Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 56

Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 56
,56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 Flokksþing Alþýðuflokksins: Utanríkisstefiia Alþýðuflokksins: SUJ á öndverðum meiði við flokks- formanninn Prá þingi Alþýðuflokksins á Hótel íslandi. Morgunblaðið/Þorkell Jarðvegur fyrir stóran jafiiaðarmannaflokk: Veit ekki hvenær hef- ur verið betur plægt - sagði Árni Gunnarsson ÞAÐ kom skýrt fram á flokksþingi Alþýðuflokksins, sem haldið var á Hótel íslandi um helgina, að flokksmenn eru ekki allir ánægðir með stefnu flokksforystunnar. Menn gerðu að umtalsefni að flokkur- inn hefði týnt uppruna sínum og væri orðinn með kerfis- og hag- fræðibrag, í stað þess að vera baráttuflokkur launþega. í stjórn- málaályktun þingsins og ræðum forystumanna kom fram að flokka- kerfið væri úrelt orðið og þörf fyrir nýtt forystuafl í stað Sjálfstæð- isflokksins. Hugmyndin um stóran jafnaðarmannaflokk og samein- ingu félagshyggjuflokka átti greinilega fylgi að fagna. Árni Gunnars- son alþingismaður orðaði það svo að ef nú væri ekki jarðvegur fyr- ir stóran jafnaðarmannaflokk, vissi hann ekki hvenær hefði verið betur plægt. Jón Baldvin gagn- rýndur fyrir af- stöðu á þingi SÞ ÁGREININGUR er milli hóps ungra jafriaðarmanna og Jóns Baldvins Hannibalssonar, for- manns Alþýðuflokksins og ut- anríkisráðherra. Á þingi flokks- ins um helgina var lögð fram tillaga í nafiii Sambands ungra jafnaðarmanna, þar sem meðal annars var lagt til að bandarískt herlið færi úr landi í áföngum, dregið yrði úr hernaðarumsvif- um hér á landi og þingið lýsti hernaðarbandalög óþörf. Þá urðu ýmsir þingfúlltrúar til þess að gagnrýna stefiiu utanríkis- ráðherra varðandi atkvæða- greiðslur á þingi Sameinuðu þjóðanna. Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfírði, kallaði afstöðu utanríkisráðherra til til- lagna á þingi SÞ skyndiákvarðan- ir, og sagðist vilja líta á þær sem slys, sem ekki myndi henda aftur. Ásthildur Ólafsdóttir sagði að fjöl- margir þingfulltrúar væru „hundóánægðir“ með afstöðu flokksformannsins til tillagnanna, en vildu ekki gagnrýna hann upp- hátt vegna misskilinnar tillitssemi. Elín Harðardóttir, úr röðum ungra jafnaðarmanna, kvað fast að orði í gagnrýni sinni á utanríkis- ráðherra. Hún sagði að það væri slæmt að utanríkisstefna Steingríms Hermannssonar hefði að mörgu leyti staðið nær ungum jafnaðarmönnum en stefna flokks- formannsins sjálfs, er hann hefði komið í utanríkisráðuneytið. „Frá sjónarhóli SUJ hefði hann betur setið áfram í íj'ármálaráðuneyt- inu,“ sagði Elín, og kallaði Jón Baldvin „kaþólskari en páfann" þvað varðaði afstöðuna til kjarn- orkuvopnalauss svæðis á Norður- löndum. Jón Baldvin svaraði fyrir sig og sagði að það hefði verið fastur lið- ur á flokksþingum að SUJ hefði flutt tillögur af þessu taginu, en það bæri vott um einkennilega íhaldssemi að flytja nú tillögu, sem varla hefði komið fram á Alþýðu- bandalagssamkundu lengur. Til- lagan gæti tæplega verið flutt í alvöru. Hann kallaði ákúrur Elínar sleggjudóma í Þjóðviljastíl. Ut- „Ailir stjórnmálaflokkarnir, nema ef til vill Kvennalistinn, eiga í dag við verulega fjárhagserfíðleika að etja vegna kosninganna 1987,“ sagði Geir. Hann sagði að í fyrsta skipti hefði kosningabaráttan farið anríkisráðherra rakti síðan ástæð- umar fyrir afstöðu sinni til tillagna á þingi SÞ um frystingu kjama- vopna og fordæmingu á framferði Israela á hernumdu svæðunum. Ekki virtust allir ungir jafnaðar- menn á eitt sáttir hvað varðaði til- löguflutning SUJ. Öm Karlsson, stjómarmaður í Félagi ungra jafn- aðarmanna í Reykjavík, kvaddi sér hljóðs og Iýsti fíillum stuðningi félagsins við utanríkisstefnu Al- þýðuflokksins og sagði unga jafn- aðarmenn í Reykjavík bera fullt traust til stefnu flokksformannsins í utanríkismálum. Svo fóru leikar að utanríkis- málanefnd þingsins undir forystu Kjartans Jóhanssonar lagði til að tillögu SUJ yrði vísað frá. í hennar stað lagði nefndin fram almennari tillögur, þar sem lagt er til að verktakastarfsemi á Keflavíkur- flugvelli verði endurskoðuð og minnt á að nauðsynlegt sé að fylgj- ast vel með framkvæmd vamar- samningsins, þannig að íslensk lög séu virt í samskiptum vamarliðs og íslenskra aðila. Þá lagði nefnd- in fram tillögu að ályktun um af- vopnunarmál, þar sem árangri í afvopnunarmálum er fagnað og lagt til að næstu skrefum afvopn- unarviðræðna verði hraðað. Nefndin lagði til að vísað yrði frá tillögu frá þeim Hauki Helga- syni, Herði Zóphaníassyni og Guð- mundi Áma Stefánssyni, um að þingið fordæmdi hrottalega fram- komu ísraelskra hermanna við al- menning á hemumdu svæðunum og styddi sjálfsákvörðunarrétt Pal- estínumanna. í staðinn lagði nefndin fram tillögu, að ályktun, þar sem Alþýðuflokkurinn for- dæmir ofbeldi, kúgun og mannrétt- indabrot hvar sem þau birtast. í tillögunni eru voðaverk beggja aðila í deilu ísraelsmanna og Pal- estínumanna fordæmd og lýst yfir því að þingið telji eðlilegt að bæði sjálfsákvörðunarréttur Palestínu- manna og tilveruréttur Ísraelsríkis verði virtur. Bjarni P. Magnússon, borgar- fulltrúi, hafði lagt fram tillöjgu um að þingið styddi inngöngu Islands í EB. Bjarni dró tillöguna til baka eftir að utanríkismálanefndin hafði lagt til að henni yrði vísað frá. í hennar stað var samþykkt tillaga um áframhaldandi stefnumótun gagnvart EB. að verulegu leyti fram með auglýs- ingum í dagblöðum, sjónvarpi og útvarpi. Er nær hefði dregið kjör- degi og skoðanakannanir sýndu fallandi fylgi, hefði baráttan flust yfír í sjónvarp með þeim afleiðing- Björgvin Guðmundsson, fyrrum borgarfulltrúi, gagnrýndi stefnu flokksforystunnar og þingliðsins í langri ræðu og neitaði staðfastlega að yfirgefa ræðustólinn, þótt fund- arstjóri væri farinn að beija ótæpi- lega í húsbúnað. Björgvin leit yfir farinn veg og rifjaði upp markmið Alþýðuflokksins er hann settist í ríkisstjóm á síðasta ári. „Það hefur sorglega lítið miðað í því að koma stefnumálum Alþýðuflokksins í framkvæmd, sagði Björgvin. Hann taldi upp baráttumálin; einn lífeyr- issjóð fyrir alla landsmenn, afnám tekjuskatts af almennum launatekj- um, skilvirkara húsnæðislánakerfi, kjör hinna lægst launuðu og íjár- magnsflutninga frá hinum efna- meiri til hinna efnaminni. Taldi Björgvin lítið hafa miðað í þessum málum. Megintilgangurinn gleymdur „Mér finnst Alþýðuflokkurinn stundum gleyma því hvert eru hans meginhlutverk, til hvers hann var í raun stofnaður,“ sagði hann. „Að- alhlutverk Alþýðuflokksins er að um að kosningabarátta, sem átti að kosta nokkrar milljónir, hefði kostað á annan tug milljóna. Geir sagði að það væri íhugunar- efni hvort allur fjárausturinn hefði svarað kostnaði, hvort allar milljón- irnar skiluðu sér í fleiri þingmönn- um. „Hvernig stendur á því að fylgi Kvennalistans vex, þótt þær hafi lítið sem ekkert auglýst í síðustu beijast fyrir bættum kjörum launa- fólks... Alþýðuflokkurinn er og á að vera verkalýðs- og íaunþega- flokkur." Björgvin ræddi sérstaklega um skerðingu samningsréttar, sem ráð- herrar Alþýðuflokksins stóðu að. „Það hljómar ótrúlega að Alþýðu- flokkurinn skuli taka þátt í slíku,“ sagði Björgvin. „Rök ráðherra Al- þýðuflokksins eru gömlu íhaldsrök- in, sömu rökin og íhald og fram- sókn hafa notað. Hvað ætlum við Alþýðuflokksmenn að segja næst þegar Sjálfstæðisflokkurinn ræðst á kjör verkafólks og afnemur samn- ingsréttinn tímabundið? Flokkakerfið stofiiar lýðræði i hættu Árni Gunnarsson sagði núverandi flokkakerfi orðið lýðræðir.u hættu- legt, stofnaði því beinlínis í voða vegna þess að flokkarnir væru of margir og almenningur missti trúna á þeim; segði að það breytti engu hvaða flokkur væri kosinn. Hann talaði um hinn gamla draum jafnað- armanna um stóran og öflugan jafnaðarmannaflokk og að aðstæð- kosningabaráttu og hafi ekkert málgagn?" Geir sagðist telja að um tvo kosti yrði að velja, þegar næsta kosninga- barátta skylli yfir. „Annars vegar að flokkarnir komi sér saman um að setja ákveðin mörk á augslýs- ingakostnað, eða hins vegar að flokkunum verði aflað nýrrar tekju- lindar. Verði hvorugt má gera ráð fyrir því að allir núverandi stjórn- málaflokkar verði gjaldþrota eftir núverandi kosningar," sagði Geir. ur knúðu menn nú til þess að rilja þann draum upp. Hann lagði mikla áherslu að ágreiningsefni í núver- andi ríkisstjórn um álmál, varnar- mál og fleira yrði að leysa, annars yrði draumurinn um breytingar á flokkaskipaninni að engu. „Meginhlutverk Sjálfstæðis- flokksins hefur verið að deila og drottna, að sundra vinstrimönnum og hafa tauma valdsins í hendi sér. Nú er hann veikur og sundraður, uppnám ríkir í stjómmálum al- mennt og boðuð er stofnun nýrra flokka," sagði Árni. Hann sagði að þjóðin vildi nú sterkt pólitískt afl, sem gæti snúið óheillaþróun efna- hagslífsins til betri vegar. „Ef þetta er ekki jarðvegurinn fyrir öflugan jafnaðarmannaflokk þá veit ég ekki hvenær hefur verið betur plægt,“ sagði Árni. Ámi lét þó ekki hjá líða að gagn- rýna eigin flokk; sagði að félagslegi þátturinn í stefnu hans hefði orðið útundan í efnahagsumræðunni. Kerfisflokkur með slappa forystu Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, rýndi einnig í innviði Alþýðuflokksins. Hann sagði að ímynd flokksins hefði breyst á þeim nærfellt 16 ámm, sem hann hefði verið utan ríkisstjórnar. „Ég fullyrði að al- menningur lítur á Alþýðuflokkinn sem flokk kerfis og embættis- manna. Ég segi það fullum fetum að rhér finnst að forystumenn flokksins virki út á við sem niður- njörvaðir embættismenn.“ Guð- mundi Árna þótti skorta á baráttu- gleði forystumannanna og kallaði eftir hugsjónum og eldmóði. Bæjarstjórinn gagnrýndi það að í stjómmálaályktun þingsins væri gengið í þveröfuga átt við jafnaðar- stefnuna hvað varðaði eign á at- vinnutækjum. „Stefnumörkunin er öll í áttina frá ríkisrekstri til einka- reksturs," sagði Guðmundur Árni. Hann sagði að undanfarið hefðu menn séð hvert einkafyrirtækið á fætur öðru verða gjaldþrota, en braskara kaupa svo sín eigin fyrir- tæki aftur á uppboðum. „Tiltrú mín á einkaframtakinu er nákvæmlega ekki nein þessa dagana,“ sagði hann. Fleiri tóku í þann streng að flokk- urinn hefði á sér yfirbragð kerfis- mennsku og virtist jafnvel búinn að týna uppruna sínum. Tveir ung- ir menn, þeir Stefán Hrafn Hagalín og Reynir Harðarson, töluðu báðir um að flokkurinn hefði fengið á sig „hagfræði- og skattastimpil", að hann væri „steingeldur fræði- mannaflokkur" og báðir lögðu þeir áherslu á gamlar áherslur og gildi kjarabaráttu. Alþýðuflokkurinn í fjárhagskröggum: Flokkarnir takmarki auglýsinga- kostnað eða fái nýjar tekjulindir - sagði Geir Gunnlaugsson ft*áfarandi gjaldkeri í SKÝRSLU fráfarandi gjaldkera Alþýðuflokksins, Geirs Gunnlaugs- sonar, kom fram að flokkurinn væri í verulegum Qárhagskröggum vegna síðustu kosningabaráttu, sem hefði farið langt fram úr kostn- aðaráætlun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.