Morgunblaðið - 22.11.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
„ Pegar þá ert búwn ah skri-Fa. þe±t(Xj
þci gaetirðu kajvnski fundiÁ ul hver
þraust ínn í / búóína m'ma i sióusiu viku."
POLLUX
Ekki skaftpottinn minn,
bjálfi . . .
Með
morgunkaffinu
Reyk- eða reiklaust?
HÖGISTI HREKKVÍSI
„ VILTU LÆKKA l’ þETSSAR/
KATTAðAATAie AUCa LVSINGU ?!
Til Velvakanda.
Umræður þingmanna og ráð-
herra frá Alþingi nýlega í ríkissjón-
varpinu vöktu athygli hlustenda enn
á ný á óskipulögðum vinnubrögðum
og ósæmilegri framkomu ijölda
þingmanna. Gera þessir þingmenn
sér ekki grein fyrir hvaða ábyrgð
og skyldum þeir gegna? Langflestar
ræður þingmanna byggjast á órök-
studdum slagorðum um pólitíska
andstæðinga. Þeir en-reyna sífelit
að klóra í bakkann með því að upp-
hefja sjálfa sig og réttlæta eigin
gjörðir og flokksbræðra sinna. Þeir
leita yfirleitt fanga í fortíðinni,
vantar alla framtíðarsýn. Af hveiju
geta þingmenn ekki verið málefna-
legir og viðurkennt mistök sín þeg-
ar mál hafa þannig þróast? Hvetja
er verið að blekkja? Eru hendur
þeirra svo bundnar og hugsanir
þeirra svo pólitískt fjötraðar að
sjálfstæðar og heiðarlegar skoðanir
fái ekki notið sín? Það er sannar-
lega illa komið ef þingmenn geta
ekki fylgt fram sannfæringu sinni
vegna ofríkis flokksvaldsins og sér-
hagsmunahópa. Allar þessar hugs-
anir sóttu fast á mann þegar hlýtt
var á þessar umræður og svo virð-
ist sem þar sé að nokkru fengin
skýring á því pólitíska og efnahags-
lega öngþveiti sem hér ríkir.
Að sjálfsögðu bera stærstu
stjórnmálaflokkarnir, Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokkurinn, höfuð-
ábyrgð á þeim efnahagsvanda sem
við búum við enda setið allra flokka
lengst í ríkisstjórn sl. 20 ár, en er
þjóðin sammála þeirri niðurstöðu?
Svo virðist ekki vera því að skoð-
anakannanir sýna að þessir flokkar
liafa nú fylgi um 54% kjósenda.
Hvaða ályktanir má draga af þess-
um niðurstöðum? Geta kjósendur
þrátt fyrir allt sætt sig við 130
milljarða erlendar skuldir, árlegan
viðskiptahalla, flest útflutningsfyr-
irtæki á barmi gjaldþrots, 22% verð-
bólgu á ársgrundvelli, minnkandi
kaupmátt og tugi þúsunda íbúða-
eigenda á vonarveli vegna verð-
trygginga lána o.fl. Hvernig er
hægt að skilgreina þessa afstöðu
kjósenda? Eru þeir illa upplýstir um
efnahags- og þjóðmál almennt?
Tæpast verður því trúað. Skoðana-
kannanir hafa sýnt að um 50—60%
landsmanna horfa reglulega á sjón-
varpsfréttir og fleiri kaupa hérlend-
is dagblöð en tíðkast hjá nágranna-
þjóðum okkar. Ekkert einhlítt svar
er hægt að gefa í þessum efnum
en flestir álykta þó að kjósendur
treysti síður sundurleitum smá-
flokkum fyrir stjórn landsins og
telji því að af tveimur slæmum kost-
um sé vænlegra að kjósa Framsókn-
ar- eða Sjálfstæðisflokk. Furðulegt
má teljast að þrátt fyrir margra
áratuga áróður Sjálfstæðisflokksins
um sundrung og glundroða vinstri
smáflokka hér á landi hafa vinstri
menn ekki borið skynsemi og gæfu
til að sameinast í einn öflugan flokk,
sem er eina raunhæfa leiðin til að
skapa lýðræðisleg og jákvæð valda-
hlutföll í íslenskum stjórnmálúm.
Ef launþegar og félagshyggjufólk
ætla í fullri alvöru að hafa afger-
andi áhrif í stjórnmálum í náinni
framtíð, þá hættið þessum vonlausa
einleik og sameinist undir merki
jafnaðarstefnunnar. Þar sem jafn-
rétti og bræðralag ríkir geta allir
búið í sátt og samlyndi.
Krislján Pétursson
Víkverji skrifar
*
Aforsíðu Morgunblaðsins
síðastliðinn föstudag mátti sjá,
að John Sununu, ríkisstjóri, hefði
verið skipaður skrifstofústjóri
bandaríska forsetaembættisins.
Með feitletraða orðinu er vísað til
þess embættis í starfsliði forsetans,
sem hingað til hefur verið íslenskað
með orðinu starfsmannastjóri. Á
ensku er talað um chief of staff.
Nú á eftir að koma í Ijós, hvort
unnt er að tryggja samræmda notk-
un á orðinu skrifstofustjóri um
þennan embættismann, sem stend-
ur næst forseta Bandaríkjanna og
ræður miklu um framkvæmd stefnu
hans. í raun er furðulegt að orðið
starfsmannastjóri skuli hafa verið
notað um þetta embætti á íslensku.
Ástæðan er sú, að það liggur ekki
beint við, hvernig snúa á hinu enska
starfsheiti á mál okkar. Það er úr
hermáli og er þá íslenskað með
orðinu herráðsforingi eða formaður
eða forseti herráðs, ef svo ber undir.
xxx
Raunar er eðli starfs skrifstofu-
stjóra forsetaembættisins
þannig, að mörgum kann að þykja
alltof þröngt að nota þetta starfs-
heiti um það, nær væri að tala um
framkvæmdastjóra eða jafnvel for-
stjóra. Þá var orðið ráðsmaður
nefnt þegar málið var rætt meðal
blaðamanna Morgunblaðsins.
Raunar hefur eðli embættisins verið
lýst þannig, að helst mætti bera
það saman við stöðu forsætisráð-
herra, en eins og kunnugt er það
embætti ekki til í Bandaríkjunum.
Forsetinn situr í forsæti í ríkisstjórn
sinni.
Hvort skrifstofustjórinn á eftir
að ryðja starfsmannastjóranum á
brott, þegar rætt er um þetta háa
bandaríska embætti, á eftir að
koma í ljós.
XXX
Vfkveiji hefur áður vikið að því,
hvernig unnið er úr forystu-
greinum dagblaðanna í hljóðvarpi
ríkisins. Enn sér hann ástæðu til
aðfinnslu. Á föstudag birtist for-
ystugrein hér í Morgunblaðinu, sem
hét Gjaldþrot forsætisráðherra.
Hún hófst á þessum orðum:
„Fyrir skömmu lét Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
stór orð falla um það, að fyrir dyr-
um væri stórfellt atvinnuleysi. /
fyrradag komst hann síðan þannig
að orði, að við hefðum aidrei staðið
nær þjóðargjaldþroti. Lét ráðherr-
ann einnig í það skína, að þessi
staðreynd hefði fyrst blasað við
honum fyrir fáeinum dögum, hann
hefði ef til vill ekki fylgst nægilega
vel með úr fílabeinstumi utanríkis-
ráðuneytisins, eins og hann orðaði
það.“
I endursögn starfsmanna hljóð-
varps ríkisins var þeirri setningu,
sem er skáletmð hér að ofan, ein-
faldlega sleppt. Þeir sem lásu fyrir-
sögn leiðarans og höfðu fylgst með
því sem þá var efst á baugi gátu
sagt sér að hann væri skrifaður
vegna furðulegrar yfirlýsingar
sjálfs forsætisráðherra um þjóðar-
gjaldþrot. Þó var hoppað yfir þann
punkt í hljóðvarpinu. Þessi úrfelling
gefur þar að auki ranga mynd af
orðum forsætisráðherra, því að
hann sagði ekki neitt um setu sína
í fílabeinsturninum, þegar hann
ræddi um hið stórfellda atvinnu-
leysi.
Víkveiji ætlar ekki að hafa uppi
neinar getsakir í þessu máli. Hann
vekur aðeins athygli á, að vinnu- '
brögð af þessu tagi gefa auðvitað
ekki rétta mynd af því, sem stóð í
forystugrein Morgunblaðsins þenn-
an dag.
-i