Morgunblaðið - 22.11.1988, Page 37

Morgunblaðið - 22.11.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 37 Ummæli Jóns Sigurðssonar á Alþingi: Frumvarp um nýtt álver ef niður- stöður kannana reynast jákvæðar Samþykkt slíks frumvarps þýðir nýjan meirihluta á Alþingi, segir Ólafur Ragnar Grímsson Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, sagði i Sam- einuðu þingi í gær að stjórnar- frumvarp um nýtt álver í. Straumsvík verði ekki flutt, nema samþykki allra stjórnar- flokkanna komi til. Jón Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, sagði hinsvegar að ef niðurstöður hagkvæmnikönn- unar, sem nú er að unnið, reynd- ust þjóðhagslega jákvæðar, yrði leitað heimilda Alþingis til framhaldsins með frumvarps- flutningi. Ólafúr Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra, sagði, að ef fram kæmi frumvarp um þetta efni og hlyti samþykki löggjaf- ans, bæri að líta svo á að nýr meirihluti hefði til orðið á Al- þingi. Þessar yfírlýsingar komu fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær, sem Friðrik Soph- usson (S/Rvk) hóf. Friðrik stað- hæfði að á Alþingi væri meiri- hluti fyrir nýju álveri í Straumsvík, ef hagkvæmni- könnun og könnun á áhrifúm nýs álvers á þjóðarbúskapinn í heild reyndust jákvæðar. Friðrik Sophusson (S/Rvk) fjallaði fyrst um misvísandi yfír- lýsingar ráðherra og þingmanna stjómarflokkanna í fjölmiðlum um stefnu ríkisstjómarinnar og af- stöðu til hagkvæmnikönnunar á nýju álveri í Straumsvík og fram- halds þess máls, ef hagkvæmni- könnun rejmdist þjóðhagslega já- kvæð. Síðan bar Friðrik fram nokkrar fyrirspumir, málið varð- andi, til þriggja ráðherra: forsætis- ráðherra, iðnaðarráðherra og fjár- málaráðherra. Spumingamar varða stefíiu stjómarinnar í þessu máli í framhaldi af hagkvæmnis- könnun og könnun á þjóðhagsleg- um áhrifum nýs álvers; hvort vænta megi stjómarfrumvarps á þessu þingi um málið, ef niðurstöð- ur kannana reynast jákvæðar. Einnig spurði Friðrik hvort stefnt væri að því að þau erlendu fyrir- tæki, ijögur talsins, sem að hag- kvæmnikönnun standa, ættu sinn fjórðunginn hvert í nýju álveri, ef úr byggingu þess verður. Þá spurði Friðrik forsætisráðherra -sérstak- lega, hvort og þá hvaða samningar hafí verið gerðir milli stjómar- flokkanna um þetta mál, þá stjóm- in var mynduð, og hvort nýir fyrir- varar hafí komið fram. Friðrik spurði fjármálaráðherra, hvort Alþýðubandalagið hafí gert sér- staka fyrirvara í þessu máli, hvort Alþýðubandalagið geti fallist á þá eignaraðild, sem nú væri um rætt, og loks, hvort formanni Alþýðu- bandalagsins hafí verið kunnugt fyrirfram um tilnefningu Alþýðu- bandalagsmannanna Baldurs Óskarssonar og Guðna Jóhannes- sonar í nefndir sem vinna að undir- búningi málsins af hálfu iðnaðar- ráðuneytisins. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, sagði að engir samningar hafí verið gerðir milli stjómarflokkanna um þetta mál sérstaklega. Ljóst væri hinsvegar að um það væm skiptar skoðanir milli þeirra. Stjómarfrumvarp um þetta efni verður því ekki flutt nema með samþykki þeirra allra. Forsætisráðherra sagði á hinn bóginn að ekki væm athugasemd- ir við þá málsmeðferð að ljúka þeirri hagkvæmnikönnun, sem að væri unnið. Jón Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, sagði að ef niðurstöður kannana á rekstrargmndvelli nýs álvers og þjóðhagslegum áhrifum þess reyndust jákvæðar „þá verður leitað heimilda Alþingis til að gera samninga um slíka framleiðslu, um virkjanir, sem nauðsynlegar kynnu að reynast vegna slíkrar framleiðslu; annaðhvort yrði þetta með heimildarlögum eða þá leitað yrði staðfestingar Alþingis á gerð- um samningum, en báðar fyrir- myndirnar em til um orkufrekan iðnað". Ráðherra sagði að þetta yrði gert þegar málið yrði til þess þroskað, en lét þó að því liggja, að svo yrði einhvem tíma næsta árs. Ráðherra sagði að ekkert væri á þessu stigi hægt að fullyrða um eignarhluti erlendra viðræðu- aðila, en í því samkomulagi, sem þau hafí gert sín á milli um könn- un málsins, væri rætt um fjórð- ungseign hvers þeirra. Olafúr Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra, svaraði því til, að honum hafí verið kunnugt um það fyrirfram að iðnaðarráðherra ætlaði að leita til þeirra einstakl- inga, sem skipaðir vóm í álnefnd- ir. Ráðherra sagði hinsvegar: „Þeir em ekki flokkslegir fulltrúar Al- þýðubandalagsins." Fjármálaráðherra sagði jafn- framt að ef fmmvarp yrði flutt um nýtt álver, á þeim forsendum sem nú væri rætt um og það sam- þykkt á Alþingi, bæri að líta svo á að nýr þingmeirihluti væri til orðinn á Alþingi. Kjartan Jóhannsson (A/Rn) lýsti þeir skoðun sinni að sjálfgef- ið væri að halda áfram hag- kvæmnikönnun þessa mikilvæga máls og ganga til samninga um framkvæmdir, ef niðurstöður væm jákvæðar og unnt reyndist að ná góðum samningum um málið. Guðmundur G. Þórarinsson (F/Rvk) taldi að rétt hefði verið að bíða með þinglega umfjöllun þar til niðurstöður hagkvæmni- kannana liggi fyrir. En tvennt verði að hafa í huga. í fyrsta lagi að sú könnun, sem nú er að unn- ið, væri að fmmkvæði íslenzkrar ríkisstjómar. í annan stað að þeir erlendu aðilar, sem að henni stæðu, gerðu það í góðri trú um framkvæmdir, ef niðurstöður yrðu jákvæðar. Að hluta til snýst þetta mál því um það, hvert álit við sköpum okkur sem trúverðugs samningsaðila á alþjóðlegum vett- vangi. Guðmundur sagði að hag- kvæmniathugun gæti allt eins orð- ið neikvæð eins og jákvæð, en ef hún reyndist jákvaeð, þyrfti að standa að málum í samræmi við það. Júlíus Sólnes (B/Rn) tajdi að betur hefði farið á því að íslenzkir athafnamenn hefðu staðið að stór- iðjusamningum okkar en stjóm- málamenn og embættismenn. En reynizt hagkvæmnikönnun já- kvæð, eigi að grípa tækifærið. Hjörleifúr Guttormsson (Abl/Al) mælti hart gegn frekari stóriðju í Straumsvík. Nær væri Harðar umræður urðu utan dagskrár á Alþingi í gær vegna þess að til stendur að heQa greiðslur úr Atvinnutrygginga- sjóði, sem efnt var til samkvæmt ákvæðum bráðbirgðalaga ríkis- stjórnarinnar. Þessi bráða- birgðalög hafa hinsvegar enn ekki hlotið staðfestingu Al- þingis, og óvíst er, hvort þau hljóta staðfestingu, óbreytt, að dómi Kristínar Halldórsdóttur (Kvl/Rvk), er hóf umræðuna. Kristín Halldórsdóttir sagði þingmenn Kvennalista ekki sízt andvíga því ákvæði bráðbirgða- laga ríkisstjómarinnar, sem fjallar um það að fjármagna Atvinnu- tryggingasjóð með íjármunum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Ekki megi skerða Atvinnuleysistrygg- ingasjóð, allra sízt þegar þrengdi að i atvinnulífinu. Hver er staða þeirra, sem skipta við hinn nýja sjóð, spurði Kristín, ef bráða- birgðalögin verða felld eða þeim breytt að þessu leyti? Eða hefur forsætisráðherra tryggingu fyrir því að bráðabirgðalögin hljóti stað- festingu? Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, sagði að ríkis- stjómin hefði enga tryggingu fyrir því að bráðabirgðalögin verði stað- fest óbreytt. Ráðherra sagði um 50 umsókn- að snúa athygli Alþingis að vanda hefðbundinna útflutnings- og sam- keppnisgreina. Það á, sagði Hjör- leifur efnislega, að sinna íslenzk- um rannsóknum, með íslenzku hyggjuviti og kosta til íslenzkum ijármunum. Kristin Einarsdóttir (Kvl/Rvk) sagði allar áætlanir um byggingu nýs álvers „tóma vit- leysu". Við erum með eitt álver, „illu heilli“, sagði hún og nýtt ál- ver-eykur ekki á fjölbreytnina í atvinnulífínu. ir hafa borizt Atvinnutrygginga- sjóði og að hann myndi ekki beita sér fyrir því sérstaklega að af- greiðslu þeirra yrði frestað. Eiður Guðnason (A/Vl) sagði að bráðabirgðalögin sættu eðli- legri málsmeðferð í viðkomandi þingnefnd efri deildar, sem m.a. hefði leitað til 15 umsagnaraðila. Allt tæki þetta sinn tíma. Halldór Blöndal (S/Ne) sagði það ekki sök þingnefndar, hve afgreiðsla bráðabirgðalaganna hafí dregizt. Til dæmis hafi öll störf fallið niður á Alþingi í heila viku vegna slakrar verkstjómar í ríkisstjórninni. Nauðsynlegt er, sagði Halldór, að fá fram, hvort ríkisstjómin hefur þann þingmeiri- hluta í þessu máli, sem hún taldi sig hafa þá bráðabirgðalögin vóm sett. Albert Guðmundsson (B/Rvk) krafði forsætisráðherra svara um það hvaða forsendur hafi verið lagðar á borð forseta lýðveldisins þá hún undirritaði bráðabirgðalög- in. Það er mjög aivarlegt mál, sagði Albert, hafi forseti fengið rangar upplýsingar um þingstyrk málsins, þegar bráðabirgðalögin vóra gefin út. Geir Haarde (S/Rvk) spurði forsætisráðherra, hver er staða Atvinnutryggingasjóðs að lögum, ef ákvæði bráðabirgðalaga, er Albert Guðmundsson (B/Rvk) sagði að forsætisráðherra hafí full- yrt, að stjómarframvarp verði ekki flutt um byggingu nýs álvers, nema með samþykki allra stjómar- flokkanna. Iðnaðarráðherra stað- hæfí hinsvegar, að frumvarp unt þetta efni verði flutt, ef niðurstöð- ur hagkvæmnikannana reyndust jákvæðar. Fjármálaráðherra segi síðan að framvarpsflutningur um þetta efni og samþykkt slíks frum- varps beri að skoða sem myndun nýs þingmeirihluta, það er stjóm- arslit. Upphafsmaður þessarar umræðu, Friðrik Sophusson, getur verið ánægður með það sem hann hefur fengið fram í misvísandi svöram ráðherranna, sagði Albert Guðmundsson. Þorsteinn Pálsson (S/Sl) sagði að misvísandi svör þriggja ráðherra sýndu bezt ástandið um borð í stjórnarskútunni. Þorsteinn taldi iðnaðarráð- herra hafa staðið rétt og hyggi- lega að málinu og lýsti stuðn- ingi Sjálfstæðisflokksins við þá stefnumörkun, er réði ferð. Hann sagði að þingmeirihluti væri fyrir málinu, ef niðurstöð- ur kannana, sem að væri unnið, reyndust jákvæðar. Fleiri tóku til máls, þótt ekki verði frekar rakið. Friðrik Sophusson sagði í lokaræðu að það sem upp úr stæði að umræð- unni lokinni, væri ósamkomulag á stjórnarheimilinu um viðamik- ið mál. En fleira væri ljóst: Enginn samningur hafi verið gerður milli stjórnarflokkanna um þetta mál við stjórnarmynd- un. Formaður Alþýðubanda- lagsins vissi fyrirfram um til- nefrdngu tveggja yfirlýstra Al- þýðubandalagsmanna í álnefnd- ir. Iðnaðarráðherra mun leita heimilda Aiþingis með frum- varpsflutningi, ef niðurstöður kannana reynast jákvæðar. Formaður Alþýðubandalags tel- ur samþykkt slíks frumvarps jafiigilda stjórnarslitum. hann varðar, verður fellt? Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, sagði að lán- veitingar úr sjóðnum stæðust lagalega þangað til að til þess kæmi, og ef að til þess kæmi, að ákvæði bráðabirgðalaganna, er hann varðar, verður fellt. Ef svo fer stöðvast starfsemi hans. Ráð- herra sagði og að forseta hafi verið kunnugt um það að ríkis- stjómin hafí ekki hreinan meiri- hluta í neðri deild Alþingis. Ragnhildur Helgadóttir (S/Rvk) vék að eignarétti á þeim fjármunum, sem taka á frá At- vinnuleysistryggingasjóði og feera yfir í Atvinnutrygginga- sjóð. Alþingi eitt geti breytt lög- um um Atvinnuleysistrygginga- sjóð. Ákvæði bráðabirgðalag- anna kunni að standa, unz Al- þingi hafi um þau fjallað og hugsanlega fellt þau eða breytt þeim. Úthlutun úr sjóðnum fari hinsvegar fram á hæpnum for- sendum. Hér kunni það að eiga við sem eitt sinn var sagt: máske löglegt en siðlaust. Hún spurði, hvort ekki væri ráð að bíða með úthlutun úr sjóðnum unz Al- þingi hafi formlega tekið af- stöðu til bráðabirgðalaganna. Fleiri tóku til máls, þó ekki verði frekar rakið. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra: Engin trygging fyrir stað- festingu bráðabirgðalaganna A að bíða með úthlutun úr Atvinnutryggingasjóði unz Alþingi hefiir afgreitt bráðabirgðalögin?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.