Morgunblaðið - 22.11.1988, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 57
Kjartan Jóhannsson:
Styð ekki stjórnina ef
hún klúðrar álmálinu
KJARTAN Jóhannsson, þingmaður Alþýðuflokksins, ítrekaði á
flokksþingi um helgina þá afstöðu sína að hann myndi ekki styðja
ríkisstíórnina áfram ef henni tækist ekki að koma því í höfii að
nýtt álver yrði reist í Straumsvík
„Tækifærin gefast ekki alltaf og
alls staðar til að koma á fót iðjuver-
um af þessu tagi. Tækifæri til að
nýta orku fallvatnanna gefast bara
stundum og sums staðar og þá
verða menn að vera reiðubúnir að
grípa tækifærin þegar þau gefast,"
sagði Kjartan. Hann sagði að álmál-
ið varðaði einnig álit Islendinga á
alþjóðavettvangi. „Það má ekki
henda að við kippum að okkur hend-
inni, drögum lappirnar eða klúðrum
þessu máli, því að þá verðum við
ómerkingar á erlendum vettvangi
og spillum möguleikum okkar ára-
tugi fram í tímann. Þá verður litið
á okkur sem hvert annað banana-
ríki sem ekki veit hvað það vill,“
sagði Kjartan.
„Engir minnihlutahópar mega
verða til þess að kúga okkur í þessu
máli,“ sagði Kjartan. Hann sagði
að þingflokkur Alþýðuflokksins
hefði beitt styrk sínum til þess að
stöðva öfgamenn innan Alþýðu-
bandalagsins í því að setja inn í
stjómarsáttmála ákvæði, sem þeir
hefðu túlkað sem hindrun í vegi
Jón Baldvin Hannibalsson form-
aður Alþýðuflokksins á flokks-
þingi alþýðuflokksmanna.
fyrir byggingu nýs álvers. „Ef ríkis-
stjórnin klúðrar þessu máli er hún
ekki traustsverð og ég styð hana
ekki lengur," sagði Kjartan.
Konur og Reyknesing-
ar með sterka stöðu
Rannveig Guðmundsdóttir efst
IKJÖRI til flokksstjórnar Alþýðuflokksins fékk Rannveig Guðmunds-
dóttir úr Kópavogi flest atkvæði eða 163. Annað kynið á samkvæmt
lögum flokksins að eiga að minnsta kosti 40% fulltrúa í stjórnum
og ráðum. Nokkrir karlar komust því ekki í stjórn, þótt þeir hefðu
fleiri atkvæði að baki en konur, sem hrepptu þar sæti. Hitt vakti
athygli að Reyknesingar náðu einstaklega góðum árangri í kjörinu.
Sjö stjórnarmenn aftíu atkvæðahæstu koma úr Reykjaneskjördæmi.
Auk Rannveigar voru þessi kjörin
í flokksstjórn, eftir atkvæðaröð:
Guðmundur Árni Stefánsson Hafn-
arfirði, Alda Möller Kópavogi,
Helga Möller Garðabæ, Bjami P.
Magnússon Reykjavík, Guðfinnur
Sigurvinsson Keflavík, Guðmundur
Oddsson Kópavogi, Arnór Benónýs-
son Húsavík, Stefán Gunnarsson
Hofsósi, Jóna Ósk Guðjónsdóttir
Hafnarfirði, Gylfi Þ. Gíslason
Reykjavík, Þorlákur Helgason Sel-
fossi, Björn Friðfinnsson Reykjavík,
Elín Harðardóttir Hafnarfirði,
Gunnar Eyjólfsson Reykjavík, Her-
mann Ragnarsson Keflavík, Sveinn
Elínbergsson Húsavík, Jón Bragi
Bjarnason Reykjavík, Magnús H.
Magnússon Vestmannaeyjum,
Hreinn Pálsson Akureyri, Helgi
Skúli Kjartansson Hafnarfirði,
Kristín Ólafsdóttir Akranesi, Val-
gerður Guðmundsdóttir Hafnar-
firði, Guðmundur Ólafsson Vest-
mannaeyjum, Ásthildur Ágústs-
dóttir Patreksfirði, Margrét Pálm-
arsdóttir Hafnarfirði, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir Reykjavík, Birgir Dýr-
fjörð Reykjavík, Guðríður Elías-
dóttir Hafnarfirði og Margrét Hein-
reksdóttir Reykjavík.
Tíu varamenn voru kjörnir. Þeir
voru Geir Gunnlaugsson, Skúli G.
Johnsen, Helgi Hálfdánarson,
Haukur Helgason, Árni Sædal
Geirsson, Gylfi Þ. Gíslason, úr röð-
um SUJ, Guðrún Óladóttir, Birna
Eyjólfsdóttir, Kristín Viggósdóttir
og Gréta Aðalsteinsdóttir.
í framkvæmdastjórn vom kjörnir
sex fulltrúar, auk Elínar Ölmu Art-
húrsdóttur formanns. Þeir em Aðal-
heiður Alfreðsdóttir, Birgir Áma-
son, Eiríkur Briem, Guðfinna Vig-
fúsdóttir, Rannveig Edda Hálf-
dánardóttir og Tryggvi Harðarson.
Forsætisráðherra á flokksþingi Alþýðuflokks:
Legg áherslu
á samstarf
bræðraflokka
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins ávarpaði flokksþing Alþýðuflokksins síðdegis á laug-
ardag. Steingrímur lagði þar áherslu á sögulegan skyldleika flokk-
anna og kallaði þá bræðraflokka. Jón Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, þakkaði Steingrími ræðuna með því að gefa
honum vönd af rauðum „kratarósum“ og bókina „Bryndís“, sem Qall-
ar um lífshlaup konu Jóns Baldvins, Bryndísar Schram.
„Þetta vekur eins mikla athygli
og að Shamir og Arafat hefðu
ákveðið að takast í hendur,“ sagði
Steingrímur. „Þeir ættu kannski að
taka okkur sér til fyrirmyndar.“
Steingrímur lagði áherslu á sögu-
leg tengsl Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks. Hann sagðist ekki
vera kominn á flokksþing Alþýðu-
flokksins til þess að bjóða samein-
ingu flokkanna. Hann sagði slíkt
ekki tímabært nú, hvað sem yrði
síðar. „Ég er kominn hingað til
þess að leggja ríka áherslu á sam-
starf þessara bræðraflokka. Ég
kom hingað til að minna á það að
þessir flokkar eiga sér mjög skyldan
grundvöll," sagði Steingrímur og
rifjaði upp að Jónas Jónsson frá
Hriflu hefði lagt grundvöll að báð-
um flokkum. „Ég held að það sé
rétt sem Jónas taldi þá að báðir
flokkamir hefðu mjög miklu hlut-
verki að gegna í þessu þjóðfélagi."
Steingrímur ræddi síðan sam-
starf flokkanna í síðustu ríkisstjórn
og að þeir hefðu ekki viljað hlaupa
frá þeim vanda, sem að steðjaði.
Hann lagði áherslu á að nú hefði
hann fundið að Jón Baldvin Hannib-
alsson væri maður, sem hægt væri
að treysta. „Ef við höldum dreng-
skapnum þá munum við leysa vand-
ann, sem er framundan," sagði
Steingrímur. Hann lauk ræðu sinni
á því að nefna þann möguleika að
þeir flokksformennirnir, jafnvel allir
formenn stjómarflokkanna, færu
saman um landið og töluðu við fólk-
ið, eins og gert hefði verið á árum
áður.
Ekki vom allir þingfulltrúar
jafnhrifnir af komu forsætisráð-
herra á þingið. „Ég verð satt að
segja að játa að ég er dálítið ruglað-
ur í ríminu,“ sagði Guðmundur
Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafn-
arfirði. „Ég hygg að fyrir tveimur
ámm hefði þeim ágæta manni, sem
við klöppuðum og stóðum upp fyrir
Morgunblaðið/Bjami
Steingrímur Hermannsson talar
yfir kratarósinni.
áðan sennilega verið hent út af
flokksþingi okkar öfugum.“ Guð-
mundur sagði að almenningur hlyti
einnig að verða mglaður í ríminu
af þessum atburðum. Hann sagðist
ekki gera lítið úr samstarfi á vinstri
vængnum, en þessi kúvending
formanns Alþýðuflokksins kæmi
sér á óvart.
Fleiri sögðust vera undrandi á
heimsókn Steingríms. Árni Hjör-
leifsson sagði að forsætisráðherra
væri pólitískt kameljón. „Ég tek
Steingrím Hermannsson með öllum
fyrirvara. Það verður langt þangað
til ég trúi honum,“ sagði hann.
Birgir Ámason, formaður Sam-
bands ungra jafnaðarmanna, tók í
sama streng. „Þessi sjónvarpsþátt-
ur með Steingrími Hermannssyni í
aðalhlutverki var fyrir neðan allar
hellur," sagði hann.
Ráðherrar segi af sér þingmennsku:
Tillagan felld naumlega
TILLAGA að ályktun um að ráðherrar segi af sér þingmennsku á
meðan þeir silja í ráðherrastóli var naumlega felld á flokksþingi
Alþýðuflokksins. Atkvæðagreiðsla um tillöguna fór fram tvisvar. I
fyrra sinnið munaði einu atkvæði og var atkvæðagreiðslan þá endur-
tekin. 56 voru á móti, en 53 með tillögunni í seinni atkvæðagTeiðsl-
unni.
Aðrar tillögur nefndar, sem fjall-
aði um stjórnkerfisbreytingar, voru
samþykktar með þorra atkvæða.
Þær voru þær helstar, að alþingis-
menn sitji ekki í stjórnum og ráðum
á vegum framkvæmdavaldsins, að
nefndum Alþingis verði veitt
víðtækari heimild til eftirlits með
störfum framkvæmdavaldsins og
að reglur verði settar um upplýs-
ingaskyldu stjómvalda og meðferð
upplýsinga hjá hinu opinbera. Þá
er lagt til að settar verði reglur um
hagsmunaárekstra í opinberu lífi.
Samþykkt var að álykta að
landinu verði með lögum skipt í
stjórnsýslueiningar með samein-
ingu sveitarfélaga. Þessar stjórn-
sýslueiningar taki síðan að veruleg-
um hluta yfir verkefni og tekju-
stofna ríkisins. Ályktun um jafnt
atkvæðavægi í Alþingiskosningum,
óháð búsetu, var einnig samþykkt.
Þá heyrðist hins vegar hljóð úr
horni frá landsbyggðarmönnum,
þar sem þinghaldið hafði dregist
verulega og var komið hálfan annan
tíma fram yfir áætluð þingslit þeg-
ar tillagan var samþykkt á sunnu-
deginum. Sveinn Hálfdánarson ' •—
kvaddi sér hljóðs og sagði marga
landsbyggðarmenn hafa neyðst til
þess að yfirgefa þingið vegna þess
að þeir þyrftu að ná flugvélum. „Ég
tek þess vegna ekkert mark á þess-
ari samþykkt," sagði Sveinn og
klöppuðu landsbyggðarmenn, sem
eftir voru í salnum, honum lof í lófa.
„Boðað verði til sérstaks stjóm-
lagaþings til að gera endurbætur á
stjórnarskránni í samræmi við
breyttar þjóðfélagsaðstæður," var
lokaliður ályktunarinnar um stjórn-
kerfismál, og var hann samþykktur
í einu hljóði.
OST
AUSTURBÆR
Sóleyjargata o.fl.
Lindargata 39-63 o.fl.
Óðinsgata o.fl.
JIUfgniilribiMfe