Morgunblaðið - 30.11.1988, Side 38

Morgunblaðið - 30.11.1988, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 Hundar, menn og Reykvíking-ar Afrísk Qölskylda. eftir EyjólfKjalar Emilsson Eins og flestum er kunnugt fór núna nýverið fram einhvers konar skoðanakönnun á afstöðu Reyk- víkinga tl hundahalds í borginni. Flestum munu úrslitin kunn: um '12% atkvæðisbærra manna tóku þátt í könnuninni, og þar af sögð- ust um 40% vera fylgjandi hunda- haldi samkvæmt reglum þeim sem verið hafa í gildi, um 60% kváðust vera andvígir. Borgarstjóri lýsti því yfir, að borgaryfirvöld hlytu að taka tillit til þessara úrslita, sem vart verður túlkað á annan veg en þann að snúið verði til fyrra horfs og lagt algert bann við hundahaldi í borginni. Nú er mér ekki ljóst hvaða nauðsyn ber til að túlka þessar töl- ur á þennan hátt. Fyrir liggur að 90% atkvæðisbærra Reykvíkinga töldu ekki ástæðu til að láta í ljósi vilja sinn í þessu efni. Því skyldi álit 7% borgarbúa vega svo þungt? Helsta leiðin til að fá vit í slíkt mat er að gefa sér þá forsendu, að þeim sem hlynntir eru hundahaldi sé trú- lega meira kappsmál að fá það leyft en hinum að fá það bannað og því sé líklegt að stór hluti þeirra sem hlynntir eru hundahaldi hafi tekið þátt í könnuninni. Þar sem hunda- fólkið hafi eigi að síður beðið lægri hlut, bendi úrslitin til að mikill meirihluti Reykvíkinga sé andsnú- inn hundahaldi. En af ýmsum ástæðum væri rangt að draga ftokkra slíka ályktun. í fyrsta lagi þá er alveg rétt sem þegar hefur verið bent á í fjölmiðl- um, að þátttakendum í könnuninni var aðeins gefinn kostur á að taka afstöðu með eða á móti hundahaldi samkvæmt þeim reglum sem í gildi hafa verið. Hver er kominn til með að segja að atkvæði hefðu fallið eins, ef t.d. hefði verið boðið upp á strangari reglur eða hert eftirlit með því að gildandi reglum sé fram- fylgt sem sérstaka kosti? í öðru lagi, ef nokkuð má af þessari könn- un ráða, þá er það helst það að öllum þorra borgarbúa stendur nokkuð á sp.ma um þetta mál, hafa ekki eindregna afstöðu á annan hvom veginn. Á hvaða forsendum er hægt að fullyrða að flest þetta fólk sé andvígt hundahaldi í borg- inni? Ef ég ætti að geta mér til um þetta — og ég tek skýrt fram að þetta em getgátur — þá þætti mér trúlegt að fleiri kysu raunar að vera lausir við hundana, ef þeir litu eingöngu til sjálfra sín þegar þeir tækju afstöðu. En það segir ekki allt, því að sem betur fer hefur mannfólkið þann hæfileika að geta séð hlutina frá sjónarhomi annarra og taka það með í reikninga sína. Margt af þessu óráðna fólki, sem sat yfírleitt heima í könnuninni, mun hafa félagsþroska til að láta afstöðu sína með eða móti leyfí til hundahalds ráðast af svofelldri hugsun: „Eg er svo sem ekkert ýkja hrifin(n) af þessum hundum og því sem þeim fylgir; ekki get ég þó sagt að þeir séu mér til neins tilfinnanlegs tjóns eða ama; á hinn bóginn er það mörgum bersýnilega mikið hjartans mál að fá að hafa þessi dýr, og ekki vil ég vera að leggja stein í götu þeirra, enda skiptir þetta mig litlu en þá bersýni- lega talsverðu." Mér þykir trúlegt að eitthvað í þessa vem muni marg- ir hugsa, kannski flestir, einkum að afstaðinni vitsmunalegri um- ræðu um málið. Engin slík umræða fór þó fram í kringum þessa könn- un, og kem ég þar með að þriðrju ástæðu þess að hún sé léleg vísbending. Það er nefnilega svo að fylgis- menn hundahalds gerðu ekkert til að kynna málstað sinn fyrir könn- unina. Ástæðan er líklega sú að þeir héldu það koma málstað sínum best að könnunin færi sem hljóð- ast, þá myndu líklega einkúm hundaeigendur taka þátt í henni. Þetta sýnist klókt, en var þó að líkindum misráðið. Að minnsta kosti fór könnunin ekkert hljótt, en næst- um allir sem tjáðu sig um málið í fjölmiðlum voru andstæðingar hundahalds. Ekki vil ég segja að málflutningur þeirra hafi ráðið úr- slitum, og það skal játað að þarna voru kvörtunarraddir sem höfðu nokkuð til síns máls. Ábyrgðarlaus- ir hundaeigendur bera mesta sök á því hversu mörgum virðist vera í nop við hundahald. En ýmislegt sem kom fram sýnir að enn vaða uppi alls kyns hleypidómar um hunda og eigendur þeirra sem ef til vill hefði verið hægt að uppræta. Einn af snillingum blaðaritgerðanna hélt því til dæmis fram, að því er virðist í fúlustu alvöru, að eitt af því sem hundaeigendum gengi til sé að hafa einhvem til að níðast á. Þennan mann hefði mátt upplýsa um það að þó að þetta kunni að vera svo í stöku tilvikum og ef til vill meðal þeirra sem hann hefur helst sam- neyti við, þá er slíkt fáheyrð undan- tekning — eins og þvílíkur málflutn- ingur er vonandi líka. Það virðist einnig nokkuð útbreidd skoðun að borgin sé í þann veginn að fyllast af hundaskít. Ég heyrði þetta sagt af fólki sem ég hélt að færi ekki Góður vinur, ef til vill sá eini. með neitt fleipur og ákvað því að athuga þetta lítillega sjálfur. Auð- vitað reyndust þetta hreinar ýkjur, ímyndun verð ég að segja, þó svo að lítið sé of mikið í þessum efnum. En sumir hafa að vísu afskaplega næmt auga fyrir hundaskít — sjá hann jafnvel í gegnum hrúgur af glerbrotum, bréfarusli og plasti, sem ég fann talsvert af við þessa leit mína og vissi raunar vel af fyrir. Hvað sem þessari afar sérkenni- legu könnun annars líður, þá valda aðrar staðreyndir um hunda og menn því að það væri afskaplega fávíslegt af borgaryfirvöldum að banna hundahald í borginni nú. Sú mildi sem nefnd hefur verið að leyfa þeim hundum að vera sem fyrir eru breytir engu um þetta, það væri fávíslegt eigi að síður. Það hefur verið reynt að banna hunda í Reykjavík, og það gekk ekki. Það hefiir verið reynt í fleiri kaupstöð- um, t.d. í Kópavogi, með vafasöm- um árangri. Bannið var ýmist hundsað og því ekki framfylgt af yfirvöldum eða af því hlaust ómælt tjón sem seint verður metið til fjár. Hversu mörg börn í Kópavogi skyldu hafa grátið sig í svefn svo vikum skipti vegna þess að vonda löggan tók hundinn þeirra? Hversu John Tchicai í Duus-húsi í kvöld Jazzviðburður vetrarins í Reykjavík MEINLEG mistök urðu við tæknivinnslu á grein eftir Lisu von Schmalensee, sendikennara í dönsku, um jazzistann John Tchicai í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á mistökunum, en vegna þrengsla í blaðinu verð- ur aðeins unnt að endurbirta hér þær efnisgreinar, sem verst urðu úti. Þar sem vonlaust var að afla sér menntunar í jazzmúsík í Danmörku á sjötta áratugnum, fór Tchicai í tónlistarskóla og lærði á klarínettu í tæp þijú ár. En áhugann vantaði og hann hætti námi, enda hafði hann þá þegar stofnað eigin kvint- ett og hafði ærið að starfa fyrir hann á hinum nafnkennda jazzstað Vingarden í Minefeltet á sunnu- dagseftirmiðdögum og á Montmar- tre á mánudagskvöldum, auk þess sem atvinnutilboð létu ekki á sér standa og undirtektir voru ævinlega góðar. Og Tchicai fór til New York til þess að hressa upp á andann. Þar var hann í sex ár í byrjun sjö- unda áratugarins, þar til samkvæm- islíflð með hassi og öðru tilheyrandi ýtti við samvisku hans, svo að hann ákvað að hreyfa sig úr stað. Hann hélt heim til Danmerkur og jók við þekkingu sína í jóga, en komst að raun um, að jazzlífið í Kaupmanna- höfn, sem áður hafði fyllt hann inn- blæstri og sköpunarþrá, heyrði nú sögunni til. Þetta fékk á hann. Hann taldi, að tækifæri ungra jazztónlistar- manna í Danmörku væru af of skomum skammti. 0g hann hélt fyrstu uppákomuna af mörgum, sem á eftir fylgdu (og runnu saman við æskulýðsuppreisnina), í mat- stofu útvarpshússins, þar sem hann lét bakka með glösum á detta á gólfíð, hélt ræðu og mölbraut saxó- fóninn sinn. Þetta kann að hljóma eins og þama hafi farið einn af þessum ungu, reiðu mönnum, sem blésu í dómsdagslúðra, en frýjun hans er sem sagt ævinlega grund- völluð á svo innilegri hlýju, að hún verkaði ekki eins og sú reiði, sem egnir upp í manni mótþróann. Svo þessi sögulega uppákoma hafði í för með sér, að ný jazzbylgja vaknaði og tækifærunum fjölgaði ört, ekki síst hjá Tchicai sjálfum. í byijun áttunda áratugarins gerði Tchicai meðal annars tilraun John Tchicai með hundrað manna hljómsveit í danska ríkisútvarpinu. Áskell Más- son tónskáld, sem var í Kaup- mannahöfn um þessar mundir, ung- ur að árum, og langaði mikið til að spila með Tchicai, sagði mér eitt sinn, að hann hefði gert sér ferð í útvarpshúsið, .þegar hljómsveitin átti að koma fram og spurt hvort hann mætti slást í hópinn. „Já, blessaður vertu með!“ á Tchicai að hafa svarað og það varð úr. Það mátti heyra á undruninni í rödd Áskels, sautján árum eftir að atvik- ið átti sér stað, að þetta hafði verið óvenjuleg upplifun fyrir hann. Þeir áttu þó eftir að spila saman aftur, meðal annars í Djúpinu í Reykjavík 1980, Tchicai á saxófón- inn og Áskell á slagverkið. Ég hef heyrt upptöku af hluta tónleikanna og get ekki ímyndað mér, að at- burðurinn hafi liðið neinum þeirra, sem viðstaddir voru, úr minni. Þama lék Tchicai sér að því sem endranær að snúa því upp, sem venjulega snýr niður. Jafnvel hið þekkta lag, „Det var en lördag aft- en“, sem allajafna er með því hátt- bundnasta, sem til er, varð honum tilefni til að leika sér með svokall- aða falska kadensu eða gabbendi (kadensu d'inganno), þar sem stefnt er að fullkomnum lokasamhljómi, en raunin verður önnur og í stað lokahljómsins, sem búist er við, er endað á óvæntum, leikandi hljóm- óróa. Kannski rís frelsunin hæst þar. Það hefði verið skemmtilegt að fá að heyra þá Tchicai og Áskel leika saman á ný, því að það er eitthvað svo einstaklega kröftugt við samleik þeirra. Ég sagði áðan, að gamli hús- gangurinn „Det var en lördag aft- en“ hefði endað á hljómóróa, en í rauninni er það ósatt, því að Tchicai endar aldrei á einum hljómi, heldur hljómaklasa sem ómar allur í einu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.