Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
ÍÞRÚmR
FOLK
■ SKOSKUR kaupsýslumaður
gerði sér lítið fyrir í gær og keýpti
stórliðið Glasgow Rangers. Kaup-
sýslumaðurinn, sem er frá Edin-
borg, greiddi átta
Frá Bob milljónir sterlings-
Hennessy pund fyrir félagið.
i England/ Hans fyrsta verk var
síðan að bjóða Gra-
eme Souness, stjóra liðsins, að
koma inn í stjóm félagsins, og síðan
lýsti hann því yfir að hann myndi
láta Souness í té fé til að kaupa
enn fleiri leikmenn. Souness heftir
eytt 8 milljónum punda í kaup á
leikmönnum síðan hann tók við lið-
inu 1986.
■ CHELSEA hefur mikinn
áhuga á að kaupa ástralska fram-
heijann David Mitchell frá Feyno-
ord í Hollandi. Mitchell er fæddur
í Skotlandi en er ástralskur ríkis-
borgari og lék á Ólympíuleikunum
í Seoul fyrir Ástralíu. Komi hann
til Chelsea aukast líkumar á að
Kerry Dixon verði seldur frá
Chelsea.
■ JOSEPH Wolf sagði í gær af
sér starfi sem stjórnarformaður v-
þýska knattspymufélagsins
Eintracht Frankfiurt — aðeins
átta dögum eftir að hann tók við
starfinu! Aðrir stjórnarmenn vom á
móti því að hann við starfmu á
aðalfundinum fyrir rúmri viku og
sagðist Wolf í gær hafa sagt af sér
til að koma á friði í stjóm félags-
ins. Liðinu hefur gengið afleitlega
það sem af er vetri og er nú í þriðja
neðsta sæti deiidarinnar.
■ HELGA Sigurðardóttir er
eina stúlkan úr FH, sem er í
kvennalandsliðinu skipað stúlkum
19 ára og yngri, en það tekur þátt
í Norðurlandamótinu í Finnlandi
um helgina. Auk hennar em í Iiðinu
Þuríður Reynisdóttir, Sigríður
Snorradóttir, Elísabet Þorgeirs-
dóttir og Brynhildur Þorgeirs-
dóttir, Gróttu, Sigrún Ólafsdótt-
ir, Hjördis Guðmundsdóttir,
Halla Helgadóttir og Heiða
Erlingsdóttir, Víkingi, Andrea
Atladóttir og Ingibjörg Jónsdótt-
ir, IBV, og Ragnheiður Stephen-
sen, Ingibjörg Andrésdóttir og
Herdís Sigurbergsdóttir, Stjörn-
unni.
■ RÚMENÍA vann ísrael, 3:0,
í vináttulandsleik í knattspyrnu í
Rúmeníu í gær. Mörk Rúmena
gerðu: Camataru á 23. mín. og
Mateut á 31. og 40. mínútu.
■ JÚLÍUS Jónasson mætti
gömlu félögum sínum í gær í leik
Vals og Gróttu. Hann lék eitt ár
með Gróttu í 4. flokki. Með honum
í liði var Egill Markússon sem nú
er 1. deildar dómari.
Valur-Grótta
23 : 18
íþróttahús Vals, íslandsmótið í hand-
knattleik 1. deild, miðvikudaginn 23.
nóvember 1988.
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 4:4, 6:4,
6:5, 9:5, 12:8, 12:11, 14:11, 15:12,
15:14, 22:14, 23íl5, 23: 18.
Valur: Valdimar Grímsson 6/1, Sig-
urður Sveinsson 5, Júlíus Jónasson 4,
Jakob Sigurðsson 3, Jón Kristjánsson
2, Gísli Oskarsson 2 og Geir Sveinsson
1. Þorbjörn Jensson, Theodór Guð-
finnsson og Sigurður Sævarsson.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 13/1.
Páll Guðnason.
Utan vallar: 6 mínútur.
Grótta: Davíð B. Gíslason 5, Stefán
Arnarson 4/1, Svafar Magnússon 3,
Páll Bjömsson 2, Halldór Ingólfsson 2
og Willum Þór Þórsson 2/1. Gunnar
Gíslason, Sverrir Sverrisson, Friðleifur
Friðleifsson og ólafur Sveinsson.
Varin skot: .Sigtryggur Albertsson
12/1. Stefán Öm Stefánsson.
Utan vallar: 12 mínútur.
Áhorfendur: 400.
Dómarar: Sigurður Baldursson og
Bjöm Jóhannesson. Mjög slakir og
náðu illa saman.
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
ísland sækir um HM
Körfuknattleikssamband íslands býðst til að taka einn riðil undankeppn-
innartil íslands. Bestu þjóðirheims meðal
ÍSLAND hefur ákveðið að
sækja um að fá að halda einn
af þremur riðlum f undan-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar i körfuknattleik. Keppn-
in fer f ram í byrjun september
á næsta ári og samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins
eru mikfar Ifkur á að umsókn
íslendinga verði samþykkt.
Islendingar hafa aldrei tekið
þátt í heimsmeistarakeppninni
en bestu þjóðir heims taka þátt í
þessari undankeppni. Þrjár efstu
þjóðir í Evrópukeppninni fara
beint í iokakeppnina, en þjóðir á
borð við Spán, Italíu, Grikkiand
og jafnvel Júgóslaviu verða að
taka þátt í undankeppninni. Ef
íslendingar fá keppnina munu
landslið einhverra þessara þjóða
koma til landsins.
Sjö þjóðir sækja um Hðla
Riðlamir í undankeppninni eru
þrír og sjö þjóðir sækja um. Það
em Spánn, V-Þýskaland, ísrael,
Finnland, Ungverjaland og Eng-
land, auk Islands. Israel, V-
Þýskaland og Finnland sækja
einnig um riðil í Evrópukeppninni
og ef þessar þjóðir fá riðla í Evr-
ópukeppninni fá þær ekki riðil í
HM. Líkumar eru því íslendingum
í hag og margt sem bendir til
þess að umsókn ísiendinga verði
samþykkt.
Dýrt
Það yrði að sjálfsögðu mjög
dýrt fyrir ísland að halda þessa
keppni. Alþjóða körfuknattleiks-
sambandið borgar þó stóran hluta,
s.s uppihald að vissu marki. ís-
lendingar þyrftu þó að borga uppi-
hald fyrir dómara, umsjónarmenn
ogýmislegt sem fylgir slíku móti.
„Þetta yrði vissulega mjög dýrt
en að fengjum ýmislegt í stað-
inn,“ sagði Pétur Hrafn Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri KKÍ í
samtali við Morgunblaðið. „Tekjur
af aðgangseyri, auglýsingum og
sjónvarpssendingum gefa mikla
peninga. Það er ljóst að ef þjóðir
á borð við Ítaíu og Spán koma tii
íslands þá verða leiídmir sýndir
beint,“ sagði Pétur.
Pétur Guðmundsson með?
Spumingin sem skiptir íslend-
inga mestu máli er hvort Pétur
Guðmundsson fær að leika með
íslenska liðinu í keppninni. Sam-
kvæmt reglum FIBA mega leik-
menn í NBA-deildinni ekki leika
með landsliði. Á heimsþingi FIBA
í apríl verður ákveðið hvort þess-
ari reglu verður breytt og NBA-
ieikmönnu leyft að leika með
landsliðum.
Ákveðið í desambor
Á skrifstofu FIBA fengust þær
upplýsingar að góðir möguleikar
væri á að umsókn íslendinga um
riðil í HM yrði samþykkt, en enda-
leg ákvörðun verður ekki tekin
fyrr en í desember.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Morgunblaðiö/Einar Falur
Jakob Sigurðsson svífur inn í víta-
teig Gróttu og lyftir boltanum yflr
Sigtrygg Albertsson markvörð. Bolt-
inn fór í stöngina og í fangið á Sig-
tryg^i. Á innfelldu myndinni slá þeir
félagar svo á létta strengi svona í hita
og þunga leiksins.
Ármannssigur
Armenningar gerðu góða ferð
til Keflavíkur í gærkvöldi. Þar
unnu þeir Keflvíkinga, 25:20, í 2.
deildarkeppninni í handknattleik.
IMýliðamir
stóðuí
Valsmönnum
GRÓTTULIÐIÐ er sýnd veiði en
ekki gefin. Það fengu meistara-
efni Valsmanna að reyna í
gær. Nýliðarnir stóðu í Vals-
mönnum nærallan leikinn en
þeim síðarnefndu tókst að gera
út um leikinn með góðum
endaspretti. Gróttumenn gáf-
ust þá upp, enda orðnir lang-
þreyttir að f urðulegri dóm-
gæslu. Undir lokin var sigur
Vals öruggur, 23:18.
Gróttumenn mættu mjög
ákveðnir til leiks og fyrstu
mínútumar var jafnt á öllum tölum.
Gróttumenn léku mjög skynsam-
■■■^■H lega og langar sókn-
LogiB. ir þeirra skiluðu ár-
Eiðsson angri. í vöminni var
sknfar svo te^ið 4 af fullum
krafti og Valsliðið
komst lítt áleiðis. Valsmenn tóku
þó við sér undir lok fyrri hálfleiks
og í leikhléi var fjögurra marka
munur, 12:8.
Gróttumenn byijuðu mjög vel í
síðari hálfleik og fyrstu þijú mörkin
vom þeirra. En þegar staðan var
12:11 var tveimur Gróttumönnum
vikið af leikvelli og Valsmenn náðu
yfírhöndinni að nýju. Gestirnir létu
þó ekki deigan síga og minnkuðu
muninn að nýju í eitt mark, 15:14,
þegar 11 mínútur vom til leiksloka.
En í annað sinn máttu Gróttumenn
horfa á eftir tveimur mönnum af
leikvelli. Eftir það var viðnám liðs-
ins á þrotum og Valsmenn gerðu
sjö mörk í röð og tryggðu sér sigur.
Valsliðið lék ekki jafn vel og í
síðustu leikjum og líklegt að mót-
spyman hafi komið þeim í opna
skjöldu. Flestir leikmenn liðsins
léku þó vel. Valdimar Grímsson og
Geir Sveinsson náðu vel saman
hægra megin og Einar varði vel.
Þá var Júlíus Jónasson dýrmætur
þegar illa gekk hjá liðinu.
Gróttuliðið lék mjög vel og af
skynsemi lengst af. Vörnin var
gífurlega sterk og þar mátti sjá
greinileg fingraför Árna Indriða-
sonar þjálfara. Sóknarleikurinn var
langdreginn en árangursríkur og
liðið beið eftir rétta færinu. Sig-
tryggur Albertsson varði mjög vel
og Davíð B. Gíslason nýtti færi sín
vel. Þá átti Stefán Arnarson góðan
leik í vörninni.
Dómararnir Sigurður Baldursson
og Björn Jóhannesson áttu vægast
sagt slæman dag. Þeir voru langt
frá því að vera samkvæmir sjálfum
sér og undarlegir dómar breyttu
verulega gangi leiksins. En líkt og
leikmenn eiga dómarar ekki alltaf
góðan leik.
„Það verður að hafa í huga að
við erum lið úr 2. deild og eigum
undir högg að sækja. Því verðum
við að leika sérstaklega vel ef við
ætlum að ná stigum úr svona leikj-
um. Við verðum að leika vel í 60
mínútur en ekki 40 eða 50 eins og
núna," sagði Ámi Indriðason þjálf-
ari Gróttu eftir leikinn.
„Við vissum að ef við héldum\
andstæðingunum undir 20 mörkum
þá ættum við möguleika. En þegar
við vomm komnir niður í eitt mark
þá var slegið á þetta og það gengur
ekki að vera fjórir gegn sex. Vals-
menn máttu gera ýmislegt í vörn-
inni sem við máttum ekki,“ sagði
Ámi
2. DEILD