Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 C 15 utan eins lags þar sem röddin er notuð eins og hljóðfæri. Það er bandaríski söngvarinn Roby Duke sem syngur með Mezzoforte; „stór- furðulegur náungi", að sögn strák- anna. „Mannsröddin er mjög sveigj- anlegt hljóðfæri og býður upp á ýmsa möguleika. En við erum eng- ir textahöfundar, teljum okkur ekki hafa neitt að segja í textum. Við getum sagt miklu meira með hljóð- færum. Það eru engar djúpar hug- leiðingar fólgnar í músíkinni, það á að vera gaman að hlusta á hana. Hljóðfæraleikaramir fá að njóta sín, tónlistin á að gera kröfur til hlust- andans jafnt sem tónlistarmanns- ins. Eitt það skemmtilegasta við að hlusta á svona músík er að heyra hvað samspilið er úthugsað. Við höfum sjálfír aidrei sungið á plötu og til þess kemur ekki. Það er full- reynt með okkar takmörkuðu söng- hæfileika." Svílqum ekki lit Munuð þið einbeita ykkur að ákveðnum áheyrendahóp? „Það hefur reynst erfitt að skil- greina okkur. Við eram fyrst og fremst „instramental" hljómsveit en við höfum náð út fyrir hinn venjulega áhorfendahóp slíkra hljómsveita, sem er mestmegnis tónlistarmenn og „músíkfrík". Við sjáum alls kyns fólk á tónleikum. Við fengum bandarískan upptöku- stjóra m.a. til þess að færa tónlist- ina nær bandarískum markaði án þess þó að við séum að svíkja lit. En við munum auðvitað halda tryggð við okkar áheyrendahóp. Platan sýnir það sem við geram best. Við viljum frekar vera „instra- mental band“ sem skrarar fram úr en hafa söng og hverfa í poppið. Það var okkar eigin hugmynd að nota söngvara og einnig að hætta því. Okkur var sagt að þegar söngv- arinn birtist á sviðinu á tónleikum breyttumst við í hveija aðra undir- leikara. Öll einkenni hljómsveitar- innar hyrfu. Engin hljómsveit hljómar eins og við. Auðvitað hefur fjöldi tónlistar- manna haft áhrif á okkur. en við höfum dulbúið það mjög vel. Svo höfum við heyrt í hljómsveitum úti í heimi, sem era undir greinilegum áhrifum frá okkur. Fyndnast var þó að heyra norska lúðrasveit leika Mezzofortelag á góðgerðarsam- komu. Þetta er sama gamla sagan um það að gangi einhveijum vel, þá reyna svo margir að fylgja í kjölfarið. Við eram hættir að beija höfðinu við steininn og reyna að semja smelli. Við treystum frekar á stöð- ugri markaði, eram búnir að gefa alla „súperstjörnudrauma" upp á bátinn. Við teljum okkur vera með fyrsta flokks efni í höndunum þó að við séum varla dómbærir á ár- angurinn. Ætli við séum ekki búnir að heyra hvert lag svona 3000 sinn- um, svo að í hvert skipti sem ein- hver nýr kemur inn í stúdíóið, mænum við á hann í ofvæni til að sjá viðbrögðin. Þau era góð, sér- staklega var ánægjulegt að sjá við- brögð útgefendanna. Bestu hugmyndirnar fyrir aðra Það hefur liðið töluverður tími milli platna. Bæði vegna þess að við ákváðum að vanda okkur mjög við þessa plötu og svo era tónleika- ferðirnar tímafrekar. En síðast en ekki síst voram við komnir á kaf í að spila undir hjá öðram. Það var erfitt að bijótast út úr þeirri rútínu og við vorum lengi að hreinsa upp eftir okkur slóðina af gefnum lof- orðum. Við eram búnir að fá nóg af undirleik og vildum gjarnan minnka hann við okkur. Það er svo auðvelt að nota allar bestu hug- myndirnar sínar fyrir aðra. Árið 1988 var fyrir íslenska bransann en 1989 verður helgað Mezzoforte." Auk Mezzoforte hafa Sykurmol- arnir einir íslenskra hljómsveita náð verulegri athygli erlendis. „Sykur- molamir og við eram í sitt hvorum endanum í poppinu. Það segjr okk- ur að meðalvegurinn sé ekki besta leiðin til að komast áfram. Það borgar sig að fara sínar eigin leið- ir. En þar með erum við ekki að segja að við opnum einhveija mögu- leika fyrir Sykurmolana og öfugt. Til þess er tónlist okkar alltof ólík. Og þegar til lengdar lætur skiptir það sáralitlu máli fyrir hljómsveitir, frá hvaða landi þær era. Sykurmol- arnir þurftu í fyrstu að svara ná- kvæmlega sömu, oft á tíðum fárán- legu, spurningunum og við.“ Leitið þið frægðarinnar? „Ef frægðin felst í því að selja nógu mikið af plötum og spila á nógu mörgum tónleikum til að geta lifað af því, þá leitum við hennar. Við sjáum betur og betur hvað það er mikils virði að geta spilað á stór- um tónleikum, fyrir fólk sem metur músíkina. Við höfum engan boð- skap fram að færa, sem gerir okkur áhugaverða fyrir fjölmiðla, það er tónlistin sem blívur. Það er alveg ólýsanleg tilfinning að spila fyrir 30.000 manns á tón- leikum, en það er óneitanlega erfitt að halda athygli fólks í tvo tíma með leikinni tónlist. Við höfum oft undrast það hvað við höfum fengið góðar viðtökur. Og svo berast alltaf skemmtileg bréf. Víða era starf- ræktir aðdáendaklúbbar, til dæmis í litlum bæ í Noregi. Formaður klúbbsins á fjögur eintök af öllum Mezzoforte-plötunum og kom hing- að til að kaupa, ekki aðeins þær Mezzoforteplötur sem era ófáanleg- ar úti, heldur allar plötur þar sem okkar nöfn sjást.“ Ekki popphljómsveit Hljómsveitarmeðlimir vora bú- settir í Bretlandi í um eitt og hálft ár, til að fylgja eftir vinsældum Garden Party 1983-1984. Það lag fleytti þeim hærra upp á breska vinsældalistann en nokkram öðram íslenskum tónlistarmönnum, í 17. sæti. „Okkur var sagt að við yrðum að búa úti, annars þyrftum við að fljúga utan nokkram sinnum í viku. Þetta lag var vendipunkturinn á okkar ferli. En við gerðum okkur fljótt grein fyrir því að við pössuðum ekki inn í breska munstrið þar sem allt gengur út á að vera með lög á vinsældalista. Við hugsuðum ekki þannig og geram það ekki enn. Við hugsum frekar í stóram plötum en einstökum smellum, svo að þegar við áttum ekki Iengur neina smelli, þá hröpuðum við niður í Englandi. En í Þýskalandi, víðar á megin- landi Evrópu og á Norðurlöndum höfum við haldið vinsældum okkar. Þar snýst markaðurinn um stórar plötur. Eftir á að hyggja hefði ef til vill verið réttara að flytja t.d. til Danmerkur og einbeita sér að þeim markaði." Að fenginni þessari reynslu, ætl- ið þið þá jafnvel að flytjast til Þýskalands til að fylgja plötunni eftir? „Nei það hentar okkur ekki núna. Við voram alveg grænir þegar við fóram fyrst út í þetta, vissum ekk- ert hvað beið okkar. Við reyndum að spila þetta eftir eyranu og ætluð- um að sjá hvað kæmi út úr því. En svo gerðum við okkur grein fyr-, ir því að til að halda vinsældunum, yrðum við að gera stórvægilegar breytingar á tónlistinni og voram ekki á þeim buxunum. Við voram hálfmisskildir á þessum tíma. Okk- ar vinna snýst ekki um popp, við erum ekki leiðandi popphljómsveit.“ Model uti í kuldanum Hver er staða Mezzoforte hér heima, á tónlist ykkar erindi til landans? „Það er svo sorglegt, að hljóm- sveitir sem leika svokallaðan bræð- ing, selja sáralítið af plötum. Þar erum við engin undantekning, þó svo að við seljum alltaf eitthvað meira vegna þess að við eram ís- lendingar. Eftir að við komum að utan, 1984, höfum við sáralítið spil- að á tónleikum. Síðast var það í veitingastaðnum Evrópu sumarið 1987. Úti vöndumst við mun meiri íburði í tónleikahaldi en mögulegur er hér heima. Við höfum því tak- markaðan áhuga á því að leika hér.“ En hvað um popphljómsveitina Model, sem Friðrik og Gunnlaugur vora í og allir fjórir léku með? „Það var tilraun til semja og flytja sungna tónlist. Við sendum inn lag í söngvakeppnina og þetta átti ekki að vera neitt meira. Model átti aldrei að koma í staðinn fyrir Mezzoforte og Model er úti í kuldan- um núna. Við höfum allir unnið með öðram. Við höfum leikið undir á annarri hverri plötu sem hefur komið út hérlendis undanfarin ár í djassi og poppi. Það getur verið mjög gaman að leika góða popp- músík rétt eins og góðan djass, við viljum eiginlega hvoragu sleppa. Við höfum verið atvinnumenn frá því fyrir 1982 og það er nærri úti- lokað að lifa af spilamennskunni án þess að vera með puttana í nán- ast öllu, því miður. Það er slæmt að þurfa að tvístra sér svona.“ Neðanjarðarhljómsveit Fyrir tæpu ári komu félagamir á fót hljóðveri í Súðavogi; Mezz- musik. „Upphaflega var hugmyndin að nota það fyrst og fremst fyrir okkur sjálfa en það varð dýrara og veglegra en við ætluðum okkur í upphafi. Við þurftum því að grípa til annarra ráða til að fá pening í. kassann. Það hefur verið nóg að gera þetta ár sem stúdíóið hefur starfað, við höfum jafnvel þurft að hliðra til fyrir öðrum. Við tókum þá ákvörðun, að láta vinnu við nýju plötuna ganga fyrir og ætlum að reyna að fylgja henni vel eftir. Það hefur ekki heyrst í hljómsveitinni lengi og við höfum orðið töluvert varir við að fólk held- ur að við séum hættir. Mezzoforte er eiginlega orðin neðanjarðar- hljómsveit. Það hefur aldrei komið til tals að hætta en við fengum nóg af tónleikaferðum eftir árið úti, ’83-’84, þá héldum við t.d. 47 tón- leika á 49 dögum í Englandi einu saman. Okkur væri í lófa lagið að spila á tónleikum allt árið.“ Eins konar þjóðflokkur Strákarnir hafa spilað víða, m.a. í Japan, „sællar minningar". Þeir ségjast hafa tapað nokkra af vin- sældum sínum þar, eins og víða annars staðar, þó þeir séu síður en svo gleymdir og grafnir. „Reyndar er Japan geysilega sterkur markað- ur fyrir leikna tónlist. Þar eru leik- in lög oft í efstu sætum vinsælda- lista og þess era dæmi að snúið hafi verið við baki við instrament- í Mama Joe’s Frá upptöku og hljóðblöndun Play- ing for time í Mama Joe’s hljóðver- inu í Los Angeles. Fjöldi valin- kunnra hljóðfæraleikara lék með á plötunni, þeirra á meðal saxónfón- leikaramir Larry Williams, Steve Tavaglione og Emie Watts sem er án efa þekktastur þeirra. Hann ber hér saman bækur sínar við Friðrik og Eyþór. Og ekki vora upptöku- stjóramir færri. Hér er skálað fyrir þeim Erik Persing upptökustjóra og Erik Zobler hljóðstjóra. al-hljómsveitum sem hafi verið með einhveijar popppælingar. Því von- um við að Japanarnir taki vel í nýju plötuna okkar, þeir vora ekki hrifnir af plötunum sem var sungið á. Við höfum reynt að haga ferða- lögum þannig að við séum ekki of lengi í einu í burtu. Þetta er eins og að skreppa á vertíð. Tónleika- ferðalög henta okkur illa, við eram allir fjölskyldumenn. Frissi á tvo fiska, við' hinir eigum böm. Þetta er stór vinahópur, einhverskonar þjóðflokkur. Ég held að það sé mjög óvenjulegt að menn haldi saman í tíu ár, án þess að hata hvern annan meira eða minna. Við höfum þolað hvem annan tiltölulega vel.“ Ekki hægt að hætta Frissi skýtur því inn í að hann sjái tilverana ekki fyrir sér án Mezzoforte. Segist einu sinni hafa ætlað að hætta en ekki getað það. Og þó að félagar hans geri grín að ummælum hans, geta þeir ekki annað en samþykkt þau. „Þetta er eins og hjónaband, það var erfitt í kringum sjöunda árið og 21. árið verður kannski strembið. Það kæmi okkur ekki á óvart þó að við gætum haldið áfram í tíu ár í viðbót. Við tímum ekki að sleppa þessu tækifæri sem við höfum til að spila og gefa út plötur. Að hafa verið í lausamennskunni hér heima eykur skilning okkar á því hvað svona samningur erlendis er mikils virði. Allur peningurinn sem hefur verið lagður í þetta, öll ferðalögin, öll vinnan, hefur skapað okkur svo sterkan grann, sem hljómsveitin stendur á. Þar sem við viljum búa heima, verðum við að spila með hinum og þessum. En það væri hreint ekki freistandi að stofna popphljómsveit hérlendis eins og ástandið er nú. Söluhæstu plötumar era að meija 5-6000 eintök en flest- ar mun minna. Og að þurfa að eyða flestum helgum í að spila. Við erum því óskaplega þakklátir fyrir að fá tækifæri til að gera plötur eftir eig- in höfði.“ Skvaldrið og glasaglaumurinn hefúr náð hámarki og lögreglan er farin með slagsmálahundana. :

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.