Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988
Stjömu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
BogmaÖur
Þar sem Bogmannsmánuður-
inn er byrjaður er rétt að
fjalla lítillega um það merki.
Tímabil Bogmannsins er frá
22. nóvember til 21. desem-
ber. Þar sem hver maður á
sér nokkur stjömumerki verð-
ur hér einungis fjallað um hið
_ jdæmigerða fyrir Sólarmerkið.
Vill Jjölbreytni
Bogmaðurinn er lifandi at-
hafnamaður. Til að þrífast
þarf hann hreyfíngu, líf og
fjölbreytni. Honum er illa við
9—5 vanastörf, enda á hann
erfítt með að sitja kyrr til
lengdar. Hann þarf svigrúm
og frelsi og tapar lífsorku ef
hann er bundinn niður og
þarf að fást við sömu hand-
tökin aftur og aftur.
SkapgóÖur
í skapi er hinn dæmigerði
Bogmaður hress og skap-
góður. Hann er bjartsýnn og
gamansamur. Hann vill horfa
— á jákvæðari hliðar tilverunnar
og er lítill vandamálasmiður.
Bogmaðurinn er opinskár,
hreinn og beinn og vingjam-
legur.
Fróðleiksfús
Eitt sterkasta einkenni Bog-
mannsins er frelsisþörf og
fróðleiksþorsti. Hann vill
kynnast heiminum og þráir
þekkingu og yfirsýn. Hann
ann því ferðalögum og al-
mennri hreyfingu sem víkkar
^jóndeildarhringinn. Honum
"*“\eiðist að sama skapi að fást
við það sem ekki veitir nýja
þekkingu.
MaÖur hreyfingar
Þrátt fyrir forvitni er Bog-
maðurinn oft lítið fyrir skóla-
nám. Hann á t.d. erfitt með
að sitja tímunum saman yfir
sömu bókunum. Utivera og
íþróttir eiga mun betur við
hann. Hann vill því oft frekar
öðlast reynslu í atvinnulífinu
og læra í skóla lífsins. Þetta
er algengt en að sjálfsögðu
ekki algilt.
Ofjákvœöur
Helsta vandamál Bogmanns-
ins er oft það að vilja vera
'hress og jákvæður. Honum
er illa við þyngsli og það að
velta sér uppúr því neikvæða.
Fyrir vikið á hann til að horfa
framhjá vandamálum og vilja
flýja erfiða ábyrgð. Hann get-
ur því átt til að vera ábyrgðar-
laus.
Fleytir rjómann ofanaf
Bogmaðurinn þarf einnig að
gæta þess að frelsisþörf og
vilji til að fara eigin leiðrr
verði ekki að tillitsleysi. Hann
þarf einnig að varast að þörf
fyrir fjölbreytni verði ekki að
yfírborðsmennsku. Ef hann
fer úr einu í annað öðlast
hann smjörþef af mörgu en
^jþekkingu á fáu. Æskilegt er
að hann finni sér eitt starfs-
svið sem er það fjölbreytt að
hann þurfí ekki að hlaupa á
milli ólíkra sviða.
Viösýnn
Þegar Bogmanninum tekst
vel upp hefur hann þekkingu
á mörgum ólíkum málefnum
og getur séð hvernig ólíkir
þættir vinna saman. Hann
hefur yfirsýn.
Vinsœll
Hinn dæmigerði Bogmaður
vill vera frjáls og þolir ekki
að vera bundinn niður. Vísasti
vegur til að missa af Bog-
manni er að krefjast of mikils
af honum. Hann lætur sig
hverfa ef honum fínnst frelsi
sínu ógnað. A hinn bóginn er
Bogmaðurinn skemmtilegur
féjagi. Hann er lifandi, hress
og hugmyndarikur. Jákvæð
- viðhorf gera að hann er yfir-
leitt elskaður og vel liðinn.
GARPUR
GRETTIR
HEIMSPBKIHGOR SAGDI UlTTSIN^
, ,ÉG HUGSA; pBSS VVGNA ER^G" )
BRENDA STARR
UÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
ACTUALLV, CHARLE5,1 HATE
BASEBALLJ'M ONLY PLAYIN6
ON YOUR TEAM BECAU5E l'VE
ALWAY5 BEEN FONP OF YOU..
OJELL, ONCE I U)A5 FONP 0F
YOU, BUT THEN I U)A5N‘T,.BUT
THEN I U)A5 A6AIN...THERE
MU5T dE A WORP FOR. IT...
í rauninni hata ég hafna-
bolta, Karl... ég leik bara
í þínu liði af því að mér
hefur alltaf þótt vænt um
þig...
Jæja, mér þótti einu sinni
vænt um þig, en svo þótti
mér það ekki... það hlýt-
ur að vera til eitthvert orð
yfir þetta ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Flestum er heldur illa við að
opna á veikum tveimur í spaða
eða hjarta með fjórlit í hinum
hálitnum. Enda fór það svo að
flestir pössuðu á spil norðurs í
Butlerkeppni BR fyrir viku.
Norður gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ 85
V98653
♦ K10
♦ ÁK73
Norður
♦ 10743
¥ ÁKG742
♦ -
♦ 1065
Austur
♦ K96
♦ D10
♦ G65
♦ DG942
Suður
♦ ÁDG2
V-
♦ ÁD987432
♦ 8
Austur passaði líka og suður
horfði vantrúaður á spilin sín.
Gat það verið að enginn hefði
neitt til málanna að leggja. Einn
snillingurinn þóttist viss um að
vestur ætti mikið í hjarta og
laufí og sá fyrir sér að hann
ætti næst að segja við fjórum
hjörtum. Og ákvað að undirbúa
þá stöðu strax með því að opna
á þremur tíglum! Við fjórum
hjörtum ætlaði hann að segja
fjóra spaða og hefði þá lýst spil-
unum allvel.
Nú, það er skemmst frá því
að segja að hann fékk að spila
þijá tígla og vann fjóra. 130,
takk fyrir.
Þeir sem hugsuðu ekki svona
langt opnuðu á éinum tígli.
Norður sagði eitt hjarta og suð-
ur einn spaða. Norður lyfti í tvo
og þeir kjörkuðustu sögðu sex!
Og vestur lyfti ÁK í laufí.
Trompað með tvisti, tígulás
og tígull trompaður. Svínað fyr-
ir spaðakóng og tígull aftur
trompaður. Spaða svínað aftur
og ÁKG í hjarta hent niður í
frítígla. Og þá var bara eftir að
þakka makker fyrir spaðatíuna.
1430.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁ RÁDHÚSTORGI