Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 11
- MORGUNBLAÐK) MAIMNLIFSSTRAUMAR SÖSnUDAGUR 15. JANÚAR 1989
nc oti
^JXXBSWL/Skammgóður vermir við ímyndaðarglceðurf
Hvað er eftir?
inni, átti erindi við mig. Ég hygg
að það eigi líka erindi við þig, sem
lest þessar línur. -■
Hin kristnu jól eru fædd af yfir-
þyrmandi áhrifum frá þeini
manni, sem María fæddi í Betle-
hem. Þau eru lauf í þeim sveig,
sem þakklætið og lotningin hafa
fléttað um höfuð hans. Þau eru
andsvar við vitnisburði hans um
sjálfan sig: Ég er ljós heimsins,
sá sem fylgir mér, mun ekki
ganga í myrkrinu, heldur hafa ljós
lífsins. Kristin reynsla aldanna er
svar við þessum vitnisburði. Svar-
ið er lofgjörð, boðun og þjónusta
kristinnar kirkju, hátíðir hennar,
tilbeiðsla hennar á jólum og
endranær, hver bæn í nafni Jesú,
hvert viðbragð og viðvik í daglegu
lífí, sem stjómast af anda hans.
En vinur minn og margir fleiri
á er allt tilstandið búið í þetta
sinn. Og hvað er svo eftir?“
Það var þreytuleg ögrun í rödd-
inni, sem flutti þessi orð. Margt
fleira var sagt. En þetta var upp-
hafíð. Og eins
konar stef í því
máli, sem síðan
kom. Jólin voru
að baki. Nýárs-
nóttin var líka
liðin, hvellir
eftir dr. Sigurbjörn hennar og gloss-
Einarsson ar týndir mn í
gráan vetrar-
geim. Hin margrædda kreppa árs-
ins 1988, „þrengingar" fólksins í
þessu landi, yfirvofandi þjóðar-
gjaldþrot og annað ískyggilegt,
sem setti svip á þjóðmálaumræðu
liðins árs, híaut sína sérkennilegu
áréttingu með sprengjuhátíð upp
á hundrað milljónir um leið og
þetta hallærisár var kvatt. Hvað
skilur sá fagnaður eftir?
Sú sppurning var reyndar ekkert
rædd í því samtali, sem ég vár
að vitna til. Símagestur minn var
að hugsa um jólin. Hvað er eftir,
þegar söngur þeirra er á enda,
og ljósin þeirra slokknuð? Hvað
er eftir af þeim orðum, sem voru
lesin og sungin í öllum áttum:
Frelsari fæddur, friður á jörðu, í
myrkrum ljómar lífsins sól? Hvað
er eftir af þeim andblæ annars
og bjartari heims, sem hafði svif-
ið um byggðir og gert flesta vara
við sig á einhvern hátt? Hvað
þýðir þetta árlega tilstand, sem
er kennt við jól og tengt fæðingu
Jesú frá Nazaret?
Ég rek ekki samtalið. En það sem
spyijanda mínum lá á hjarta innst
spyija: Hvað er að marka þetta?
Hvað eru jólin annað en „til-
stand“, innihaldslaust skraut?
Hvað eru þau annað en leikur til
upplyftingar í þungbúnu skamm-
degi, skammgóður vermir við
ímyndaðar glæður, hverfult glit á
hjarni lífsins, gælur við fallegt en
bamalegt ævintýri, sem rétt í svip
tekur hrollinn úr hröktum og köld-
um í hráslagalegum heimi?
Nú er ég ekki að tala um sjúklega
bólgin umsvif nútímans í kringum
jólin. Það er mál fyrir sig. Ég
spyr í orðastað þeirra, sem kunna
að velta því fyrir sér í alvöru,
hvað sé satt í því máli, sem krist-
in trú hefur að flytja og snýst
allt um „frelsun mannanna, frels-
isins lind, frumglæði ljóssins".
Ég skil þá, sem spyija heilum
huga. En á bágt með að skilja
hina, sem geta hugsunarlítið eða
sinnulaust látið boðskap kristinn-
ar trúar fara sem vind um vit sín.
Um leið og ég þakka það símtal,
sem ég átti á dögunum, vil ég
taka fram, að mér væri kært að
fá spumingar til meðferðar í þess-
um dálkum Morgunblaðsins. Ég á
ýmislegt ósagt um það, sem hér
er drepið á í þetta sinn. En þetta
segi ég að lokum núna: Vakandi
efi er betri en sofandi samsinning.
Spyijandi, forvitinn, einlægur efí
er samboðnari þér og Kristi og
færir þig nær honum en átaka-
laust og dautt já og amen.
TÆKNI/ Geta tölvumar ekið fyrir
okkur?
Bíll næstu
áratuga
Bíll næstu áratuga verður fyrst
og fremst bensínbíll, drifinn
áfram af kerfi sem var í grundvall-
aratriðum hannað um 1860. Það
er fjórgengisvélin sem er kennd við
Daimler hinn
þýska. Bensín úr
jarðolíu verður að
öllum líkindum
fyrir hendi fram
undir miðja næstu
öld, þannig að sé
horft tiltölulega
skammt fram á
við, verða breyt-
ingar fyrst og fremst bundnar við
rafkerfí, sem vinnur að því að auka
öryggi og þægindi. Einnig verður
beiting vélaraflsins miklu nákvæm-
ari en nú er. Meginhluti vagnsins
bflum. En við þetta bætist að tölvu-
stýrð fjöðrun verður til að létta á
þunga þess hjóls sem hæst er und-
ir hvetju sinni. Með slíkri fjöðrun
geta bílar hreinlega „vippað sér
yfír“ ójöfnur, svo sem gijót. Væri
ekki þörf fyrir slíkt á íslenskum
malarvegum? Sé ekið hratt eftir
þannig vegi í dag, kann að vera
að bílstjórinn geti varla haldið um
stýri bílsins. Með hinni nýju fjöðrun
finnur hann aðeins nema vægan
titring.
Hins vegar er það fjarlægur og
óraunhæfur draumur að geta sest
inn í bfl, matað tölvu á upplýsingum
um ákvörðunarstað og látið hana
um að aka. Til þess er áhættan of
mikil. Eigi það kerfi að starfa rétt,
þarf tækið að vera í lagi og upplýs-
eftir Egil
Egilsson
verður áfram úr stáli. Fjögur hjól
á gúmmíhjólbörðum, en án vara-
hjóls, því að í hjólbörðunum verða
að líkindum efni sem fylla í minni-
háttar skemmdir.
Öryggið og þægindin felast fyrst
og fremst í stjórnun afls, hemla og
fjöðrunar. Tvennt getur orðið til að
hjól missi grip á undirlagi. Annars
vegar að afl vélarinnar verði til að
hjólið „spóli“. Hins vegar ef hemlað
er of snöggt. Hvort tveggja verður
komið í veg fyrir framvegis. Full-
komið kerfí nema í tengslum við
tölvu stýrir aflinu á þau hjól sem
best grip hafa. Eins verður það til
að draga úr hemlun hvenær sm
hjól nálgast að „skrensa". Reyndar
eru hlutar þessara kerfa þegar fyr-
ir hendi í nýjum og fullkomnum
ingarnar sem það fær, að vera rétt-
ar. Ef ekki, er áhættan of mikil.
Eigi það kerfi að starfa rétt, þarf
tækið að vera í lagi og upplýsing-
arnar sem það fær, að vera réttar.
Ef ekki, er áhættan of mikil. Örugg-
ara verður lengi enn að láta ekilinn
um að aka. A hinn bóginn getur
rafeindatæknin orðið til að hjálpa
honum við aksturinn. Innrauð
myndavél getur gefið honum betri
sýn til vegarins en augun, sé
skyggni slæmt. Eins getur tölvan
tekið við upplýsingum frá gervi-
tunglum, um ástand umferðar, og
valið bestu akstursleiðina. Hún get-
ur einnig kippt í hemlana ef ekillinn
nálgast næsta bíl fyrir framan um
of.
Hvar finnur þú
pappírinn?
VELKOMINN TIL ASIACO
ÞJÓNUSTU MIÐSTÖÐVAR
FYRIR TORK VÖRUR!
Asiaco hf, er alltaf reiöubúiö að þjóna þeim sem á
uíll ' ' '
wiuvv IBI? v 1 uniui ivivuuuiu uv m vi iu pvun oviii u
jurfa aö halda. Viö státum af fuílkomnu úrvali af
og bægilegum TORK-pappír og
skommturum fyrir allar atvinnugreinar og einstakl-
inga, ekki einungis fyrir núverandi viöskiptavini
kkar heldur einnig fyri
/rir nýja sem vilja reyna
okkar heldur einnig
&jónustuna.
anti þig pa
viö okkur a<
lega á óvart. Víð getúm afgreitt
pappír: handburrkur, í rúllum og samanbrotnar; wc-
{tappír og aílar geröir af iðnaðarþurrkum. Nú er
ækifæri til aö reyna hinn eina sanna TORK-pappír
frá Asiaco hf, þjónustumiöstöö TORK á Islandi.
iaco hf
Vesturgötu 2, Pósthólf 826, 121 Reykjavík.
Sími: 91-26733. Telex: 2164 ASIACO IS. Fax: 91-623696