Morgunblaðið - 15.01.1989, Síða 4
4 r.C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989
Skyggnst
inn í
Jgj?4
á um starfssvið og skipulag.
Lög um Rannsóknarlögreglu
ríkisins voru sett árið 1976, þegar
róttækar breytingar voru gerðar á
skipan rannsóknarvalds og réttar-
fars í opinberum málum. Markmið
þessara breytinga var fyrst og
fremst aðgreining dómsvalds og
rannsóknarstjómar, en áður var
rannsóknarlögreglan í Reykjavík
undir stjóm Sakadóms og yfirsaka-
dómari var yfírmaður hennar. Sam-
kvæmt lögunum hefur RLR með
höndum lögreglurannsóknir brota-
mála í Reykjavík og nágranna-
byggðarlögunum, að því leyti sem
þær eru ekki í höndum lögreglu-
stjóra þar, en helstu málaflokkar
sem falla undir rannsóknardeildir
viðkomandi umdæma em umferðar-
slys og brot á umferðarlögum, brot
á lögreglusamþykktum, brot á
áfengislögum, önnur en þau, er
varða ólögmætan innflutning
áfengis og brot á lögum um tilkynn-
ingar aðsetursskipta. Rannsókn á
þorra hinna alvarlegri mála, sem
upp koma á höfuðborgarsvæðinu,
em hins vegar í höndum RLR. Auk
þess skal RLR veita lögreglustjór-
um og sakadómumm, hvar sem er
á landinu, aðstoð þegar þeir óska
og rannsóknarlögreglustjóri eða
ríkissaksóknari telja það nauðsyn-
legt. Ennfremur getur rannsóknar-
lögreglustjóri að eigin framkvæði
tekið í sínar hendur rannsókn máls
utan höfuðborgarsvæðisins og sker
ríkissaksóknari úr ágreiningi, sem
kann að rísa á milli hans og viðkom-
andi lögreglustjóra í sambandi við
lögreglurannsókn.
Auk rannsóknarlögreglustjóra
starfa þrír lögfræðingar hjá RLR,
Þórir Oddsson vararannsóknarlög-
reglustjóri, og deildarstjóramir
Amar Guðmundsson og Jón H.
Snorrason. Eiginlegar rannsóknar-
deildir, sem annast yfirheyrslur, em
ljórar og nánar um skipulag og
deildaskiptingu innan RLR er vísað
í meðfylgjandi útdrátt og skipurit.
Dæmisaga um rannsókn
innbrotamáls
Til að átta okkur betur á rann-
sóknarferli afbrotamáls og starfs-
sviði rannsóknarlögreglumanna
skulum við taka eftirfarandi dæmi-
sögu:
RLR berst tilkynning um innbrot
í einbýlishús. Þetta er á sunnudags-
kvöldi og rannsóknarlögreglumaður
fer þegar á staðinn. Fjölskyldan
hafði farið að heiman á föstudag
til helgardvalar í sumarbústað og
uppgötvað innbrotið við heimkom-
una. í upphafi rannsóknarinnar
styðst rannsóknarlögreglumaður-
inn við eftirfarandi staðreyndir:
Húsið er í götu þar sem ekki em
mörg hús og ekki mikil umferð.
íbúar, sem ekki hafa hreyft við hlut-
um á innbrotsstað eftir heimkom-
una, upplýsa að sjónvarp, mynd-
bandstæki og hljómflutningstæki
hafí horfið, og gefa ennfremur upp
tegundanafn og serialnúmer. Einn-
ig upplýsa heimilismenn að brotin
hafí verið upp læst skúffa í skrif-
borði og þaðan horfíð bankabók á
tiltekinn banka, eitthvað af íslensk-
um peningum og ákveðin upphæð
í erlendum gjaldeyri. Ennfremur
tékkhefti á ákveðinn banka og
•. ■>.* .*
0
PtNflY FACIAL IMNTinCATlOH TECHNIQllt BASIC FACIAL OUTUNES
i
f 1 n ■ ■ 0 n n n n t W f • 0 © t
t 1 ) W n n w n n o n o f n w t 0 é 0 t
t 1 \ w 0 0 • 0 n "J 0 t n 0 © § t
t ( \ w n w 0 n w n n ■j © n w \/ / f ö 0 t
0 n w n o n n o t n fl o t t Æh, { > v.y 0
t 1 í w 0 n w 1 t w 1 0 m 1 0 n #
t f 0 0 0 n w 0 t n o n o © ’W t ö © é
t n Q 0 o n:n 0 J n n w n 'W' ó 0 ^0^ w
Leit að grunuðum manni hefst oft með því að vitnið þarf að raða andlitsdráttum inn í spjald, sem hér
sést talsvert smækkað. Þetta er gert þegar vitnið fínnur ekki mynd af viðkomandi í myndasafni RLR.
BOGI
NILSSON
tók við starfi rannsókn-
arlögreglustjóra ríkis-
ins af Hallvarði Ein-
varðssyni árið 1986.
Hann er lögfræðingur
að mennt, fyrmm sýslu-
maður í Suður-Múla-
sýslu.
ÞÓRIR
ODDSSON
vararannsóknarlög-
reglustjóri hóf störf
sem fulltrúi yfírsaka-
dómara í Reykjavík að
loknu lagaprófí 1968 og
var skipaður aðalfull-
trúi 1973. Hann var
skipaður aðalfulltrúi við
embætti rannsóknar-
lögreglustjóra ríkisins
við stofnun þess
embættis 1977 og 1978
var hann skipaður vara-
rannsóknarlögreglu-
stjóri.
HELGI
DANÍELSSON
yfirlögregluþjónn hóf
störf í lögreglunni á
Akranesi árið 1964,
varð rannsóknarlög-
reglumaður hjá rann-
sóknarlögreglunni í
Reykjavík 1972 og hef-
ur starfað hjá RLR allt
frá stofnun hennar
1977. Hann var skipað-
ur yfírlögregluþjónn
1984 er Njörður Snæ-
hólm lét af því starfí.
RAGNAR
VIGNIR
aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn á að baki lengst-
an starfsaldur í Rann-
sóknarlögreglunni, eða
36 ár. Hann hóf störf
hjá Rannsóknarlögregl-
unni í Reykjavík 1952
og hefur starfað við
rannsóknir brotamála
allargötursíðan.
ARNAR
GUÐMUNDSSON
deildarstjóri hóf störf
við Fíkniefnadómstól-
inn er hann lauk laga-.
prófi 1973ogkomtil
starfa hjá RLR árið
1978.
JON H.
SNORRASON
deildarstjóri hóf störf
hjá RLR árið 1979, en
hann varþáílaga-
námi. Að loknu prófí
1984 var hann ráðinn
fulltrúi rannsóknarlög-
reglustjóra og síðan
skipaður deildarstjóri
1987.
SKIPlLAt; OG DIII.DASKIPHNG
Eiginlegar rannsóknar-
deildir, sem annast yfir-
heyrsiur, eru flórar:
I. deild
rannsakar aðallega svokölluð of-
beldisbrot, það er manndráp og
líkamsmeiðingar, nauðganir, sif-
skapar- og skírlífsbrot, brot gegn
frjálsræði manna og friðhelgi
einkalífs, og ennfremur rán, þegar
líkamsmeiðingar em afgerandi
þáttur í brotinu og voveifleg
dauðsföll. Deildin vinnur undir
stjóm Þóris Oddssonar vararann-
sóknarlögreglustjóra og auk þess
starfa þar einn lögreglufulltrúi og
fimm rannsóknarlögreglumenn.
II. deild
annast ýmis auðgunarbrot, nema
þjófnað, gripdeild og rán. Undir
deildina falla því fjármunabrot af
ýmsu tagi svo sem fjársvik, íjár-
dráttur, gjaldþrotamál og fölsun,
nema fölsun tékka og úttektar-
seðla við greiðslukortaviðskipti.
Deildarstjóri er Amar Guðmunds-
son og með honum starfa tveir
Skipurit af núverandi boðvaldskerfi innan RLR. Unnið er að ákveðnum breytingum á þessu
kerfi, sem ekki er unnt að greina frá á þessu stigi.
HUHUUí.HtTUHLikliHiUiUlUUiUÍHUliiniliUiÍHimiUi I