Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
I
Svíþjóð:
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftír PÉTUR PÉTURSSON
Yfirmaður tollgæslunnar
verður ríkislögreglustj óri
ÞAÐ má með sanni segja að yfirmönnum lögreglu og réttarfars
hér í Svíþjóð undanfarin misseri sé vandsetið í embættum sínum.
Eins og kunnugt er varð dómsmálaráðherrann, Anna-Greta Lej-
on, að segja af sér í vor og hafði hún þá aðeins setið í embætti
í nokkra mánuði. Hún leysti Sten Wikbom af en hann varð að
víkja vegna almennrar gagnrýni á föryggisgæslu í sænskum fang-
elsum. Anna-Greta Lejon varð aftur á móti að víkja vegna hins
svokallaða Ebbe Carlsson-máls, sem á rætur sínar að rekja til
hinnar árangurslausu leitar að morðingja Olofs Palme, fyrrver-
andi forsætisráðherra Svíþjóðar.
Kom óorði á verði laganna
Ebbe þessi Carlson, sem er bóka-
útgefandi að atvinnu, hóf einka-
rannsókn á morðmálinu með bréf-
upp á vasann frá dómsmálaráð-
herranum og með vitund og vitn-
eskju fleiri vildarvina úr röðum
jafnaðarmanna, sem voru vanir
að líta á hann sem bjargvættinn
sem var boðinn og búinn þegar
vasast þurfti í viðkvæmum málum
á bak við tjöldin flokknum í hag.
Þessir aðilar, ekki síst dómsmála-
ráðherrann fyrrverandi, lögðu
hart að yfírmanni ríkislögreglunn-
ar Nils Erik Áhmansson að hlusta
á hvað Carlsson hafði að segja
og nýta hann við rannsókn máls-
ins. Vantraust ýmissa forystu-
manna innan jafnaðarmanna-
flokksins á öryggislögreglunni lá
að baki þessari einkarannsókn og
gaf hún þeim kenningum byr und-
ir báða vængi, að jafnaðarmanna-
flokkurinn hefði á sínum snærum
óformlega öryggislögreglu sem
fremdi persónunjósnir, eða hefði
gert það.
Þegar stjómarskrámefnd
þingsins fjallaði um málið í sumar
og yfírmenn lögreglu og fleiri
aðilar vom yfírheyrðir, ásamt
Ebbe Carlson, hitnaði undir stól-
um ýmissa háttsettra embættis-
manna, sem sakaðir vom um að
hafa vitað um þessa einkarann-
sókn án þess að viðhafa viðeig-
andi aðgerðir. Ebbe Carlsson hef-
ur haldið því fram að yfirmaður
ríkislögreglunnar og yfírmaður
öryggislögreglunnar hafí verið í
vitorði með sér og í raun falið sér
að framkvæma þá einkarannsókn
sem hann sá um. Hann hefur nú
áréttað þessa fullyrðingu sína með
Nils Erik Áhmansson, fyrrver-
andi ríkislögreglustjóri, valdi
að lokum að segja af sér eftir
mánuði í sviðsljósinu.
því að senda ríkislögreglustjóm-
inni reikning upp á útgjöldin, sam-
tals 1,2 milljónir sænskra króna,
þar af em rúmlega 900 þúsund
fyrir hin ólöglegu hlemnartæki
sem tollverðir í Gautaborg upp-
götvuðu þegar smygla átti þeim
inn í landið. Þessu hafa yfírmenn
lögreglunnar neitað, en allt þetta
mál hefur komið óorði á lögreglu-
stjómina og skaðað tiltrú almenn-
ings á vörðum laganna.
Kaldhæðni örlaganna í
stjórnmálum
Sjálfur yfírmaður öryggislög-
reglunnar Sune Sandström var
hætt kominn, en hann fékk sér
bestu lögfræðinga sem völ er á
og bjargaði sér fyrir hom. Svo
virtist sem yfírmaður ríkislögregl-
unnar Nils Erik Áhmansson
mundi einnig sleppa með skrekk-
inn, en sú varð þó ekki raunin.
Fyrir nokkmm dögum neyddist
hann til að segja af sér vegna
þess að hann hafði ekki tiltrú
ríkisstjómarinnar. Það er kald-
hæðni örlaganna að hér er nánast
Bjöm Eriksson, nýi ríkislög-
reglustjórinn, var í Kenýu þeg-
ar hann frétti af ráðningunni.
um að ræða sömu ríkisstjóm sem
meðvitað og ómeðvitað hafði lagt
blessun sína yfír einkanjósnarann.
Sjálfur forsætisráðherrann, Ing-
var Carlsson, leit ekki mistök
dómsmálaráðherra síns alvarlegri
augum en það, að hann lýsti því
yfir að hann ætlaði henni nýtt
ráðherraembætti ef flokkur hans
myndaði stjóm að kosningum
loknum. Jafíiaðarmenn mynduðu
aftur stjóm, eins og kunnugt er,
en Ingvar Carlsson neyddist til
að ganga á bak orða sinna varð-
andi Önnu-Gretu Lejon þar sem
Ijóst var að meirihluti þingsins var
tilbúinn til að styðja vantrauststil-
lögu á hana sem ráðherra, enda
hafði stjómarskrámefnd þingsins
vítt hana fyrir að hafa lagt bless-
un sína yfír Ebbe. Anna-Greta er
áfram þingmaður og er nú form-
aður fjárveitinganefndar, sem er
ein mikilvægasta fastanefnd
þingsins.
Brostnar vonir
Áhmansson er tiltölulega ungur
að ámm. Hann er 47 ára gamall
og tók við þessari æðstu stöðu í
ríkislögreglunni í janúar á þessu
ári. Miklar vonir vom bundnar við
hann í þessu embætti, ekki síst
af hálfti lögreglumanna, sem
þekktu hann áður sem duglegan
starfsfélaga og áhugasaman yfir-
mann í Malmö. Þar var hann lög-
reglustjóri á ámnum 1982—1987.
Hann er lögfræðingur að mennt,
en vann á námsámm sínum sem
óbreyttur lögreglumaður. Eftir
það fór hann af og til á vakt með
undirmönnum sínum til að missa
ekki sambandi við þann vemleika
sem þeir áttu við að glíma í starfí
sínu. Hann boðaði átak í því að
bæta vinnuaðstöðu lögreglu-
manna, meiri hagræðingu og end-
umýjun tækjaútbúnaðar þegar
hann tók við stöðu sinni.
Ebbe Carlsson
niáiög
Heyrst hefur að meðal lög-
reglumanna sé almenn eftirsjá að
Áhmansson þó svo að tiltrú al-
mennings á yfirstjóm lögreglu-
mála hafí beðið hnekki við af-
skipti hans af Ebbe Carlssom-
málinu. En það var orðið svo und-
ir lokin að hann gat lítt sinnt
stjómunarstörfum vegna mála-
flækjunnar kringum Carlsson,
sem hann þekkti vel frá því að
hann var ráðunautur í dómsmála-
ráðuneytinu á ámnum 1975—
1982. Þessi kynni af Ebbe Carls-
son urðu honum að falli.
Á blaðamannafundinum þar
sem hann boðaði afsögn sína sagði
hann að hann hefði erft Ebbe
Carlsson-vandamálið þegar hann
tók við embættinu. „Það er eins
og það séu ill álög yfír þessu
rnáli," sagði hann. „Og þeir sem
koma of nærri brenna vængina,“
bætti hann við. Eftir afsögnina
er Áhmansson nú aftur ráðunaut-
ur varðandi lögreglumál í inn-
anríkisráðuneytinu.
Það var gagnrýni sérlegs ríkis-
saksóknara (justitiekanslem),
Hans Starks, sem að lokum gerði
Áhmansson óstætt í sínu emb-
ætti. Í skýrslu sem Stark lagði
fram þann 19. október sl. kemur
fram að Áhmansson gerði ekki
nægilegar ráðstafanir til að fylgj-
ast með aðgerðum Ebbe Carlsson
og sannprófa fullyrðingar hans
og heimildir. Þetta saksóknara-
embætti er í raun undir sjálfri
ríkisstjóminni og það þykir nokk-
uð hæpið hvemig fjallað hefur
verið um þátt ríkislögreglustjór-
ans. Þrisvar sinnum áður hefur
Stark ríkissaksóknari kannað þátt
hinna ýmsu embættismanna og
gefíð skýrslur, en ekki fyrr en í
hinni seinustu gert hann ábyrgan
fyrir því hversu langt Ebbe komst
í lögregluleik sínum. Nú hafa
komið fram raddir um það að
Stark hafi ekki sýnt dómgreind
sem skyldi í úttektum sínum á
rannsókn morðmálsins. Því hefur
jafnvel verið fleygt að hann verði
sjálfur næsta fómarlambið í þeirri
sökudólgaleit sem einkennt hefur
stjómmálin á hærri stöðum und-
anfarin misseri.
Lítínn áhuga á einni flösku
Nýi ríkislögreglustjórinn, Bjöm
Eriksson, var áður yfirmaður toll-
gæslunnar, þeirrar stofnunar sem
kom upp um einkastarfsemi Ebbe
Carlsson. Ólíkt fyrirrennurum
sínum þekkir Eriksson ekki Ebbe
Carlsson, og hefur ekki svo mikið
sem drukkið með honum kaffí,
hvað þá meira. Eriksson er þekkt-
ur fyrir áhuga sinn á því að beina
kröftum tollgæslunnar að því að
fínna eiturlyf, vopn og ólöglegan
tækniútbúnað, fremur en að eltast
við skemmtiferðafólk með einni
flösku af brennivíni of mikið í
farangrinum. Þessi viðleitni hans
hefur m.a. gert það að verkum
að upp hefur komist um ólöglegar
sprengiefna- og vopnasendingar
frá sænskum vopnafyrirtækjum.
Hann hyggst hefja starfsferil sinn
á því að heimsækja hinar ýmsu
deildir lögreglunnar og kynna sér
aðstöðu lögreglumanna og óskir.
Hann leggur áherslu á að sú deild
sem sér um rannsókn morðsins á
Palme fái vinnufrið og segist hann
sjálfur ekki ætla að skipta sér of
mikið af þvl hvemig hún hagar
verki sínu. „Ég er ekki neinn
morðsérfræðingur," segir hann.
Höfundur er dósent ílélags-
træði við Háskólann íLundi og
jafhframt fréttaritari Morgun-
blaðsins.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Hilmar Foss
lögg. skjalaþ. og dómt.
Hafnarstræti 11,
símar 14824 og 621464.
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn, sími 28040.
□ EDDA 598822117 - I.Frl.
□ FJÖLNIR 598811227 =2
□ Helgafell 598822117 VI -2
I.O.O.F. R.b. 1.=13811228 -
K.k.
AdKFUK
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Amt-
mannsstíg 2b. Úr dagbók minni.
Margrét Hróbjartsdóttir kemur á
fundinn. Munið bænastundina
kl. 20.00. Allarkonurvelkomnar.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Þórsmörk - aðventuferð
Sérstök „aðventuferð" til Þórs-
merkur verður helgina 2S.-27.
nóv. Gist i Skagfjörðs-
skála/Langadal, en þar er að-
staða fyrir ferðafólk sú besta
sem gerist i óbyggðum. Stór
setustofa fyrir kvöldvökur, stúk-
að svefnloft, tvö eldhús með
nauðsynlegum áhöidum, mið-
stöðvarhitun, svo að inni er allt-
af hlýtt og notalegt. Fararstjóri
skipuleggur gönguferðir. Kvöld-
vaka og jólaglögg á laugardag.
Ferðalög i islensku skammdegi
eru öðruvísi, missið ekki af þess-
ari ferð. Fararstjóri: Kristján
Sigurðsson.
Brottför kl. 20.00 föstudag.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Fl, Öldugötu 3.
Ferðafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
KVÖLDVAKA-
Ferðafélagsins
Miðvikudaginn 23. nóv. verður
fyrsta kvöldvaka vetrarins i
Sóknarsalnum, Skipholti 50a og
hefst stundvíslega kl. 20.30.
Efni kvöldvökunnar verður: Eftir-
taka af kvikmynd sem Guð-
mundur frá Miðdal tók á árun-
um 1944 - 1954 að mestu leyti
í Tindfjöllum. Myndin er þögul
en Ari Trausti, sonur Guðmund-
ar, skýrir það sem fyrir augu ber
og svarar spurningum gesta.
Hér er um að ræða áhugaveröa
heimildarmynd um fjallaferðir og
einstakt tækifæri að kynnast
ferðamáta á þessum árum.
Myndagetraun að loklnnl dag-
skrá og verðlaun veitt fyrir réttar
lausnir. Allir velkomnir, félagar
og aörir. Aðgangur kr. 150.00.
Veitingar í hléi.
Ferðafélag íslands.
m utivist, G_.
Aðventuferð f Þórsmörk
25.-27. nóv.
Þetta er hln árlega og hefð-
bundna aðventuferð I Þórs-
mörk. Ferð sem auglýsir sig
sjálf. Gist í tveimur skálum Úti-
vistar Básum. Ný viöbygging
með eldhúsi og borðstofu. Frá-
bær gistiaöstaða. Skipulagöar
gönguferölr á daginn.
Aðventukvöld á laugardags-
kvöldinu með dagskrá er skap-
ar hlna einu sönnu aðventu-
stemnlngu f Mörkinnl.
Fararstjórar: Kristán M. Baldurs-
son og Fríða Hjálmarsdóttir. Fá
sætl laus.
Áramótaferðin f Þórsmörk
verður 30. des.-2. Jan. 4 dagar
með fjölbreyttri dagskrá. Göngu-
ferðir. Kvöldvökur. Áramóta-
brenna. Uppl. og farm. á skrifst.
Grófinni 1, sfmar 14606 og
23732.
Gerist Útivistarfélagar og eignist
ársrit 1988. Hagstætt tilboö á
eldri ársritum til nýrra félags-
manna. Sjáumst.
Útivist, ferðafélag.
I.O.G.T.
Stúkan Einingin nr. 14.
Allir eru að puða i pólitík.. Stjórn-
málin i léttum dúr i Hallarseli I
kvöld kl. 20.30. Opinn fundur.
Allir velkomnir.
ÆT
Fræðslufundur
( kvöld þriðjudagskvöld 22. nóv-
ember 1988 mun Náttúrulækn-
ingafélag Reykjavíkur halda al-
mennan fræðslufund í Hótel
Lind við Rauöarárstig.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Erindi fundarins: örn Jónsson
náttúruráðgjafi: Tengsl matar-
æðis og heilsu.
Gospel tónleikar
veröa haldnir á Hótel fslandi á
morgun miðvikudag 23. nóv. kl.
21.00. Fjöldi listamanna kemur
fram og flytur m.a. lög af nýút-
kominni safnplötu: Hjálparhönd.
Miðasala við innganginn.
Miðvaverö kr. 300.
ABC hjálparstarf.
ÚtÍVÍSt, Crofinn, 1
Miðvikudagur 23. nóv.
kl. 20.00
Tunglskinsganga.
Gengið um Lækjarbotna og Set-
bergshlíð við Hafnarfjörö. Að við
kertaljós í Kershelli. Létt ganga.
Brottför frá BSl, bensínsölu (i
Hafnarfirði v/Sjóminjasafniö).
Verð 400,- kr. frítt f. börn m.
fullorðnum.
Munið aðventuferðina f Þórs-
mörk 25. - 27. nóv. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.