Morgunblaðið - 22.11.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
55
Lausagangur hrossa:
ÓRÉTTLÁT LÖGGJÖF
Tíl Velvakanda.
Þann 4. nóvember sl. lagði undir-
rituð af stað áleiðis til Saurbæjar-
hrepps í Dalasýslu, þar sem ætlun-
in var að halda sundnámskeið fyrir
böm í Ungmennafélagi Dala-
manna. Ekki er það í frásögur
færandi nema það að þegar ég
átti u.þ.b. 30 km eftir í Búðardal
varð ég fyrir óhappi sem ég er
mjög ósátt við og varð þess vald-
andi að ég skrifa nú þetta bréf.
Ég var eins og áður sagði rétt
ókomin til Búðardals, fór svokallað-
an Heiðdal þar sem Brattabrekka
var illfær. Tekið skal fram að í
Heiðdalnum var engin hálka á þess-
um tíma. Þar sem ég var að keyra
í myrkri, kl. 10.00 að kvöldi þess
4. nóvember, komu á móti mér 5
hestar, tveir hægra megin og þrír
vinstra megin við veginn. Þar sem
ég er mjög vön að keyra úti á landi
hægði ég vel á mér til að vera við
öllu búin. En það skipti engum
togum að þegar ég var rétt komin
að hestunum, þá gekk einn í veg
fyrir bílinn og það var engin leið
fyrir mig að forðast árekstur nema
að ég náði að sveigja aðeins frá
hestinum þannig að ég lenti aftan
á hægri lend hans. Ég náði að
keyra á nsæta sveitabæ og kom í
ljós að bóndinn þar átti hestana.
Heimafólkið fór út til að athuga
með hestinn og kom þá í ljós að
hann var ekkert meiddur, aðeins
skrámaður og marinn, og létti mér
vel við það, en aftur var það verra
með bíiinn. Það kom í ljós að hann
var mikið skemmdur og algjörlega
óökufær. Ég var með dóttur mína
3ja ára gamla með mér og var hún
auðvitað mjög skeikuð af því sem
komið hafði fyrir. Við vorum svo
sóttar af fólkinu sem við ætluðum
að gista hjá, en það var um einnar
og hálfrar klukkustundar akstur
hvora leið. A sunnudeginum kom
síðan faðir telpunnar minnar og
sótti okkur. Honum tókst að lag-
færa bílinn aðeins þannig að hægt
var að koma honum suður aftur,
en ljóst er að tjónið er talsvert,
a.m.k. 150.000 krónur.
Þegar ég kom til Reykjavíkur
leitaði ég réttar míns og talaði þá
fyrst við lögregluna í Stykkis-
bólmi. Þeir tjáðu mér að iausa-
ganga hrossa væri bönnuð á þessu
svæði og þeir myndu sekta bónd-
ann fyrir að hrossin hefðu gengið
laus, sögðu ennfremur að svona
„slys“ kæmu mjög oft fyrir á þess-
um stað, en því miður þá yrði ég
að bera tjónið ein. Mesta mildi var
þó að ekki þurfti að aflífa hrossið
því þá hefði tjón mitt orðið mikiu
meira 'en raun er á. Ég hafði einn-
ig samband við tryggingafélag
mitt, Tryggingamiðstöðina, og þeir
staðfestu það að því miður yrði ég
að bera tjón mitt ein þar sem lög-
gjöfin væri þessi, en bentu mér
einnig á að tala við Félag ísienskra
bifreiðaeigenda sem ég og gerði,
en þar var sömu sögu að heyra.
Núna vildi ég gjaman bera fram
þá spumingu hvemig hægt er að
réttlæta svona löggjöf. Lausa-
ganga hrossa er bönnuð á þessu
svæði, ég verð að bera allt tjónið
ein bara af því að einhver bóndi
hugsaði ekki nógu vel um að hross-
in hans væru inni í girðingu! Mesta
mildi var að ekki fór verr því ef
ég hefði ekki náð að sveigja nógu
vel til hliðar hálfpartinn út af vegin-
um, þá hefði ég lent á hestinum
miðjum og þá væri hvorki ég né
dóttir mín til frásagnar.
K.
Slæm um-
gengni
Til Velvakanda.
„Hrein borg“ hefir svo oft heyrst
á undanförnum ámm og árangurinn
er ótrúlegur. Reykjavík, sem fyrir
30 ámm var langt frá því að vera
hreinleg, er nú með snyrtilegustu
borgum, og á Davíð heiður skilið
fyrir.
Svo að segja daglega fara ösku-
og mslabílar upp Artúnsbrekku og
dreifa msli um allt umhverfið. Það
er dæmalaust hirðuleysi að ganga
ekki svo frá þessum flutningi að
hann fjúki ekki úr bílunum. Eitt
sinn fyrir um ári dreifðist plastein-
angrun, sem var í smábútum, svo
að segja um allan Vesturlandsveg
að Höfðabakka. Oft má sjá spýtnar-
usl, bréf og hefilspæni um alla Ár-
túnsbrekku og víðar.
Ég skora á löggæsluna að fylgj-
ast vel með þessum sóðum, sem
virðast ekki geta lært af, reynsl-
unni. Einnig ættu vegfarendur að
skrifa niður númer þeirra bíla sem
dreifa msli og láta löggæslumenn
vita. Það þarf að taka í lurginn á
sóðunum.
Gamall Reykvíkingur
KLÍKU SKAPUR?
Ágæti Velvakandi.
Nú er svo komið að undirrituð
færi hvergi vinnu hér í Hveragerði
og er langþreytt á því. Ég sótti um
vinnu hjá Pósti og síma hér á staðn-
um. Fékk þetta svar: Búið að ráða
í starfið.
En það er ekki öli sagan. Sá sem
fékk starfið vinnur á öðmm stað
einnig og það fyrripart dags. Sá
aðili vinnur nú á tveimur vinnustöð-
um.
Undirrituð er búin að vera 9 ár
í Hveragerði. Hvað sem reynt hefur
verið hefur undirritaðri ekki tekist
að fá vinnu. Og spurningin er. Er
rétt að farið að láta eina mann-
eskju komast upp með að hafa tvo
vinnustaði? Það er grátlegt að fá
ekki vinnu, þó ekki væri nema fjóra
tíma á dag. Svona er það einnig á
öðmm stöðum, klíkuskapurinn er í
fyrirrúmi. Búið að ráða, er svarið
jafnvel þó svo sé ekki.
Finnst símstöðvarstjóranum að
þetta sé réttilega gert eða hinum
vinnuveitendunum hér í Hvera-
gerði? Að sniðganga ritara greinar-
innar og neita um vinnu fyrir ein-
hvern annan aðila sem hefur aðra
vinnu fyrir? Kannski finnst þeim
þetta allt í lagi, það er aldrei að
vita. Það er greinilegt að það er
ekki sama hvor er, séra Jón eða Jón
verkamaður.
Ágústa Baldvinsdóttir
PAPPIRSSTATIV
MARGAR GERÐIR
KOMNAR AFTUR
Óviðeigandi skrif
Til Velvakanda.
Laugardaginn 12. þ.m. birti
Morgunblaðið grein eftir Jón Á.
Gissurarson fyrrv. skólastjóra þar
sem fjallað er um Albert Guð-
mundsson. í greininni hlakkar í
honum ef Albert yrði ákærður í
sambandi við Hafskipsmálið. Fátt
bendir til að „aðvömunarorð“
greinarhöfundar séu af djúpri
umhyggju fyrir því að Frakklands-
forseti verið ekki móðgaður með
þsú að Albert gerist sendiherra
Islans í Frakklandi og því síður
getur hún verið í þágu Alberts
sjáifs eins og Jón lætur að liggja.
Það hljóta að hafa oroið greinar-
höfundi mikil vonbrigð að settur
saksóknari í umrædd- máli skyldi
ekki hafa fundið tiiefni til ákæru
á hendur Alberti Guðmundssyni.
Menn sem afhjúpa innræti sitt og
óskhyggju með þeim hætti sem
þarna birtist hljóta að vera í meira
en lítilli sálarkreppu. Svo mikla
umíjöllun er hið svokallaða Haf-
skipsmál búið að fá í réttarkerfinu
að þeir sem gleðjast yfír óham-
ingju annarra í því máli ættu að
hafa biðlund og telja púkana í
sjálfum sér þar til því lýkur, því
vandséð er fyrir endann á því.
Guðmundur Jóhannsson
GEíSiB
H
Viðtalstímar
alþingismanna
Sjálfstæðisflokksins
Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins efna til við-
talstíma íValhöll, Háaleitisbraut 1, í nóvember.
Allir eru velkomnir. Jafnframt er unnt að ná
sambandi við alþingismennina í síma 91-82900.
Viðtalstímar í dag, þriðjudag, eru sem hér segir.
Kl. 10.00-12.00
Þorsteinn Pálsson, þingmaðurSunnlendinga.
Ragnhildur Helgadóttir, þingmaður Reykvíkinga
Kl. 17.00-19.00
Halldór Blöndal, þingmaður Norðurlands eystra.
Eggert Haukdal, þingmaður Sunnlendinga.
optibelt
viftureimar,
tímareimar