Morgunblaðið - 30.11.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988
Viljum sjálfræði og
stöðugleika í starfi
- segja fóstrur á Staðarborg sem hafa
sótt um að taka yfir rekstur leikskólans
FÓSTRUR á leikskólanum
Staðarborg við Mosgerði í
Reykjavík hafa sótt um að
taka við rekstri leikskólans.
„Við þráum sjálfstæði, sjálf-
ræði og stöðugleika í starf-
inu,“ segir Ingibjörg Krist-
leifsdóttir fóstra á Staðar-
borg. Bergur Felixson fram-
kvæmdastjóri dagvistunar
segir að umsókn þeirra verði
vel tekið, „... það er fullur
vilji til að gera tilraun með
þetta,“ sagði hann.
Valgerður Kristjánsdóttir for-
stöðukona á Staðarborg sagði
að ástæður þess, að fóstrumar
óska eftir að yfírtaka reksturinn
séu einkum óánægja með kjör.
„Bætt kjör og stöðugra starfs-
fólk er það sem þarf í þetta
starf, sérstaklega ófaglærðs
fólks, sem stendur stutt við í
starfínu vegna lágra launa. Þrátt
fyrir að mikið hafí verið reynt
að fá fólk til starfa hafi lítt geng-
ið, enda fái fólk jafn háar at-
vinnuleysisbætur og laun ófag-
lærðra starfsmanna eru.“ sagði
Valgerður.
Ekki liggur fyrir með hvaða
formi reksturinn gæti orðið hjá
fóstrunum. Þær óska sjálfar eft-
ir samvinnurekstri starfsfólks í
samvinnu við Reykjavíkurborg.
Borgarstjóm samþykkti fyrr á
árinu tillögu Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur um foreldra-
rekin dagheimili og er umsókn
fóstranna í Staðarborg byggð á
þeim grunni. Bergur Felixson
segir vera óljóst enn við hvað
greiðslur borgarsjóðs eigi að
miðast, en fullur vilji sé til að
reyna að gera þessa tilraun.
Fóstmmar vonast til að málið
verði útkijáð fyrir áramót, þann-
ig að með nýju ári geti nýr rekst-
Morgunblaðið/Júlíus
Fóstrur og börn í síðdegishópAum á Staðarborg. Nú vilja fóstrurnar sjálfár axla ábyrgðina á
rekstrinum og ráða sjálfar stefíiunni í samráði við foreldra, ef um semst við Reykjavíkurborg.
ur hafíst. Viðræður munu fara
fram á næstunni um möguleik-
ana.
Fóstrumar könnuðu fyrir
skömmu viðhorf foreldra bam-
anna á Staðarborg til rekstrar-
forms. 55 svör bámst og vildi
eitt foreldri rekstur foreldrafé-
lags, sex vildu óbreytt form og
48 vildu að fóstmmar tækju að
sér reksturinn. Valgerður og
Ingibjörg tóku það sérstaklega
fram, að þótt breyting yrði á
rekstrarforminu myndi það ekki
draga úr samvinnu við
Reykjavíkurborg, til dæmis varð-
andi innritun bama.
VEÐURHORFUR í DAG, 30. NÓVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Um 700 km suðsuövestur af Vestmannaeyjum
er 978 mb lægð sem þokast austsuðaustur, en skammt austur
af Færeyjum er 1010 mb smáhæð sem fer minnkandi. Yfir Labra-
dor er 974 mb lægð, sem fer vaxandi og hreyfist norðnorðaustur.
Við suöur- og vesturströndina verður 1 —3 stiga hiti, en vægt frost
í öðrum landshlutum.
SPÁ: Hægviðri, bjartviðri og víðast frost ó Norður- og Austur-
landi, en aust- og suðaustan gola eða kaldi sunnanlands og vest-
an, skýjað með köflum og yfirleitt frostlaust.
VEÐURHORFUR NÆSÝU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Suðaustanátt, kaldi
eða stinningskaldi, víöa rigning sunnan og austanlands, en þurrt
að mestu annars staðar. Hitl 4—6 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
•61
•*
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■JQ Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
= Þoka
= Þokumóða
’ , » Súld
CO Mistur
—J. Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri +2 léttskýjað
Reykjavík 2 akýjað
Bergen 0 léttskýjað
Helsinki +7 alskýjað
Kaupmannah. 1 skýjað
Narssarssuaq +1 léttskýjað
Nuulc 1 alskýjað
Osló +3 léttskýjað
Stokkhólmur +4 snjókoma
Þórshöfn 3 skýjað
Algarve 18 heiðskírt
Amsterdam 9 skýjað
Barcelona 14 mistur
Chicago +1 alskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 8 skýjað
Glasgow 6 rígning
Hamborg vantar
Las Palmas 22 léttskýjað
London 9 mlstur
Los Angeles 10 heiðsktrt
Luxemborg 6 súld
Madnd 7 þokumóða
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 17 hélfskýjað
Montreal +1 skýjað
New York 6 léttskýjað
París 11 alskýjað
Róm vantar
San Diego 8 heiðskírt
Winnipeg +11 alskýjað
Reyðarfiörður:
Sterfefólki fiysti-
hússins sagt upp
ÖLLU starfsfólki hraðfrystihúss Kaupfélags Héraðsbúa á Reyðarfirði
hefiir verið sagt upp störfum frá og með 17. desember næstkomandi.
Þar vinna nú um 60 manns. Ástæðan er timabundinn hráefiiisskortur
að sögn Marinós Sigurbjörnssonar fulltrúa hjá kaupfélaginu. Marinó
býst við að vinna geti hafist aftur i janúar eða febrúar á næsta ári,
jafhvel fyrr ef góð sfld veiðist.
Unnið er, við síldarfrystingu í
frystihúsinu núna og verður allt þar
til 17. desember, en eftir það má
ekki veiða. Marinó segir að togari
frystihússins, Snæfugl, sé á förum
og siglir hann með aflann. Hann
verður seldur og kemur nýtt skip í
hans stað, sennilega í lok janúar.
Þangað til nýja skipið skilar afla á
land verður hráefnisskortur hjá
frystihúsinu. Þó sagði Marinó, að ef
góð sfld veiðist eftir áramót sé hugs-
anlegt að vinna hefjist á ný við sfldar-
frystingu.
Hraðfrystihúsið á Reyðarfirði á
hálfan togara á móti Eskfirðingum
og er nokkurs afla að vænta þaðan
eftir áramót, en þó ekki nóg til að
halda fullri vinnu. Marinó sagði að
fólkið yrði endurráðið svo fljótt sem
fiskur kemur til vinnslu. Hann sagði
ástandið hafa verið mjög svipað í
fyrra á þessum tima og bjóst við að
full vinna héldist með komu nýja
skipsins.
Óvenjuleg veðurskilyrði á Vestfiörðum:
Malarvegir að verða
að botnlausu svaði
fsafirði.
VEGIR á VestQörðum eru orðnir mjög slæmir vegna aurbleytu og eru
sumir þeirra að teppast. Ástæðan er milt veður að undanfornu. Vega-
gerðin hefiir gripið til þess ráðs að setja 2 tonna hámarksöxulþunga
á flesta vegi með malarslitlagi og eru þeir því lokaðir bæði vöruflutn-
ínga- og langferðabifireiðum.
Jörðin er orðin blaut óvenju djúpt
niður vegna mikilla rigninga og leys-
inga að undanfömu en engin upp-
gufun er vegná sólarleysis og mikils
loftraka. Guðmundur Gunnarsson
verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins seg-
ir að vegagerðarmenn séu ráðþrota
vegna þess ástands veganna sem
þessi skilyrði valdi. Þetta hafi aldrei
áður gerst. Þeir séu vanir að fást
við aurbleytu á vorin þegar hún
stafar af því að frost er að fara úr
jörðu. Hann segir að nú séu vegimir
hins vegar að verða að botnlausu
svaði.
f leysingunum tók af 100-200
metra kafla á veginum frá Núpi í
Dýrafirði að Ingjaldssandi í Önund-
arfirði. Guðmundur sagði að erfið-
lega gengi að gera við skemmdimar
þar sem nánast engin farartæki
kæmust þangað. Úlfeir
Siglufiörður:
Næg atvinna og tölu-
verðar framkvæmdir
Sigiufirði.
NÆG ATVINNA hefiir verið hér á Siglufirði að undanförnu og tölu-
verðar fí-amkvæmdir. Landað hafði verið 36.874 tonnum af loðnu t\já
Sfldarverksmiðju ríkisins á mánudagsmorgun en um 33.000 tonnum á
sama tíma i fyrra. Þrir farmar af mjöli og einn farmur af lýsi fara
héðan í þessari viku.
Á næstunni verður sett upp flæði-
línukerfí í Þormóði ramma. Full
vinna er í Egilssfld. Þar er framleidd
reykt sfld fyrir Rússlandsmarkað.
Töluverðu var afskipað af saltfiski á
Grikkland og Portúgal á laugardag-
inn. Að undanförnu hefur verið unn-
ið hér við nýtt húsnæði fyrir bæjar-
fógetaskrifstofur, lögreglustöð og
fangageymslur. Einnig er slökkvi-
stöð í byggingu og búið er að steypa
undirstöður fyrir tvær skíðalyftur í
Skarðdal.
Matthias