Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 C 9 Afinæliskveðja: Hallgrímur Guðjóns- son fv. bóndi í Hvammi Frændi minn og vinur Hallgrímur Guðjónsson er sjötugur í dag, 15. janúar. Hallgrímur fæddist í Hvammi í Vatnsdal5 sonur þeirra merku hjóna Rósu Ivarsdóttur og Guðjóns Hallgrímssonar. Bæði voru þau hjón af húnvetnsku bergi brot- in, komin af traustu og dugmiklu bændafólki. Fyrstu kynni mín af Hvammsheimilinu voru þegar mér ungum var boðið að dvelja þar á meðan ég sótti skóla á næsta bæ, Eyjólfsstöðum. Þessi tími minn í Hvammi er mér minnisstæður. Heimilið var mannmargt. Böm þeirra hjóna mörg og myndarleg og stundum fyrirferðarmikil. Þegar átök urðu á milli þeirra sagði Guð- jón: „Þið verðið að standa ykkur, því að lífið er barátta." Ég tók eft- ir því að Guðjón brosti stundum þegar þau yngri stóðu vel í þeim eldri. Guðjón var í eðli sínu baráttu- og kjarkmaður, myndarlegur á velli og bar sterkan persónuleika. Maður sem tekið var eftir. Rósa var hins vegar hæglát og róleg. Hún gekk hægt um dyr, vann verk sín í kyrr- þey og vildi allt bæta, en gat verið ákveðin og föst fyrir þegar því var að skipta. Afmælisbamið Hallgrímur finnst mér að hafi erft kosti foreldra sinna. Hann er hægur og yfírvegaður, traustur og framfarasinnaður og býr vel að sínu. Er minnugur og segir vel frá liðnum atburðum. Hallgrímur aflaði sér nokkurrar menntunar. Hann var einn vetur í Reykholtsskóla og einn vetur á Hvanneyri. Þaðan útskrifaðist hann búfræðingur árið 1941. Hallgrímur mun snemma hafa hugsað sér bú- skap sem lífsstarf og hálflenduna af Hvammi keypti hann af föður sínum árið 1945. Þá hafði Guðjón keypt Marðamúp 15 ámm áður og búið á báðum jörðunum. Hallgrímur sýndi fljótt að hann var- búhöldur góður. Hann ræktaði jörð sína og byggði upp hús, svo að Hvammur varð fljótt með best setnu jörðum sveitarinnar. Hallgrímur kvæntist Sigurlaugu Fjólu Kristmannsdóttur frá Hlöð- versnesi á Vatnsleysuströnd árið 1952.: Fjóla, eins og hún er jafnan kölluð, er myndarleg og dugmikil kona, sem staðið hefur fast við hlið manns síns í blíðu og stríðu. Heim- ili þeirra í Hvammi var hlýlegt og myndarlegt. Þangað var gott að koma og af fundi þeirra hjóna fór maður glaðari og bjartsýnni en áð- ur. Ekki gat Hallgrímur komist hjá því að taka að sér opinber störf fyrir sveit sína. Hann sat lengi í hreppsnefnd og var hreppstjóri í mörg ár og gegndi auk þess ýmsum öðrum nefndarstörfum. Mér er sagt að þessi störf öll hafi hann leyst vel af hendi og verið maður sátta og samkomulags. Fjóla og Hallgrímur eiga þijár dætur. Rósu, verslunarskóla- gengna, gifta Gísla Ragnari Gísla- syni, prentara. Þuríði, gagnfræð- ing, en sambýlismaður hennar er Finnbogi Kjartansson, tónlistar- maður, og Margréti, hárgreiðslu- meistara, en sambýlismaður hennar er Gunnar Jónsson, bifvélavirki. Fjóla átti dreng áður en þau Hallg- rímur giftust, Hafstein Gunnarsson, sem er stúdent og vinnur hjá Hag- virki. Árið 1984 fann Hallgrímur fyrir heilsubresti sem leiddi til þess að hann varð að hætta búskap. Þau hjón seldu jörð sína og bú árið 1985. Það voru Hallgrími þung spor að geta ekki lengur stundað lífsstarf sitt. En honum var það viss gleði í þeirri raun að geta litið yfir jörð sína og bú og séð hverju hann hafði fengið áorkað á búskaparárum sínum, hve framkvæmdimar höfðu verið miklar og allt skuldlaust. Þau hjónin Fjóla og Hallgrímur fluttu til Reykjavíkur og keyptu stóra og bjarta íbúð á Flyðrugranda 14. Þessari íbúð hafa þau breytt og lagfært hana. Það er eðli sumra að bæta allt og fegra. Þama eiga þau fallegt og hlýtt heimili eins og í Hvammi. Þangað er gott að koma og jjar er gestkvæmt. Eg veit að hugur Hallgríms leitar oft norður yfir fjöllin, en hann á stórt bókasafn sem þekur marga veggi og hugur hans dvelur oft við. Þá hefur Hallgrímur látið mála tvö málverk af Hvammi. Þau hvfla líka ferðaþrá hugans. Bækur Hallgríms em vel innbundnar og margar þeirra geyma fróðleik sem gefur innsýn í fyrri tíma. Já, Hallgrímur hefur átt mörg áhugamál. Eins og ég sagði fyrr hugsar Hallgrímur oft norður. Við frændur höfum farið saman margar göngu- ferðir. Á síðastliðnu vori gengum við á Valhúsahæð á Seltjamamesi. Sól skein í heiði og andblær var af norðri. Hugur okkar leið yfir fjöll og heiðar og niður í Vatnsdal þar sem vagga okkar stóð. Heill þér sjötugum, Hallgrímur. Guðlaugur Guðmundsson Hallgrímur og Fjóla taka á móti gestum í dag í Átthagasal Hótels Sögu frá kl. 16.00 til 19.00. VERSLUNARHUSINU MIÐBÆR HÁALEITISBRAUT 58-60 S: 38050 105RVK. Sopho K12 símakerfið: Ekki of lítið — ekki of stórt Shopho K12 símakerfið frá Philips gerir stórum og smáum fyrirtækjum kleift að festa kaup á fullgildu símkerfi sem er hvorki of lítið né óþarflega stórt. Sopho K12 býður upp á réttu útfærsluna sem hentar hverjum og einum. • Allt að 5 bæjarlínur. • Allt að 12 innanhússlínur. • Samtenging á innanhússlín- um og einni bæjarlínu (símafundur) • 80 númera minni með skammvali • Flutningurá bæjarsímtali milli innanhússlína. Hátalari og hringing án heyrnartóls Rafhlaða fáanleg sem heldur kerfinu gangandi þrátt fyrir straumrof Fjöldi annarra möguleika sem vert er að kynna sér hjá sölumönnum okkar. Skjásímar, er sýna skilaboð. Sopho K1 Lítið en öflugt Hér er simakerfiö fyrir verslanir, skrifstofur og lítil fyrirtæki. 1 bæjarlína og 3 innanhússlínur. Sopho K1 býður marga möguleika sem stærri og mun dýrari símakerfi hafa aðeins boðið hingaðtil. Bjóðum mikið úrval vandaðra símakerfa og símstöðva í öllum stærðum og gerðum Heimilistæki hf Tæknideild • Sætúni8 SÍMI.69 15 00 l/tie/uwoSveájya/tÉegikí saMouttgtm, Áskriftarsíminn er 83033 85 40

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.