Morgunblaðið - 30.11.1988, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988
41
Tónleikar gegn alnæmi
Bubbi, Megas og Hörður í Háskólabíói
á miðöldum og það hefur vantað
umfjöllum um örlög þess í alla
alnæmisumræðuna. Eg tek þátt
í þessum tónleikum fyrst og
fremst til að sýna þessu fólki
samstöðu og samúð. Ég get ekki
ímyndað mér neitt hryllilegra en
hægfara dauðdaga í algerri ein-
angrun og fyrirlitningu. Mór
finnst þetta eins og að vera kvik-
settur, að vakna í kistu ofan í
jörðinni.
Viðhorf krakka er gjarnan
það að alnæmi komi þeim ekk-
ert við þar sem þeir sóu hvorki
eiturlyfjasjúkiingar eða homm-
ar.
Hörður: Þetta hefur ekkert
með homma að gera. Á svæðum
í Vestur-Afríku er kannski fjórð-
ungur íbúanna með alnæmi og
ekki er það allt hommar. Þetta
sýnir bara hve grunnt er á for-
dómunum þegar á reynir og hvað
fólk er í raun þröngsýnt. Þeir sem
sýkjast eru flestir einhleypir karl-
menn og þetta sýnir bara það
að einhleypir karlmenn eru virk-
ari en aðrir í kynlffi. Það skiptir
engu máli hvort þeir eru hommar
eða ekki, burt með svoleiðis
kjaftæði.
Er nóg að tala um hlutina?
Hörður: Umræðan hefur
byggst svo mikið á hræðslu.
Hrædd manneskja er ekki fær
um að taka við upplýsingum eða
bregðast rétt við. Hugsið ykkur
öll börnin sem horfa á auglýs-
ingar landlæknisembættisins í
sjónvarpi og tengja saman kynlíf
og dauða. Hvaða fordóma eiga
þessi börn eftir að eiga við þegar
þau verða eldri?
Megas: Fólk þarf að átta sig
á því að kynlíf er bara kynlíf og
það er sama hver gerir hvað með
hverjum. Þegar við höfum áttað
okkur á því getum við kannski
farið að gera eitthvað við al-
næmi.
Er alnæmi ekki orðið eitt af
þessum óþægilegu málum sem
fólk vill ekki tala um og fælir
það ekki fólk frá þvf að koma á
tónleikana?
Bubbi: Ef allt væri með felldu
ættum við að geta fyllt Há-
skólabíó í þrígang.
Hörður: Það gefur okkur góða
mynd af ástandinu hvernig tón-
leikarnir verða sóttir.
Megas: Það verður mjög gam-
an að sjá hvað það koma margir
á alnæmistónleika. Ætli fólk eigi
eftir að óttast það að það smitist
á alnæmistónleikum?
Ljósmynd/BS
Hörður
Umræða um alnæmi hefur
verið mikil f fjölmiðlum sem
vonlegt er, en meiningar eru
deildar um það hvort sú um-
ræða hafi verið til góðs eða ills.
Fyrir dyrum stendur að stofna
samtök áhugafólks um alnæmi
næsta mánudagskvöld og f
kvöld kl. 22.00 verða tónleikar
gegn alnæmi f Háskólabíói.
Atónleikunum koma fram þeir
Bubbi Morthens, Megas og
Hörður Torfason, en Hörður átti
hugmyndina að tónleikunum.
Blaðamaður mælti sér mót við
Bubba, Megas og Hörð á heimili
Bubba vestur í bæ og ræddi við
þá um ástæðu þess að þessir
tónleikar eru haldnir og hvort
yfirleitt sé þörf á frekari umfjöllun
um alnæmi.
Af hverju alnæmistónleikar,
er ekki nóg komið af umræðu
um alnæmi?
Hörður: Nei, það er alls ekki
komið nóg af umræðu um al-
næmi. Það verður að koma um-
ræða með léttara yfirbragð í
staðinn fyrir kjánalegan
hræðsluáróður. Það er ekkert
sorglegt að það sé að vera að
forða fólki frá því að það fái ban-
vænan sjúkdóm. Ef þú ert hins-
vegar sjúkur þá verður að hjálpa
þér að taka því.
Bubbi: Mér finnst að umræðan
hafi snúist um það að ná til fólks
sem á að baki alla ævintýra-
mennsku í kynlífi. Unglingar sem
eru á fullu í næturlífinu hlusta
ekkert á það þegar þeim er sagt
að nota smokka.
Hörður: Það er verið að tala
við afa og ömmu.
Megas: Og pipraðar frænkur
sem búa saman, þannig að þær
geti skilið og verði ekki sjokker-
aðar. Ég held að alnæmisum-
ræðunni og áróðrinum hafi verið
meðvitað hagað þannig að það
stuðaði ekki þetta fólk, sem kom
Megas
málið minnst við, á kostnað skiln-
ings þeirra sem kom málið mest
við.
Hörður: Sú leið sem hefur ver-
ið farin er vonlaus. Við vitum að
unglingar á aldrinum tólf til þrett-
án ára eru farnir að fikta við
kynlíf og við megum ekki loka
augunum fyrir því. Það verður
að koma þessum krökkum inn á
Ljósmynd/BS
það að líta á sjálfa sig sem hugs-
anlegan smitbera og alla aðra í
kring um sig.
Megas: Eitt helsta vandamálið
sem við eigum við að etja er að
siðferðiskennd (slendinga er svo
rík, þeir hafa svo sterka tilfinn-
ingu fyrir því hvað megi gera og
hvað ekki, að þessi tilraunastarf-
semi, þessi ævintýramennska og
reynslusöfnun, fer voða mikið
fram í ölæði. Þetta er svo sið-
prútt fólk að það getur ekki
stundaó tilraunastarfsemina án
þess að losa sig við rænuna, en
tilraunirnar verður að gerá, nátt-
úran krefst þess. Þar sem tilraun-
irnar eru gerðar í rænuleysi gefur
það. augaleið að þá er mikil
áhætta tekin.
Hvað með þá sem hafa
sýkst?
Hörður: Fólk sem smitast hef-
ur hér landi hefur átt ömurlegt
hlutskipti.
Bubbi: Meðferðin á því fólki
minnir á meðferð á holdsveikum
Bubbi
Gljáandi
HARKA
mcð
Kópaí
Geisla
Þvottheldni
og styrldeiki
í hámarhi.
Vddu Kópal
með gljáa við hæfi.
Seven
Seas
VÍTAMÍN
DAGLEGA
GERIÐ GÆÐA
SAMANBURÐ
LESITÍN
(^torenco
HEILDSÖLUDREIFING
Laugavegi 16, sími 24057.
Áskriftarshnim er 83033