Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 36
Fjögurra til níu ára telp-
ur áreittar kynferðislega
Sextán ára piltur játar á sig sökina
SEXTÁN ára gamall piltur á
Akureyri hefur viðurkennt að
hafa áreitt kynferðislega ungar
stúlkur á aldrinum fjögurra til
níu ára á undanförnum vikum.
Öll tilfellin áttu sér stað í Glerár-
þorpi.
Foreldrar sex ára gamallar
stúlku lögðu fram kæru hjá rann-
sóknarlögreglunni á Akureyri fyrir
síðustu helgi þess eðlis að stúlkan
Tónlistarskólinn:
hefði orðið fyrir kynferðislegri
áreitni. Skömmu síðar var sextán
ára piltur handtekinn og viður-
kenndi hann að hafa leitað á þessa
stúlku og aðrar, allt frá fjögurra
til níu ára.
Atburðimir áttu sér allir stað í
Glerárþorpi og gekk pilturinn mis-
jafnlega langt hverju sinni, að sögn
Daníels Snorrasonar rannsóknar-
lögreglumanns. Daníel sagði að pilt-
urinn hefði gjaman lokkað stúlk-
umar inn í sameignir fjölbýlishúsa.
Þó gekk hann ekki það langt að
stúlkurnar meiddust líkamlega.
Daníel sagði að pilturinn hefði
áreitt ungar stúlkur um nokkurn
tíma og hefðu tilfellin ágerst eftir
því sem á leið. Hinsvegar hefði
ekki verið lögð fram kæra fyrr en
nú og þegar rannsóknalögreglan fór
að skoða málið, komu fleiri tilfelli
í ljós sem þessi sami piltur hafði á
samviskunni.
Pilturinn hefur ekki áður komið
við sögu lögreglunnar. Honum var
sleppt að rannsókn lokinni og hefur
málið verið sent ríkissaksóknara,
sem væntanlega gefur út ákæru á
hendur piltinum innan skamms.
Daníel sagði að mál af þessu
tagi væm sem betur fer nær óþekkt
á Akureyri. Nokkur smámál af
þessu tagi hefðu þó komið upp á
þessu ári sem öll væm afgreidd.
Daníel sagði að það væri mál ýmissa
manna að allar umræður um svona
mál virki hvetjandi á þá menn, sem
framkvæma slíka hluti. Þær yrðu
frekar til þess að vekja menn held-
ur en hitt. Því væm menn ekki á
eitt sáttir um hvort æskilegt væri
að opna umræður um þessi mál upp
á gátt og sýna kvikmyndir, eins og
Stöð 2 gerði ekki alls fyrir löngu.
Fyrstu tónleik-
ar píanódeildar
FYRSTU tónleikar píanódeildar
Tónlistarskólans á Akureyri á
þessum vetri verða haldnir á sal
skólans í kvöld, fimmtudags-
kvöld, og hefjast þeir kl. 20.30.
Á tónleikunum koma fram nem-
endur á ýmsum stigum píanónáms
og flytja ijölbreytta efnisskrá. Með-
al höfunda má nefna Bach, Tele-
mann, Haydn, Mozart, Beethoven,
Grieg, Chopin, Tsjajkovskíj, Lut-
oslawskí, Tákács, Pál ísólfsson og
Jón Leifs. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
BETRA BOÐ
FRÁ SAMSTOTG
Samsung örbylgjuofnarnir eru traustir og öruggir.
Þeir hafa reynst framúrskarandi vel og auðveldað
mörgum eldamennslnma.
Getum nú boðið takmarkað magn af RE-553
á sérstöku tilboðsverði.
RE-553 býður upp á:
17 lítra innanmál - 500 wött - snúningsdisk
- 5 hitastillingar.
Fáaniegur í hvitum eða brúnum lit.
Verð 14.950,- stgr.
JAPISS
• BRAUTARHOLT 2 ■ KRtNGLAN,■
■ SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKiPAGATA 1 ■
■ SÍMI 96-25611 ■
Sundlaugarbygging
á lokastigi í Grímsey
BYGGING sundlaugar í Grímsey
er nú sem næst á lokastigi. Sjö
ár eru liðin síðan fyrst var hafist
handa við sundlaugarbygging-
una, en sökum fjárskorts hefúr
byggingin dregist á langinn.
Kostnaður skiptist þannig að
ríkissjóður greiðir helming og
hreppurinn helming. Sundlaugin er
12,5 metrar á lengd og 5,5 metrar
á breidd. Nú er unnið að því að
leggja á gólf hússins og eftir er
vinna við rafmagnslagnir, pípulagn-
ir og frágangur við hreinsilagnir.
Grímseyingar búast því ekki við að
hægt sé að fara að taka sundsprett
þar fyrr en með vorinu. .Áætlað er
að heildarkostnaður við bygginguna
nemi um 20 milljónum króna.
Ljósmyndir Harðar
Geirssonar kynntar
í Alþýðubankanum
Menningarsamtök Norðlend-
inga, MENOR, og Alþýðubankinn
á Akureyri kynna að þessu sinni
áhugaljósmyndarann Hörð
Geirsson.
Hörður er Akureyringur, 28 ára
rafvirki að mennt. Hann hefur hald-
ið tvær einkasýningar á ljósmynd-
um. Þá fyrstu hélt hann í sýningar-
sal Myndlistarskólans á Akureyri
1983 og þá síðari hélt hann á Þórs-
höfn á Langanesi árið 1985. Auk
þess hefur hann unnið að ýmsum
ljósmyndaverkefnum. Hörður starf-
ar nú við ljósmyndadeild Minja-
safnsins á Akureyri. Á kynningunni
eru þrettán litljósmyndir, sem Hörð-
ur hefur tekið síðustu fjögur árin
og er myndefnið sótt í íslenska
náttúru og evrópska menningu.
Kynningin er í afgreiðslusal Al-
þýðubankans á Akureyri, Skipa-
götu 14, og lýkur henni þann 6.
janúar 1989.
Hörður Geirsson áhugaljósmynd-
ari.
Ferðamálasamtök Norðurlands:
Aðalfundur á
Sauðárkróki
Aðalfúndur Ferðamálasam-
taka Norðurlands verður hald-
inn á Hótel Mælifelli á Sauðár-
króki í kvöld og hefst fúndurinn
kl. 18.00 með borðhaldi.
Síðan ætla þeir Snorri Björn
Sigurðsson bæjarstjóri á Sauðár-
króki, Valtýr Sigurbjarnarson for-
stöðumaður Byggðastofnunar á
Akureyri og Reynir Adolfsson
ferðamálafulltrúi að flytja erindi
um ferðamál, hlutverk Byggða-
stofnunar og stöðu bæjarfélagins
í þessu sambandi svo eitthvað sé
nefnt.
Fundurinn er öllum opinn sem
áhuga hafa á ferðamálum, en
Ferðamálasamtök Norðurlands eru
í eðli sínu „regnhlífa“-samtök
þeirra, sem starfa að ferðamálum
á Norðurlandi. Fundurinn er hald-
inn bæði sem hefðbundinn aðal-
fundur, en væntanlega verða lagð-
ar línur viðvíkjandi framtíð sam-
takanna, sem eru fimm ára um
þessar mundir.
31' MI