Morgunblaðið - 30.11.1988, Síða 25

Morgunblaðið - 30.11.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1988 25 / Reuter Suður-Afríka aðstoðar Mozambík Suður-Afríkumenn hafa hætt stuðningi við skæruliðasamtökin Renamo í Mozambík og styðja nú sijórnvöld í höfúðborginni, Maputo, með ýmsum hætti. A myndinni sést suður-afrískum herflutn- ingabíl skipað á land í hafharborginni Beira. Skæruliðar hafa m.a. valdið skemmdum á 1.400 km langri raforkulínu sem liggur frá Cahora Bassa-orkuverinu til Suður-Afríku, sem keypt hefúr raforkuna, og hefúr Maputo-sijórnin orðið af miklum tekjum vegna þessa. Ríkin tvö hyggjast nú láta gera við linuna i sameiningu. • • Qldungadeild Bandaríkjaþings: George Mitchell kjör- inn leiðtogi demókrata Washington. Reuter. GEORGE Mitchell, þingmaður frá Maine, var í gær kjörinn leiðtogi Demókrataflokksins i öldungadeild Bandaríkjaþings. Mitchell, sem er 55 ára að aldri og þykir fremur fijálslyndur hefúr gegnt ýmsum trúnaðarstörfúm á vegum Demókrataflokksins og stjórnaði meðal annars kosningabaráttu flokksins Mitchell tekur við starfinu af Robert Byrd sem haft hefur það með höndum undanfarin 12 ár. Embætti þetta er hið valdamesta í öldungadeildinni þar sem leiðtogi þess flokks sem hefur meirihluta hveiju sinni stjórnar í reynd með- ferð þingdeildarinnar á þeim laga- frumvörpum sem lögð eru fram. 100 þingmenn eru í öldungadeild- inni, tveir frá hverju ríki og hefur Demókrataflokkurinn 55 menn í deildinni en repúblíkanar 45. Auk Mitchells höfðu tveir þing- menn til viðbótar látið í ljós áhuga á að hreppa embættið; J. Bennetty Johnston frá Louisiana og Daniel Inouye frá Hawaii. Þingmennirnir 55 komu saman í gær á lokuðum fundi og fékk Mitchell 27 atkvæði, að sögn heimildarmanna Reuters- fréttastofunnar. George Mitchell þykir vel að veg- semdinni kominn. Hann var form- aður kosninganefndar Demókrata- flokksins er kosið var til öldunga- deildarinnar árið 1986 en þá bætti flokkurinn við sig 11 sætum og náði meirihluta í deildinni. Sjálfur var Mitchell kjörinn á þing árið 1982 og þar sem kjörtímabil öld- ungadeildarþingmanna er sex ár í þingkosningunum árið 1986. sóttist hann eftir endurkjöri í ár. Hann sigraði keppinaut sinn með miklum yfirburðum og hlaut um 80 prósent greiddra atkvæða. Mitchell átti sæti í þingnefnd sem stjómaði vitnaleiðslum á síðasta ári er uppvíst varð um leynilega vopna- sölu bandarískra embættismanna til klerkastjómarinnar í Iran. Vitna- leiðslunum var sjónvarpað og þótti frammistaða Mitchells sannfær- andi. Hann ritaði bók um vopna- sölumálið ásamt William Cohen, sem einnig situr í öldungadeildinni sem fulltrúi Maine-ríkis. Mitchell lauk lögfræðinámi frá Georgetown-háskóla í Washington árið 1960 og starfaði bæði sjálf- stætt og á vegum hins opinbera þar til hann varð dómari i heimaríki sínu árið 1979. Ári síðar tók hann sæti í öldungadeildinni er Edmund Muskie sagði af sér þingmennsku og tók við embætti utanríkisráð- herra í stjórn Jimmy Carters þáver- andi Bandaríkjaforseta. Lögum samkvæmt bar ríkisstjóra Maine þá að tilnefna eftirmann Muskies og valdi hann George Mitchell. Kjörtímabili Muskies lauk árið 1982 og afréð Mitchell þá að bjóða sig fram eins og fyrr sagði. Manntal í Vestur-Þýskalandi: Iimflytjendimi Qölgaði um 70% 1970 til 1987 Bonn. Reuter. Á ÁRABILINU 1970-1987 Qölgaði útlendingum í Vestur-Þýskalandi um 70% á sama tíma og innfæddum Þjóðveijum fækkaði, að sögn Friedrichs Zimmermanns, innanríkisráðherra Vestur-Þýskalands. Samkvæmt manntali sem framkvæmt var 1987 eru Vestur-Þjóðveij- ar 61,082,800 talsins og hefiir þj í síðasta manntali árið 1970. Að sögn ráðherrans er fjölgunin rakin til útlendinga sem hafa flutst til landsins. Innflytjendum hefur fjölgað úr 2,4 milljónum í 4,1 millj- ón. Tyrkir eru stærsti innflytjenda- hópurinn. „Útlendingum hefur ijölgað um 182,000 manns frá því í maí 1987,“ sagði Zimmermann. Imni fjölgað um 432.000 frá því Innfæddir Vestur-Þjóðveijar voru 56,9 milljónir árið 1987 en 58,2 milljónir árið 1970. í manntalinu 1987 kemur fram að meðalaldur þjóðarinnar hefur hækkað. Hlutfall Þjóðveija undir 15 ára aldri lækkaði í 15% úr 23% þjóðarinnar en Þjóðveijum 65 ára og eldri fjölgaði úr 13% í 15%. þá er hann hófsamur. Ég get ekki fallist á að hann sé hófsamur. Ef til vill er hann örlítið minni hryðjuverka- maður en aðrir leiðtogar PLO.“ — En við hvem annan geta ísrael- ar samið? „Það er einmitt vandinn. Ef Araf- at segði: „Allt er til umræðu," og lýsti því yfír að hann vildi frið og fordæmdi hryðjuverk og viðurkenndi tilverurétt ísraels þá væri hægt að semja við hann. Leiðtogar Palestínu- manna eru ekki nógu hugrakkir. En það er fyrst og fremst vandi Pal- estínumanna ef þeim tekst ekki að hafa hemil á öfgamönnum." Ánægðir með landamærin frá 1967 — Hver er munurinn á baráttu Palestínumanna með tiltækum með- ulum við gyðinga og baráttu manna eins og Shamirs og Begins í frelsis- stríði Israels? „Þessir menn börðust við Breta fyrir útgönguleið fyrir gyðinga úr Evrópu til Palestínu. Sjálfur er ég ekki sammála þeim aðferðum sem þeir beittu en um leið og Bretar yfír- gáfu Palestínu létu þeir af hryðju- verkum. Það er ekki hægt að bera saman stöðu Palestínumanna nú og gyðinga þá. Hvergi fer fram skipu- lögð útrýming araba.“ — Ef litið er á málin frá sjónar- hóli Palestínumanna þá segjast þeir eiga jafn mikinn rétt á eigin ríki og ísraelar ef ekki meiri. Þessu svarar Yitzhak Shamir forsætisráðherra ísraels með því að segja að hann muni aldrei fallast á tilveru ríkis Palestínumanna vestan Jórdanárinn- ar. Er þetta ekki ósveigjanleiki? „Shamir er ekki eilífur. Hann seg- ir einnig að hann sé reiðubúinn til friðarviðræðna. Munurinn á Verka- mannaflokknum og Líkúdflokknum er ekki grundvallarmunur heldur endurspeglar hann tæknilegan mun á útfærslu friðar við arabaríki. ísra- elar eru meira og minna ánægðir með landamærin frá árinu 1967 með minniháttar breytingum af öryggis- ástæðum." — Er ástæða til að hafa áhyggjur af vaxandi áhrifum strangtrúaðra í Israel og dvínandi áhrifum Verka- mannaflokksins? „Sem talsmaður frelsis er ég ánægður með að rödd trúarflokka skuli heyrast í Knesset. Ég hef meiri áhyggjur af heittrúarmönnum í Egyptalandi og íran heldur en í ísra- el. Ég tel að þetta verði ekki vanda- mál i ísrael. Stefna trúarflokkanna þar er ekki að leggja ísrael niður. Nái þeir yfírhöndinni verða gyðingar fyrir barðinu á því en ekki arabar. En fyrir heittrúarmönnum meðal araba erum við heiðingjar og þeir vilja leggja undir sig gjörvöll Mið- austurlönd." íslandsmótið í 1. deild SKEMMTUGUR 7. umferð í dag, miðvikudag ÍBV-Stjarnan. Kl. 20:00, Vestmannaeyjum Grótta-Fram. Kl. 20:00, Digranesi K.A. - U.B.K. Kl. 20:00, Akureyri Víkingur—Valur.KI. 20:15, Laugardalshöll Á morgun, fimmtudag ' K.R. - F.H. Kl. 20:00, Laugardalshöll Fylgjumst með spennandi íþrótt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.