Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 50
900 SNisoNvawvs onaovoNiSAiDnv Pér er óhætt aö treysta eldhúshnífunum frá Knivman. Peir hafa oftar en einu sinni hlotiö viöurkenningu sænsku neytendasamtakanna fyrirgæöi og endingu. /MIKLIG4RDUR MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988 saet'naawavovi .þs ?itj;rA;«UTM,Mr’r;qi(iA.mvmojioM „Hann lifir mig er ég nú hræddur um“ Júlíus Sölvi Snorrason frá Hlíðarenda í Vestmannaeyjum heimsóttur Það er ætíð svo, sérstaklega í litl- um bæjarfélögum, að ákveðnar per- sónur setja svip sinn á bæjarlífið. Persónur sem hafa sinn eigin stíl og fara sínar eigin slóðir, hvað sem öðru líður. Sérstaklega hefur mann- gerðir þessar verið að finna í þeirri kynslóð sem nú er smám saman að hverfa inn í eilífðina. En þó kynslóðir hverfi þá standa eftir minningar og margir þeirra sem skáru sig úr, fyrir stíl sinn, lifa sem þjóðsagnapersónur í hugum fólks. Hjá þeirri kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi er erfíðara að eygja þá sem skera sig úr, fyrir stíl sinn. Hvað veldur? Því er vandsvarað, en ef til vill er það tíðarandinn sem mestu ræður. Fjölmiðlar eru á hveiju strái og línur eru gefnar um það hvaða pól þykir rétt að taka í hæð- ina. Þeir sem skera sig úr á ein- hvem hátt, með stíl sínum, í dag, em frekar álitnir skrítnir en að þeir nálgist þann blæ sem yfír „þjóðsagn- arkempunum" er. í Vestmannaeyjum hafa alist upp margir persónuleikar, sem skreytt hafa lífstréð, og hafa lagt sitt á vogarskálamar til að halda þeim sérstaka svip sem verið hefur á mannlífínu í Eyjum gegnum árin. Þessir menn hafa sett stefnuna í þá átt sem þeim hefur þótt boðleg og haldið sínu striki í ólgusjó lífsins. Það hefur mátt reiða sig á að þeir Tveir af föstu póstunum í Evjum, Júlli á Hlíðarenda og jeppinn hans. hafa ekki hvikað frá strikinu þrátt fyrir ágjöf og sterka strauma í þjóðlífinu. Þeir hafa ekki látið undan í öldurótinu frekar en að Heimaklett- ur hefur vikið sér undan sterkri öldu úthafsins í aldanna rás. Þessir persónuleikar hafa verið útverðir hins sérstaka mannlífs sem ríkt hefur í Eyjum og verið stór hluti af þeirri stemmningu sem oft er nefnd Eyjastemmning. Einn þeirra gullnu kvista, sem sett hafa svo sterkan svip á bæjar- ' braginn í Eyjum um langa hríð, er Júlíus Sölvi Snorrason frá Hlíðar- enda, eða Júlli á Hlíðarenda eins og hann er oftast kallaður. Þeir em fáir í Eyjum sem ekki kannast við Júlla á einhvem hátt og kemur þar margt til. Júlli var á sínum yngri árum í hópi bestu fijálsíþróttamanna landsins og keppti oft fyrir hönd Eyjamanna á þeim vettvangi. Hann varð virkur golfari strax á upphafsár- um íþróttarinnar í Eyjum og meðal stoftienda Knattspymufélagsins Týs. Margir setja jafnaðarmerki milli Júlla og þjóðhátíðarinnar, því þar hefur hann, með þanda harmon- ikku sína, verið einn af föstu póstun- um. En flestir kannast þó ef til vill við karlinn vegna bíls þess sem hann ekur á í dag og hefur gert um langa hríð. Fólk, sem komið er yfír miðjan aldur, man eftir bíl þessum frá bemskuárum sínum, enda hefur Júlli ekið honum um göturnar í 42 ár og er bíllinn því sá lang elsti sem um götur Eyjanna ekur. Við, Sigurgeir ljósmyndari, ákváðum að kynnast betur sögu bílsins og persónunnar sem honum ekur. Við tókum okkur því til, einn laugardaginn í haustblíðunni, og bönkuðum upp á að Hlíðarenda. Ósk, systir Júlla, kom til dyra og sagði bróður sinn hafa fengið sér örlítinn hænublund eftir matinn, en varla hafði hún sleppt orðinu þegar marraði í stiganum á bak við hana og Júlli birtist í forstofunni kankvís á svip, með glettnisglampa í augum. Hann brást vel við erindi okkar, skellti sixpensaranum á höfuðið, hallaði honum vel til vinstri, að vanda, og gekk síðan með okkur til bílgeymslunnar til að sýna okkur dýrgrip sinn. 42 ára og gengur enn Bíll Júlla er Willy’s-jeppi, árgerð 1946, blár að lit með hvítu húsi, rauðum toppi og rauðum hjólfelg- um, sem eru sömu litir og voru á bílnum er Júlli fékk hann fyrir 42 árum. Bíllinn sem ber sömu ein- kennisstafína og í upphafí, V-61, er ákaflega vel útlítandi, af þetta gömlum bfl að vera. Júlli sagðist hafa keypt bílinn nýjan eftir stríð. Hann hafði pantað bílinn og beðið talsvert eftir að fá hann en þegar að afhendingu kom þá ætlaði það ekki að ganga átaka- laust fyrir sig. „Ég fékk skeyti um ÞAÐ ER ALVEG SAMA HVE OFT ÞÚ OPNAR OSBY KÆLISKÁPANA FRÁ JOHAN RÖNNING, NO FROST TURBO KERFIÐ SVIPTIR ÞEIM Á RÉTT KULDASTIG Á SVIPSTUNDU! Osby Turbo kælikerfin eru meö því besta sem fyrirfinnst á markaðinum enda eru sænsku Osby frysti- og kæliskáparnir þekktir fyrir hina svo- kölluðu NO FROST TURBO kælingu sem á sér fáa líka. Þegar hurðin hefur verið opin á kæli- skápnum eru venjulegir skápar lengi að ná réttu stigi aftur. Þetta er vandamál þar sem kæliskápur- inn er opnaður oft á dag t.d. hjá barnmörgum fjöl- skyldum. NO FROST TURBO kælikerfið í Osby skápunum sér við þessum vanda. Viftan efst í frysti- eða kæliskápnum sér um að halda jöfnu kælistigi í skápnum. Þar að auki stendur sjálfvirkur affrysti- búnaður í vegi fyrir klakamyndun. Ef hurð á Osby kæli- eða frystiskáp hefur staðið opin, tekur aðeins þriðjung þess tíma sem áður tók að ná upp réttu kælistigi. Þrátt fyrir allt þetta helst rafmagns- eyðsla í lágmarki. Osby Turbo KNF 305-170 í, Osby Turbo Osby Turbo FNF 2101-211 I. kælirými og 135 I. frystirými. NF 305-305 I. frystirými. frystirými, en aðeins 140 cm. hár. Björg S. Björns- dóttir - Minning Fædd 22. maí 1919 Dáin 19. nóvember 1988 Okkur langar að minnast í ör- fáum orðum ömmu okkar er lést í St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði aðfaranótt laugardagsins 19. nóv- ember. Amma var fædd 22. maí 1919. Amma og afí, Sigursveinn Þórðar- son skipstjóri, fæddur 2. maí 1917, giftust 22. nóvember 1941 og áttu þau 4 böm. Óhætt er að segja, að samband þeirra hafi veríð sérstakt, þau unnu hvort öðru svo heitt og voru sjálfum sér nóg. Alveg er furðulegt hvað sumum tekst allt vel, sem þeir taka sér fyrir hendur. En þannig var amma. Það var sama hvort það voru hús- verkin, saumaskapurinn eða matar- gerðin. Þegar við bamabörnin hugsum til baka minnumst við þeirrar stundar sem við áttum með ömmu með söknuði. Amma var okkur öllum yndisleg og hugsunin um hana kallar fram bæði tár og bros. Þótt við væmm 12 að tölu kom það ekki fyrir að afmælisdagur gleymdist. Það er svo erfitt að hugsa til þess að við sjáum ömmu aldrei aftur, hana ömmu sem okkur þótti svo vænt um. Amma átti við erfiðan sjúkdóm að stríða sem að lokum náði yfir- höndinni. Hún hafði aldrei verið fyrir það að barma sér og tók ekki upp á því þótt hún lægi rúmföst meira eða minna þetta árið. Afi stóð sem klettur við hlið ömmu þar til yfír lauk. Megi elsku amma hvíla í friði. Við söknum hennar en það sem styrkir okkur er að við trúm því að henni líði vel. Elsku afí, megi þínar góðu minn- ingar um ömmu verða þér styrkur og stoð í sorg þinni. Barnabörnin Nú er hún sofnuð — svefninum langa, elskuleg tengdamóðir mín Björg S. Björnsdóttir sem búin var að beijast við þann skæða sjúkdóm, krabbameinið, í rúmt ár, og hafði hann betur að lokum. Björg var fædd í Ólafsvík 22. maí 1919, for- eldrar hennar voru Vigdís Péturs- dóttir og Björn Steinþór Ólafsson. Björg náði ekki að kynnast föður sínum, því hann lést áður en hún fæddist. Hún var skírð yfír kistu hans og hlaut nafnið Björg Stein- rún. Seinni maður Vigdísar var Gestur Yngvi Bjömsson og gekk hann Björgu í föðurstað. Gestur og Vigdís eignuðust eina dóttur, Gunn- hildi. Aðeins 9 ára gömul verður Björg fyrir þeirri þungu reynslu að missa móður sína. 14 ára gömul fer hún til Akureyrar og dvelur þar hjá móðursystur sinni Guðbjörgu Pét- ursdóttir og hennar manni Jakobi Olsen málarameistara. Þau reynd- ust Björgu vel, og var henni alla tíð mjög hlýtt til þeirra. Hjá þeim dvelur hún til ársins 1941. Þá verð- ur á vegi hennar ungur og glæsileg- ur maður, sem átti eftir að verða eiginmaður hennar. Það var Sigur- sveinn Þórðarson skipstjóri frá Nes- kaupstað. Þau giftu sig á Neskaup- stað 22. nóvember 1941. Fyrstu 10 árin sín búa þau í Sandbrekku í sambýli við inóður Sigursveins, Matthildi Bjamadóttir. Talaði Björg oft um tengdamóður sína með mik- illi ástúð virðingu. Svenni var mikið fjarverandi frá sínu heimili vegna atvinnu sinnar. Má nærri geta að oft hefur verið nóg að gera hjá Björgu því fjölskyldan stækkaði jafnt og þétt. Á Neskaupstað fædd- ust 3 af 4 bömum þeirra. Oft tal- aði Björg um þessi ár, og minntist þess, að tengdamóðir sín hefði ver- ið hennar stoð. Árið 1951 bregða þau búi og flytja til Reykjavíkur. Þar bjuggu þau í tvö ár, en flytjast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.