Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988 23 hyggst fá fram eða þegar hann heyrir í hljómsveitinni? — Það er nú ekki svo auðvelt að útskýra það en það má kannski segjá að þarna sé um einhvers kon- ar þróun að ræða. Við getum eigin- lega líkt þessu við tölvuvinnslu. Gögnum er safnað inn á tölvuna og síðan má vinna úr þeim á ýmsa vegu. Ég skoða og læri tónlistina og þessar upplýsingar gerjast hið innra með mér og hafa þróast nokk- uð þegar ég kem á æfingu. Þessi þróun heldur síðan í raun áfram meðan á æfingum stendur og þann- ig mótast einhver ákveðin leið sem ég hyggst fara með hljómsveitina í tónlistarflutningnum. í næsta skipti getur svo farið að ég leggi allt aðrar áherslur, úrvinnsla upp- lýsinganna verður önnur þá. Efnisskrár þessara tónleika sem þú stjómar eru talsvert ólíkar — þú ert ekkert fastur í ákveðnum tímabilum eða stefnum? — Nei, það held ég ekki og ég vil gjaman stjórna hvers kyns tón- list, bara að það sé góð tónlist og að hún sé þess konar að ég treysti sjálfum mér til að koma henni vel til skila með hljómsveitunum. Aðal- atriðið í þessu máli er að vera hei ðarlegur og vandvirkur og við eig- um að bera ákveðna virðingu fyrir tónskáldunum — án þeirra væri engin tónlist og ekkert tónlistarlíf. Sá frægi hljómsveitarstjóri Tosc- anini sagði þegar hann var orðinn áttræður: Hvemig gat ég eiginlega stjórnað Beethoven þegar ég var sextugur? Ég ætla ekkert að líkja mér við hann en ég treysti mér til dæmis ekki ennþá til að stjóma verkum eftir Bmckner þó að mér geðjist mjög vel að tónlist hans. Kannski þykist ég einhvern tíma tilbúinn til að takast á við Bruckner! Hvernig starfar Sinfóníuhljóm- sveit New Haven-borgar og hvað geturðu sagt almennt um slíkar hljómsveitir í Bandaríkjunum? — Hljómsveitin starfar nokkuð svipað og sú íslenska, við erum með reglulega tónleika í borginni og reynum síðan að heimsækja aðrar borgir. Það er gott og nauðsynlegt fyrir hljómsveitina og þá sem stjóma daglegum rekstri hennar og gott fyrir áheyrendur okkar heima að heyra hvernig okkur vegnar annars staðar. Ef gagnrýnendur taka okkur vel emm við stolt og ánægð með hljómsveitina, stjórn- inni gengur betur að afla fjár til starfsins og áheyrendur í heima- borginni vita að þeir eiga góða hljómsveit. Ef illa gengur viljum við náttúrlega sem minnst um það tala! Þannig er það einmitt núna hjá okkur því hljómsveitarmenn í New Haven hafa verið í verkfalli síðustu vikurnar og sér ekki enn fyrir end- ann á því. 1.500 hljómsveitir — Það er auðvitað margt hægt að segja almennt um sinfóníuhljóm- sveitir í Bandaríkjunum. Núna em þærum 1.500 — já, fimmtán hundr- uð — og þar af má segja að 120 séu vemlega góðar. Hinar em áhugamannahljómsveitir sem vjssu- lega em góðar svo langt sem þær ná. En þessar 120 em þær sem spila um allt landið, þær leika inn á hljómplötur og stjómendur þeirra em flestir þekktir og færir tónlistar- menn heima og heiman. Munurinn á hljómsveitum í Bandaríkjunum og Evrópu er kannski helst á rekstrarlega svið- inu. Við eigum svo litla hefð og fáar hljómsveitir njóta nokkurs op- inbers styrks öfugt við flestar evr- ópskar sinfóníuhljómsveitir. Um það bil helmingur tekna hljómsveit- anna heima er af sölu aðgöngu- miða, hitt em framlög einstaklinga og fyrirtækja og lítið brot em opin- ber framlög. Þetta þýðir að stjórnir hljómsveitanna þurfa að veija mikl- um tíma í fjáröflun og það þýðir auðvitað ekkert að leita eftir slíkum stuðningi nema að hljómsveitin standi sig vel. Þá vil ég líka benda á það að auk þess sem hljómsveitir njóta lítils stuðnings frá hinu opinbera finnst mér vanta hvatningu fyrir gildi tónlistar í almennum skólum og meiri almenna tónlistarkennslu. Þetta virðist koma í sveiflum, sum- ir forsetar hafa lagt mikla áherslu á listir og menningu og veita fjár- magni til slíkrar starfsemi en aðrir hafa á því minni áhuga og við höf- um búið við það síðustu árin. í Evrópu á tónlistin sér hins vegar langa hefð og það er ekki svo lítils virði. Um 30% bandarísk tónlist Hvað með efnisskrá? — Mér sýnist hljómsveitir vestra bjóða upp á svipaða efnisskrá og Sinfóníuhljómsveit Islands gerir. Ef ég tek hljómsveitina í New Hav- en sem dæmi þá erum við með tals- vert mikið af bandarískri tónlist. Kringum 30% af efnisskránni eru verk bandarískra tónskálda og þar komum við aftur að hefðinni. Við eigum aðallega samtíðarskáld og þess vegna finnst mér mikilvægt að kynna þau og verk þeirra. Það er samið mikið af tónlist í Banda- ríkjunum. Margt af því er góð tón- list sem við viljum eiga þátt í að koma á framfæri enda er mikilvægt að gefa tónskáldunum tækifæri. Að lokum má minna á efnisskrá tónleikanna í Háskólabíói á fimmtu- dagskvöldið. Þar flytur hljómsveitin atriði úr vinsælum söngleikjum. West Side Story og Candide eftir Bernstein, Porgy og Bess eftir Gershwin og Cats eftir Lloyd- Webber. Bandarísku söngvararnir Baskerville og Lofton syngja lögin úr Porgy og Bess og sagðist Murry Sidlin þekkja til þeirra beggja og því geta ábyrgst skemmtilega tón- leika. jt Hafrúnu, sem er um helmingi styttri tími en með Akraborginni og fyrstu ferðina fórum við á mánudagsmorgun." Hafrún fer frá Akranesi kl. 7.15 og til baka frá Reykjavík kl. 8.15. Aftur er farið frá Akranesi kl. 12.15 og frá Reykjavík kl. 18. „Við höfum þegar fengið ábend- ingu um að hafa fyrstu ferð frá Reykjavík kl. 9 í stað 8.15 og ég reikna með að við gerum það,“ sagði Svanborg. „Þá höfum við fengið fyrirspurnir um nýtingu bátsins, til dæmis hvort mögulegt sé að nota hann í skoðunarferðir, svo sem upp í Hvalfjörð. Það er vel mögulegt að við notum tímann frá 13-18, .pegar Hafrún er í Reykjavíkurþöfn, til slíkra ferða, auk þess sem hægt er að leigja bátinn þil sérverkefna." í sumar var greint frá því í Morgunblaðinu að fyrirhugað væri að hefja ferðir milli Akraness og Reykjavíkur á nýrri og hrað- skreiðri feiju, sem tæki 320 far- þega og yrði aðeins 18 mínútur á milli. Haukur Snorrason, sem er í forsvari fyrir þá aðiia sem áhuga hafa á að koma slíkum ferðum á, sagði að það væri enn ekki útilok- að. Fremur væri spurning um hve- nær af því gæti orðið en hvort það yrði. Hann sagði að ferðir Haf- rúnar væru því ekki til fyrirstöðu, enda yrðu Eyjaferðir aðeins með þessa flutninga yfir veturinn og Hafrún væri of lítill bátur. Haukur sagði að það myndi líklega skýr- ast eftir næstu helgi hvenær nýja feijan kæmi til landsins. Hjá Skallagrími h.f., útgerðar- félagi Akraborgarinnar, fengust þær upplýsingar að ferðum hefði nýlega verið flýtt um hálftíma. Ástæða þess væri sú, að útgerðar- félagið er háð samkomulagi við Ríkisskip um hafnaraðstöðu. Ferð- ir Akraborgarinnar frá Akranesi eru nú kl. .8, 11, 14 og 17. Frá Reykjavík er farið kl. 9.30, 12.30, 15.30 og 18.30. Morgunferðum og kvöldferðum er hins vegar sleppt um helgar, en hefjast að nýju í mars. Akraborgin tekur 430 farþega og 68 bifreiðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.