Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988
félk f
fréttum
HJÓNABAND
Brúðkaup Mónakó-
prinsessu í júní?
Ljósmynd/Gunnar Om
Fjöldi unglinga og kennara fylgdist með keppni og er úrslit lágu fyrir brutust út gífurleg fagnaðarlæti
hjá áhangendum sigurliðsins.
Heyrst hefur að Stefanía Món-
akóprinsessa muni gifta sig
í júní á næsta ári. Sá heppni heit-
ir Ron Bioom og er hljómplötuút-
gefandi. Rainer faðir hennar hafði
víst ýmis ófögur orð um samband-
ið á sínum tíma og þótti honum
sem Ron væri ekki félegri tengda-
sonur en fyrrverandi vinur Stef-
aníu, Mario Jutare. En Rainer
prins skipti um skoðun eftir að
hafa hitt piltinn og rabbað við
hann í tvo tíma og er sagt að
þeir hafi orðið perluvinir. Prinsinn
hefur víst oft á tíðum haft áhyggj-
ur af hinni „villtu" dóttur sinni
sem gjaman lét ekki líða meira
en viku á milli nýrra kærasta hér
áður fyrr. En nú er sagt að brúð-
kaup sé framundan og verður það
eflaust eitt það glæsilegasta f
Evrópu á næsta ári.
SPURNINGAKEPPNI GRUNNSKÓLANNA:
Hlíðaskóli bar
sigur úr býtum
NÚ ER nýlokið spurninga-
keppni grunnskólanna í
Reykjavík, „Þrautalending ’88“.
Keppnin var nú haldin þriðja árið
í röð og er framkvæmd keppninnar
í höndum starfsmanna íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur. Aðal-
markmiðið með Þrautalendingu er
að gefa unglingum kost á að taka
þátt í spennandi og skemmtilegri
keppni og sá skóli sem ber sigur
úr býtum hlýtur titilinn „vitrasti
grunnskólinn í Reykjavík".
Allir grunnskólar sem eru með
nemendur í 7., 8., og 9. bekk tóku
þátt í keppni, alls 18 skólar og
mættu þrír fulltrúar frá hveijum
skóla til leiks. Úrslitakeppnin fór
fram í félagsmiðstöðinni 'l’ónabæ
þann 18. nóvember síðastliðinn. Þá
kepptu til úrslita lið Hlíðaskóla og
Hólabrekkuskóla og var mjótt á
munum. Eftir alla hluta keppninnar
voru liðin nákvæmlega jöfn að stig-
um og þurfti bráðabana til þess að
skera úr um sigur. Loks kom að
því að Hólabrekkuskóli svaraði
rangt og var það því Hlíðaskóli sem
hlaut þann eftirsótta titil, „vitrasti
grunnskólinn í Reykjavík".
í ár fór keppnin fram með friði
og spekt en þess má geta að í sömu
keppni fyrir ári síðan brutust út
mikil ólæti og slagsmál og var það
fréttaefni dagblaðanna hér í borg.
Ljósmynd/Gunnar Om
Sigurlið Hlíðaskóla. Frá vinstri á myndinni eru Benedikt Gíslason, Ragnar Guðmundsson og Herdís
Schopka.
s vasasími
Myndin var tekin f Köln í
Vestur- Þýskalandi og
sýnir stúiku með þráðlausan vas-
asíma, sem var meðal hins nýj-
asta í skrifstofutækni, sem kynnt
var á vörusýningu þar fyrir
skömmu. Meðal annarra muna
má nefna skrifstofustóla sem
smfðaðir eru í samráði við sér-
fræðinga og eiga að draga úr
likum á brjósklosi. Tölvuskjái
með hvftum fleti og svörtum stöf-
um og fleira sem á að auðvelda
þeim lífið er skrifstofustörf
stunda.
TÆVAN
Hreint
gull
H ún er heilluð af gull-
inu þessi stúlka á eyjunni
Tævan. Hún hefur þá
atvinnu að selja gull og
þarna hefur hún raðað
stöngunum þannig að
þær mynda töluna 999.9.
Talan sýnir hve gullið er
hreint. Talið er að innan
skamms kaupi Tævanir
þjóða mest af gulli og
taki við því öfundsverða
forystuhlutverki af Jap-
önum.