Morgunblaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988
5
Síldarsöltun:
Búið að salta í um
222.000 tunnur
Um 18.000 tunnur eftir náist ekki samn-
ingar um viðbótarkaup Sovétmanna
REIKNAÐ var með að búið yrði
að salta í um 222.000 síldartunnur
í gærkvöldi en í fyrrakvöld hafði
verið saltað í 220.598 tunnur.
Búist er við að saltað verði í um
240.000 tunnur á vertíðinni, náist
ekki samningar við Sovétmenn um
viðbótarkaup þeirra á 50.000
tunnum. ÞaT af verður saltað í
uin 12.000 tunnur af sildarflökum
en búið er að salta í um 8.700
tummr af flökum. Af þessum
240.000 tunnum verður saltað í
15.000 til 17.000 tunnur á innan-
landsmarkað. Þar af er búið að
salta í um 14.000 tunnur, að sögn
Kristjáns Jóhannessonar birgða-
og söltunarstjóra Síldarútvegs-
nefndar.
Sölusamningar hafa verið gerðir
við Danmörk, Bandaríkin, Kanada,
Færeyjar, Finnland, Svíþjóð og Sov-
étríkin, að sögn Kristjáns.
Síld veiddist í fyrrinótt og gær í
Seyðisfirði, Viðfirði, Berufirði og við
Ingólfshöfða.
Saltað hafði verið í 37.155 tunnur
á Eskifirði í fyrrakvöld, 36.329 á
Utanríkisráðherra:
Brot á skyld-
um Banda-
ríkjanna
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, harmar ákvörðun
bandarískra stjórnvalda um að
neita Yassir Arafat leiðtoga PLO
um vegabréfsáritun til Banda-
ríkjanna, segir í yfirlýsingu frá
utanríkisráðuneytinu.
í yfirlýsingunni segir að með þess-
ari ákvörðun sé komið í veg fyrir að
Arafat geti ávarpað allsheijarþing
Sameinuðu þjóðanna. Þar segir enn-
fremur: „Án tillits til afstöðu Banda-
ríkjanna til PLO, telur utanríkisráð-
herra umrædda stjórnvaldsaðgerð
vera brot á skyldum Bandaríkjanna
sem gistilands Sameinuðu þjóðanna
og skapa hættulegt fordæmi um
pólitísk afskipti af starfsemi þeirra."
Höfn í Homafirði, 25.369 á Seyðis-
firði, 23.834 f Grindavík og 20.958
á Reyðarfirði. Þá hafði verið saltað
í 23.023 tunnur í Fiskimjölsverk-
smiðju Hornafjarðar, 14.832 í Pól-
arsíld á Fáskrúðsfirði, 14.447 í
Strandarsíld á Seyðisfirði, 13.163 í
Skinney á Höfn í Homafirði, 11.233
í Friðþjófi á Eskifirði, 10.922 í Norð-
ursíld á Seyðisfirði, 10.851 í Tanga
hf. á Vopnafirði, 10.415 í Hraðfrysti-
húsi Eskiflarðar og 10.395 í Bú-
landstindi á Djúpavogi.
Morgunblaðið/Helena
Kvikmyndasjóður:
Umsóknar-
frestur
rennurút
á morgun
UMSÓKNARFRESTUR um styrk
úr Kvikmyndasjóði rennur út 1.
desember. í framlögðu fjárlaga-
fiumvarpi er gert ráð fyrir að 71
miiljón króna renni til sjóðsins.
Að sögn Guðbrands Gíslasonar
framkvæmdastjóra sjóðsins, hefur
ekki áður verið ráðgert að veita
sjóðnum jafnmikið fé að krónutölu.
Guðbrandur sagði að stefnt væri
að því að koma gerð nokkurra leik-
inna mynda af stað á næsta ári en
vildi ekkert upplýsa um þær umsókn-
ir sem þegar hefðu borist.
NU FÆ EG MER GOODYEAR ULTRA GRIP 2
Reykjavík:
322 kærðir
vegna rétt- k '
* i í *
índaleysis
LÖGREGLAN í Reykjavík kærði
322 ökumenn fyrir réttindaleysi
við akstur fyrstu 10 mánuði árs-
ins. Langflestir höfðu verið svipt-
ir réttindum með dómi vegna ölv-
unar- eða hraðaksturs en nokkrir
höfðu ekki tekið ökupróf.
Mál þeirra, sem ekið hafa sviptir
réttindum, eru send dómstólum og
sæta fyrstu brot sektum en við ítrek-
un er oft beitt varðhaldi. Ávörðun
sektarfjárhæðar er á valdi dómara í
hveiju máli en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru þær iðulega um
eða yfir 10 þúsund krónur við fyrsta
brot en hækka verulega við ítrekun.
Málum hinna, sem aldrei hafa tek-
ið ökupróf, er hins vegar lokið með
lögreglustjórasektum, samkvæmt
ákvörðun ríkissaksóknara. Við fyrsta
brot eru sektir þá tvö þúsund krón-
ur, þijú þúsund krónur við næsta
brot en við þriðja brot er mál sent
dómstólum.
EG KEMST HEIM Á
GOODYEAR
ULTRA GRIP2
Engin tilfinning er eins
notaleg og að finna að
maður hefur fulla stjórn á
bílnum sínum í vetrar-
færðinni.
Þá er gott að vita að bíll-
inn hefur staðfast grip á
veginum, og þá stendur
manni líka á sama um
veðurspána.
Goodyear Ultra Grip 2
vetrarbarðarnir eru hann-
aðir með ákjósanlega eig-
inleika til að veita gott
hemlunarviðnám og
spyrnu, hvort sem er í
snjó, hálku eða bleytu, og
þeir endast vetur eftir
vetur.
Öll smáatriði varðandi
framleiðslu hjólbarðans
— svo sem efni, bygging
og mynstur, — hafaverið
þaulhugsuð og þraut-
reynd til að ná fram há-
marks öryggi, mýkt og
endingu.
í vetur vel ég öryggið — Ég
nota hina rómuðu Good-
year tækni.
m
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
GOODJýYEAR