Morgunblaðið - 22.11.1988, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
49
Bréf til ríkissaksóknara:
Kvikmyndin um Krist
er alvariegt guðlast
I TILEFNI af því að Hallvarður
Einvarðsson ríkissaksóknari sá
ekki ástæðu til að stöðva sýningu
myndarinnar „Síðasta freisting
Krists“, og að hún nú hefiir ver-
ið tekin til sýninga í hérlendu
kvikmyndahúsi, förum við undir-
ritaðir fram á að bréf okkar til
ríkissaksóknara verði birt í fjöl-
miðlum.
Háttvirtur ríkissaksóknari.
Undirritaðir fara þess á leit við
yður, háttvirtur ríkissaksóknari, að
þér hlutist til um að stöðva sýningu
og útbreiðslu kvikmyndarinnar
„Síðasta freisting Krists", sem
er væntanleg til sýninga í Laugar-
ásbíói.
Við teljum að myndin feli í sér
alvarlegt guðlast, auk þess særir
hún trúarskoðanir okkar. Myndin
er mikil fölsun og afskræming á
lífi og persónu Jesú Krists, eins og
hann er kynntur í Nýja testament-
inu.
Þessu til áréttingar viljum við
tilgreina eftirtalin dæmi úr mynd-
inni:
1. Jesús kemur að þar sem
nokkrir menn bíða þess að drýgja
hór með Maríu Magdalenu. Hann
horfir á Maríu Magdalenu í sam-
förum. I myndinni er látið sem hann
leggi blessun sína yfir slíkt athæfi.
I Fjallræðunni segir Jesús: „Hver
sem horfir á konu í girndarhug,
hefur þegar drýgt hór með henni í
hjarta sínu.“ (Matteus 5:28.) Hór-
dómur og girndarhugur er synd,
og eru þess engin dæmi að Jesús
Kristur hafi lagt blessun sína yfir
slíkt.
2. í myndinni er Jesús látinn tala
við óþekktan mann í eyðimörk.
Útdráttur úr samtalinu fer hér á
eftir í lauslegri þýðingu:
Jesús segir: „Eger lygari, hræsn-
ari, ég óttast allt... Þegar ég lít
konu, gimist ég hana, en ég tek
hana ekki — guðs vegna. Það gerir
mig stoltan og stoltið brýtur
Magdalenu niður. Ég stel ekki, ég
slæst ekki, ég drep ekki, ekki vegna
þess að ég vilji það ekki, heldur
vegna þess að ég er hræddur...
Viltu vita hverjir foreldrar mínir
eru? Viltu vita hver guð minn er?
Þau eru ótti... Lúsifer er í mér.
Hann segir mér að ég sé ekki mað-
ur, heldur Mannssonurinn, meira
en það, sonur guðs, miklu heldur,
Guð.“
Samkvæmt Nýja testamentinu
segir Jesús berlega að hann sé son-
ur Guðs, Mannssonurinn. Hann var
ekki ráðvilltur né í vafa um sjálfs-
ímynd sína, auk þess er það hreint
guðlast að hann hafí verið undir
áhrifum Lúsifers (Satans), sbr. orð
Jesú: „Vík brott, Satan! Ritað er:
Drottinn Guð þinn skalt þú tilbiðja
og þjóna honum einum." (Matteus
4:10.),
Fyrirlestur
á vegum við-
skipta- og
hagfræði-
deildar HÍ
FRANZ Blankart prófessor,
ráðuneytisstjóri í svissneska ut-
anríkisráðuneytinu, flytur fyrir-
lestur í boði viðskipta- og hag-
fræðideildar miðvikudaginn 23.
nóvember nk. kl. 17.15 í stofu
101 í Odda.
Fyrirlesturinn fjallar um efnið
„Milli einangrunar og aðildar: Hug-
leiðingar um Evrópustefnu Sviss-
lendinga".
3. í myndinni er Jesús látinn
verða fyrir freistingu þegar hann
hangir á krossinum. Freistingin er
m.a. í því fólgin að Jesús hafi sam-
farir við Maríu Magdalenu og eigi
barn með henni. Jafnframt er gefið
í skyn að hann hafi átt börn með
systrunum Maríu og Mörtu, að
Maríu Magdalenu látinni.
3. Í myndinni er Jesús látinn
verða fyrir freistingu þegar hann
hangir á krossinum. Freistingin er
m.a. í því fólgin að Jesús hafi sam-
farir við Maríu Magdlenu og eigi
barn með henni. Jafnframt er gefið
í skyn að hann hafi átt börn með
systrunum Maríu og Mörtu, að
Maríu Magdalenu látinni.
í ljósi þess, sem vitnað er til úr
Fjallræðunni í 1. lið þessarar grein-
argerðar, þá eru syndsamlegar hug-
renningar jafn alvarlegar og beinn
verknaður.
Jesú var freistað, en án syndar,
sbr. Hebreabréfið 4:15.
4. í hugrenningum Jesú á kross-
inum er hann látinn hitta Pál post-
ula. Páll er að prédika það að Jesús
frá Nasaret hafi verið sonur Guðs,
sem hafi verið krossfestur fyrir
syndir mannanna og risið upp á
þriðja degi. í samtali milli Jesú og
Páls er gert lítið úr og hæðst að
prédikun Páls, höfuðpostula kristn-
innar. Með þessu er dregið dár að
höfuðatriðum kristindómsins og trú
Páls postula, sem og annarra krist-
inna manna, gerð hlægileg.
5. Þrátt fyrir fyrirvara höfundar
myndarinnar, um að hún sé ekki
byggð á guðspjöllunum, er augljóst
að skáldsagan, sem myndin er gerð
eftir, er bein afskræming á frásögn
guðspjallanna.
Á grundvelli laga um guðlast
forum við fram á það við yður,
í ólœstSi kl. 19.30
J®
óttur
Hœsti\
dinningut
adiferdmœti loo.ooo
TOLVUSKOLI GJJ
NÁMSKEIÐ
TIL ÁRAMÓTA
Kl. 08.30-12.30
Kl. 13.00 -17.00
Kl. 09.00- 16.00
háttvirti ríkissaksóknari, að þér
komið í veg fyrir sýningu myndar-
innar „The Last Temptation of
Christ“, sem og alla dreifingu
hennar til kvikmyndahúsa og mynd-
bandaleiga hérlendis.
Hér er um að ræða kvikmynd,
sem á allan hátt særir trú okkar
og það sem okkur er heilagt. Öllu
trúaruppeldi stafar hætta af þeirri
afbökun, rangfærslu og háði, sem
kristin trú verður fyrir í þessari
kvikmynd.
Virðingarfyllst,
Sr. Magnús Björnsson, starfsmað-
ur Kristilegs fél. heilbrigðisstétta,
Garðar Ragnarsson, starfsmaður
Fíladelfiusaúiaðarins, Reykjavík,
kapteinn Harold J. Reinholdtsen,
Hjálpræðishernum, Reykjavík,
Ragnhildur R. Engsbraaten, starfs-
maður Ungs fólks með hlutverk,
Hafiiði Kristinsson, aðstoðarfor-
stöðumaður Fíladelfíu, Reykjavík,
sr. Ágúst K. Eyjólfsson, sóknar-
prestur Maríukirkjunni, Breiðholti,
sr. Stefán M. Boriaug, aðstoðar-
prestur Mariukirkjunni, Breiðholti,
kapteinn Daníel Óskarsson; yfir-
maður Hjálpræðishersins á Islandi
og í Færeyjum, Sam Daníel Glad,
aðstoðarforstöðumaður Fíladelfíu,
Reykjavík, Gunnar J. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri KFUM og K í
Reykjavik, Björn Ingi Stefánsson,
forstöðumaður Vegarins,
Reykjavik, Gunnar Þorsteinsson,
forstöðumaður Krossins, Kópa-
vogi, Samúel Ingimarsson, leiðtogi
í Veginum, Reylqavik, Snorri
Oskarsson, forstöðumaður Betel-
safnaðarins, Vestmannaeyjum,
Guðni Einarsson, stjórnarmaður
Fíladelfiu, Reykjavík, Skúli Svav-
arsson, formaður Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga, Frið-
rik Ó. Schram, formaður Ungs
fólks með hlutverk, Reykjavík, sr.
Jakob Rolland, kanslari, Landa-
koti.
NÁMSKEIÐ DAGS
WORD 4.0 21.-24. NÓV. FULLBÓKAÐ
MULTIPLAN 23.-25. NÓV. FULLBÓKAÐ
MULTIPLAN AUKANÁMSKEIÐ 28.-30. NÓV. ÖRFÁ SÆTI
WINDOWS 2.1 25. NÓV.
MULTIPLAN FRH. 28.-30. NÓV. ÖRFÁ SÆTI
ÓPUS FJÁRHAGSBÓKHALD 5. DES.
ÓPUS VIÐSK. BÓKHALD 6. DES.
ÓPUS BIRGÐIR/SALA 7. DES.
WORDPERFECTFRH. 5.-7. DES.
LOTUS FRH. 5.-7. DES.
WORD 4.0 FRH. 8.-9. DES. ÖRFÁSÆTI
WORKS1.0 8.-9. DES.
WORDPERFECT 12.-15. DES.
FRAMEWORK 12.-16. DES.
EXCELFRH. 12.-15. DES. ÖRFÁ SÆTI
dBASE III PLÚS FRH. 19.-22. DES.
GRUNNNÁMSKEIÐ 19. DES.
STÝRIKERFI 20.-21. DES.
Allar nánari upplýsingar eru
veittar í slma 641222.
Athugið möguleika ykkar á að sækja
um styrk fyrir námskostnaði úr
starfsmenntunarsjóði, ef þið
^ M w k<í ... . . ...
SKRi FSTi DFUVÉLAR H.F.
-F — -r y § Hverfisgótu 33. sifpi: 62-37-37
GÍSLI J. JOHNSEN
n
Nýbýlavegi 16, Kópavogi Sími 641222
' tMa—aaiie—BWW—B—MM————MMÉ—B——M—MM
I ■Iflfrife
| Gódan daginn!
UPPHAF GOÐRAR MALTIÐAR
MOULINEX
MASTERCHEF 65
HRÆRIVÉL, BLANDARI
OG HAKKAVÉL
ALLT ( EINU TÆKI!
f-
(Fréttatilkynning)