Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
45
og barþjónarnir aldrei feila
ellinni í amamesi eyddu
og tíkartitti á hraðbáti veiddu
en vesæll maður mundu
það tjóar ei í breiðholti
að byggja á sandi
eins og verkamanna er tíðum vandi.
Þessi aulafyndni þykir birtingar-
hæf, þótt framangreind þjóðskáld
næðu ekki neinu ljóði í bókina!
Svona hörmuleg umferðarslys eru
að verða alltof tíð!
Signrður Pálsson
Sigurður Pálsson heitir
fyrrverandi formaður
Rithöfundasambands Islands.
Gefur hann nú út sína 5. ljóðabók.
„Ljóðnámumenn". Hér er 'að mér
skilst stórskáld á ferð og verðandi
„þjóðskáld". Fyrsta ljóð bókarinnar,
er jafnframt í „Ljóðaárbókinni“ og
þar áður í Lesbók, svo skáldið hlýtur
að telja það í gæðaflokki
HÖFUNDUR NJÁLU
Það var í árdaga
það var gaman í árdaga
Verðandi höfundur Njálu
kom gangandi niður túnið
það var ekki búið að skíra fjallið.
Kýmar jórtmðu og biðu
þolinmóðar eftir Scheving
Káifamir léku sér
Höfundur Njálu staldrar við
rennir augum upp fjallið
og skírir fjallið
Hvessir síðan augun
hvessir augun
á kálfana
Loksins fáum við að vita að
verðandi höfundur Njálu var
þrælupptekinn af að „hvessa augun
á kálfana". „Ljóð Sigurðar er árás
á sljóleika hversdagsins, áskorun
um að vakna til lífsins — vakna til
fegurðarinnar,“ segir í formála.
Til hvers hafa margir af okkar
virtustu fræðimönnum verið að
deila um og leggja jafnvel ævistarf
í að sanna hver væri líklegasti
höfundur Njálu, sem er mest
íslendingasagna, ef hægt er að
afgreiða málin á svona einfaldan
hátt með tilheyrandi spekingssvip!
í skólaljóðum „Ljóðspor" er eitt
úrvalsljóð eftir Sigurð:
UNGÆÐI
Mylja brauð bak við sófann
slita knappana af bjartsýna blóminu
Bölva úti í kirkju eins og kjarkur leyfir
Tvinna blótsyrði úti á túni
Stoppa vatnshrútinn
Taka snarpan sprett á eftir hænunum
Kasta gijóti inn í hlöðu
Pissa á hundinn
Fara svo inn og kyssa mömmu brosandi
Hér er eins og segir í
fréttatilkynningunni „höfðað til
tilfínninga og vitsmuna lesandans“.
„Ljóðanámumenn" lýkur með
„Ljóði í lausu Þetta er texti
Kvöldvaka
Þrídrangs
GUÐNÝ Guðmundsdóttir húð-
ráðgjafí hjá Grænu línunni
heldur fyrirlestur um lífræna
húðrækt og heildræna liftiaðar-
hætti, sem eru forsendur henn-
ar, á kvöldvöku Þrídrangs.
Guðný fjallar meðal annars um
hvað látið er á húðina og hvers
vegna, um fæðubótarefni, matar-
æði, nudd, æfingar o.fl.
Kvöldvakan verður á veitinga-
staðnum A næstu grösum, Lauga-
vegi 20b kl. 20.30 á fimmtudag.
Boðið verður upp á te. Ókeypis
er fýrir félaga Þrídrangs.
(l'réttaiilkynning)
Gódandagim!
eða vangaveltur í mörgum þáttum,
og ekkert nema fölsun að orða
þessar hugleiðingar á 7 blaðsíðum
við ljóð. Hér er verið að leika þann
ljóta leik að reyna að misþyrma
öllum skilningi á því, hvað sé ljóð.
„Vandræðaskáldin" spyrja í dag
með sigurbros á vör: „Hver er sá,
sem getur dæmt um, hvað sé ljóð
og hvað ekki??“
Hingað og ekki lengra verður að
vera okkar svar!
Ljóðaárbók 1988
Óljóða-ritnefnd Alm. bókafél.
getur alls ekki útskýrt eigin ljóð,
hvað þá annarra. Utgáfustjórinn,
Sigurður Valgeirsson, telur sér
skylt að veija ruglukollana og segir
„Markmiðið með tiltækinu var að
gefa þverskurð af ísl. ljóðagerð
1988 ekki 1888“. Þetta á að
réttlæta bannfæringuna á
ljóðstöfum og rími í þverskurðinum.
Hann virðist vera búinn að
gleyma því, að ég sagði að í bókinni
væru nokkur sæmileg ljóð en allt
of fa. „Mér finnst Guðmundur
verða að gera sér grein fýrir því að
í öllum góðum skáldskap er
leyndardómur eða gáta, sem við
erum að ráða aftur og aftur, eftir
aldri og þroska." Ég hef hingað til
ekki legið andvaka af því mér gengi
illa að skilja ljóð góðskálda okkar.
Hinsvegar get ég fallist á að í þessu
lífi mun hvorki mér né öðrum endast
árin til að skilja ljóð ruglukolla A/B.
„Tilfinningatitringurinn í
skrifum Guðmundar og reiði finnst
mér þó sýna ótvírætt að
Ljóðaárbókin 1988 er vel heppnað
verk, verk sem hreyfir við mönnum
eins og góður skáldskapur á að
gera.“ Þarna hefði að sjálfsögðu
átt að standa: eins og lélegur
skáldskapur hlýtur að gera.
Annars kemur orðið
„tilfinningatitringur“ beint úr
herbúðum A/B og furðar engan
þótt samvizkubit og titringur ásæki
liðið.
Að lokum
Að lokum langar mig að biðja
þá, sem sendu rímuð ljóð með
ljóðstöfum til „Ljóðaárbókarinnar“
og í Mbl. keppnina að senda ljósrit
merkt:
„Trúnaðarmál“
Pósthólf 1172
121 Reykjavík
Þar sem mér og nokkrum
ljóðelskandi vinum mínum langar
að ganga ur skugga um, hvort hér
hafi hugsanlega á tvennum
vígstöðvum verið skipulögð
einskonar slys á menningar
arfleifðinni í ísl. ljóðagerð.
P.s. Farið verður með ljóðin sem
algjört trúnaðarmál.
Höfundur er frnmkvæmdastjóri i
Reykjavík.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
SAMBANDSINS
KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 8 20 33
Kíkið inn!
Alltaf heitt
á könnunni
ÞJONUSTA,
VÖRUGÆÐI
OG LÁGT VERD
Éf%
oTo
Li'.da ~ Harmmtie
Gustavsberg sturtuklefar
10% afsláttur
i'"
TRÉ-X
Inni og útihurðir
til afgreiðslu fyrir jól.
LAMELLA
SSICED’
ceramiche
ítaiskar gólf og veggflísar,
mikið úrval.
Gæða parket
100/o
afsláttur
damixa
III
Hörku tilboð
1 0—20% afsláttur
af blöndunartækjum.
MOULINEX
DJÚPSTEIKINGAPOTTUR