuverðs
í for með sér. Þótt aðildarríkin
taki öll undir nauðsyn þess að
gripið verði til samræmdra að-
gerða í þessu skyni hefur raunin
orðið sú að framleiðslan hefur
jafnan orðið meiri en um var sa-
mið. Hvert einstakt ríki horfir
með hryllingi til þess að olíutekjur
dragist saman og af þessum sök-
um hafa gerðir samningar verið
hundsaðir, sem aftur hefur orðið
til þess að verðið hefur lækkað.
OPEC-ríkin hafa því þurft að
glíma við vítahring offramleiðslu
og verðlækkunar.
Óttast írani
Þess er og að gæta að nokkur
OPEC-ríki telja það beinlínis
þjóna hagsmunum sínum er til
lengri tíma er litið að olíuverð
fari ekki hækkandi. Ríki þessi
óttast efnahagslega endurreisn
írans og vaxandi áhrif öfgafullra
múslima í arabaheiminum. Þá
telja mörg stærri ríkin að lágt
olíuverð geti orðið til þess að
styrkja mjög stöðu þeirra á stjóm-
málasviðinu þar eð smærri ríki
muni að líkindum neyðast til að
ganga mjög á olíuauðlindir sínar
og að lokum fallast á pólitískar
tilslakanir vegna efnahagskrepp-
unnar.
Efiiahagskreppa og
stjórnmálaólga
Stærri og auðugri ríki svo sem
Kuwait og Saudi-Arabaía kunna
að telja að þetta gæti þjónað hags-
munum þeirra en þessi þróun
gæti haft víðtækar afleiðingar.
Efnahagskreppa í smærri ríkjun-
um við Persaflóa myndi án nokk-
urs vafa hafa stjómmálaólgu í för
með sér. Hreyfingar vinstri
manna myndu að líkindum treysta
sig í sessi og örvænting í röðum
almennings gæti víða leitt til
stjómarskipta. Yrði raunin þessi
er ennfremur hugsanlegt að óvin-
veittar ríkisstjómir í smærri
ríkjunum tækju á endanum að
hyggja á landvinninga í því skyni
að koma á framleiðslueinokun.
Að auki myndi öfund og óvild í
garð hinna íhaldssömu nágranna
þeirra reynast þung á metunum.
Reuter
Undanfarin tvo ár hafe aðgerðir OPEC-ríkjanna reynst gagnslitl-
ar þrátt fyrir áköf fundahöld. Myndin var tekin er fulltrúar aðild-
arríkjanna, sem eru 13 að tölu, komu saman í Genf árið 1986.
Hagsmunir Sovétmanna
og Norðmanna
Það em ekki einungis mikil-
vægt fyrir OPEC-ríkin að bmgð-
ist verði við vandanum á skynsam-
legri og ábyrgari hátt en hingað
til hefur verið gert. Undanfarin
tvö ár hafa Norðmenn, sem ekki
eiga aðild að OPEC, takmarkað
olíuframleiðslu sína. Framleiðslan
hefur verið rúmum sjö prósentum
undir fullri framleiðslugetu en fer
engu að síður vaxandi þar sem
nýir olíuborpallar hafa verið tekn-
ir í notkun. Fjárfestingin hefur
verið gífurleg og mikilvægt er að
nýta tækjabúnaðinn þó svo ágóð-
inn verði ekki í samræmi við von-
ir manna.
Sovétmenn eiga einnig mjög
mikið undir því að olíuverð hækki
á ný. Þá vantar sárlega erlendan
gjaldeyrir til að unnt reynist að
íjárfesta í nauðsynlegum tækja-
búnaði ætli stjómvöld sér að reisa
hagkerfíð við og auka vömfram-
boð. Framleiðsla Sovétmanna hef-
ur aukist á undanfömum ámm
en verðmæti hennar hefur ört
farið minnkandi. Sérfræðingar
telja að meðalverð á olíufati frá
Úral-svæðinu verði 13,70 Banda-
ríkjadalir í ár, samanborið við
17,80 á síðasta ári og 27,30 árið
1985. Það ár vom tekjur Sovét-
manna af olíuútflutningi áætlaðar
33,4 milljarðar Bandaríkjadala
(rúmir 1.500 milljarðar ísl. kr.
miðað við núverandi gengi) en
tekjumar í ár verða að líkindum
aðeins 19 milljarðar dala (um 950
milljarðar ísl. kr.). Þá er þess að
geta að víða f Sovétríkjunum er
olíuvinnslan nú rekin með tapi
sökum þess hve framleiðslukostn-
aðurinn er hár. Þannig er talið
að víða kosti það 13 til 15 Banda-
ríkjadali að framleiða hvert olíu-
fat. Nái OPEC-ríkin ekki sam-
stöðu um aðgerðir á fundinum í
Vfn og falli verðið í kjölfar hans
verða Sovétmenn illa á vegi stadd-
Heimildir: Swiss Press Review
and News Report, Reuter og
Norinform.
Jevgeníj Jevtúsjenko:
Sovétríkin gangi
í Evrópubandalagið
Princeton. Reuter.
í RÆÐU sem sovéska skáldið, Jevgeníj Jevtúsjenko, hélt í Prince-
tonháskóla í Bandaríkjunum á miðvikudag sagði hann að lands-
feðurnir ættu að breyta rúblunni (sovéska gjaldmiðlinum) í skiptan-
lega mynteiningu til að búa Sovétríkin undir það að ganga í Evrópu-
bandalagið.