Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 60
Rynkeby
HREINN
APPELSÍNUSAFI
ÁN ALLRA
AUKAEFNA
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Málsókn vegna mis-
ræmis við mælingar
MISMIJNANDI aðferðir við mælingu á möskvastærð valda nú ágreiningi
milli Landhelgisgsezlunnar annars vegar og sjómanna og útgerðarmanna
r hins vegar. Mælingar Gæzlunnar gefa til kynna minni möskva en mæling-
ar netagerðarmanna og Hampiðjunnar og eiga af þessum sökum tveir
skipstjórar málsókn yfir höfði sér. Ennfremur hefur formiega verið kvart-
að yfir starfeaðferðum Gæzlunnar og þvi hreyft við dómsmálaráðherra,
að nefiid viðkomandi aðila endurskoði starfereglumar.
Fyrir nokkru fór Gæzlan um borð
í Kambaröst SU og mældist möskvi
í veiðarfærum skipsins of smár. Hið
sama átti sér stað síðastliðinn föstu-
dag, er skipstjóranum á Skipaskaga
AK var vísað til hafnar vegna of
smás möskva í þoka.
Gylfi Hallgrímsson, markaðsfull-
trúi hjá Hampiðjunni, sagði að hér
sé hvorki um svindl né ólöglegt at-
hæfi að ræða, heldur aðeins misræmi
í mælingum, sem verði að linna.
Helgi Hallvarðsson, skipherra hjá
Gæzlunni, segir að mælitæki Gæzl-
unnar sé löggilt. Það sé notað þann-
ig að ákveðnum og alltaf sama þrýst-
ingi sé beitt, þegar mælinum sé þrýst
inn í möskvann. Með þessu móti verði
mælingin áreiðanlegri, en hins vegar
sé það sjálfsagður hlutur að sam-
ræma þessar mælingaraðferðir.
Sjá nánar á bls. 2-3.
Forsætisráðherra um varaflugvöll:
Rétt að kanna
aðra möguleika
'STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra segir það Ijóst
að ekki verði samið um gerð vara-
flugvallar með þátttöku NATO á
kjörtímabilinu, hins vegar segir
hann rétt að kanna aðrar leiðir. í
samþykkt flokksþings Framsókn-
arflokksins er áréttað ákvæði
stjórnarsáttmálans um að ekki
verði ráðist í nýjar meiriháttar
framkvæmdir á vegum Vamar-
liðsins. „Ég er ekki sammála þess-
ari . túlkun," segir Jón Baldvin
Hannibalsson utanrikisráðherra í
samtali í gær.
„í stjómarsáttmálanum er kveðið
á um það að ekki verði um meirihátt-
ar framkvæmdir að ræða á vegum
Vamarliðsins," sagði Jón Baldvin.
„Framkvæmdir á vegum Vamarliðs-
ins eru undirbúnar með nokkurra ára
Kóngafólk
í heimsókn
fyrirvara og búið var að samþykkja
taka næstu þijú ár í framkvæmd.
Það var allt tíundað og upptalið hvað
þar væri um að ræða.“ Um gerð
varaflugvallar sagði Jón Baldvié:
„Hér er ekki um að ræða framkvæmd
í þágu Vamarliðs á friðartímum,
þetta er lífsnauðsynleg framkvæmd
í þágu þjóðarinnar."
Steingrímur Hermannsson sagði
rétt að kanna aðra möguleika. „Það
er annað mál hvort til eru leiðir til
að byggja stóran flugvöll, sem yrði
algerlega undir okkar stjóm og
byggður eftir íslenskum kröfum, en
herflugvélar fengju aðgang að í
neyðartilfellum og útá það fengjum
við kannski einhvem styrk. Þetta
hefur mér heyrst að kæmi til greina,"
sagði forsætisráðherra.
Jón Baldvin sagði að engir skilmál-
ar yrðu settir um rekstur flugvallar-
ins á friðartímum af hálfu NATO.
„Einu skilmálamir em að flugvöllur-
inn sé til reiðu fyrir Atlantshafs-
bandalagið ef til ófriðar kemur,“
sagði utanríkisráðherra
Sjá fréttir bls. 56-59.
Morgunblaðið/RAX
Stokksey ÁR með Áskel ÞH í
togi á Selvogsgrunni í gær-
morgun. Vestmannaeyjalóðs-
inn fylgir þeim eftir. Á neðri
myndinni er Flóvent Jóhanns-
son í faðmi fjölskyldunnar í
Grindavík, f.v.: Helga Björg,
María Óladóttir, Harpa, Fló-
vent og Óli Stefán.
Brunmn í Áskeli ÞH:
„Olían
kraumaði
sjóðheit
uppá
dekkið“
Grindavík.
„ELDURINN teygði sig upp
með olíutönkunum svo að sjóð-
heit olían kraumaði upp um
öndunaropin á dekkinu, en við
vorum komnir fram á. Þá leist
mér hreint ekki á blikuna en
við gátum lítið gert úr því sem
komið var nema yfirgefa bát-
inn,“ sagði Flóvent Jóhannsson
skipstjóri á Áskeli ÞH eftir að
hann var kominn heim til Qöl-
skyldu sinnar í Grindavík í
gær. Eldur kom upp í bátnum
á Selvogsgrunni í gærmorgun.
„Stýrimaðurinn var á togvakt
en við sváfum þegar hann varð
eldsins í vélarrúminu var. Eldur-
inn var þá orðinn svo magnaður
að ekki varð við neitt ráðið fyrir
reyk og eiturgufum," sagði hann.
„Ég er þeim mjög þakklátur
sem komu okkur til bjargar því
staðan var orðin mjög tvísýn,“
sagði Flóvent.
Kr.Ben.
Sjá frétt á bls. 2.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra:
Frumvarp um nýtt álver ef
kannanir verða jákvæðar
Samþykkt frumvarps um álver þýðir nýjan þing-meiri-
hluta segir Olafiir Ragnar Grímsson
ALEXANDRA prinsessa,
frænka Bretadrottningar, og
eiginmaður hennar komu til
íslands í þotu bresku kon-
ungsfjölskyldunnar í gær-
kvöldi og fara aftur héðan í
dag. Um 20 manns eru í
fylgdarliði prinsessunnar,
sem dvelst á Hótel Sögu og
hefúr þar 20 herbergi til
umráða.
Aléxandra er dóttir hertog-
ans af Kent. Hún er á leið heim
til Bretlands úr ferðalagi um
eyjar í Karabíska hafinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði á Alþingi
í gær að stj ómarfrumvarp um
nýtt álver í Straumsvík liti ekki
dagsins ljós nema með samþykki
stjórnarflokkanna allra. Jón Sig-
urðsson iðnaðarráðherra sagði
hins vegar að ef niðurstöður
kannana á rekstrargrundvelli
nýs álvers og þjóðhagslegum
áhrifúm þess reyndust jákvæðar
yrði leitað heimilda Alþingis
vegna slíkrar framleiðslu og um
nauðsynlegar virkjanir vegna
hennar, annaðhvort með heimild-
arlögum eða þá að leitað yrði
staðfestingar Alþingis á gerðum
samningum. Ólafúr Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra
sagði að flutningur og samþykkt
frumvarps um nýtt álver í
Straumsvík jafhgilti því að
myndast hefði nýr meirihluti á
Alþingi.
Yfírlýsingar forsætisráðherra,
iðnaðarráðherra og fjármálaráð-
herra, sem að framan getur, komu
fram í utandagskrárumræðu í Sam-
einuðu þingi í gær, sem Friðrik
Sophusson hóf. Bar hann fram
spumingar til ráðherranna, sem
leiddu til þessara svara.
Iðnaðarráðherra sagði ekki hægt
að tímasetja hvenær frumvarp yrði
borið fram, ef niðurstöður kannana
reyndust jákvæðar, en lét að því
liggja, að það yrði einhvern tíma á
næsta ári. Talsmenn Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Borgara-
flokks, sem þátt tóku í umræðunni,
studdu hugmynd um nýtt álver, að
því tilskildu, að niðurstöður kann-
ana reyndust þjóðhagslega jákvæð-
ar. Sama má segja um Guðmund
G. Þórarinsson, þingmann Fram-
sóknarflokks. Talsmenn Alþýðu-
bandalags og Samtaka um kvenna-
lista mæltu hins vegar gegn henni.
Sjá nánari frásögn
á þingsíðu bls. 37.