Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 24
24 C MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 M Um 12% fleiri á aldrinum 15 til 24 ára horfa á fréttir Stöðvar 2 en Sjónvarps og um 8% fleiri á aldrinum 25—40 ára, samkvæmt fjölmiðlakönnun Félagsvísindastofhunar Háskóla íslands Keppnin um kynslóðirnar ALLT frá því að Stöð 2 hóf útsendingar og fréttastofur sjón- varpsstöðvanna fóru að beijast um augu og eyru eyjarskeggja hefur verið til sú trú á Sjónvarpið horfi frekar eldri hluti þjóðar- innar en sá yngri. Fjölmiðlakannanir Félagsvísindastofiiunar Háskóla íslands hafa á margan hátt staðfest þessa trú. í síðustu könnun sem var unnin 3. til 5. desember kemur í þ'ós að um 38% landsmanna horfir að meðaltali á fréttir Sjónvarps en um 30% á fréttir Stöðvar 2. Um 63% þeirra sem horfði á sjónvarp þessa daga voru fertugir eða yngri. í þessum aldurshópum voru frétt- ir Stöðvar 2 talsvert vinsælli, — einn af hveijum tíu á þessum aldri horfði frekar á einkafréttastofima. essar niðurstöður geta svo sem þýtt það að Stöð 2 eldist af fólki og að eftir því sem fólk þroskist því líklegra sé að það horfi á ríkisskjáinn. Leyfi RUV- menn sér að hugsa á þennan hátt þá verður það að teljast ósk- hyggja. Þegar talað er um ald- urshópa er rétt- ara að tala um kynslóðir. Með því móti er það undirstrikað að viðhorf, stíll og hugmyndafræði sé eitthvað sem fylgir fólki og þróast samhliða því, frekar en að við ákveðinn aldur skipti fólk um hugmynda- fræðilegt og menningarlegt um- hverfi. Þar sem sjónvarpsefni er menningarleg afurð og reyndar um leið áburður, þá hafa mismun- andi kynslóðir samsvarandi af- stöðu til þess. Þeir sem eru nú á aldrinum 40 til 60 ára og horfa flestir á Sjónvarpið tilheyrðu yngri kynslóðunum um það leyti sem íslenskt sjónvarp hóf göngu sína. Þeir hafa haldið tryggð sinni við Sjónvarpið. Því er eins líklegt að Stöð 2 takist að halda í kynslóð- imar sem fæddar eru eftir seinni heimsstyijöld, amk. þarf Sjón- varpið að vinna þær yfir. Sú ímynd hraða, nútíma, léttleika og breyti- leika sem Stöð 2 hefur náð að skapa á rætur sínar að rekja til þeirrar hugmyndafræði sem hefur sett mikinn svip á umræddar kyn- slóðir. Sjónvarpið byggir frekar á klassískari gildum og fastheldni. í síðari fréttum Sjónvarps kveður við annan tón. Þar er augljóslega verið að reyna aðra ímynd og annað yfirbragð. Þar sem þær eru nýbyijaðar og könnun Félagsví- sindastofnunar náði einungis til eins slíks fréttatíma er erfitt að segja eitthvað til um áhorf þeirra. Þó kom fram í könnuninni að eldri kynslóðir horfðu hlutfallslega meira á þær en yngri kynslóðir. Eldri kynslóð- ir hlusta meira á fréttir Útvarps- ins en þær yngri. Því er akkúrat öfugt farið hvað varðar fréttir Bylgjunnar og Stjörnunnar. Mikill meirihluti hlustenda frétta þeirra em undir fertugsaldri. 17% aðspurðra á aldrinum 15—24 ára hlýddu á sex-fréttir á Bylgunni og Stjöm- unni en 11% sama aldurshópar á sjö-fréttir á samtengdum rásum Útvarps, samkvæmt margnefndri könnun. Einungis 5% fleiri á aldr- inum 25—40 ára hlýða á kvöld- fréttir Útvarps á samtengdum rásum en samanlagt á sex-fréttir Bylgjunnar og Stjömunnar. Það er því tjóst að þrátt fyrir margyí- slega yfirburði fréttastofu Út- varps þá á hún í mjög harðri sam- keppni við litlu einkafréttastof- umar um eym kynslóðanna sem í heiminn komu eftir stríð. Vandi Útvarps er því sömu náttúm og Sjónvarps, þó svo hann sé ekki eins áþreifanlegur. Yngri hluti íslensku þjóðarinnar borðar ekki kvöldverðinn klukkan sjö og hlustar andaktugur á frétt- ir Útvarps, þaðan af síður hendir hann sér í þægilegan stól og dæs- ir yfir átta-fréttum sjónvarps. Lest nýrra kynslóða æðir hjá. Reikna ríkisfréttastofumar með henni aftur um síðir? Hafa þær etv. misst af henni? BAKSVID eftir Ásgetr Fridgeinson Ritstjóm Fréttabúa, Eyþór Ólafs- son, Sæunn Sigurlaugsdóttir og Jón Þ. Helgason, og forsíður blaðsins. á rauða nótt við útgáfuna og stofan eins og eftir sprengjuárás að vinnu lokinni, að sögn Eyþórs. „Þetta væri illmögulegt ef ekki væru svo jákvæðar undirtektir hjá bróður mínum sem býr hér með mér félags- búi, og sambýliskonu minni, en hún vinnur að þessu af lífí og sál,“ sagði Eyþór. Blaðið er unnið á ritvél og síðan ljósritað, en Eyþór sagði að draum- urinn væri að'eignast tölvu til að Blaðaútgáfa með búskapnum Stöðugt gerast atburðir / öllum sveitum landsins sem stærri blöð minnast ekki á, en heimamönnum þykja fréttnæmir. Eyþór Ólafsson bóndi á Skeiðflöt og hreppstjóri í Mýrdalshreppi, ákvað að bæta úr þessu í sinni sveit, og haustið 1985 ieit fréttabréf hans, „Frétta- búi“, dagsinsljós. Varþað ífyrstu aðeins einblöðungur afstærðinni A4, en er nú orðið myndarlegt rit upp á 20 síður. Hugmyndina að fréttabréfinu fékk Eyþór þegar stjóm Bún- aðarfélags Dyrhólahrepps þurfti að koma orðsendingum til bænda á svæðinu. Datt Eyþóri þá í hug að gaman væri að senda út fréttabréf, og var því svo vel tekið að áskrif- endur em nú orðnir 300 og fjölgar stöðugt. Útgáfa blaðsins hefur hvílt á Eyþóri og sambýliskonu hans, Sæunni Sigurlaugsdóttur, en Mýr- dalshreppur hefur veitt þeim dálít- inn styrk. Tæp vika fer í vinnu við hvert blað og tekur því ríflegan tíma frá búskapnum, en oft er unnið fram vinna blaðið í. Jólablaðið hefur þó verið prentað og sá kostnaður verið greiddur með tekjum af auglýsing- um. Meðal efnis í blaðinu em fréttir úr nærsveitunum, en þar hefur „Fréttabúi" á flestum stöðum fréttaritara, ritstjóraspjall, pistill frá sóknarpresti, félagsmálasíða, viðtöl, þættir um hollustuhætti, sagt frá bamsfæðingum og skímum, minningargreinar og margt fleira. Auk þess er síða fyrir yngri kynslóðina, „Barnabúi", sem Jón Þ. Helgason, sonur Sæunnar sér um. Blaðið kemur út mánaðarlega nema um háannatímann í kringum sláttinn.„Enda verið unnið sem hug- sjónastarf en ekki til að hafa út úr því vinnulaun," sagði Eyþór. Um 76% nememhi lesa Morgunblaðið duglega Lestur einstakra greinarflokka var misjafn samkvæmt könnuninni, en hvers konar léttmeti reyndist hvað vinsælast. Engin merkjanlegur munur var á kynjum eða aldri í þessu sam bandi, nema hvað piltamir virðast lesa íþróttir meira en stúlkumar. Mesti munurinn var á stjörnuspánni, en um 28% sögðust lesa hana, ásamt stjömu spekidálkum Mbl., og af þeim voru 80% stúlkur, en 20% piltar. Samkvæmt könnuninni hefur Bylgj- an mesta hlustun útvarpsstöðvanna eða um 63%, Stjaman hefur um 34% hlustun samkvæmt könnuninni og Útrás, útvarp framhaldsskólanema um 17%. Aðrar stöðvar höfðu mun minni hlustun samkvæmt könnuninni. Hlustun á fréttir eftir stöðvum var þó misjöfn og sögðust um 63% hlusta nokkuð oft á fréttir Bylgjunnar, en um 50% á fréttir Ríkisútvarpsins og var þar aðallega um eldri nemendur að ræða. Um 37% sögðust hlusta á Stjömufréttir. UM 76% nemenda Menntaskól- ans við Hamrahlíð les Morgun- blaðið daglega ef marka má nið- urstöður skoðanakönnunar, sem gerð var í skólanum nýlega. Sam- kvæmt könnuninni lesa 35% nem- enda DV daglega en önnur blöð voru lítið lesin samkvæmt könn- uninni, um 12% sögðust lesa Tímann eða ÞjóðvHjann einu sinni til tvisvar í viku. Myndlyklar eru, samkvæmt könn- uninni, til á rúmlega helmingi heimila og af þeim sem höfðu myndlykil sögð- ust um 70% taka Stöð 2 fram yfir RÚV, 10% tóku RÚV framyfir, en 20% horfðu jafnt á báðar stöðvar. Fréttir stöðvanna komu nokkuð jafnt út. Kvikmyndir em lagnvinsælasta efnið í sjónvarpinu og einnig em skemmti- þættir, íþróttir og tónlistarþættir vin- sælir. Um 70% nemenda MH sögðust hafa myndbandstæki á sínu heimili og um 72% horfa á myndband einu sinni til þrisvar í mánuði. Um 5% sögð- ust horfa á myndbönd daglega. Mest er horft á gamanmyndir. Könnunin var gerð í lok október síðastliðinn og að henni stóðu nokkrir nemendur skólans sem leggja stund á fjölmiðlun, undir leiðsögn kennara síns, Adolfs H. Petersen. Ekki reynd- ist unnt að spyija alla nemendur skól- ans heldur var spumingalistum dreift meðal nokkurra námshópa þannig að aldurs- og kynskipting yrði sem sem jöfnust. Úrtakið varð því um 20% af öllum nemendum skólans, eða samtals um 130 manns. „Þoð sem fólkið vill“(?!) OKSINS! LOKSINS! Ég leyfí mér að taka mér í munn þessi frægu orð á þessum tíma- mótum. Nú um helgina verða jólaplötur útvarpsstöðvanna loksins teknar og þeim pakk- að niður í geymslu til næstu jólahrotu. Hinar svokölluðu jólaplötur, ætti ef til vill að segja. Þeir eru að minnsta kosti margir sem reyta hár jitt og skegg þegar jólatón- list nútímans skellur yfír, og það jafnvel í nóvember. Arg- ir og reiðir yfír því að út- varpsstöðvamar skuli allar keppast við að dæla yfir landslýð þessu endalausa jóladiskói. Ef ekki diskói, þá einhverri framleiðslu svo- kallaðra skemmtikrafta, þar sem þeir spilla anda jólanna með útúrsnúningi og fífla- gangi. Það var ekki furða þótt fyrir þessi jól væri aug- lýst plata með jólalögunum „eins og þau eiga að vera“! Þessi jólatónlist er trúlega meðal þess sem Qölmiðlafólk nútímans fullyrðir — ogjafn- vel trúir sjálft — að sé það sem fólkið vill. En þetta sama fjölmiðlafólk gleymir því — eða þegir yfír því — að það getur hæglega ráðið því hvað fólkið vill. Um það eru fjölmörg dæmi. Þannig hafa til dæmis útvarpsmenn víða um heim getað stýrt vinsældavali. Hér á landi hefur komið fyrir að tiltekin dægurlög hafa verið ræki- lega kynnt líkleg til vin- sælda og leikin aftur og aft- ur uns hlustendur hafa tekið að trúa því að um vinsælt verk og merkilegt sé að ræða. Er þá furða þótt spurt sé hver vill hvað, eða efast um þann vilja fólksins, sem útvarpsmönnum verður tíðrætt um? Máttur útvarps er mikill og ábyrgð þeirra sem þar eru við störf er stór. Á okkar tímum ræður tíska miklu. Fjölmiðlar fara ekki varhluta af þessu. Það hefur orðið deginum ljósara eftir að útvarps- og sjón- varpsstöðvum fjölgaði. Áður skipti efni miklu máli en nú er það orðið hálfgert aukaat- riði. Mestu máli skiptir stíllinn. Hann er á undan- haldi sá fréttastíll að segja á greinargóðan hátt allýtar- lega frá því sem um er að ræða. Þess í stað eru fréttir stuttar og margar, lesnar hátt og lesnar hratt og allar á sama veg. Og það litla sem eftir stendur í huga hlustan- dans og áhorfandans er að nú eru íslenskir fréttamenn farnir að hanga eins og amerískir slúðurberar yfir hveiju fótmáli stjórnmála- stjarnanna. Alvaran dvín og virðing fyrir viðmælandan- um hverfur. Kurteisi gamal- dags. Það er jafnvel orðið flott að sýna hvað fréttamað- ur er klár að rífast við við- mælanda sinn! Og einhveijir trúa því að hér sé verið að birta það sem fólkið vill. Eru hvatir íslendinga svona lág- ar? Eða virðing fyrir áheyr- andanum þorrin? Viðtals- og skemmtiþættir eru líka fjötraðir í tísku hrað- ans. Alltof sjaldan gefur spyijandi viðmælanda tæki- færi til að segja frá. Viðtals- þættir eru keyrðir svo hratt áfram að þar spinnst lítil frá- sögn og engar samræður. Fyrirfram ákveðnum spurn- ingum er skotið á viðmæ- landa — og svo er tími okkar því miður á þrotum, rétt um það bil sem hann er að kom- ast í gang að segja frá. Þeg- ar upp er staðið hefur spyij- andinn jafnvel haft orðið lengur en sá sem átti að tala! Tískan er að hafa mörg at- riði og stutt en alls ekki fá og löng. Þar að auki er hið fjölþætta skemmtiefni í flest- um tilfellum duldar auglýs- ingar, um nýja plötu, nýja bók, fyrirtækið sem gefur verðlaunin og svo framvegis. Áhrif útvarps og sjónvarps eru mikil og ábyrgðin stór. Ef til vill er ábyrgðin á með- ferð íslensks máls stærst og brotalamir þar flestar. Það mundi æra óstöðugan að tina hér til allar málvillur sem ég hef skráð hjá mér í jóladag- skrá. Á Rás 2 sagði maður sem fjallaði um það að skemmta sér: ...hversu mér kveið fyrir... í Sjónvarpinu var í hroðvirknislegum ungl- ingaþætti sagt frá styttum sem krefðust ríkisborgara- rétts, og líka: Mér er farið að hlakka tii, og síðar: ...óska ykkur gleðilegra jóla og far- sælt komandi árs. Og á gömlu Gufunni var tíðinda- maður á tali við vígslubiskup á Hólum: Hér er mikið skímarsár. Hvað getur þú sagt mér um það(!) Ég vona að mér hafi stundum misheyrst, og þetta sé í það minnsta ekki það sem fólkið vill. Sverrir Páll Erlendsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.