Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988 Israel: V erkamannaflokkurinn ætlar í stjórnarandstöðu Jerúsalem. Reuter. LEIÐTOGAR Verkamannaflokksins í ísrael kváðust í gær heldur mundu vera í stjórnarandstöðu en taka þátt í annarri samsteypu- stjórn með Likud-flokknum. Nefndu þeir það til, að Likud-flokkur- inn vildi ekki láta Verkamannaflokknum eftir mikilvæg ráðherra- embætti og væri auk þess andsnúinn alþjóðlegri ráðstefhu um frið í Miðausturlöndum. Eftir kosningarnar 1. nóvember fékk Yitzhak Shamir, leiðtogi Likud-flokksins, umboð til stjórn- armyndunar enda þóttist hann þá hafa að baki sér meirihluta á þingi með stuðningi ýmissa hægrisinn- aðra smáflokka. Hann fór þó fram á viðræður við Verkamannaflokk- inn um áframhaldandi samstjóm flokkanna en þær fóru út um þúf- ur á þriðjudag. Forystumenn í Verkamanna- flokknum ætla að bera það undir atkvæði í stofnunum flokksins hvort rétt sé að vera utan stjómar en orðrómur er á kreiki um að þessar vendingar séu öðmm þræði áróðursbragð og til þess gert að hafa áhrif á Likud-flokkinn. Flokkana tvo greinir á um margt og ekki síst um alþjóðaráðstefnuna um frið í Miðausturlöndum. Sham- ir og aðrir Likudmenn líta á hana sem sovéskt-arabískt samsæri um að neyða ísraela til að láta af hendi hemumdu svæðin, sem þeir geti þó öryggisins vegna ekki verið án. Verkamannaflokkurinn leggur líka áherslu á að fá tvö af þremur helstu ráðherraembættunum að forsætisráðherraembættinu und- anskildu og jafn marga ráðherra og Likud. Shamir vill trúlega nokkuð til vinna að fá Verkamannaflokkinn í stjórn því að það yrði til að friða bandaríska gyðingaleiðtoga. Þeir krefjast þess, að Shamir ógildi lof- orð, sem hann gaf trúarlegu smá- flokkunum, úm að setja lög, sem takmarka mjög rétt manna til að gerast gyðingatrúar. Verka- mannaflokkurinn er andsnúinn slíkum lögum. Ljimo og JMimo Komnir til Frakklands Höfrungarnir Nimo og Limo virðast nú loks vera búnir að fá tryggan samastað. Eigandi þeirra skildi þá eftir í hótelsundlaug i Kairó fyrir hálfú ári. Breskir fjölmiðlar tóku höfrungana upp á sína arma og fundu þeim Ioks samastað í sædýrasafni í Antibes i Suður-Frakklandi. Hvað er svona seið- andi við þessa menn? Woody Allen Eftir Amanda Craig í GREIN sem Anthony Lejeune ritaði í Sunday Telegraph er fjallað um fegurðina, „sem er svo mikilvæg i lífi okkar jafnt sem bókmenntunum,“ eins og hann kemst að orði. Þótt grein- in hafi verið afar heillandi og vel grunduð olli hún mér mik- Uli gremju vegna þess að f henni er litið á fegurðina sem sér- stakan eiginleika kvenna, sem gagnkynhneigðir karlar lof- syngi. Samt eru karlmenn fallegir, ekki síður en konur. Trójustrið- ið, sem Lejeune vísar til i byrj- un greinarinnar, hófst eftir að París hafði dregið Helenu á tálar. Listamenn, allt Crá gríska myndhöggvaranum Praxiteles til Elizabethar Frink, hafa veg- samað fegurð karlmanna, hún hefúr verið lofsungin i Ljóða- Ijóðunum og fest á kvikmyndaf- ilmu til jafns við fegurð kvenna. Það sem er heillandi við þetta fyrirbæri er munurinn á afstöðu kynjanna til fegurð- arinnar, sem virðist benda tU þess að konur og karlmenn séu ólik bæði andlega og tilfinn- ingalega. Karlmenn þrá ekki aðeins feg- urð kvenna; þeir vilja einnig vera fagrir, þar sem þeir standa rang- lega í þeirri trú að fegurðin færi þeim velgengni í kyn- og félagslíf- inu. Þetta getur hafa átt við rök að styðjast í heimi fom-Grikkja, þar sem samkynhneigð var nokk- uð algeng og líkamsfegurðin var lofsömuð sem eðlileg afleiðing andlegrar fullkomnunar (þótt al- kunnur ljétleiki Sókratesar ætti að afsanna það). Þessi goðsögn hefur hins vegar haldið lífi í heimi gagnkynhneigðra, oft með hörmulegum afleiðingum. Fegurðin er ekki nauðsynleg’ Ekki væri út í hött að álykta að hinn vestræni heimur hefði orðið allt öðruvísi en hann er hefðu Hitler og Napoleon ekki verið litl- ir og ljótir. Þetta getur haft jafn Adolf Hitler. Hefði hann ekki verið lítUl og ljótur væri heim- urinn efalaust ekki eins og hann er. átakanlegar afleiðingar í einkalífi manna. Cyrano de Bergerac, sem var guðdómlega hnyttinn og sönn hetja an með gríðarstórt nef, áræddi ekki að bera fram bónorð- ið við sína heittelskuðu, réð þess í stað myndarlegan bjálfa til verksins. Í bókmenntunum eru fjölmörg dæmi um viðlíka harmleiki. I skáldsögu Trollopes, The Small House at Allington, elska tveir menn aðal kvensöguhetjuna, hinn undurfagri aumingi „Apollo" Crosbi og forljóta hetjan Johnny Eames. Jafnvel eftir að aumingja- skapur hins fyrmefnda er orðinn fullkomlega ljós reynir kvenhetjan af öllum mætti að verða ekki ást- fangin af hinum síðamefnda. Þessu eiga konur að vísu erfitt með að trúa. Ef eitthvað er sem konur gera ekki er það að setja jöfnunarmerki milli fegurðar og mannkosta (nokkuð sem karl- menn flaska oft á). Fegurð karl- manna er jákvæður eiginleiki, rétt eins og offita og sóðaskapur eru hið gagnstæða, en hún er alls ekki nauðsynleg. Flestir hommes fatals hafa verið sérlega ljótir: Picasso, Lorenzo de Medici, Getty, Onassis, Humphrey Bogart, jafn- vel Woody Allen. Karlar þurfa að vera yfirburðamenn Gámngar gætu haldið því fram að peningar allra þessara manna Byron lávarður hefðu bætt útlitið upp; en þar með gleymdu þeir hversu mikið að- dráttarafl yfírburðamenn á hvaða sviði sem er hafa á konur. í sann- leika sagt þurfa karlmenn aðeins að vera heimsins mestu sérfræð- ingar í einhveiju, jafnvel bara kúlulegum, til að fögur kona falli í yfirlið við fætur þeirra. Þeim sem eru góðum gáfum gæddir em allir vegir færir hafi þeir sjálfstraust: Voltaire hélt því fram að hann gæti fengið hvaða konu sem er til að gleyma hmkk- óttu andliti sínu eftir í mesta lagi tíu mínútna samræður. Hvaða kona með ríka kímnigáfu gæti sagt hið sama? Tökum sem dæmi óheppni Nancy Mitford og Dorot- hy Parker í ástum, en báðar vom þær ófríðar, báðar einstaklega fyndnar. Til hafa verið fögur átrúnaðar- goð af karlkyni, sérstaklega eftir að kvikm}mdimar komu til sög- unnar, en samt er það alkunn staðreynd að konum finnast myndir af nöktum körlum síst af öllu kynæsandi (aðeins samkyn- hneigðir karlmenn lásu tímaritið Playgirl). Þetta er ekki vegna þess að kvenmönnum þyki kynlíf- ið ógeðfellt, eins og karlar héldu áður fyrr, heldur vegna þess að konur lita ekki á karlmenn sem kynvemr á sama hátt og karlar hneigjast til að líta konur - eða aðra menn. Byron, Valentino, Nurejev,- og James Dean vom kyntröll síns tíma, en það vom þeir vegna þess að þeir vom holdtekjur andlegs eða rómantfsks kraftar. Slíkur kraftur heldur varanlegu aðdrátt- arafli sínu löngu eftir að æskan er glötuð; tökum sem dæmi Shaw og Sean Connery, sem báðir vom sérlega seiðandi á miðjum aldri; tökum sem dæmi hlutverkið sem John Cleese fór með í A Fish Calied Wanda, þar sem miðaldra maður nær ástum stúlku á sann- færandi hátt frá kretínþorskhausi. Þótt fegurð karlmanna geti valdið tímabundinni ástsýki em það aðeins bamalegar stúlkur og aldurhnignir hommar sem verða fyrir varanlegri ásthrifni þegar útliti mannsins fylgja ekki mann- kostir. Þótt Rupert Everett, til að mynda, sé miklu nærri því að vera ímynd hinnar sígildu fegurð- ar en Kenneth Branagh, er önug- ur svipur hans síður aðlaðandi en glaðlegt svipmót hins síðarnefnda. Meðan fyrirsætur þurfa að líta þóttafullar eða aðeins heimskar út til að selja vömmar, þurfa karlar í fyrirsætustörfum að vera broshýrir eða þenkjandi - nema þeir séu að selja karlmönnum vör- uraar. í klassískri goðsögn var Afród- íta gift bækluðum guði eldsins, Hefaistos, en hún var ekki hjá- kona Apollos heldur hins ljóta Aresar. Mannfræðingum þykir þetta auðskilið. Konur þurfa að vera fagrar til að ná tökum á mönnum; það sem skiptir okkur konumar mestu er að tiltekinn maður vemdi okkur betur og afli meira en hinir mennimir sem við getum laðað að okkur. Reay Tannahill greinir frá því í bókinni Sex in History að í hinni gömlu mökunarstellingu fremdar- dýranna „hafði karlinn sýn yfir bak makans og hann virðist hafa fengið fagurfræðilega fullnægju af ríkulegum, ávölum þjóhnöpp- um. Konan sá hann alls ekki. Hún á ef til vill heiðurinn af heimspek- inni í „drengur er sá sem drengs- verk vinnur.““ Eðlilegt væri að þessi viska úreltist þegar félagslegt og efna- hagslegt vald kvenna eykst, og sú er raunin. Á þessum áratug aldarinnar hefur orðið sprenging hvað varðar eftirspurn eftir körl- um í fyrirsætustörf og snyrtivör- um fyrir karla og hefur annað eins ekki gerst síðan á tímum Georgs krónprins og Elísabetar. „Fyrir tuttugu árum,“ segir Gavin Robinson, einn af atkvæðamestu umboðsmönnum tískuheimsins, „voru karlar í fyrirsætustörfum aldrei annað en varaskeifur, eins og hrokkinhærðir kjölturakkar eða pálmar í potti; núna fá þeir jafn háa þóknun og hæstlaunuðu konumar." Sagt er að kvikmyndaver hafi fengið það inn í samninga Ric- hards Gere að hann beraði sig og sýndi stórkostlegan líkama sinn að minnsta kosti einu sinni í hverri mynd. Listamenn eins og Elizabeth Frink og Emma Serge- ant lofsyngja fegurð karlmanna; Fiona Pitt-Kethley lofar konur í hlutverki flagarans. Erfitt væri að ímynda sér að Cecil Parkinson hefði fengið uppreisn æru eftir Keays-hneykslið væri forsætis- ráðherrann karlmaður; meðan stjómmálamennimir tauta: „sér- hver Elísabet þarfnast síns jarls af Essex." Samt er „leikfangastrákurinn" enn frekar fágætt fyrirbrigði, einkum takmarkað við leikkonur. í augum’ okkar flestra - og ég tala sem eiginkona sérstaklega myndarlegs manns - skipta hinir ósýnilegu kostir mestu: kímnin, riddaramennskan, krafturinn og ímyndunaraflið. Fyrir mörgum árum velti Robert Graves því fyr- ir sér hvers vegna svo margar „yndislegar, hæfíleikaríkar stúlk- ur/ giftast óþolandi mönnum? Venjulega sjálfsfóm getum við útilokað,/ og trúboðstilraunir, níu af hverri tíu.“ Hlutlaus dómari gæti komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé vegna þess að konan væri einfaldlega vitrari og betri en maðurinn. Grein þessi er þýdd úr blaðinu Sunday Telegraph.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.