Morgunblaðið - 30.11.1988, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 30.11.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 7 Verðk [■ *9-400.. PHILIPS býöur þessa fullkomnu samstæöu á sérstæðu verði allt til jóla. — Geislaspilari, plötuspilari, tvöfalt snældutæki, útvarpsvið- tæki, magnari og tveir hátalarar. - PHILIPS er brautryðjandinn í gerð geislaspilara; gæði, frágangur og útlit í sérflokki. • Geislaspilari. 20 laga minni, fullkominn lagaleitari ásamt fínstillingu, stafraenn gluggi. Tekur bæði 5 og 3ja tommu diska. • Plötuspilari. Hálfsjálfvirkur, 2ja hraða, 45 og 33 snúninga. • Útvarpstæki. Stafraent með 10 stöðva minni. FM sterio/mono. Sjálfvirkur leitari og fínstilling á hverri bylgju. • Tvöfalt snældutæki. Hámarks hljómgaeði. Sjálfvirk stöðvun við enda á snaeldu. Teljari. Pása. sjálfvirk upptökustilling. • Magnari. 2x40 músík -Wött. Grafiskur tónjafnari. Hljómstilling á sleða. Steríójafnvaegi á sleðastillingu. Stungur fyrir hljóðnema og heymartól. • Hátalarar. Stafraenir,40múslk-Wött. Láttu jólin hljóma með PHILIPS. ae‘S,*sp»ara. „ Star. kr. ' kr- ‘ 27-930 29-400- Heimilistæki hf ■ Sætúni 8 SÍMI: 69 15 15 Hafrtarstræti 3 SÍMI: 69 15 25 Kringlunni SÍMI: 69 15 20 í Sa*UUttífUMO v HBhBHBBBBbBHI s«B.»S'8aB.wB;maa:aM m mm WfALAUDÍO Og þá flaug Hraftiinn - saga eftir Ingva Hrafti Jónsson FRJÁLST framtak hefur gefið út bókina Og þá flaug Hrafhinn, sögu úr Sjónvarpinu eftir Ingva Hrafn Jónsson. Hann var frétta- stjóri Sjónvarpsins um þriggja ára skeið, en vikið úr starfi í aprílmánuði síðastliðnum. í bók- inn fjallar Ingvi Hrafii um þenn- an tíma og uppsögnina. „Að sjálfsögðu er þessi bók eins konar uppgjör mitt við útvarps- stjóra vegna fyrirvaralausrar upp- sagnar minnar í aprílmánuði síðast- Samgöngnráðuneytið: Löggjöf um leigubíl- stjóra í endurskoðun „VIÐ ERUM búnir að fá álits- gerðir lögfræðinga í hendurnar °g ég geri ráð fyrir að við mun- um setja þessa löggjöf alla í end- urskoðun," sagði Steingrímur Sigfússon, samgönguráðherra aðspurður um meðferð fyrsta málsins sem umboðsmaður Al- þingis gaf út álit sitt á. Gaukur Jörundsson, umboðs- maður Alþingis, komst að þeirri niðurstöðu að eitt ákvæði í reglu- gerð um hámarksaldur leigubíl- stjóra ætti sér ekki nægilega stoð í lögum, eftir að leigubílstjóri sem vikið var úr starfi vegna aldurs kvartaði til embættisins. í kjölfar þessa bað samgönguráðherra um tvær lögfræðilegar álitsgerðir, sem nú eru til skoðunar í ráðuneytinu. „Við reynum að tryggja það að þessi reglugerð verði að öllu leyti í. takt við nútímann og í samræmi við aðstæður. Það þarf að tryggja það að fullnægjandi lagastoð verði fyrir hendi til að gera þær ráðstaf- anir í þessum málum sem við viljum gera,“ sagði Steingrímur Sigfússon. liðnum,“ sagði Ingvi Hrafn í sam- tali við Morgunblaðið. „Fyrst og fremst er þetta þó saga úr Sjón- varpinu, skrifuð í opnum og léttum dúr um lífið á bakvið tjöldin og skýringar á því, sem gerðist er mér var sagt upp. Ég las það í Dag- blaðinu eftir útvarpsstjóra að ég væri þama að svala hefndarþorsta mínum. Þau ummæli eru algjörlega út í hött. Okkur greindi á um að- ferðir til stjórnunar. Að sjálfsögðu á ég rétt á því að gagnrýna það, sem ég tel miður fara í málefnum ríkisútvarpsins. Ég er einnig að skýra frá þætti ákveðinna manna, sem stuðluðu að því að ég hvarf úr starfi. Ég hef ákveðin rök og sannanir fyrir því og færi þær fram í bókinni og síðan verða menn bara að vega og meta niðurstöðuna. Hins vegar var tími minn í heild á Sjón- varpinu ákaflega ánægjulegur, tími átaka, breytinga, sigra og ánægju- stunda, þó þetta endaði svona. Ég hef reynt að gera bókina þannig úr garði, að hinn almenni lesandi skilji hvemig hlutirnir vinnast að tjalda baki hjá Sjónvarpinu og hvað gerðist í fréttastjóratíð minni. Mér virðast fyrstu viðbrögð af- skaplega jákvæð. Maður er alltaf heldur kvíðinn, þegar maður er að gefa svona hluta af sjálfum sér og leggur fyrir almannadóm, en ég var reyndar eiginlega búinn að vera Ný bók eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur; Feröaminmngar frá íjarlægiim heimshomum Ingvi Hrafii Jónsson inni í stofu hjá fólki í 10 ár. Öll viðbrögð, sem ég hef fengið ofan af Sjónvarpi hafa verið jákvæð. Menn gengu þar um brosandi í kampinn, en sumir reyndar stúrnari á svipinn en aðrir. Þannig er nú lífsins gangur," sagði Ingvi Hrafn Jónsson. Bókin er að öllu leyti unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápu hannaði friðrik Erlingsson eftir ljós- mynd Gríms Bjamasonar. Handrit og práfarkir las Þómnn Hafstein. Bókin er 218 blaðsíður að stærð og prýdd mörgum myndum, bæði í lit og svart/hvítum. Vaka-Helgafell hefur gefið út bókina Fíladans og framandi fólk eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur, rit- höfund og blaðamann. Undirtitill bókarinnar er: Á ferð með augna- blikinu um fjarlæg lönd. I kynningur forlagsins segir m.a.: „Jóhanna Kristjónsdóttir byggir að miklu leyti á dagbókum sem hún hefur haídið í ferðum sínum til fjar- lægra landa sem fáir íslendingar hafa heimsótt og mörgum er jafnvel hulið hvar eru á hnettinum. Jóhanna lýsir á einkar lifandi hátt hvemig hún skynjar hvem viðkomustað og speglast í frásögninni óvenjuleg lífsreynsla og sérkenni þjóða og landa. I bókinni kemur glöggt fram að hún lætur sér fátt fyrir bijósti brenna og lendir í ýmsu sem fjarlægt er venjulegu ferðafólki í sumarleyfi- slöndum. Fílar dansa, farið er í kapp- reiðar á úlföldum, sandbyljir geisa í kringum Jóhönnu og óvænt lendir hún í kúlnahríð svo að fátt eitt sé nefnt. Bókin skiptist í 13 þætti og gefa heiti þeirra til kynna fjölbreytni efnisins. Má þar nefna: Rauðhærðir svertingjar, Redford og erfðaprins- inn; Drottningin af Saba, Gatttugg- urnar og Arafat; Bað í höll súltans- ins og Sofið undir stjömum. Jóhanna Kristjónsdóttir hefur gert Jóhanna Kristjónsdóttir víðreist á liðnum árum og oft fjallað um ferðir sínar og fréttnæma at- burðir sem þeim tengjast í Morgun- blaðinu en hér er skyggnst bak við fréttirnar og ferðagreinamar. í bók- inni Fíladans og framandi fólk býður Jóhanna Kristjónsdóttir lesandanum að slást í för með sér um ævintýra- slóðir meðal annars í Oman, Djibuti, Burma, Sri Lanka, Norður-Jemen og Bangla-desh.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.