Morgunblaðið - 22.11.1988, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPri/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
j325S2S2T
Hótel Nes í Ólafsvík auglýst
til sölu
FYRIR skömmu var Hótel Nes í
Olafsvík auglýst til sölu. í húsinu
eru 38 tveggja manna herbergi,
þriggja herbergja íbúð og mat-
salur fyrir hundrað manns auk
alls búnaðar til hótelrekstrar.
Hótelið hefiir verið opið ferða-
mönnum á sumrin en á veturna
nýtist það sem verbúð fyrir að-
komuverkafólk og sjómenn. Eig-
endur eru 7 fyrirtæki í Ólafsvik
auk Ólafsvíkurbæjar sem á 13%
hlutafjár. Að sögn Péturs S. Jó-
hannssónar, framkvæmdastjóra
hjá Sjóbúðinni hf., sem er
rekstraraðili hússins, stendur
fyrirtækið vel fjárhagslega en
vegna breyttra útgerðarhátta
vilja fyrirtækin losa sig út úr
þessum rekstri.
Pétur S. Jóhannson, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að reksturinn
hefði verið leigður út á sumrin und-
anfarin ár en húsið verið í fullri
notkun fjóra mánuði á ári yfir vetr-
armánuðina undanfarin ár sem ver-
búð. Frá byggingu hússins árið
1975 hefðu útgerðarhættir tekið
breytingum. Þá hefðu bátar stund-
að línuveiðar en með minnkandi
um herbergjum og 100 manna sal.
Pétur sagði að nokkrir aðilar
hefðu sýnt áhuga á hótelinu. Fjár-
hagsleg staða þess væri góð og til
greina kæmi að núverandi eigendur
tækju þátt í að reka það með öðrum.
Bankamál
Nýr bæklingur um
alþjóðaviðskipti
LANDSBANKINN hefur gefið út vandaðan kynningarbækling þar
sem vakin er athygli á sérhæfðri þjónustu Landsbankans við fyrir-
tæki í alþjóðaviðskiptum. Þar á meðal eru ábyrgðir, innheimtur,
gjaldeyrisþjónusta, greiðslumiðlun, endurlánuð erlend lán, framvirk
gjaldeyrisviðskipti, starfsemi útflutningslánasjóðs o. fl.
I inngangi segir m.a. að með
auknum inn- og útflutningi og við-
skiptum á nýjum markaðssvæðum
hafi bankinn fylgt þróuninni og
opnað viðskiptareikninga í öllum
helstu viðskiptalöndum Íslendinga.
Þá segir ennfremur að alþjóðleg
bankastarfsemi sé flóknari en svo
að víðtækrar þekkingar og sam-
banda verði aflað á stuttum tíma.
A alþjóðlegum gjaldeyris- og fjár-
magnsmörkuðum séu breytingar
mjög örar. Ný viðskiptaform séu
sífellt að koma fram og eldri að
taka veigamiklum breytingum.
Landsbankinn hafi sérstöðu á ís-
landi á þessu sviði og starfsmenn
Alþjóðasviðs Landsbankans hafi
langa reynslu í þessum viðskiptum
og fylgist vel með breytingum og
nýjungum.
Fasteignasala dæmd í skaðabætur
EIGENDUR fasteignasölu einnar hafa verið dæmdir til að greiða
tveimur kaupendum íbúðar skaðabætur vegna tjóns, sem þeir urðu
fyrir og fasteignasalan var talin bera ábyrgð á. Segir í forsendum
dómsins, að við milligöngu sína við sölu fasteignarinnar hafí fast-
eignasalan komið fram sem sjálfstæður miðlari og því beri hún beina
abyrgð á tjóni kaupendanna.
Bótakröfur sínar byggðu kaup-
endur íbúðarinnar á því, að kaup-
samningurinn var þannig útbúinn,
að þeir voru ekki tryggðir fyrir
hugsanlegum vanefndum af hálfu
seljenda við að aflétta þeim skuld-
um, sem þeir lofuðu. Fasteignasöl-
unni hafi borið að afla upplýsinga
um kvaðir og veðskuldir á eigninni
og miðla þeim til kaupenda, enda
hafi kaupendurnir ekki haft sér-
þekkingu og aðstöðu til að afla
þessara upplýsinga.
Vinnubrögð fasteignasölunnar
hafí verið með þeim hætti, að annað
hvort hafi staða áhvílandi lána á
eigninni ekki verið könnuð af henn-
ar hátfu eða upplýsingum, sem hún
aflaði, ekki komið á framfæri við
kaupendur. Slík vanræksla hljóti
að leiða til bótaábyrgðar fasteigna-
sölunnar vegna gáleysis ef ekki
vegna ásetnings.
Kaupendur héldu því ekki fram,
að beint samningssamband væri
milli þeirra og fasteignasölunnar. I
stað þess byggðu þeir rétt sinn á
því, að skylda fasteignasala væri
að gæta hagsmuna bæði seljanda
og kaupanda. í löggildingunni fæ-
list viðurkenning á tiltekinni sér-
þekkingu og aðilar að fasteignavið-
skiptum yrðu að geta treysta á fag-
leg vinnubrögð fasteignasala.
enda, að ábyrgð fasteignasalanna
gæti hugsanlega komið til álita.
Niðurstaða dómsins, sem var
kveðinn upp í bæjarþingi Reykjavík-
ur, var sú, að vegna skorts á upplýs-
ingum, hefði þess ekki verið gætt
við gerð kaupsamnings að kveða á
um, hvernig vanskilum áhvílandi
veðskulda yrði komið í skil af hálfu
seljendanna. Jafnframt bar fast-
eignasölunum að leiðbeina aðilum
um val á dagsetningu til að aflétta
áhvílandi veðskuldum, þannig að
kaupendur hefðu fullnæjandi trygg-
ingu þar til lánunum yrði aflétt.
Með vanrækslu sinni hefði fast-
eignasalan fellt á sig bótaábyrgð.
Úrslit málsins urðu þau, að eig-
endur fasteignasölunnar voru
dæmdir til að greiða íbúðarkaup-
endunum kr. 147.578 auk vaxta
og kr. 60.000 í málskostnað.
Morgunblaðiö/Emilía
LEIKFONG — Margrét Pálsdóttir hefur keypt verslunina
Liverpool, en faðir hennar, Páll Sæmundsson átti hana um árabil hér
áður fyrr.
HEILBRIGÐISSTETTIR — Fynrtækið GK-Hönnun sf.,
Háholti 14, Mosfellsbæ er útgáfu-, dreifingar- og hönnunarfyrirtæki,
sem sérhannar og framleiðir vinnufatnað fyrir heilbrigðisstéttina und-
ir vörumerkinu Dent og Med. Efnið í flíkurnar er úr 100% bómull og
er flutt inn frá V-Þýskalandi. Hægt er að velja um ýmsa liti. Eigend-
ur fyrirtækisins eru tannlæknarnir Gunilla Skaptason og Kristján
Kristjánsson. Markaðs- og sölustjóri er Gerður Hannesdóttir.
afla og breyttum veiðiskap hefðu
fyrirtækin minni þörf fyrir þessa
aðstöðu. Þau vildu því losa sig út
úr rekstri hússins og teldu það hlut-
verk annara að sjá um hann en
myndu þó áfram skipta við þann
aðila sem tæki við. Komið hefði til
tals að byggja ofan á húsið hæð
og samkvæmt teikningu sem iægi
fyrir væri gert ráð fyrir 15 vel bún-
Vanræksla olli bótaábyrgð
Sýningin Betri brú ’89
SAMTÖK seljenda skipatækja,
sem samanstanda af fyrirtækjum
á sviði sölu og þjónustu á skipa-
tækjum, halda dagana 15.-r8- des.
nk. sýningu þar sem leitast vérður
við að sýna nýjungar, að þvi er
segir í frétt frá aðstandendum
sýningarinnar. Hún mun bera
yfirskriftina Betri brú ’89.
í fréttinni segir einnig að tækni-
þróun í siglinga- og fiskileitartækjum
sé mjög ör um þessar mundir, og
því sé mikilvægt að hlutaðeigandi
aðilar séu vel upplýstir. Ferðaskrif-
stofan Saga mun bjóða upp á sér-
stakan ferða- og gistipakka vegna
sýningarinnar.
Fyrirtæki
Liverpool aftur í Ijölskylduna
LEIKFANGAVERSLUNIN Liverpool opnaði nýlega undir stjórn nýs
eiganda, Margrétar Pálsdóttur. Hún er þó ekki ókunn rekstri verslun-
arinnar, því faðir hennar, Páll Sæmundsson var aðaleigandi hennar
um margra ára skeið, eftir að hafa verið verslunarstjóri hjá fyrri
eigendum. Það var á stríðsárunum sem hann keypti verslunina, og
árið 1955 byggði hann svo húsið að Laugarvegi 18a þar sem verslun-
in er til húsa enn þann dag í dag, og hefiir húsið verið í eigu Qöl-
skyldunnar síðan. Hins vegar hefur rekstur leikfangaverslunarinnar
verið í eigu annarra aðila síðan Páll hætti rekstrinum sjálfur.
Innflutningur
Tollvörugeymsl-
an býður upp á
tölvutengingu
TOLL V ÖRUGE YMSL AN hefur
nú tengst almenna gagnaflutn-
ingsnetinu hjá Pósti og Síma.
Þetta gefiir viðskiptavinum Toll-
vörugeymslunnar möguleika á
því að tengjast tölvukerfí Toll-
vörugeymslunnar, og stunda
þannig Qarvinnslu við það.
Þær aðgerðir sem hægt er að
framkvæma í fjarvinnslu eru fjórar,
gerð úttekta, uppfletting á birgða-
stöðu, uppfletting í tollskrá og upp-
fletting á nýjum og gömlum gengi-
stöflum. Það sem viðskiptavinur
Tollvörugeymslunnar þarf til teng-
ingarinnar er tölva, mótald og að-
gangsorð. Með tengingu við al-
menna gagnaflutningsnetið opnast
einnig möguleiki á því, að tengjast
gagnabönkum um allan heim.
Röng málshöfðun
sem málsvörn
Fasteignasalarnir kröfðust sýknu
á þeim forsendum, að málshöfðun-
inni væri beint ranglega að þeim.
Þannig væru þeir ekki aðilar að
kaupsamningi þeim, sem gerður
hefði verið. I öðru lagi hefðu kaup-
endurnir haft tök á að firra sig
tjóni, þar sem komið hefðu framhjá
þeim strax í upphafi efasemdir um
skilvísi seljenda. Þá héldu fast-
eignasalarnir því fram, að staðið
hefði verið með venjubundnum
hætti að sölunni og gerð kaupsamn-
ings. Þannig hefði staða áhvílandi
lána, sem átti að yfirtaka, verið til-
greind í samræmi við venju og
sömuleiðis lán, sem átti að aflétta.
Enn báru fasteignasalarnir það
fyrir sig, að ábyrgð þeirra, ef hún
væri fyrir hendi, hlyti að vera af-
leidd en ekki bein. Kaupendunum
hefði því verið skylt að staðreyna
tjón sitt með innheimtu á hendur
seljendum og það væri fyrst, er ljóst
væri, hvert tjónið væri og að það
myndi ekki fást bætt úr hendi selj-
Verslunarnafnið Liverpool hefur
reyndar verið í notkun á Islandi
síðan árið 1839, en þá keypti mað-
ur að nafni Hans Christian Robb
verslunarhús Jóns Magnússonar, og
hóf að versla þar undir nafninu
Liverpool. Verslunin og nafnið voru
svo í eigu ýmissa aðila fram til árs-
ins 1930, er Mjólkurfélag
Reykjavíkur keypti Liverpool, og
rak verslunina í húsi sínu að Hafn-
arstræti 5. Allan þennan tíma var
verslunin rekin sem krambúð og
nýlenduvöruverslun, þó svo að í
fyllingu tímans hafi vöruúrvalið
færst að mestu yfir í leikföng. Árið
1940 tóku svo þeir Gísli Jónsson
frá Bíldudal og Ólafur B. Björnsson
frá Akranesi við rekstrinum, og
jafnframt var Páll Sæmundsson
ráðinn verslunarstjóri. Hann keypti
síðan verslunina stuttu síðar. Árið
1955 flutti verslunin sem fyrr segir
í húsið sem Páll byggði að Laugar-
vegi 18a.
Margrét Pálsdóttir eignaðist Li-
verpool í vor, og byijaði 1. maí með
verslunina á jarðhæð hússins, en
hefur nú nýverið tekið 2.hæð að
auki undir verslunina. „Ég end-
urnýjaði innanstokksmuni á jarð-
hæðinni fyrir opnunina, en á efri
hæðinni eru enn upphaflegu inn-
réttingarnar. Það má með sanni
segja að þær hafi skilað sínu með
sóma, því þær njóta sín afar vel,
enn þann dag í dag,“ sagði Margr-
ét í samtali við Morgunblaðið. í
Liverpool eru á boðstólum ýmiskon-
ar leikföng og gjafavörur fyrir yngri
kynslóðina, en Margrét sagði að það
væri enn algengt að eldra fólk sem
hafi þekkt Liverpool sem krambúð
á sínum yngri árum liti inn í leit
að pottum eða leirtaui. „Slíkt er
auðvitað bara skemmtilegt krydd í
tilveruna,“ sagði hinn nýi en jafn-
framt rótgróni eigandi Liverpool að
lokum.