Morgunblaðið - 22.11.1988, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
Húsavík:
Þrír bílar í árekstri á Mýrarkvísl
••
Okumaður eins þeirra fluttur á sjúkrahús
Ökumaður jeppabifreiðar var
fluttur í sjúkrahús í fyrrakvöld,
töluvert slasaður, eftir að þijár
bifreiðir skullu saman á brúnni
yfir Mýrarkvísl, _ sem rennur í
Laxá í Aðaldal. Óhappið átti sér
stað á þjóðveginum um tíu km
sunnan við Húsavík.
Á þessum slóðum eru tvær brýr,
en þó nokkur hæð á milli þeirra.
Vörubifreið var á leið norður til
Húsavíkur og stefndi niður á þessa
tilteknu brú. Jeppabifreið var hins-
vegar á leið frá Húsavík til suðurs
og skullu bifreiðimar saman á miðri
brúnni. Töluverð hálka var á þessum
slóðum þegar slysið átti sér stað um
kl. 20.00 á sunnudagskvöld. Síðan
lenti þriðji bíllinn, fólksbíll, inn í
áreksturinn, en hann var á sömu
leið og jeppabifreiðin, frá Húsavík
til suðurs. Okumaður jeppans var í
fyrstunni fluttur í sjúkrahúsið á
Húsavík og síðar um kvöldið í Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri. Jeppinn
og vörubíllinn voru mikið skemmdir
og óökufærir. Minna sá á fólksbíln-
um. Farþegar voru í jeppanum og
vörubílnum. Allir nema ökumaður
jeppans voru í bílbeltum og sluppu
aðrir en hann óslasaðir úr árekstrin-
um, að sögn Þrastar Brynjólfssonar
yfirlögregluþjóns á Húsavík.
Teclinics
HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU
Technics X 800 er hágæða hljómtækjasamstæða
með ótrúleg hljómgæði, glæsilegt útlit og framúrskar-
andi endingu. Þessi þrjú atriði koma í raun engum á
óvart þegar Teclmics á í hlut.
Vegna hagstæðra samninga og skilnings framleið-
anda á erfiðu ástandi hér heima getum við boðið
þessa samstæðu á hagstæðara verði en nokkru sinni
fyrr
Kr. Kr. 34.950.-
____ _____m/ skáp kr. 39.940,-st.gr.__
JAPISS
• BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN ■
• SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■
■ Sl'MI 96-25611 ■
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Araar Sigfússon uppboðshaldari veifar hér bijóstahaldara, en 115
slikir fóru á 600 krónur. Gestir geta ekki leynt kátinu sinni.
Uppboð bæjarfógetaembættisins á Akureyri;
90 karlmaimauær-
buxur á 3500 kr.
115 bijóstahaldarar slegnir hæst-
bjóðanda á 600 krónur
ÞAÐ VAR fuilt út úr dyrum í
lögreglustöðinni á Akureyri
síðastliðinn laugardag þar sem
fram fór uppboð á ýmsum hlut-
um. Bílar, bátur, sjónvarp, mynd-
bandstæki, reiðhjól, bijóstahald-
arar og karlmannanærbuxur var
á meðal þess sem boðið var upp
í lögreglustöðinni og það gekk
bókstaflega allt út. Til dæmis
fóru 115 stykki af brjóstahöldur-
um á 600 krónur og 90 karl-
mannanærbuxur voru slegnar á
3.500 krónur. í fyrstunni voru
boðnar 100 krónur i þær, þá 200,
svo 500,1.000 kr., 2.000 kr., 2.500
kr., 2.600 kr., 2.700 kr., 3.000
kr., 3.200 kr. og að lokum 3.500
krónur.
Amar Sigfússon fulltrúi hjá bæj-
arfógetanum á Akureyri var upp-
boðshaldari að þessu sinni. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þetta uppboð hefði verið óvenju
ijörugt og mikið um vörur.
Abyrgðir vegna Kaupfélags Svalbarðseyrar:
Fimm ára gamlir óútfyllt-
ir og ódagsettir víxlar
Akaflega vafasamir innheimtu-
pappírar, segir Guðmundur Þórisson
Lögfræðingar bændanna á
Svalbarðseyri sem gengu í per-
sónulegar ábyrgðir fyrir Kaup-
félag Svalbarðseyrar telja að
kröfúr Samvinnubankans á hend-
ur bændunum séu fyrndar og því
komi ekki til mála að þær verði
greiddar. „Því á ég ekki von á
því að við göngum að tilboði Sam-
bandsins sem gerir ráð fyrir að
Sambandið taki á sig þriðjung
ábyrgðanna, Iðnaðarbankinn,
Samvinnubankinn og Sparisjóður
Glæsibæjarhrepps taki á sig þriðj-
ung skuldanna og þeir láni bænd-
unum þriðjung á hagstæðum kjör-
um,“ sagði Guðmundur Þórisson
bóndi i Hléskógum í samtali við
Morgunblaðið.
„Ef tilboði Sambandsins verður
ekki tekið, reikna ég með að Sam-
vinnubankinn fari einfaldlega út úr
myndinni með sínar kröfur. Þær eru
taldar ákaflega vafasamar þó ekki
sé meira sagt. Kröfumar eru orðnar
mjög gamlar og tryggingavíxlarnir,
sem bankinn hefur undir höndum,
eru bæði óútfylltir og ódagsettir.
Þeir áttu að hafa verið trygging
fyrir erlendu láni, sem Útvegsbank-
inn veitti Kaupfélagi Svalbarðseyrar
fyrir einum sex ámm þegar vélarnar
vom keyptar í nýju . kartöfluverk-
smiðjuna. Síðan féll lánið á Sam-
vinnubankann, sem ekki innheimti
féð,“ sagði Guðmundur.
Fjórir ábyrgðarmenn skrifuðu upp
á þessa tryggingavíxla í Samvinnu-
bankanum, þeir Ingi Þór Ingimars-
son, Neðri-Dálgsstöðum, Jón Laxdal
í Nesi, Bjami Hólmgrímsson á Sval-
barði og Jón Sólnes, sem látinn er
fyrir rúmum tveimur ámm. Krafa
Samvinnubankans stendur nú í um
26 milljónum króna. „Þeir lögfræð-
ingar, sem við höfum leitað til, telja
þessa pappíra vonlausa innheimtu-
aðferð þar sem pappíramir hafa
verið látnir liggja þetta lengi. Þeir
telja að slíkir pappírar fyrnist á
tveimur ámm.“
Hann sagði að því miður hefðu
þessir viðskiptahættir mikið verið
notaðir hér áður fyrr. „Menn gáfu
út alls kyns víxla án þess þó að setja
á þá upphæð eða dagsetningar.
Bankarnir tóku gjarnan við þessum
víxlum og settu sjálfir á þá kostnað
eftir eigin höfði og innheimtu síðan.
Hinsvegar skilst mér að tekið hafi
verið algjörlega fyrir slík viðskipti á
síðasta ári,“ sagði Guðmundur.
Hann bjóst við að bændumir myndu
leita samninga við Iðnaðarbankann
um að kröfumar yrðu jafnaðar út.
Samið yrði um einhverja heildampp-
hæð í stað þess að hanga í því hvaða
krafa sé lögleg og hver ekki. Sam-
vinnubankinn, álít ég, að muni aldr-
ei leggja út í málaferli með svo
hæpna innheimtupappíra í vasanum.
Hinsvegar tel ég að Sambandið
muni styrkja Samvinnubankann með
þeim fjármunum, sem það ætlaði
okkur,“ sagði Guðmundur.
Krafa Iðnaðarbankans er upp á
um 22 milljónir sem skiptist á milli
Jóns Laxdal, Bjarna Hólmgrímsson-
ar, Inga Þórs, Guðmundar Þórisson-
ar, Karls Gunnlaugssonar fyrrver-
andi kaupfélagsstjóra og Tryggva
Stefánssonar á Hallgilsstöðum.
Tveir menn, Hjalti Kristjánsson og
Hallur Jósepsson, em ábyrgðarmenn
fyrir mun lægri upphæðum hjá Iðn-
aðarbankanum.